Morgunblaðið - 17.01.1981, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1981
E1 Salvador:
Gotera á ný á valdi
stjórnarhersins
San Salvador. 16. janúar. AP.
STJÓRNARHERINN I E1 Salva-
dor hefur náð á sitt vald Gotera,
höfuðborg Morazanhéraðs. Um
800 stjórnarhermenn studdir af
orustufluKvélum náðu hortfinni á
sitt sitt vald í morgun eftir
KÍfurleKa harða hardaga. Skæru-
liðar náðu borxinni á sitt vald
fyrr í vikunni eftir að um 100
manna her kom á land í suður-
hluta landsins frá Nicaragua. Að
sóun stjórnarinnar þá tókst her-
liði hennar að tvístra innrásarlið-
inu ojf féllu flestir skæruliða.
Herlög úr gildi
á Filipseyjum
Manila. Filipseyjum. 16. jan. AP.
FERDINAND E. Marcos, for-
seti Filipseyja, tilkynnti í dag
áð hann ætlaði að fella herlög
úr gildi í landinu á morgun.
Marcos er æðsti maður her-
stjórnarinnar sem setið hefur
við völd í 8 ár. Hann kvaðst
áfram ætla að sitja við völd í
bráðabirgðastjórn og koma á
fullu lýðræði á Filipseyjum að
nýju árið 1984.
IHtáðl
ERLENT
Enn er barist í útjaðri Gotera.
Talið er að yfir þúsund manns hafi
fallið frá því skæruliðar hófu
„lokasókn" sína fyrir fimm dög-
um. Leiðtogar vinstri sinna segja,
að skæruliðar séu nú að meta
árangur þess sem nú er kallað
„fyrsta stig lokasóknarinnar".
Fréttamaður Newsweek tímarits-
ins særðist alvarlega í átökunum í
Gotera. Fyrr í vikunni beið brezk-
ur sjónvarpsmaður bana þegar
bíll hans ók á jarðsprengju. Þá
særðust tveir Bandaríkjamenn,
fréttamenn Time og Newsweek.
Stjórnvöld í E1 Salvador segjast
nú hafa öll völd í landinu og að
skæruliðar hefðu verið reknir til
fjalla. Stjórnvöld í Nicaragua hafa
neitað ásökunum um að láta
skæruliðum í E1 Salvador vopn í
hendur.
Síðastliðinn miðvikudag varð minniháttar jarðskjálfti á Italiu. Þá hrundi elliheimiii til grunna og fórust
átta gamalmenni og ein nunna. Húsið hafði skemmst verulega i jarðskjáiftunum miklu.
Stjórnarkreppa í Berlín
Frá Thomasi Móller,
fréttaritara Mbl. í Berlin 16. jan.
I GÆRKVÖLDI sagði Dietrich
Stobbe borgarstjóri Berlínar af
sér og leysti upp ráðuneyti sitt.
Fjórum klukkustundum áður
höfðu farið fram leynilegar kosn-
ingar þar sem samþykkja átti val
borgarstjórans á fimm nýjum
ráðherrum í stað þeirra sem
sögðu af sér í siðustu viku vegna
fjármálahneykslis sem upp kom i
desember sl.
Fjórir hinna nýju ráðherra voru
felldir í kosningum þessum. Úrslit
kosninganna í gær og afsögn
Stobbe komu mjög á óvart og
fjölluðu allar útvarps- og sjón-
varpsfréttir hér í gærkvöldi um
þennan atburð og dagskrám var
breytt til umfjöllunar um málið.
Daginn áður en kosningin fór
fram höfðu allir þingmenn Sósíal-
demokrata og Frjálslyndra, alls 72
talsins, sem saman stjórnuðu
Berlín, lýst því yfir að þeir myndu
styðja Stobbe í kosningunum. En
þegar á hólminn kom gengu allt að
10 stjórnarliðar til liðs við stjórn-
arandstöðuna, CDU.
Orsakir stjórnarkreppunnar
Hermenn frelsissveita Afgana hafa átt i vök að verjast gegn fallbyssuþyrlum Sovétmanna. Anwar Sadat,
forseti Egyptalands. hefur hafið sendingar á Sam-7 eldflaugabyssum til að granda þyrlum Sovétmanna.
