Morgunblaðið - 17.01.1981, Síða 28

Morgunblaðið - 17.01.1981, Síða 28
HVAD ER AÐ GERAST UM HELGINA? 28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1981 MYNDLIST: A. Paul Weber í Djúpinu Um þessar mundir stendur yfir í Galleri Djúpinu við Ilafnarstræti sýninK á verkum A. Paul Webers, sem lést í nóvember sióastliðnum. Þetta er fyrsta sýning á verkum þessa þýska grafíklistamanns eftir lát hans og þar gefur að líta 26 litógrafíur frá ýmsum tímum. Sýn- ingin stendur til mánaðamóta og er opin daglega frá kl. 11—23. Ein af litógrafium A. Paul Webers i Djúpinu. REGNBOGINN: Sólbruni - Ný bandarísk mynd í gær frumsýndi Regnboginn nýja bandariska litmynd, Sól- bruna. í aðalhlutverkum eru þokkadísin Farrah Fawcett. Charles Grodin og Art Carney. Leikstjóri er Richard C. Sara- fian. Myndin fjallar um viðureign og hörkuátök harðsnúinna trygg- ingasvikara og djarfra einkaspæj- ara sem láta sér heldur ekki allt fyrir brjósti brenna. Farrah Fawcett Á ómagahælinu eru munaðarleysingjarnir hálfsveltir. Það kemur i hlut Olivers að biðja um meiri graut. A FJOLUNUM: Þjóðleikhúsið frum- sýnir Oliver Twist Á MORGUN kl. 15.00 frumsýnir Þjóðleikhúsið leikgcrð Árna Ibsens á hinni viðlesnu sögu Charles Dickens um Oliver Twist. Leikstjóri er Briet Héðinsdóttir. en leikmynd og búningar eru eftir Messíönu Tómasdóttur og lýsinguna annast Kristinn Daníelsson. Fjöldi leikara kemur fram í þessu verki um góðhjartaða mun- aðarlausa drenginn sem bjargast eftir mikla hrakninga á ólgusjóum mannlífsins. Tveir drengir, Börkur Hrafnsson og Sigurður Sverrir Stephensen, leika Oliver á víxl. Flosi Ólafsson leikur hr. Bumble, umsjónarmann ómagahælisins, Bryndís Pétursdóttir leikur mat- ráðskonu hælisins sem verður eiginkona hr. Bumble, Jón S. Gunnarsson leikur útfararstjór- ann, Baldvin Halldórsson leikur Fagin, þann lævísa skúrk, Erling- ur Gíslason leikur Bill Sikes, Þórunn Magnea Magnúsdóttir leikur Nancý, Ævar R. Kvaran leikur góðhjartaða gamla mann- inn sem kemur Oliver til bjargar og Valur Gíslason leikur vin hans. Önnur sýning á Oliver Twist er á morgun kl. 15.00. Sýning Þjóðleikhússins á Blind- isleik eftir Jón Ásgeirsson og Jochen Ulrich hefur hlotið afar góðar undirtektir leikhúsgesta og hefur verið húsfyllir á flestum sýningum til þessa. Gagnrýnendur hafa allir borið mikið lof á sýning- una í heild og hafa m.a. hvatt fólk til þess að missa ekki af þessum viðburði. Og nú fer hver að verða síðastur að sjá sýninguna, því þeir erlendu dansarar sem fara með aðalhlutverk hverfa brátt af land- inu. Með aðalhlutverkin fara Michael Molnar, Conrad Bukes og Ingibjörg Pálsdóttir, en auk þeirra fara dansarar Islenska dans- flokksins með hlutverk sem og fjöldi annarra dansara. Leikmynd og búningar eru eftir Sigurjón Jóhannsson, en Kristinn Daníels- son sér um lýsinguna. Það er Sinfóníuhljómsveit íslands sem leikur undir stjórn Ragnars Björnssonar. Sýningar á Blindis- leik verða bæði í kvöld og annað kvöld. u LAUGARÁSBÍO: sama tíma að ári í fyrradag frumsýndi Laugarásbíó nýja bandaríska kvikmynd, Á