Morgunblaðið - 24.12.1980, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 24.12.1980, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1980 Minning: Ólafía Sigrún Egjólfsdóttir Fædd 17. desember 1890. Dáin 5. desember 1980. Ólafía var dóttir hjónanna Þor- gerðar Halldórsdóttur frá Miðengi og Eyjólfs Eyjólfssonar frá Dysj- um. Kornung fluttist Ólafía með foreldrum sínum að Hausastöð- um, sem átti eftir að verða heimili hennar á níunda áratug. Allgóða menntun á þeirrar tíðar mæli- kvarða hlaut Óla hjá hálfbróður sínum Jens Eyjólfssyni. Einnig var hún afbragðs vel að sér í hannyrðum enda góðum gáfum gædd. Móðir Ólu dó árið 1935 en faðir hennar nokkrum árum áður. Eftir það bjuggu þau systkin, Valgeir og Óla, saman á Hausastöðum. Þau ólu upp kjörson, Hörð Sigurvins- son og má geta nærri að hann muni í ríkum mæli hafa notið ástríkis og umhyggju þessarar indælu konu, sem alltaf gat miðlað öðrum af góðleika hjarta síns. Ég sem þetta rita er einn af fimm fóstursystkinum Ólu, sem foreldrar hennar ólu upp að öllu leyti. Ég átti þess því kost, að kynnast því vel hversu kærleiksrík og mannkostamikil persóna Óla var. Öllum vildi hún gott gera, hvers manns vandræði leysa, hver sem úí hlut átti. Okkur fóstursystk- ini sín umvafði hún með sinni meðfæddu ljúfmennsku og hjarta- hlýju. Óla var sérstök manngerð. Skapið hennar ljúfa og góða brást aldrei, ásamt notalegri kímni, sem áður en varði gat komið öllum í gott skap. Alla tíð eftir að ég flutti frá Hausastöðum naut ég ástríkis Ólu. Og ekk nóg með það, heldur fjölskyldan mín, börn og barna- börn. Allir sem höfðu einhver kynni af Ólu, nutu ástríkis hennar og lífsgleði og má með sanni segja að mannbætandi hafi verið að dvelja í návist hennar. Óla tók virkan þátt í félagsmál- um í sinni sveit og var elskuð og dáð af öllum sem hún hafði kynni af. Vissulega ilmaði sál hennar af þeim bestu mannkostum sem konu má prýða. Slíkur persónuleiki var Óla að seint mun gleymast þeim er svo var heppinn að eiga hana að vini. Hennar er sárt saknað af mér og fjölskyldu minni, sem nú sendir henni sína hinstu kveðju. Ólafur Sigurðsson. Eiginkona mt'n, SOFFÍA ÓLAFSDÓTTIR, Rauðalæk 13, andaöist í Landspitalanum aöfaranótt laugardagsins 20. desem- ber. Jaröarförin fer fram frá Laugarneskirkju, þriöjudaginn 30. desember kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuö, þeir sem vilja minnast hinnar látnu láti Laugarneskirkju njóta þess. Fyrir hönd barna, tengdabarna og annarra ættingja og vina, Ingjaldur Jónsson. Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför GUNNARS G. ÞORSTEINSSONAR frá Köldukinn. Ingibjörg Guölaugsdóttir og börn. + Þakka innilega samúð og hlýhug viö fráfall eiginkonu minnar, MARÍU LÁRU JENSDÓTTUR, Öldugötu 52. Páll K. Sæmundsson. + Innilegar þakklætiskveöjur til allra þeirra sem auösýndu okkur vinsemd viö fráfall, STEFÁNS JÚLÍUSSONAR. Sérstakar þakkir til starfsmanna Sindrastáls hf. Gleöileg jól. Steinunn Sturludóttir, börn og tengdabörn. + Þökkum auösýnda vináttu viö bróöur okkar og mág, PÉTUR S. SIGURÐSSON, Barónsstíg 28, og okkur hluttekningu viö andlát hans. Guörún Siguröardóttír, Lýður Guömundsson, Gísli Sigurösson, Margrét Jakobsdóttir, Sveinn Sigurösson, Katrín B. Sigurgeirsdóttir, og börn. Þetta gerðist 24. desember 1618 — Pólverjar semja vopnahlé til tveggja ára við Svía og 14 ára við Tyrki. 