Á mynd ÁP sést hvar afgönskum frelsishetjum hefur tekist að skjóta niður sovéska þyrlu við
Salang-þjóðveginn, sem liggur til norðurs frá Kabúl.
eru, sem fyrr segir, að leita til
fjármálahneykslis í tengslum við
byggingarfyrirtæki í Berlín. Eig-
andi þess fyrirtækis er meðlimur í
Frjálslyndaflokknum og hefur
greitt töluverðar fjárhæðir í kosn-
ingasjóði flokksins. Borgarstjórn-
in gekk í ábyrgð fyrir 115 milljón
Marka lánum sem fyrirtækið tók
til að fjármagna byggingarfram-
kvæmdir í mið-austurlöndum.
Ábyrgð þessi var veitt fyrirtækinu
án þess að borgarstjórnin færi
fram á nákvæma skoðun reikn-
inga og fjárhagsstöðu þess enda
varð fyrirtækið gjaldþrota í des-
ember sl.
Er ljóst var að skattgreiðendur í
Berlín urðu að greiða áður nefnd-
ar 115 milljónir Marka sögðu
fimm ráðherrar í samsteypustjórn
SDP og FDP af sér, þ.e. allir þeir
ráðherrar sem eitthvað voru
tengdir þessu stærsta fjármála-
hneyksli í sögu Berlínarborgar.
Með afsögn þessara manna og
ráðningu annarra í þeirra stað
taldi borgarstjórinn að málið væri
leyst en nokkrir samflokksmanna
hans voru ekki á sama máli eins
og kom fram er samþykkja átti val
hinna nýju ráðherra í gær.
Nýjar kosningar?
Strax eftir að fréttirnar um fall
stjórnarinnar bárust komu nokkr-
ir helstu áhrifamenn SDP og FDP
stjórnarinnar í Bonn til Berlínar,
þar á meðal Willy Brandt, og
leggja flokkarnir ríka áherslu á
það að mynda nýja stjórn sem
fyrst. Ef ekki tekst að mynda nýja
stjórn innan 21 dags þá verður
efnt til nýrra kosninga. Helstu
talsmenn CDU hafa krafist þess
að kosningar verði haldnar sem
fyrst aðeins það gæti hreinsað
loftið fyrir nýrri byrjun í stjórn-
málasögu borgarinnar. Sumir
halda því fram að núverandi
meirihluti SDP/FDP sé ekki leng-
ur fyrir hendi. Að borgarstjórnin
hafi svikið öll loforð frá síðustu
kosningum og hafi eyðilegt áhrif
Berlínarborgar út á við. Bent er
sérstaklega á hrikalegt ástand í
íbúðarmálum borgarinnar sem
meðal annars kom fram í hörðum
götubardögum milli lögreglunnar
og íbúðalauss ungs fólks sem
hefur tekið tómar íbúðir trausta-
taki. Hefur aðalgata Berlínar
hvað eftir annað í haust og vetur
verið líkust vígvelli og hundruðir
verslana hafa verið skemmdar eða
rændar.
Framkvæmdastjóri CDU,
Geissler benti á það í umræðu-
þætti í sjónvarpi í gær að í
stjórnartíð SDP/FDP hafi 3 borg-
arstjórar og 20 ráðherrar þurft að
segja af sér vegna ýmiss konar
hneykslismála og að flest fjár-
málahneyksli í Þýskalandi á und-
anförnum árum hafi verið tengd
þessum tveimur flokkum. Slík
„afrekaskrá" veiki trú fólks á
lýðræðiskerfinu og eyðileggi álit
Berlínarborgar sem „sýningar-
glugga" hins vestræna lýðræðis.
Því sé eina lausnin sú að efnt verði
til nýrra kosninga.
Óvíst er hvað framundan er í
stjórnmálum Berlínar en atburð-
urinn í gær var sögulegur að því
leytinu til að í fyrsta skipti í
langan tíma greiddu þingmenn
atkvæði gegn sínum eigin flokki á
úrslitastund en þess í stað sam-
kvæmt eigin samvisku. Formaður
þingflokks CDU í Berlín sagði er
úrslitin voru kunn í gær: „Þetta
var augnablik þingræðisins."
Þetta gerðist
1337 — Páfastóll fluttur aftur til
Rómar frá Avignon.
1562 — Michel de THopital birtir
St. Germain-tilskipunina, sem við-
urkennir Húgenotta í Frakklandi.
1595 — Hinrik IV af Frakklandi
segir Spánverjum stríð á hendur.
1601 — Lyon-sáttmáli Frakklands,
Spánar og Savoy.
1746 — Orrustan við Falkirk. Karl
Játvarður Stúart prins sigrar
Breta.
1759 — Austurríkismenn segja
Prússum stríð á hendur.
1852 — Transvaal verður lýðveldi
með Sandársamningnum.
