Morgunblaðið - 21.12.1980, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1980
29
Frá Haustfundi ullariðnaðarins að Hótel Borg.
LJíbb. Mbl. RAX.
Haustfundur ullariðnaðarins:
Innlendar kostnaðar-
hækkanir skapa framleið-
endum mikinn vanda
HAUSTFUNDUR ullariðnaðarins
fór fram á Hótel Borg föstudaginn
12. desember. Um morguninn heim-
sóttu fundargestir þrjú fyrirtæki i
fataiðnaði. fataverksmiðjuna Dúk
hf.. fataverksmiðju Karnabæjar hf.
og Ullarverksmiðjuna Álafoss.
Fundurinn hófst kl. 14 með ávarpi
forseta útfiutningsmiðstöðvar iðn-
aðarins, Viglundar Þorsteinssonar.
Siðan skiptust á ávörp og umræður
en fundinum lauk um kl. 18.
f upphafi fundar kynnti Ingjaldur
Hanníbalsson G.S.D. tölvukerfið
sem rutt hefur sér til rúms í
saumaiðnaði erlendis. Þá flutti
Kirstín Flygenring ávarp um af-
komu ullariðnaðarins. Þar kom m.a.
fram að árið 1979 varð veruleg
aukning í útflútningi ullarvara eða
um 40 prósent í gjaldeyri en 12 í
magni. Þessi aukning kom í kjölfar
þess samdráttar í ullarvöruútflutn-
ingí sem átti sér stað árið 1978.
Athyglisvert er að það ár er hið eina
síðan 1970 sem samdráttur verður í
útflutningi ullarvara en öll hin árin
hefur verið um aukningu að ræða og
nemur hún rúmlega sexföldun á
undanförnum áratug. Allt virðist
benda til að árið 1980 muni ekki
skera sig úr hvað þetta varðar og
útflutningur aukist enn bæði að
verðmæti og magni.
í erindi Leifs Ingimundarsonar,
um ástand og horfur í ullariðnaðin-
um, kom m.a. fram, að kostnaðar-
hækkanir við framleiðsluna hér á
landi hafa skapað framleiðendum
mikinn vanda því þær hefðu verið
miklum mun meiri en verðhækkanir
erlendis. Hefur verð á fatnaði til
framleiðslu aðeins hækkað um 180
prósent en framleiðslukostnaður um
255 prósent á tímabilinu marz 1977
til marz 1980. — Árið 1977 var
ullariðnaðurinn rekinn með 0,7 pró-
s’nt tapi. Þetta reyndu framleiðend-
ur að vinna upp með bættum rekstri
og hagræðingar aðgerðum. Sýnt
þykir að hefði þetta verð látið ógert
myndi tapið árið 1978 hafa orðið
10—15 prósent í stað 3,8 og árið 1979
um 15—20 prósent. Höfuðvandi fata-
framleiðslunnar hér á landi virðist
ekki liggja í vöntun á hagræðingu,
því á því sviði hefur þegar mikið
verið gert, heldur í því hversu
kostnaðarhækkanir innanlands hafa
verið mikið meiri en verðhækkanir á
fatnaði erlendis.
Erindi Sigurðar Líndal fjallaði um
saumastofur i dreifbýli en hann
veitir einni slíkri forstöðu. Taldi
hann að rekstrarafkoma og mögu-
leikar saumastofa í dreifbýli þyrftu í
engu að vera lakari en í þéttbýli og
væri vissum skilyrðum fullnægt,
gæti verið auðveldara að reíca
saumastofu í dreifbýli. Hann taldi
að starfsþjálfun og félagslegri upp-
byggingu innan starfsgreinarinnar
væri ábótavant og myndi uppbygg-
ing á þessum sviðum örugglega fljótt
skila þeim kostnaði og fyrirhöfn sem
í hana lagt.
I erindi sínu um mismunandi kjör
rekstrarlána ræddi Sigurður Ing-
ólfsson m.a þá síauknu byrði sem
vaxtakostnaðurinn er fyrirtækjum í
fataiðnaði. Fram til 1978 hefði þessi
liður, vaxtakostnaður, gengistap og
verðbótaþáttur lánsfjár, verið innan
við 4 prósent af framleiðsluverð-
mæti en fór það ár yfir 6 prósent. Á
árinu 1979 var hann um 8 prósent og
talið að hann fari yfir 10 prósent á
þessu ári. Sagði Sigurður að þar sem
sýnt þætti að markaðurinn þyldi
ekki hærra verð og yrði því varla
önnur leið til að leysa þetta vanda-
mál en vaxtalækkun. Þó benti hann
á að lána fyrirkomulag Seðlabank-
ans gagnvart ullariðnaðinum væri ef
til vill ekki réttlátt og hvatti til að
þetta yrði leiðrétt.
í lok fundarins gerðu nokkrir
útflytjendur ullarvara grein fyrir
markaðssókn og markaðsþróun á
erlendum mörkuðum en síðan voru
umræður fram til fundarloka.
MYSTERE DE ROCHAS
Óvenjuleg blanda af blómum,
skógarilmi og kryddi er umlykur
leyndarmál nútímakonunnar.
ROCHAS
PARIS
Oculus Austurstræti 7, Nes-Apótek, Neskaupstað,
Snyrtivörudeildin Glæsibæ, Stykkishólms-apótek,
Hafnarborg, Hafnarfiröi, Stykkishólmi, Ólafsvík.
Vörusalan Akureyri.
Séra Magnús 8L Jónsson
Bernska og námsár
Nýjar bækur
Endurminningar
séra Magnúsar Bl. Jónssonar
Tvö bindi
„Um margt bera minningarnar því vitni aö
séra Magnqs hefur veriö óvenju glöggur og
vel geröur maður.. . í þau fáu skipti sem hann
segir beint frá hugkvæmni sjálfs sín biöur
hann lesandann kurteislega aö líta ekki á þaö
sem grobb af hálfu höfundar. Þannig menn
skrifa um eftirtektarverða hluti af þeirri
nákvæmni aö alveg er eins og fortíöin rísi upp
í fang manns með kostum sínum og göllum."
Indriöi G. Þorsteinsson.
Þorsteinn Antonsson
Fína hverfið
Frásögn
„Þorsteinn er skrýtinn. Og frásögn hans í Fína
hverfinu eru vissulega skrýtin og skemmtileg
svo hversdagsleg sem frásagnarefnin eru.“
Ólafur Jónsson.
LJOÐHUS HF JJtv Bókaútgáfa
Lautásvegi 4, Reykjavík — Sími 17095.