Morgunblaðið - 21.12.1980, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1980
15
hans hefur verið fangelsaður
fyrir að reyna að koma sér
undan herþjónustu. Með því að
láta sem mest á sér bera telur
Kortsnoj sig styrkja stöðu sína
gagnvart Kremlherrunum.
Þeir, sem minnast Ko'rtsnoj
frá heimsmeistaraeinvíginu í
Baguio-borg á Filipseyjum, þar
sem hann hafði allt á hornum
sér, fána og flögg, jógúrt og
dulsálfræðinga, telja hann lík-
lega fremur stirðan í umgengni.
Það er líka alveg rétt. Gagnvart
vinum sínum er hann þó hinn
skemmtilegasti félagi, kátur,
kíminn og örlátur. Hins vegar
krefst hann af þeim algers
trausts og heiðarleika. Ef hann
hefur grunsemdir um annað
breytist vináttan fljótt í fullan
fjandskap.
Á sama hátt og slettist upp á
vinskapinn með þeim Wilfried
Hilgert og Kortsnoj, þannig fór
einnig með samstarfið við Ray-
mond Keene. Uppgjörið milli
þeirra fór fram á Olympíumót-
inu 1978, í hótelanddyri í Buenos
Aires, og líklega mun Keene
seint gleyma ásökununum og
formælingunum, sem Kortsnoj
dembdi yfir hann. Sannleikur-
inn er sá, að Kortsnoj skiptir
jafn oft um aðstoðarmenn og
lélegt knattspyrnulið skiptir um
þjálfara. Aðeins einn maður
hefur lifað hreinsanirnar af, en
það er breski stórmeistarinn
Michael Stean, sem er Kortsnoj
til halds og trausts í Meran
þessa dagana. Auk Steans hefur
Kortsnoj svo kvatt til sín banda-
ríska stórmeistarann Yassir
Seirawan, sem er aðeins tvítug-
ur að aldri.
Það, sem fyrir Hubner vakir
með skákinni, er aðeins eitt: að
ná sem mestri fullkomnun.
Markmiðið hjá Kortsnoj er hins
vegar miklu einfaldara: að sigra.
Kortsnoj nærist á óvildinni og
spennunni milli sín og andstæð-
ingsins og þegar höfð eru í huga
tengsl Hiibners við Hilgert og
Keene er engin hætta á að hann
fái ekki sinn skammt vel úti
látinn.
Að reyna að spá fyrir um
úrslitin í viðureign þessara
stórmenna í skákinni er með
öllu ómögulegt. Þegar mikið er í
húfi geta úrslitin oltið á skap-
styrk keppendanna, sá sigrar,
sem lætur ekki taugaveiklunina
ná tökum á sér. Báðir stunda
þeir Hiibner og Kortsnoj lík-
amsæfingar af kappi og eru vel
á sig komnir, en e.t.v. mun
Kortsnoj nú loksins kenna ald-
ursins. Hann er að verða fimm-
tugur og á þeim aldri mega
flestir skákmenn muna sinn
fífill fegurri.
Hvort sem það verður Hubner
eða Kortsnoj sem hrósar sigri í
Meran er þó enn eftir erfiðasti
þröskuldurinn, sjálfur heims-
meistarinn Anatoly Karpov.
Karpov er ekki mikill fyrir
mann að sjá, veiklulegur, með
fitugt hár og gull í tönnum, en
við skákborðið er hann ekki
einhamur og sigurlöngun hans
er óseðjandi.
Sagt hefur verið um Karpov
að hann sé litlaus skákmaður,
sem kann að vera rétt, en
skákstíll hans er líka þeim mun
árangursríkari. Hann tekur
sjaldan áhættu og honum verða
á fá mistök. Hann bíður átekta
eftir afleik andstæðingsins en er
þá heldur ekki seinn á sér að
láta til skarar skríða.
Árið 1970 sagði sovéskur
stórmeistari um Karpov, að
hann „væri allt of veiklulegur til
að ná langt í skákinni". Hann
reyndist hafa rangt fyrir sér í
því. Karpov er enginn veifiskati
hvað skapstyrkinn snertir og
það mun koma mér á óvart ef
hann verður ekki enn heims-
meistari þegar árið 1981 er liðið
í aldanna skaut.
SINGER
URA
Sjálfvirk hnappagöt.
Festir tölur.
Sjálfvirk spólun
í gegnum nálina.
Frjáls armur eöa
fast flatborð.
, LEIKUR ÞU
FOIGANGANDI
IOLASVEIN
UM ÞESSIJÓL?
Farið þið í heimboð á annan?
Geysist með gjafirnar
um allan bæ? Og greinar á leiði í leiðinni?
Allt betta getum við auðveldað.
Við bjóðum þér framhjóladrifinn bíl
til einkaafnota á sérstökum iólaafslætti.
LOFTLEIBIR BILALEIGA
®“21190
GYLMIR ♦ GAH 5.4