1650 — Edinborgar-kastali gefst upp fyrir her Cromwells. 1715 — Prússar taka Stralsund af Svíum og Karl XII gerir árás á Noreg. 1814 — Ghent-sáttmáli bindur endi á 1812-ófrið Breta og Banda- ríkjamanna. 1863 — Her Saxa og Hannover- manna sækir inn í Holstein. 1865 — Leynifélagið Ku Klux Klan stofnað í Pulaski, Tennessee. 1866 — Prússar innlima Slésvík- Holstein. 1899 — Sjálfboðaliðar frá Kanada og Ástralíu koma til Suður- Afríku. 1924 — Albanía lýst lýðveldi. 1937 — Japanir taka Hangchow í Kína. 1941 — Bretar ná yfirráðum yfir Cyrenaica, Norður-Afríku. 1942 — Darlan aðmíráll, land- stjóri í Norður-Afríku, myrtur í Algeirsborg. 1943 — Roosevelt tilkynnir að Eisenhower muni stjórna innrás- inni í Evrópu. 1951 — Líbýa verður sjálfstætt konungsríki undir Idris I. 1959 — Hervirki gegn Gyðingum í Köln. 1976 — Takeo Fukuda verður forsætisráðherra Japana. Afmæli: Jóhann landlausi, kon- ungur af Englandi (1167—1216) — Ignatius Loyola, spænskur her- maður og trúarleiðtogi (1491 — 1556) — Kit Carson, bandarískur hermaður (1809—1878) — Matt- hew Arnold, brezkur rithöfundur (1822-1888) - Georg I Grikkja- konungur (1845—1913) — Howard Hughes, bandarískur auðmaður (1905-1976). Andlát: 1524 Vasco da Gama, sæfari — 1863 W.M. Thackeray, rithöfundur. Innlent: 1848 d. Finnur Magnús- son prófessor — 1851 „Ný tíðindi" hefja göngu sína — 1879 f. Alexandrina drottning. Orð dagsins: Þá fyrst þegar hátíð- ardögunum lýkur, förum við að njóta þeirra. — A.G. Gardiner, enskur blaðamaður (1865—1946). Þetta gerðist 25. desember 800 — Leo páfi III krýnir Karla- magnús fyrsta heilaga rómverska keisarann. 1497 — Valdimar hylltur konung- ur Dana í dómkirkjunni í Lundi. 1582 Gregorianskt tímatal tekið upp í Spænsku Niðurlöndum. 1683 — Hertoginn af Monmouth flýr frá Bretlandi til Hollands — Spánverjar segja Frökkum stríð á hendur. 1688 — Jakob II af Englandi flýr til Frakklands. 1818 — Jólasálmurinn „Heims um ból“ fyrst sunginn í austurríska þorpinu Oberndorff. 1897 — ítalir láta Kassala af hendi við Egypta. 1926 — Hirohito keisari tekur við völdum í Japan. 1936 — Chiang Kai-shek sleppur frá uppreisnarmönnum sem rændu honum og höfðu hann í gíslingu. 1941 — Setulið Breta í Hong Kong gefst upp fyrir Japönum. 1959 — Rússar samþykkja að veita Sýrlendingum aðstoð. 1963 — Neyðarástandi lýst yfir á landamærum Sómalíu að Kenya. 1974 — Fellibylur veldur gereyð- ingu í Darwin, Ástralíu. 1977 — Fundur Begins og Sadats í Ismalia. 1979 — Bandarískir prestar heim- sækja gíslana í Teheran. Afmæli. Isaac Newton, brezkur vísindamaður (1642—1727) — William Collins, enskt skáld (1721—1759) — Conrad Hilton, bandarískur hóteleigandi (1887— -)• Andlát. 1913 J.B.S. Estrup, stjórnmálaleiðtogi — 1938 Karel Capek, rithöfundur. Innlent. 