sama tíma að ári. sem gerð er eftir samnefndu leikriti er sýnt var í Þjóðleikhúsinu fyrir rúmum tveimur árum. Aðalhlutverk leika Alan Alda (Spítalalíf) og Ellen Burstyn. Myndin segir frá manni, George, og konu, Doris, sem hittast fyrir tilviljun á hóteli í Norður-Kaliforníu árið 1951. Hún er þarna stödd á trúar- samkomu, hann í viðskiptaerind- um, bæði hamingjusamlega gift, en allt í einu eru kynni þeirra orðin náin. Og þau ákveða að hittast á sama stað á sama tíma að ári liðnu. Þannig gengur þetta og brugðið er upp myndum af samfundum þeirra með vissu millibili næsta aldarfjórðunginn. Hagir þeirra hafa mikið breyst á þessum tíma og aldurinn færist yfir þau. Alan Alda og Ellen Burstyn í hlutverkum sínum í myndinni MYNDLIST: Sýningu Kristins Guðbrands Harðarsonar lýkur um helgina Á morgun lýkur sýningu Krist- ins Guðbrands Harðarsonar í Ásmundarsal við Freyjugötu. Á sýningunni eru um 20 myndverk. Kristinn er fæddur í Reykjavík árið 1955 og útskrifaðist úr Myndlista- og handíöaskóla ís- lands vorið 1977. Þetta er önnur einkasýning Kristins, en hann hefur einnig tekið þátt í nokkrum samsýningum. Sýningin í Ás- mundarsa! er opin í dag og á morgun frá kl. 16—22, en henni lýkur annað kvöld. LEIKFELAG REYKJA VIKUR: Grettir, Rommí og Ofvitinn 1 kvöld verður 10. sýning á Gretti í Austurbæjarbíói og hefst hún á miðnætti. Góð aðsókn hefur verið á miðnætursýningarnar og undirtektir afbragðsgóðar. Höfundar verksins eru þeir Þórarinn Eldjárn, Ólafur Haukur Símonarson og Egill Ólafs- son úr Þursaflokknum, en hljómsveit- in tekur öll þátt í sýningunni. Sextán leikarar, söngvarar og dansarar koma fram en titilhlutverkið er í höndum LEIKFELAG KOPA VOGS: 64. sýning á Þorláki þreytta í kvöld verður 64. sýning Leikfélags Kópavogs á Þorláki þreytta og verður sýningum haldið áfram á meðan aðsókn helst eins og verið hefur. Leikfélag Kópavogs hefur nú tekið í notkun sjálfvirkan símsvara sem opinn er allan sólarhringinn og tekur á móti pöntunum. Eins og fyrr segir ræðst það af aðsókninni hvað Þorlákur verður lífseigur á fjölunum í Kópavogi, en ákveðið hefur verið að sýna hann „ef þörf krefur, jafnframt Leynimelnum sem frumsýndur verður í næsta mánuði. Kjartans Ragnarssonar. Leikstjóri er Stefán Baldursson. í Iðnó er sýning á verðlaunaleik- ritinu Rommí eftir Bandaríkja- manninn D.L. Coburn en þar fara þau Gísli Halldórsson og Sigríður Haga- lín á kostum í hlutverkum roskins fólks á elliheimili sem styttir sér stundirnar við spilamennsku. Sýn- ingar á Rommí eru nú að nálgast 40. Leikstjóri er Jón Sigurbjörnsson. Annað kvöld er svo Ofvitinn á fjölunum, en þetta vinsæla verk Þórbergs Þórðarssonar og Kjartans. Ragnarssonar virðist ætla að verða með langlífari sýningum Leikfélags- ins. Þær breytingar hafa nú orðið á hlutverkaskipan, að Guðrún Ás- mundsdóttir hefur tekið við hlutverki Valgerðar Dan en aðrir leikarar eru þeir sömu og verið hafa. Það eru Jón Hjartarson og Emil G. Guðmundsson sem fara með hlutverk ofvitans. Fjórar sýningar opnaðar í dag FJÓRAR sýningar verða opnað- ar f dag að