Morgunblaðið - 24.12.1980, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.12.1980, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1980 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 7.000 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 350 kr. eintakiö. Friður á jörðu Vanmetakenndar gætir oft hjá Vesturlandabúum, þegar þeir líta á eigin stöðu andspænis einrödduðum kór alræðisaflanna. Kúgun hins óbeislaða valds og hroki handhafa þess vekur í senn ugg og hneigð til að styggja ekki valdsmennina. í daglegum fréttum og lýsingum á þeim vanda, er setur mestan svip á samtíðina, felst áherslan í skilgreiningu á veraldlegum verðmætum. Sá er talinn sterkastur, sem ræður yfir mestum vopnabúnaði og orkulindum til að knýja framleiðslutækin. Þegar sá styrkur er nýttur í blindri trú á mátt hins aflmeiri til að setja lítilmagnanum úrslitakosti, myndast hættuleg spenna. Lokatrygging friðar nú á tímum er talin felast í ógnarjafnvæginu — mátturinn til gjöreyðingar heldur aftur af þeim, sem yfir honum ráða. Þegar svo er komið, hljóta menn að spyrja sjálfa sig: Er þetta í raun og veru svo? Er heimurinn dæmdur til að sitja í þessum heljargreipum? Sá heimur, sem sækir afl sitt til þessarar lýsingar í hinni helgu bók: „í upphafi var orðið, og orðið var hjá Guði, og orðið var Guð; það var í upphafi hjá Guði. Allir hlutir eru gjörðir fyrir það, og án þess varð ekkert til, sem til er orðið. í því var líf og lífið var ljós mannanna; og ljósið skín í myrkrinu, og myrkrið hefur ekki tekið á móti því.“ Helgi jólanna leiðir huga kristinna manna að þessum boðskap. Styrkur þeirra felst í vissunni um það, að til er annað og meira en fjötrar veraldlega valdsins. Umsagnir um hinn andlega styrk þenja sig ekki yfir síður dagblaðanna í hversdagslegri önn. Vitneskjan um hann býr þó að baki, og hann brýst fram með fullum þunga, þegar á herðir. Myndin af pólskum verkamönnum krjúpandi í bæn birtist á forsíðum blaða um heim allan síðsumars, þegar stigin voru fyrstu skrefin gegn trúlaus- um valdsmönnum kommúnismans í Póllandi. Meðal helstu baráttumála þeirra, sem þá hættu lífi sínu fyrir aukið frelsi, var að fá rétt til að hlusta á Guðsorð flutt í pólskum útvarpsstöðvum. Mikil fagnaðarbylgja fór um þjóðina í september, þegar því takmarki var náð og messusöngur og bænarorð bárust öllum, sem lögðu við hlustir. Nú skömmu fyrir jólahátíðina komu pólskir verkalýðsforingjar, katólskir kirkjuhöfðingjar og komm- únistaleiðtogar ásamt hundruðum þúsunda almennra borgara saman í Gdansk við afhjúpun minnismerkis um brautryðjendurna í baráttu orðsins við valdið. Yfir eilífum loga teygir hin tákræna mynd sig hátt til himins, þrír krossar úr stáli. Vanmetakennd Vesturlandabúa stafar meðal annars af því, hve margir í þeirra eigin röðum telja sér sæma að reka andróður gegn kristninni og styrk hennar. Tilraunir til að nálgast þessa undirróðursmenn með einhvers konar málamiðlun eru til þess eins fallnar að veikja þá staðfestu, er sýna verður. Myrkrið verður að taka á móti ljósinu. Lífið þrífst ekki í hálfrökkri. Boðskapur jólanna felst í orðunum: Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum; því að yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. í fagnaðarboðskap jólanna felst fyrirheit um annan frið en þann, sem byggist á heljarfjötrum gjöreyðingar- vopnanna. Nái þau heilögu friðarorð að skjóta rótum og dafna meðal mannkyns alls, verður ekki lengur þörf fyrir neitt ógnarjafnvægi. Þá mun óttinn víkja og ógn hætta að steðja að þjóðum jafnt stórum sem smáum. Hefur miðað í þá átt á árinu 1980? Eða er kvíðinn yfir blóðugri sókn gegn frelsissprotanum í Póllandi á rökum reistur? I von um að boðskapur jólanna og styrkur Guðsorðs verði æ fleiri mönnum og þjóðum að leiðarljósi á björtum framtíðarbrautum óskar Morgunblaðið lesendum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla. Blárefir til ] NÚ FYRIR skömmu flutti íscarKo rúmlega 300 blárefi frá Skotlandi hinKaó tii lands og voru þeir fyrir refabúið í Krisuvik. Læður eru 250 og karldýr um 80 talsins. Refirnir eru keyptir frá cinu stærsta loðdýra- búi á Bretlandseyjum, en eÍKandi þess, John Moffat, var með 1 ferðinni. Hann sa«ði að refirnir, sem eru svokallaðir blárefir hefðu upphaf- lega komið frá NoreKÍ. en hann hefði alið slíka refi i um sex ár á búi sínu í Skotlandi. Þetta er i annað sinn sem Moffat selur refi hinuað til lands, f fyrra seldi hann refi til refabúsins á Grenivík. Moffat sagði að hann teldi ísland mjög vel til loðdýraræktar fallið, vegna hins lága fóðurverðs, en taldi að mikil nauðsyn væri á því að Islendingar verkuðu skinn sín sjálfir í stað þess að senda þau utan til Skotlands í vinnslu, það væri bæði dýrt og kæmi einnig í veg fyrir að loðdýrabændur gætu fylgst með gæð- um skinnanna og hvernig þau kæmu út miðað við fóðrun. Hann sagði einnig að skinnamarkaðurinn væri oft anzi óstöðugur og gætu komið í hann talsverðar sveiflur, en að íslenzk skinn seldust yfirleitt vel á uppboð- um- - HG.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.