Morgunblaðið - 21.12.1980, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1980
SKYRTUR
BINDI
SOKKAR
HANZKAR
PEYSUR
NÁTTFÖT
SLOPPAR
SKÓR
SNYRTIVÖRUR
INNISKÓR
FÖT
FRAKKAR
HATTAR
S
VANDAÐAR
0G ^
HUFUR
TREFLAR
GOÐAR JÓLAGJAFIR FRÁ
HEJR RA D E I L D
Demantshringar —
Draumashart
Kjartan Ásmundsson,
gullsmíðav.
Aðalstræti 8.
Ljósir blettir
Ný Ijóðabók eftir Margréti Jónsdóttur frá Búrfelli.
Tilvalin vinargjöf.
Fæst m.a. á skrifstofu KFUM og K í Reykjavík.
Útgefandi.
33
Athugasemd
Heiðraði ritstjóri.
Eftirfarandi athugasemd er hér
með^erð við frétt Mbl. 11/12 á bls.
17, Akærður fyrir að rækta hass-
plöntur.
Það fyrsta sem ég rak augun í
var setningin: „Er maðurinn
ákærður fyrir brot á fíkniefnalög-
um og til að sæta upptöku á
plöntunum og leifum þeirra.“
Þessi setning gefur í skyn að um
einhverjar leifar af piöntum hafi
verið að ræða og þar með að ég
hafi neytt áðurnefndra plantna.
Það er ósannað mál enda býst ég
við að starfsmenn fíkniefnadeild-
ar geti staðfest að þær plöntur
sem gerðar voru upptækar á
heimili mínu voru allar heilar
þegar lagt var á þær haid. Enda
voru plöntur þessar ætlaðar til
þess að mynda skjólvegg í garði
við íbúð mína, ekki til neyslu þar
sem mér finnst feikinóg að nota
tóbak.
Þá kemur að mál þetta sé hið
fyrsta sinnar tegundar og segir
það sína sögu. Það er sönnuð
vísindaleg staðreynd að meðan
plantan Cannabis sativa Linnéaus
er lifandi er hún ekki áhrifavald-
ur. Hvað gerist ef svo óliklega
skyldi fara að ég verði sýknaður af
ákæru um fíkniefnamisferli?
Verður þeim sem þegar hafa verið
sektaðir fyrir ræktun borgað til
baka? Það skal tekið fram að áður
en ég hóf ræktun las ég bæði lögin
um ávana- og fíkniefni frá 1974 og
reglugerð nr. 390 skv. áðurnefnd-
um lögum og var mér ómögulegt
að sjá að blómarækt væri bönnuð
skv. áðurnefndum lögum og reglu-
gerð.
Þá segir að sami maður hafi
nýlega samið „og látið gefa út“
bók o.s.frv... Ja, það er sannar-
lega auðvelt að vera skríbent á
Mbl. Maður bara skrifar bók og
labbar með hana til útgefanda og
lætur hann gefa bókina út. Sann-
leikurinn er nú samt sá að þegar
Kím tók að sér útgáfu á bókinni
höfðu tveir útgefendur hafnað
henni og hafa þeir sjálfsagt haft
gildar ástæður fyrir nei-inu. Þá
segir að bókin verði lögð fram sem
gagn í máli ákæruvaldsins gegn
höfundinum. Það verð ég að eiga
við ákæruvaldið um, en ég hélt
satt að segja að ég hefði verið
ákærður fyrir fikniefnamisferli
(blómarækt) en ekki fyrir að
skrifa bók og hafa skoðun sem ég
þori að standa við hvar og hvenær
sem er.
Þá segir að fyrrnefnd bók hafi
verið auglýst á kynningartöflum í
skólum borgarinnar og þykir mér
það miður. Eins og glöggt má sjá á
lestri formála bókarinnar er hún
ekki ætluð til þess að hvetja til
neyslu fíkniefna. Það áttu sér stað
umræður milli mín og útgefenda
bókarinnar þar sem rætt var um
auglýsingar. Þar var komist að
þeirri niðurstöðu að bókin skyldi
ekki á neinn hátt auglýst og var
höfundur þó tilbúinn með 2 10 sek.
sjónvarpsauglýsingar. Þá var
einnig rætt um að setja aldurstak-
mark á sölu bókarinnar og miðað
við kosningarétt. Það var þó horf-
ið frá því þar sem bæði höfundur
og útgefendur töldu að bókin væri
ekki mannskemmandi eins og
margar aðrar bækur sem á boð-
stólum erum a.m.k. er ekki kennt í
þessari bók hvernig það á að drepa
fólk og limlesta. Því miður getum
við, höfundur og útgefandi, ekki
gert að því þótt einhverjir festi
upp auglýsingar um bókina í
skólum borgarinnar en við getum
þó lofað því að við munu ekki láta
frá okkur fleiri kápur til kynn-
ingarstarfsemi.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna.
Þorsteinn Úlfar Björnsson,
kvikmyndagerðarmaður.
Jólapenni
allt árið
Ein fallegasta og nytsamasta jólagjöf,
sem hægt er að hugsa sér, er penni; —
fallegur penni frá Pennanum; jólapenni, sem
endist allt árið, mörg ár.
Skoðið úrvalið í verzlunum okkar.
HAFNARSTRÆTI 8 HALLARMÚLA 2
LAUGAVEGI 84