Morgunblaðið - 21.12.1980, Page 38
■■MNNMHN
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1980
GET ÉG FENGIÐ EPLI Verölaunamynd Magnúaar
„Átti ekki von á því
að fá viðurkenningu“
Tómstundaiðkun hefur aukist
mjóK hjá óllum almenningi hin
síðari ár. í dag eru þeir fjólmartí-
ir sem eisa ljósmyndun aó
áhuKamáli ok ná alveg ótrúletca
KÓÓum árangri. Og þar sem það
vekur ávallt athygli þegar menn
fá viðurkenningar og verðlaun i
hinum ýmsu samkeppnum er-
lendis vakti það athygli undirrit-
aðs þegar hann rakst á það i
erlendu Ijósmyndariti að ungur
áhugaljósmyndari frá íslandi,
Magnús Hjörleifssun. hafði unnið
til verðlauna í annað skipti.
Magnús sem er starfsmaður
Flugleiða hér á landi hefur tvíveg-
is tekið þátt í alþjóðlegri ljós-
myndasamkeppni flugfélaga, sem
fram fer árlega. Samkeppni þessi
er hörð þar sem ljósmyndir berast
frá öllum heimsálfum. Nú nýverið
kom í ljós að Magnús hafði unnið
til veglegra verðlauna í keppni
þessari. Hlaut hann ferð fyrri tvo
til Portúgals og vikudvöl í landinu
á lúxus-hóteli sér að kostnaðar-
lausu, en ljósmyndasamkeppnin
fór að þessu sinni fram í Portúgal.
Magnús fékk verðlaun fyrir mynd
sem hann nefnir „Dogs Game“ eða
Hundar í leik. Magnús hafði áður
- segir Magnús Hjör-
leifsson sem unnið
hefur til verðlauna
í erlendum ljós-
myndasamkeppnum
unnið til verðlauna í samskonar
ljósmyndasamkeppni sem fram
fór í Stokkhólmi árið 1978. Þá fékk
hann viðurkenningu fyrir mynd
sem hann nefndi „Can I have an
apple", Get ég fengið epli.
„Ég hef verið að gutla við þetta í
ein sex ár, en þá eignaðist ég mína
fyrstu ljósmyndavél sagði Magnús
er Mbl. innti hann eftir því hversu
langt væri síðan hann hóf að
stunda ljósmyndun. „Ég eignaðist
þá mína fyrstu reflex-myndavél og
fór þá að þreifa mig áfram," sagði
Magnús.
— Ég tek svart-hvítar myndir
og litmyndir eiginlega jöfnum
höndum. Skemmtilegustu mótívin
sem ég fæst við eru fólk og
vetrarmyndir. Ég vinn allar mínar
myndir sjálfur heimafyrir, og
finnst ljósmyndun vera stórkost-
lega skemmtilegt áhugamál. Nú
hin síðustu ár hef ég lítillega
fengist við að taka myndir fyrir
tímarit. Ég gerði það að gamni
mínu að taka þátt í ljósmynda-
samkeppnunum og átti alls ekki
von á því að fá viðurkenningu.
Ég fer gjarnan út á nóttinni til
þess að ljósmynda og leita mér þá
að allskyns myndaefnum. Eina
nóttina er ég var útivið að taka
vetrarmyndir varð ég fyrir því
óhappi að týna þremur filmum í
snjónum. Þrátt fyrir mikla leit
fann ég þær ekki aftur. En þremur
mánuðum síðar er snjóa leysti fór
ég á stúfanna og fann þá filmurn-
ar og þær reyndust allar vera
heilar. Og það sem meira var: á
þeim voru sennilega bestu vetrar-
ljósmyndir sem ég hef náð, sagði
Magnús að lokum í stuttu spjalli
við Mbl. — ÞR.