Morgunblaðið - 21.12.1980, Síða 19

Morgunblaðið - 21.12.1980, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1980 23 Birgir IsL Gunnarsson: Pólitík — eða heimska „Þetta er ekki pólitík — þetta er heimska". Þessi orð gengu í hvíslingum á milli ýmissa stjórnarþingmanna, þegar þeir nauðugir viljugir höfðu gengið til þess leiks á Alþingi að samþykkja frum- varp ríkisstjórnarinnar um sérstakan skatt á innlent sælgæti og gosdrykki. Nokkur spenna ríkti í sölum Alþingis, þegar mál þetta kom til atkvæðagreiðslu í Neðri deild. Vitað var að sumir þingmenn stjórnarliðsins voru sár- óánægðir með þennan nýja skatt og spurningin var sú, hvort einhverjir þeirra myndu brjótast undan aga stjórnarliðsins. Svo reyndist ekki vera. Sá sem lengst gekk í þá átt, Guðmundur G. Þór- arinsson, lét sér nægja að lýsa yfir andstöðu sinni, en sat hjá í atkvæðagreiðslunni og tryggði með því framgang þessa óvinsæla máls. Þessi nýi skattur felur í sér að lagt er 7% vörugjald á sælgæti og 30% vörugjald á öl og gosdrykki. Bæði iðnrek- endur og starfsfólk í þessum iðngreinum hafa látið í ljós mikinn ugg vegna þessa máls. Um 400 Iðjufélagar sendu Alþingi áskorun um að sam- þykkja ekki þetta gjald, enda óttast fólkið að gjaldið hafi í för með sér samdrátt í fram- leiðslu og því atvinnuleysi hjá þeim, sem þessa atvinnu stunda. Allt þetta mál ber vott um ótrúlegt ráðleysi. Á sl. sumri var talið að sælgætisiðnaður stæði höllum fæti vegna sam- keppni við innflutt sælgæti. Þá setti ríkisstjórnin bráða- birgðalög, sem áttu að bæta þessa erfiðu stöðu. Nú er blaðinu allt í einu snúið við. Nú er staða sælgætisiðnaðar talin vera svo góð að rétt sé að leggja sérstakan aukaskatt á þessa iðngrein. í rauninni skilur enginn nema e.t.v. ráð- herrarnir, hvaða hugsun ligg- ur hér að baki. Þetta nýja gjald mun hækka verð á innlendu sæl- gæti og gosdrykkjum. Sú verðhækkun gerir þessar vör- ur síður samkeppnisfærar við innfluttar vörur. Það er því líklegt að Sala á innlendu framleiðslunni dragizt sam- an. Þetta nýja gjald mun einnig hækka vísitöluna um 0,26%, en það mun hækka launagreiðslur í landinu um allt að 3 milljörðum króna. Þessi skattur er því verð- bólguhvetjandi og því enn óskiljanlegra hjá ríkisstjórn, sem í orði segist vilja baráttu gegn verðbólgu. Þáttur Alþýðubandalagsins í þessu máli er með eindæm- um. Þegar hundruðir félaga í Iðju, félagi verksmiðjufólks, leita til forystumanna Al- þýðubandalagsins með beiðni um að þessi skattur verði ekki lagður á og að málið verði athugað betur, þá er þessu fólki tekið með hæðnissvip. Og einn þingmanna Alþýðu- bandalagsins lætur sig hafa Eggert Haukdal: Veit ekki hvort ég get sætt mig við að hafa gert þetta II U IH i-kki hurirt , turK hmrt rx m-ri a mnti þr-.«u frum«arpi. en ck kiI þu -.aKt þaö. art ck *ar iik ir ekkl hrifinn af þessu mali." *aKÓi K.KKrrt llaukdal alþinKÍ>maA ur i samlali \IA MurKunhlaAIA. en hann \ar >purAur um a>taiV ur þe-s. aA hann Kr.iddi at k\»Ai mcA frumxarpi rikis stjiirnarinnar um 'uruKÍald Krum\arp þetta var aÍKreitt fré neAri deild WþinKÍ' aAfara m»lt fustudaKsins -Svi.na fjámDun finnst mér •ihepiuleu i hmsla máta ÞaA .háí fekk '<•iiikj.iI.IiA likk-.A ur 1« . i 7 .* .,„k þi-ss \ar fundin I.iiisii a flvm nialuni “ — llvaAa nialuni" -ÞaA fekkst t .l \jvs lauan a nialefnuni It'KKAasj.NV. en hlut- verk lt\kkA.isj.mVs er ni.a. aA efla islenska alvinnuslarfsmni utt m lireitt uni lamliA.'* s;ikAi Kwrrt ha 'ar EnK' ri spurAur aAþvi. h'url hann Kieti sjett sig »iA |iessa niAurstiAu mala -Kg veit ekki hvnrt eg get Guðmundur G. Þórarinsson: Er í hjarta mínu á móti vörugjaldinu _fcG KK i hjarts mtnu a muti þessu 'nruKjaldi." 