Morgunblaðið - 17.01.1981, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1981
Litið inn á æfingu Þjóðleikhússins á Oliver Twist,
nýju barna- og fjölskylduleikriti
Strákarnir tveir sem leika Oliver á vixl, fremst á myndinni, t.v. SigurAur Sverrir Stephensen, t.h. Bðrkur
Hrafnsson. Á bak við þá er hluti hópsins, sem leikur félagana á fátækraheimiiinu. Ljósm. Mbl. Emilia B.
Bjðrnsdóttir.
Oliver er leikinn af tveimur
drengjum á víxl, þeim Sigurði
Sverri Stephensen og Berki
Hrafnssyni. Við hittum þá á bak
við tjöldin fyrir æfingu. Sigurður
var Oliver þetta kvöldið en Börkur
fylgdist með. „Bæði gaman og
erfitt," voru þeir sammála um.
Þeir sögðust lítið kvíðnir fyrir
frumsýningunni „ekki ennþá
a.m.k.“. Nú bar að nokkra félaga
Olivers á munaðarleysingjahælinu
og voru þeir sammála Oliverunum
um að leiklistin væri hið skemmti-
legasta viðfangsefni. „Verst að
komast ekki á skíði á næstunni,"
sagði einn þeirra. Aðeins ein rödd
svaraði þó ákveðið játandi er blm.
spurði hvort framtíðaratvinnan
væri fyrirhuguð á fjölunum.
„ímynd hins opin-
bera gagnvart
lítilmagnanumu
Margar kunnar persónur úr
þessu þekkta verki Dickens þutu
nú um ganga bakatil. Signor
Bumble var þar fyrirferðarmest-
ur, þéttur á velli og valdsmanns-
legur með stóran staf í hendi. Á
bak við gervið er Flosi Ólafsson og
hafði hann eftirfarandi að segja
um Bumble: „Hann er ótrúlega
mikið illmenni. Dickens nær út í
honum hreina ímynd hins opin-
bera gagnvart lítilmagnanum."
Flosi sagði góða skemmtun að fást
við Bumble. „Þá er uppfærslan góð
„Þrátt fyrir ofbeldið
sigrar hið góða i lokin“
Þjóðleikhúsið frum-
sýnir i dag, laugardag, leik-
ritið Oliver Twist eftir sögu
Charies Dickens. Leikritið
skrifaði Árni Ibsen og
verður það barna- og f jðl-
skyldusýning Þjóðieikhússins i
ár. Mbl. fylgdist með æfingu
á leikritinu, si. mið-
vikudagskvöld og ræddi við
nokkrar sögupersónur og leik-
ara.
Vart þarf að kynna náið sögu-
þráðinn í Oliver Twist, svo kunn
sem sagan er. Oliver er munaðar-
leysingi, sem elst upp á hæli.
Hann á þar auma vist undir
harðstjórn Signor Bumbles og
Madömu Corney. Oliver lendir
síðar á vist hjá líkkistusmiðnum
Sowerberry og verður vistin hon-
um lítt betri þar og að lokum flýr
hann barsmíðar og sult og freistar
gæfunnar í stórborginni. Þar lend-
ir hann i höndunum á gyðingnum
Fagin og þjófaflokki hans og
Charles Dickens er sögumaður i
leikritinu. Þorleifur Hauksson
ieikur Dickens.
lendir m.a. i bráðum lífsháska
vegna viðkynningar við óaldalið
undirheimanna. Hið góða sigrar
Árni Ibsen
þó að lokum, eins og i öllum
góðum ævintýrum og vondu
mennirnir fá makleg málagjöld.
Signor Bumble i ham, en Flosi
ólafsson leikur þennan illgjarna
mann.
og einföld. Að leika með krökkun-
um? Þau kunna rulluna miklu
betur en ég.“
Madama Corney skammtar drengjunum á hælinu grautarslettu, Bryndis Pétursdóttir fer með hlutverk hennar.
í þessu birtist Fagin. Undirför-
ulsháttur og græðgi skein úr
hverjum svipdrætti og áður en
færi gafst á að ná viðtali við hann
hafði hann fest auga á einhverju
eigulegu og var rokinn með það
sama.
