Morgunblaðið - 21.12.1980, Side 40

Morgunblaðið - 21.12.1980, Side 40
PEPI £2?09 HÚSGÖGNa Nýborg? V „ Ármúla 23 - Sími 86755 - fzö til jó dagar jóla Laugavegi 35 SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1980 4 háhyrningar til Vancouver þrátt fyrir mótmæli Greenpeace FJÓRIR síðustu háhyrn- ingarnir, sem Sædýrasafn- ið Veiddi í ár voru fluttir til Vancouver í Kanada í gær. Búist var við mikilli móttökuathöfn þar í horg. en í Vancouver eru einar helztu höfuðstöðvar Green- peace. Grænfriðungar höfðu reynt að fá sett löghann á flutning dýr- anna frá íslandi til Kan- ada. en kaupendurnir voru fyrri til og höfðu fengið öll tilskilin leyfi fyrir inn- flutningnum þegar Green- peace fór af stað með sín mótmæli. Kanadískt flugfélag flutti háhyrningana vestur um haf og var reiknað með, að flugið tæki um 13 tíma með millilendingum á Ný- fundnalandi og Edmonton í Kanada. Söluverð dýranna, sem fóru til Kanada er hátt í 150 milljónir, en áður hafði einn háhyrningur verið seldur til Barcelona á Spáni. Það er ekki annað að sjá, en að þessar bráðfallegu jólasveinahúfur skýli hárinu fullt eins vel og lögleiddu höfuðfötin. Starfsstúlkur ísfélagsins í Vestmannaeyjum mættu með jólasveinahúfurnar til vinnu sinnar á föstudag til að lifga upp á lífið og tilveruna síðustu dagana fyrir jól. (Ljósm. SigurReir). Alusuisse hafði áhuga á súr- álsverksmiðju á Reykjanesi Auglýsendur athujíið Auglýsingar sem hirtast eiga í hlaðinu 28. desember nk. þurfa að hafa borist auglýs- ingadeildinni fyrir kl. 17 þriðjudaginn 23. des. í viðræðum við viðræðunefnd um orkufrekan iðnað í marz 1975 gáfu fulltrúar Alusuisse til kynna áhuga á þvi að reisa súrálsverksmiðju á Reykjanesi. Af hálfu islenzku nefndarinnar var strax lögð áherzla á um- hverfismál og í viðræðum í júli lýsti Alusuisse sig sammála því sjónarmiði. að megináherzlu ætti í fyrstu að leggja á um- hverfisverndarmálin. bessi súr- álsverksmiðja var hugsuð í tengslum við gufuvirkjun á TröIladyngjusvaNðinu á Reykja- nesi. Þessi hugmynd mætti mikilli andstöðu náttúruverndarmanna hér á landi og einnig komu upp ýms tæknileg vandamál, m.a. hefði þurft að leiða gufu frá Trölladyngjusvæðinu í 15 km langri leiðslu til Straumsvíkur, þar sem verksmiðjuhúsið átti að rísa, en slík leiðsla hefði orðið mjög kostnaðarsöm. Trölla- dyngjusvæðið var einnig svo til órannsakað til undirbúnings virkjun. Ýmsar athuganir voru gerðar í sambandi við viðræður Yfirlýsing þingflokks sjálfstæðismanna: Andvígir þingfrestun vegna stöðu efnahagsmála Bráðabirgðalög um efnahagsvanda brot á þingræðisreglum eins og á stendur ÞINGSÁLYKTUN ríkisstjórnarinnar um frestun Alþingis til 26. janúar 1981. eða 36 daga þinghlé, sem jafnframt felur i sér heimild til handa stjórninni til útgáfu bráðabirgðalaga i þinghléi. var samþykkt að viðhöfðu nafnakalli í Sameinuðu þingi í gær með 32 atkvæðum gegn 28. Með tillögunni greiddu atkvæði þingmenn Alþýðubandalags. Framsóknarflokks. Gunnar Thoroddsen. Frið- jón Þorðarson, Pálmi Jónsson og Eggert Haukdal. Gegn tillögunni greiddu atkvæði þingmenn Alþýðuflokks og