'NkAí GuA- mundiir <• lNirarinss..n alþinu ismaAur i sumlali 'iA Muncun- hlaAIA. en hann »ar spurAur um aslaAur hia-a tti sinnar *iA ut k'uAaKreiAslu um frum\arp rikisstjnrnarinnar um vnru- KÍald. sim afKreitl \ar tra NiArl deild XlþinKÍ' aAfaranutt fnstudaK'ins ,ÞuA ma siiya aA |»v.<r K þinKmenn stamla uA rikisstjnrn jia 'erAiir aA vera mik.l sam- slnAa nieAal Iwirra »A l.<—■. frum\ar|«. þu in\"ti ekkl l.l aA f.-lla |«..V ii afleiAi.iKi.il. —„1 .-K ai \ lAhi.rl' «in i s'.ma n.a — \ arsl |«i ekki ronfu kjark Birgir ísi. Gunnarsson það að halda því fram að þetta fólk hafi ekki vitað hvað það var að gera — það hafi verið kúgað af atvinnu- rekendum til að skrifa undir. Fyrirlitningin á sjálfstæði þessa fólks og skoðunum leynir sér ekki hjá puntu- dúkkunum í Alþýðubandalag- inu. Með þessu nýja gjaldi hefur ríkisstjórnin enn sannað ráð- leysi sitt og getuleysi. And- rúmsloftið meðal stjórnar- þingmanna við afgreiðslu málsins sýndi einnig að þolin- mæði ýmissa stuðnings- manna stjórnarinnar er að bresta og er það ekki vonum fyrr. og egg, hamri og sigð, að störfum sem greiða leið til samfélags- áhrifa, þar sem þeir grafa leynt og ljóst undan lýðræðisgrundvelli hægrimanna — og annað lýðræði ekki til, nema sem lygasaga." í þessum orðum rithöfundarins er komið að kjarna málsins, þegar fjallað er um áhrif vinstrisinna hér á landi sem annars staðar. Hin neikvæða afstaða, fyrirlitningin á því frelsi, sem gerir þeim kleift að halda uppi niðurrifstarfsemi sinni, er einkenni þessa fólks. Líklega sést þessi neikvæði subbu- skapur einna skýrast í Stúdenta- blaðinu, sem gefið er út af Stúd- entaráði Háskóla íslands og Sam- bandi íslenskra námsmanna er- lendis. Við lestur þess blaðs hljóta menn að fyllast undrun, yfir því, að slíkt hugarfar, sem þar endur- spieglast, skuli móta ráðandi öfl í íslenskri stúdentahreyfingu. Hreinsunar— hugarfar Eitt helsta vopn alræðisherra er að ljúga að þegnum sínum. í Sovétríkjunum er þetta meðal annars gert með þeim hætti, að í opinberri sögu eða bókmennta- sögu eru þeir aðeins nefndir, sem valdhafarnir bera vinarhug til. Nöfn annarra koma þar ekki fyrir, ekki einu sinni til að hafa þá að skotspæni. Valdhafarnir eru ekki svo skyni skroppnir, að þeir geri sér ekki grein fyrir því, að óvinir þeirra eru strax dáðir af fólkinu. Meðal annars af þeim sökum líta margir Sovétmenn með söknuði aftur til Stalínstímans. Ingimar Erlendur Sigurðsson fjallar um svipaðar aðferðir vinstrimanna hér á landi í grein sinni í blaðinu Núna. Hann segir meðal annars: „í einum af menntaskólum landsins mega nemendur aðeins fjalla um bækur vinstrimanna, vallistinn svokallaði aðeins skipaður þeirra skáldum; umfjöll- unin ekki bókmenntalegs eðlis, heldur eingöngu helguð því: hver staða höfundarins sé í samfélag- inu, hver afstaða höfundar til stéttarbaráttu; jafnvel öldunga- deild þessa skóla er ofurseld sama lögmáli vinstrimanna." Og enn segir Ingimar Erlendur: „Vinstrimenn íslenskir — raun- verulegir vinstrimenn — eru haldnir sama hugarfari og hug- sjónasmiðir kommúnismans, hreinsunar-hugarfari. Þeir hafa þegar hafið á rithöfundum hreins- anir; þeim sem hvorki gangast undir geislabaug þeirra né ganga undir honum. Þeir myrða þá ekki, þeir yrða þá, rægja af þeim bæði skáldorð og mannorð, útiloka þá frá sýnisbókum skáldskapar, fé- svelta þá, gagnrýna þá í drep; dæma þá til útlegðar — sálrænnar síberíuvistar, einangrunar." Eins og Ingimar Erlendur Sig- urðsson bendir réttilega á, er óþarfi að tala tæpitungu við vinstrisinnana hér á landi frekar en annars staðar. Eitt af einkenn- um þessa fólks er, að það tekur hús á þeim, sem hlýðir því ekki í einu og öllu. Sest upp með sitt hafurtask og neitar að fara nema frekja þess nái fram. Við þær aðstæður hampar það helst friðar- ást sinni. En slíkar aðgerðir munu því miður hafa það í för með sér, að hendur verða látnar skipta