1402 Heitdagur Eyfirð- inga í svartadauða — 1542 Bréf Kristjáns III gegn verzlun Hansa- kaupmanna hér — 1874 d. Gísli pr. Thorarensen — 1896 f. Her- mann Jónasson — 1973 Tímabili endurskoðunar varnarsamnings- ins lýkur — 1965 d. Helgi Hjörvar. Orð dagsins. Guð veri með ykkur, herrar mínir, því að á þessum degi fæddist frelsari okkar, Jesús Kristur — Gamall jólasálmur. Þetta gerðist 26. desember 1776 — Orrustan við Trenton. Georg Washington tekur 1000 Hessa til fanga. 1805 — Pressburg-friður Frakka og Austurríkismanna undirritað- ur. 1825 — Uppreisn Desembrista í rússneska hernum bæld niður. 1827 — Mohamud II Tyrkjasoldán hafnar rétti stórveldanna til að miðla málum í ófriðnum við Grikki. 1901 — Uganda-járnbrautin frá Mombasa til Viktoríuvatns full- gerð. 1941 — Árás Breta á Lófót — Manina lýst óvarin borg. 1961 — SÞ saka Norður-Rhódesíu um stuðning við aðskilnaðarsinna í Katanga. 1965 — Vélbyssuárás arabískra skæruliða á ísraelska flugvél á Aþenuflugvelli. 1974 — Rússar skjóta ómannaðri vísindastöð á braut um jörðu. 1978 — Tilkynnt að íran hætti olíuútflutningi þar sem olían þurfi að fara til neyzlu innanlands. Afmæli George Romney, enskur listmálari (1734—1802) — Henry Miller, bandarískur rithöfundur (1891-1980). Andlát. 1972 Harry S. Truman, fv. forseti. Innlent. 1241 Víg Klængs Björnssonar í Reykholti að undir- lagi Órækju og Sturlu — 1891 f. Jón Þorleifsson listmálari — 1913 „Lénharður fógeti" frumsýndur — 1914 „Galdra-Loftur" frumsýndur — 1945 „Skálholt" frumsýnt. Orð dagsins. Auðugastur allra er sá sem á sér ódýrustu skemmtun- ina. — Henry David Toreau, bandarískur rithöfundur (1817— 1862). Þetta gerðist 27. desember 1703 — Methuen-sáttmáli Eng- lendinga og Portúgala undirritað- ur. 1794 — Innrás Frakka í Holland. 1927 — Trotsky rekinn úr sovézka kommúnistaflokknum. 1945 — Utanríkisráðherrafundur stórveldanna í Moskvu. 1948 — Mindzenty kardináli handtekinn í Búdapest. 1949 — Indónesía fær sjálfstæði. 1956 — Hreinsun Súez-skurðar. 1966 — Rauðir varðliðar fordæma Liu Shao-chi forseta á fundi í Peking. Afmæli. Johannes Keppler, þýzkur stjörnufræðingur (1571—1630) — Louis Pasteur, franskur efnafræð- ingur (1822—1925) — Marlene Dietrich, þýzk leikkona (1904--). Andlát. 1834 Charles Lamb, rit- höfundur — 1978 Houari Boume- dienne, alsírskur forseti. Innlent. 1683 Bréf ritað í nafni heilagrar þrenningar finnst í Garpdalskirkju í Barðastrandar- sýslu — 1762 — f. Magnús Steph- ensen konferenzráð — 1767 f. Stefán Stephensen amtmaður — 1784 d. Jón Eggertsson sýslumað- ur — 1867 f. Steingrímur Jónsson — 1979 Geir Hallgrímssyni falin stjórnarmyndun. Orð dagsins. Allir ætla að gera eitthvað og allir gera eitthvað en enginn gerir það sem hann ætlaði að gera — George Moore, írskur rithöfundur (1852—1933). VANTAR ÞIG VINNU VANTAR ÞIG FÓLK Þl ALGLÝSIR LM ALLT LAND ÞEGAR ÞL ALG- LYSIR 1 MORGLNBLAÐIM + Einlægar þakkir færum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, HULDU KARLSDÓTTUR, Ásvallagötu 29. Svanur Steindórsson, Þórir Svansson, Matthildur Þórarinsdóttir, Svanhildur Svansdóttir, Svanur Þorsteinsson, barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.