Kjarvalsstoðum og þar af eru þrjár erlendar far- andsýningar. I Kjarvalssal eru sýndar myndir eftir sænska mál- arann Carl Frederik IIill, sem uppi var um síðustu aldamót og þykir með sérsta-ðustu lista- mönnum Svía. Á göngunum eru grafíkmyndir eftir 10 hollenska listamenn og sýning á nútíma- legum skartgripum eftir 19 landa þeirra. Loks er að geta sýningar hópsins „Vetrarmynd- ar“, sem er fjölbreytt i sniðum, enda eru hér með verk ólíkra myndlistarmanna. Sænski myndlistarmaðurinn Carl Frederik Hill þjáðist af geðsjúkdómi síðustu þrjátíu ár ævi sinnar og varðveist hefur fjöldi teikninga frá sjúkdómsár- um hans, sem hvarvetna hafa vakið mikla athygli. Hill skipar sess meðal fremstu landslagsmál- ara Svía, að því er Elín Benedikts- dóúir fulirí! sa?ði Verk hans þykja fara nærri nútímalist og höfðu áhrif á seinni tíma lista- menn, m.a. Picasso. Á sýningunni eru 76 teikningar, sem allar eru í eigu listasafnsins í Malmö en sýningin kemur hingað frá Hel- sinki, fyrir milligöngu Svenska Institutet og sænska sendiráðsins á íslandi. Göran Christenson, starfsmaður listasafnsins í Malmö, hefur haft umsjón með uppsetningu sýningarinnar, en sýningin var fyrst sett upp í París í tilefni heimsóknar sænsku kon- ungshjónanna þangað. Héðan fer hún til Færeyja, Englands og írlands. Hollenska skartgripasýningin er mjög nýstárleg en gripirnir eru gerðir úr silfri, plasti, áli og kopar og oft notuð fleiri en eitt efni í sama djásnið. „Grafík frá landi Mondriaans" nefnist grafíksýningin og þar eru verk eftir 10 hollenska listamenn, öll frá síðasta áratug. Er hér aðallega um að ræða sáldþrykk, að því er Hans Kristján Árnason, vararæðismaður Hollands, sagði, en sýningin kemur hingað fyrir milligöngu ræðismannsskrifstofu Hollands í Reykjavík á vegum hollenska menntamálaráðuneyt- •sins. Sýningarnai' ílifa báðar farið víða um heim og þess má geta aó Iscargo bauðst til þess að flytja verkin frá Rotterdam og til baka aftur endurgjaldslaust. Sýningarnar þrjár standa til 15. febrúar og er aðgangur ókeypis. Loks er að geta sýningar hóps- ins „Vetrarmyndar" í vestursal. Þar sýna Baltasar, Bragi Hann- esson, Einar Þorláksson, Haukur Dór, Hringur Jóhannesson, Leifur Breiðfjörð, Magnús Tómasson, Ní- els Hafstein, Sigríður Jóhanns- dóttir, Sigurður Örlygsson og Þór Vigfússon ný verk. Á sýningu „Vetrarmyndar" er 91 verk, flest unnin á sl. tveimur árum, olíumyndir, krítarmyndir, teikningar, vefnaður og skúlptúr, auk mynda sem unnar eru með blandaðri tækni. Skartgripir á hollensku sýningunn Sex af ellefu myndlistarmönnum sem sýna með „Vetrarmynd“ f vestursal Kjarvalsstaða (f.v.): Sigurður Örlygsson, Baltasar. Hringur Jóhannesson, Sigrfður Jóhannsdóttir, Leifur Breiðfjörð og Magnús Tómasson. Göran Christenson, starfsmaður listasafnsins f Malmö, heldur hér á mynd eftir sænska myndlistar- manninn Carl Frederik Hill. Með honum á mynd- (nni eru Elin Benediktsdóttir, fulltrúi i sænska sendiráðinu, og Esbjörn Rosenblad sendiráðunaut- KJAR VALSSTAÐIR:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.