í deilum manna í stað orða. Orusta rithöfundar við menn- ingarleg máttarvöld vinstrisinna er háð um þessar mundir á síðum Þjóðviljans og víðar, jafnvel í „virðulegum" stofnunum. Jón Oskar á í útistöðum við andlega yfirstétt Alþýðubandalagsins vegna dálætis hennar á svonefndu „gúanórokki". Fróðlegt verður að fylgjast með því, hvað Jón Óskar verður strikaður út úr mörgum sýnisbókum fyrir vikið. Um Ingi- mar Erlend Sigurðsson þarf auð- vitað ekki að ræða í þessu sam- bandi. Hinir menningarlegu hreinsunarmenn hafa þegar af- greitt hann. Eftir að skólanemar hafa látið bjóða sér hinn vinstrisinnaða yfir- gang í kennslustundum á lægri stigum, þarf ef til vill engan að undra, að þeir líði niðurrifsöflun- um að sitja í forystu stúdenta- hreyfingarinnar í Háskólanum. Breyting til batnaðar verður varla framkvæmd af aðilum utan skól- anna. Hún verður að sækja afl sitt til hreyfingar innan þeirra. Svo að enn sé vitnað í Ingimar Erlend Sigurðsson: „Hugarfar vinstri- mennsku og hægrimennsku, eins og það er skilið og skilgreint í þessum skrifum, vottar hverjum og einum hvar hann stendur í heimsstyrjöid — mannssálarinn- ar.“ * Adrepa Brzezinskis Viðtal, sem birtist nýlega í New York Times við Zbigniew Brzez- inski ráðgjafa Jimmy Carters Bandaríkjaforseta um öryggismál, hefur vakið mikla athygli. Þar segir hann, að úrslit forsetakosn- inganna í Bandaríkjunum sýni, að Demókrataflokkurinn verði að hverfa frá „undanhaldsstefnu" sinni í viðbrögðum við útþenslu- stefnu Sovétríkjanna um víða ver- öld. Hann segir, að flokkurinn hafi spillt mjög fyrir sér með því að hneigjast æ meira til vinstri og láta undan vilja þeirra, sem telji unnt að ná árangri gagnvart Sovétríkjunum með því að stunda einhvers konar „góðverk". Sigur Ronald Reagars sýni, að Banda- ríkjamenn séu fúsir til þess að styðja þá menn til valda, sem séu reiðubúnir að veita Moskvuvald- inu nauðsynlega viðspyrnu. Engan þarf að undra, að svo skorinorð ádrepa hafi vakið um- ræður og athygli. í raun viður- kennir öryggismálaráðgjafinn, að sú stefna forseta síns að sameina baráttu fyrir mannréttindum áformum um að efla að nýju vald Bandaríkjanna, hafi runnið út í sandinn. Hann segir í viðtalinu, að tilraunir til að efla herstyrk Bandaríkjanna hafi mætt and- stöðu innan ríkisstjórnarinnar og Demókrataflokksins, sem sé hald- inn þeirri hræðslu, að áhersla á samkeppni við Sovétríkin endur- veki kalda stríðið. Ýmsir ráðamenn í Demókrata- flokknum hafa mótmælt þessum ummælum Brzezinskis, þeirra á meðal er Cyrus Vance, fyrrum utanríkisráðherra, sem sagði sig úr stjórn Carters eftir misheppn- aða björgunarleiðangurinn inn í íran. Hann telur öryggismála- ráðgjafann fara með rangt mál og taka alltof sterkt til orða. Um það skal ekki dæmt hér, en ljóst er, að innan ríkisstjórnar Ronald Reag- ans, sem sest að völdum eftir 20. janúar næstkomandi, verður tekið öðru vísi á utanríkismálum en í tið Carters. Alexander Haig, sem valinn hefur verið til að gegna embætti utanríkisráðherra, hefur mikla reynslu innan stjórnkerfis Banda- ríkjanna og þekkir af eigin raun hernaðarmátt Sovétríkjanna, eftir að hafa starfað sem yfirmaður Evrópuherstjórnar Atlantshafs- bandalagsins. Eðlilegt er, að demókratar í Bandaríkjunum séu andvígir Haig og noti störf hans í Hvíta húsinu á tímum Richard Nixons til að koma höggi á hann. Mun á þau mál reyna næstu daga, þegar öldungadeild Bandaríkja- þings fjallar um skipun hans í utanríkisráðherraembættið. Alex- ander Haig er fulltrúi allt annarr- ar utanríkisstefnu en lýsir sér í hræðslugæðum áhrifamikilla að- ila innan Demókrataflokksins í Bandaríkjunum. Hann er valinn til ráðherraembættis, vegna þess að hann vill veita viðspyrnu en ekki láta undan.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.