Morgunblaðið - 21.12.1980, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1980
5
Út og suður kl. 10.25:
Móseyjarborg er mikiö mannvirki, reist um eða fyrir Krists burð.
haglega hiaðið úr steinhellum. Það er á Mósey á Hjaltlandi,
skammt frá Jarlshofi. Turninn stendur þarna enn niðri við
ströndina eins og hann stóð þar, þegar fyrstu víkingaskipin sigldu
inn á flóann til að leita vars fyrir 1100 árum.
Á slóðum Orkneyingasögu
Á dagskrá hljóðvarps kl. 10.25
er þátturinn Út og suður í umsjá
Friðriks Páls Jónssonar. Dr. Finn-
bogi Guðmundsson segir frá ferð
til Skotiands, Hjaltiands og
Orkneyja í júni í sumar.
— Þetta var ferð sem Norræna
félagið efndi til og ég var beðinn
um að vera fararstjóri. Við fórum
16 saman og flugum fyrst til
Glasgow. Héldum við þaðan til
Aberdeen með viðkomu í St. And-
rews. Eftir nokkra dvöl í Aberdeen
sigldum við norður til Leirvíkur á
Hjaltlandi. Síðan var ferðast um
Hjaltland þar sem margt og mikið
var að sjá á söguslóðum. Þá var
flogið til Orkneyja og dvaldist þar í
þrjá daga. Þaðan var svo farið yfir
til Norður-Skotlands og ferðast um
í bíl í einn dag, á milli sögustaða
sem tengjast Orkneyingasögu.
Sigldum við síðan frá Scrabster
norður til Færeyja, og dvöldumst
þar í 5 daga, en frá Færeyjadvöl-
inni vannst ekki tími til skýra í
Dr. Finnbogi Guðmundsson
þessum þætti.
Það er nú erfitt að gera upp á
milli, hvar skemmtilegast hafi ver-
ið að koma við, en ég hafði mjög
gaman af að koma í Móseyjarborg,
sem bæði er getið um í Egils sögu
og Orkneyingasögu. Móseyjarborg
hefur verið eins konar varnarvirki
á eyjunni Mósey austur af lijalt-
landi, hlaðið úr steinhellum og við
það miðað að þar væri hægt að
hafa langa setu, þreyta af sér
umsátur. I Orkneyingasögu er sagt
frá umsátri um Móseyjarborg, þar
sem umsátursmenn urðu loks frá
að hverfa, og benda líkur til að
höfundur Egils sögu hafi stuðst við
frásögn Orkneyingasögu af þessu
atviki, þegar hann lét Björn Brynj-
ólfsson, er nam á brott úr Noregi
Þóru hlaðhönd, hafa þar vetursetu
á leið þeirra til fslands.
Stundin okkar:
75 ár frá fæð-
ingu Stefáns
Jónssonar
rithöfundar
Á dagskrá sjónvarps kl.
18.00 er Stundin okkar í
umsjá Bryndísar Schram.
Stjórn upptöku annaðist
Tage Ammendrup.
I þættinum verður þess minnst
að hinn 22. desember eru liðin 75
ár frá fæðingu Stefáns Jónssonar
rithöfundar. Vilborg Dagbjarts-
dóttir talar um Stefán og starf
hans. Nemendur úr Austurbæj-
arskóla sýna leikrit Stefáns um
strákinn með skrópasýkina.
Þá mun jólasveinninn koma í
bæinn og heimsækja skólabörn og
farið verður í Melaskólann, þar
sem skólakórinn er að æfa jóla-
söngva.
Stetán Jónsson
ABRAKADABRA
Mismun-
andi notkun
raddarinnar
Á dagskrá kl. 17.40 er
ABRAKADABRA - þátt-
ur um tóna og hljóð. Um-
sjón Bergljót Jónsdóttir og
Karólína Eiríksdóttir.
— Við munum í þessum
þætti fjalla um mismunandi
notkun raddarinnar, sagði
Bergljót Jónsdóttir, og hlýð-
um á tónlist: rímur, blús og
eldra og yngra popp í því
skyni að kanna raddbeit-
ingu. í þessum næstsíðasta
þætti skreppum við einnig í
tónferðalag til Asíu.
ATH. Pílu Pínu platan er uppseld,
en kemur aftur fyrir jól.
Örn og Örlygur
kl.3ídag
pmuhátíð
'iywffod
Söngvarnir um litlu músina Pílu Pínu
fara nú sigurför um landið. í tilefni
þess hve góðar viðtökur Píla Pína
hefur fengið, hefur hún ákveðið að
stytta börnum biðina eftir jólunum,
og mun koma fram í Hollywood
dag. kl. 3 . f fylgdarliði Pílu Pínu
veróa landsþekktir listamenn, sem
staðið hafa að gerð plötunnar:
Ragnhildur Gísladóttir, Margrét
Helga Jóhannsdóttir, Magnús Kjart-
ansson, Haraldur Þorsteinsson og
Ragnar Sigurjónsson.