1893 — Frakkar og Rússar gera
bandalag - Haw»--; lýðveldi.
1817 — Bandaríkjamenn kaupa
Jómfrúreyjar af Dönum fyrir 26
milljónir dala.
1945 — Varsjá frelsuð.
1948 — Holland og lýðveldið Indó-
nesía undirrita vopnahlé.
1954 — Milovan Djilas rekinn úr
júgóslavneska kommúnistaflokkn-
um.
1959 — Senegal og Franska-Súdan
mynda sambandsríkið Mali.
1969 — Jan Palach brennir sig til
bana í Prag.
1974 — Samkomulag ísraels-
manna og Egypta um aðskilnað
herja við Súez-skurð.
1978 — Friðarviðræður utanríkis-
ráðherra ísraels, Bandaríkjanna,
og Egyptalands hefjast í Jerúsal-
em.
1980 — Bandarískir fréttaritarar
reknir frá Afghanistan.
Afmæli: Leonard Fuchs, þýzkur
eðlisfræðingur (1501 — 1566) — Pí-
us páfi V (1504-1572) - Pedro
Cáiúerón de la Barca, spænskur
leikritahöfundur (1600—1681) —
Benjamin Franklin, bandarískur
stjórnmálaleiðtogi (1706—1790) —
Anton Chekov, rússneskt leikskáld
(1860-1904) - David Lloyd-
George, brezkur stjórnmálaleiðtogi
(1863-1945) - David Beatty,
brezkur flotaforingi (1871—1936)
— Compton Mackenzie, brezkur
rithöfundur (1873—1972).
17. janúar
Andlát: 395 Theodosius keisari.
Innlent: 1752 d. Hjalti próf. Þor-
steinsson. — 1783 Landfógetaemb-
ættið stofnað — 1817 Konungs-
úrskurður um styrki til landbúnað-
arnáms í Danmörku — 1850 „Pere-
atið“ í Lærða skólanum — 1866 f.
Jóhannes Jóhannesson alþm. —
1881 d. Sveinn próf. Níelsson —
1896 Nýtt leikfélag hefur sýningar
í GT-húsinu — 1914 Stofnfundur
Eimskipafélags fslands — 1939
LÍÚ stofnað — 1942 Ráðherrar
Alþýðuflokks segja sig úr Þjóð-
stjórninnj _ 1957 Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Neskaupstað vígt —
1968 Leigubílstjóramorðið við
Rauðalæk — 1975 Þyrluslysið á
Kjalarnesi þegar sjö fórust — 1977
d. Ríkarður Jónsson — 1905 f.
Björn Sigfússon.
Orð dagsins: Stundum hendir það
menn að hrasa um sannleikann, en
flestir brölta þó hið skjótasta á
fætur og flýta sér í burtu eins og
ekkert hafi í skorizt — Winston
Churchill (1874-1965).
Rúmenía:
Barinn til ólífis fyrir
að dreifa Biblíunni
Stokkhólmi, 16. janúar. AP.
TÆPLEGA þrítugur Rúmeni
var barinn til ólífis af rúm-
enskum lögreglumönnum
fyrir að dreifa Biblíunni.
Slavneskur trúboði, Vilgot
Fritzon, skýrði fréttamanni
AP í Stokkhólmi frá þessu í
dag. Rúmeninn, sem mis-
þyrmt var svo hroðalega, var
kvæntur og tveggja barna
faðir. Atvik þetta átti sér
stað skömmu fyrir áramót.
Að sögn Fritzon, voru alls um 20
manns teknir og yfirheyrðir af
rúmenskum lögreglumönnum
fyrir áramótin, en áður hafa
rúmenskir lögreglumenn látið
dreifingu Biblíunnar afskipta-
lausa. Fritzon segir, að upphaf
máls þessa megi rekja til atviks,
sem átti sér stað í október síðast-
liðnum, en þá tóku sovéskir
lögreglumenn nokkra Rúmena
fasta fyrir að dreifa Biblíunni í
Sovétríkjunum. Svo virðist sem
sovéskir lögreglumenn hafi knúið
Rúmena til að bregðast hart við
dreifingu heilagrar ritningar.
Það næsta sem gerðist að sögn
Fritzon, var að rúmenskir ferða-
menn á leið í leyfi til Sovétríkj-
anna voru stöðvaðir í bænum
Succava í Rúmeníu. Rúmensku
lögreglumennirnir gerðu eintök af
Biblíunni, sem ferðamennirnir
höfðu meðferðis, upptæk og mis-
þyrmdu fjórum ferðalanganna svo
illa, að þeir voru vart þekkjanlegir