allir aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokks en að framan greinir. Geir Hallgrimsson. formaður Sjálfstæðisflokksins, gerði eftirfarandi grein fyrir afstöðu þingflokks sjálfstæðismanna við atkvæðagreiðsluna: „Þingflokkur sjálfstæð- ismanna lýsir því yfir að hann er andvígur þessari þingsályktun- artillögu um frestun Alþingis. Þingmenn Sjálfstæðisflokks- ins eru reiðubúnir til þess að mæta til þingfundar, hvenær sem er og taka þá og þar afstöðu til hvers konar tillagna ríkis- stjórnar til úrlausnar efnahags- vanda. Að venjubundnum hætti hefði þingflokkur sjálfstæðismanna ekkert við slíka tillögu um þing- frestun að athuga, en nú háttar svo til, að ríkisstjórnin hefur, allt frá því til hennar var stofnað fyrir nær ári, ekkert aðhafst til aðgerða í brýnustu efnahagsvandamálum í baráttu gegn óðaverðbólgu. Sjálfstæð- ismenn hafa lýst eftir aðgerðum hvað eftir annað, en þögn, úr- ræða- og aðgerðarleysi hefur verið eina svarið. í gærkveldi lét forsætisráð- herra í sjónvarpi að því liggja, sem hann hefur ekki viljað segja Alþingi, að tillagna ríkisstjórnar í efnahagsmálum væri að vænta ef ekki fyrir jól, þá milli jóla og nýárs. Með tilvísun til þess telur þingflokkur sjálfstæðismanna það virðingarleysi við Alþingi, að ríkisstjórnin hefur ekki kjark að birta þingi niðurstöðu sína og ætlar ekki að leggja úrræði sín undir dóm og atkvæði Alþingis, eins og þingræði, sem við viljum halda í heiðri, krefst. Þingflokkur sjálfstæðismanna dregur að vísu í efa með skír- skotun til meira en 10 mánaða aðgerðarleysi ríkisstjórnarinn- ar, að nokkur niðurstaða sé fengin, og telur að í þessari ríkisstjórn sé ekki samstaða um nein úrræði í efnahagsmálum, sem að gagni megi koma, frekar en í öðrum stjórnum, sem fylgja vinstri stefnu. Engu að síður er hér um svo veigamikla grundvallarreglu að ræða, að ekki verður fram hjá því gengið, að Alþingi er falið löggjafarvaldið og það ber að virða. Ef Alþingi er sent heim og bráðabirgðalög sett til að fylgja fram efnahagsráðstöfunum, þá ber það vitni virðingarleysi nú- verandi ráðherra og ríkisstjórn- ar fyrir þingræðisreglum. Brjóti ríkisstjórn þannig þing- ræðisreglur hljóta málagjöld að verða í samræmi við það.“ um súrálsverksmiðjuna, sem síðan tengdist umræðum um möguleika á byggingu þriðja kerskálans í Straumsvík og var lögð til hliðar með honum. Alusuisse hafði áður; á árinu 1971 gefið til kynna áhuga á könnun möguleika á framleiðslu kísilmálms á íslandi. Á árinu 1972 var þessi hugmynd rædd nánar og þá með þátttöku þriðja aðilans; svissnesks fyrirtækis í stáliðnaði, Monteforno. í marz 1973 var svo tilbúin frumskýrsla um kísilmálmverksmiðju í Straumsvík og varð niðurstaðan sú, að vegna of mikils flutn- ingskostnaðar væri ekki væn- legt í bili að reisa slíka verk- smiðju á íslandi. Mælt var með því að málið yrði athugað síðar, en til þess kom ekki, enda kom járnblendiverksmiðjan á Grundartanga til sögunnar; fyrst sem kunnugt er í sam- vinnu við Union Carbide og síðar Elkem Spigelverket. 3 dagar til jóla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.