Þá gekk virðulegur maður inn
ganginn. Hann var fallega hærður
og góðlegur á svip og gáfum við
okkur því á tal við hann. Hér var
kominn sjálfur Charles Dickens,
sem er sögumaður í sýningunni,
en hann er leikinn af Þorleifi
Haukssyni. Þorleifur sagðist ekki
hafa verið á sviði áður, ef frá væri
talið hlutverk í Litla Kláusi og
stóra Kláusi, „en þá var ég barn að
aldri. Þetta er mjög skemmtilegt
hlutverk og enn skemmtilegra
finnst mér að vera með og sjá
hvernig þetta gengur allt fyrir sig
á bak við tjöldin,“ sagði hann.
Nú kallaði leikstjórinn ákveðið í
hátalarakerfið að allir ættu að
vera tilbúnir. Dickens og sögujjer-
sónur hans hurfu inn á sviðið þar
sem Oliver Twist hóf erfiða lífs-
baráttu sína.
Leiktjöld í uppfærslunni eru
einföld og mikið er byggt á
lýsingum að sögn eins Ieikarans.
Leikmynd og búninga gerir Messí-
ana Tómasdóttir og Kristinn
Danielsson annast iýsingu. Leik-
stjóri er Bríet Héðinsdóttir.
„Krakkar í dag
ýmsu vön“
í hléi frá æfingunni hittum við
að máli Árna Ibsen. Hann leikur
hiáturmildan vasaþjóf i þjónustu
Fagins og skrifaði einnig leikritið,
eins og áður segir: „Það er ekki
auðvelt að útbúa tveggja klukku-
stunda leikrit upp úr 500 bls. bók,
en það vakti fyrir mér að halda
mig við söguþráðinn án þess að
brengla hann,“ sagði Árni. Þetta
er fyrsta leikritsverk Árna hér
heima, en á námsárunum i Eng-
landi samdi hann nokkra einþátt-
unga.
. Aðspurður sagði Árni það rétt
vera, að nokkurt ofbeldi væri í
leikritinu og hefðu aðstandendur
sýningarinnar jafnvel hugleitt að
hafa aldurstakmark sýningar-
gesta 5 ár. „Ég held þó að krakkar
nú til dags séu ýmsu vön og ekki
eins viðkvæm og við höldum. Þá er
þess að geta, að síðustu árin hefur
börnum nær eingöngu verið boðið
upp á söngleiki. Það má a.m.k.
segja að þetta er fyrsta drama-
tíska leikritið sem sett er upp
fyrir þau. Þrátt fyrir ofbeldið þá
sigrar hið góða í lokin og vondu
mennirnir fá sín maklegu mála-
gjöld og ég held að börnin skynji
það fyrst og frernst," sagði Árni í
lokin.
„Afskaplega vænt
um Oliver
í hvíldarherberginagar Fagin
og Bill Sikes og lögðu á ráðin.
Ekkert vildu þeir gefa upp um
ráðabrugg sitt, en Fagin sagði
ísmeygilega með sinni smámæltu
röddu: „Mér þykir afskaplega
vænt um Oliver litla, alveg satt
góan mín.“ Á bak við gervi Fagins
er Baldvin Halldórsson. Baldvin
sagði hlutverkið mjög skemmti-
legt. „Við Bríet leikstjóri höfum
starfað lengi saman og samstarfið
er gott. Þá finnst mér form
sýningarinnar skemmtilegt. Það
er einfalt og skilar sögunni mjög
vel.“
„Göturæsið var vagga mín og
þar verð ég einnig grafin," segir
Nancy um örlög sín í leiknum, en
hún reyndist Oliver vel á neyð-
arstundu. Nancy sat og safnaði
kröftum fyrir lokaátök sín í undir-
heimum Lundúna er við tókum
hana tali. Hún var þreytuleg og
hnuggin og spurðum við Þórunni
Magneu Magnúsdóttur, sem leikur
hana, um álit hennar á persónu
Nancyar. „Dickens nær vel túlkun-
inni um að hið góða sigri ætíð í
lokin i persónu Nancyar. Þrátt
fyrir uppeldið og umhverfið ræður
hið góða gjörðum hennar. Það er
mjög gaman að leika hana.“
í lok leiksins er Madama Cotney
orðin frú Bumble og gengur þá á