Morgunblaðið - 17.01.1981, Page 31

Morgunblaðið - 17.01.1981, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1981 31 Grímur Guttormsson: Laxveiðar Færeyinga Svar við skrifum Jakobs V. Hafstein Jakob V. Hafstein, lögfræð- ingur, hefur skrifað í Morgun- blaðið 2 greinar um laxveiði í hafinu við Grænland og norður af Færeyjum. í fyrri grein sinni, birt 1. nóv. 1980, segir Jakob m.a.: „ Allur lax sem Færey- ingar veiða á þessu hafsvæði er alinn upp í ám annarra landa," ... „en ekki einn einasti í ám í Færeyjum. Það er vægt til orða tekið þó sagt sé að hér sé um fiskræktarlegan ránsfeng að ræða.“ Þetta er algjörlega úr lausu lofti gripið. í Færeyjum eru allt að fjórar ár þar sem laxarækt fer fram, árnar sem renna í Leynavatn og Mjáuvötn í Kollafjarðardali, áin í Saksun og Fjarðará í Skála- botni. Mikill laxastigi hefur verið reistur í Leynará, styrktur af opinberu fjármagni og byggð- ur samkvæmt norskri fyrir- mynd. í þessar ár hefur verið sleppt miklu magni af færeyskum og íslenskum laxaseiðum allt frá árinu 1947. Seiði þessu eru af stærðinni 15—20 cm. Þetta er samkvæmt skýrslu sem birtist í ársfjórðungsblaðinu „Sjómaður- in“, 4. tbl. 1972 (sjá töfluna). ár tal aldur uppruni 1947 20.000 nýklakt Island 1948 20.000 — — 1949 20.000 — — 1950 20.000 — — 1951 20.000 — — 1959 7.000 — — 1963 5.000 sumarg. — 1964 10.000 nýklakt Færeyjar 1965 10.000 — — 1966 1967 0 3.300 1967 500 smolt ísland 1968 20.000 nýklakt ísland + 1969 25.000 Færeyjar 1970 20.000 — — 1971 30.000 — — 1972 50.000 — — % ** Grimur Guttormsson Það má benda Jakobi á að þessi seiði eru ræktuð í þremur klekistöðvum í Færeyjum. I byggingu er hin fjórða klekistöð og á hún að geta framleitt 500 þús. seiði árlega. Svo og er fyrirhugað að byggja 2 í viðbót. Framleiddi ein klekistöðin u.þ.b. 200 þús. laxahrogn í ár. Svipuðu magni var sleppt úr stöðinni í fyrra og 20 þús. seiðum. 1977, ’78 og ’79 var 13.600 löxum sleppt í sjóinn. Þeir voru ómerktir. 1980 var 5153 merktum löxum sleppt úr klekistöð. Lögmaður Færey- inga drap nýlega á það í ræðu sinni að miða skuli við að sleppa út á næstu árum 1 Vfe milljón löxum frá ræktarstöðvunum. Af útlendum laxi sem veiðst hefur við Færeyjar hafa aðeins 3 verið merktir Islandi, þar af veiddist einn í stöðuvatni. Laxveiðiskipið Jens Chr. Svabo veiddi allt fram til ársins ’75 4000 laxa, þar af voru 14 merktir en enginn frá íslandi. 1978 höfðu Færeyingar veitt 89 merkta laxa og voru aðeins tveir þeirra merktir Islandi. Jakob talar um að færeyskar ár framleiði engan lax sjálfar og að Færeyingar séu nýbyrjaðir á fiskrækt og fiskeldi. Ég hef nú þegar nefnt 4 ár sem mikið laxagengi er í og vil taka fram að Færeyingar hófu laxarækt og laxaeldi 1947, sbr. 4 tbl. af „Sjómaðurin". Væri það Jakobi hollast að hann kynnti sér í framtíðinni staðreyndir mála áður en hann ásakar menn um „fiskræktar- legan ránsfeng“, eins og það er orðað í grein hans. Mikið af laxaseiðum kemur frá öðrum löndum til beitar- stöðvarinnar við Færeyjar þar sem hann dvelur í 3—4 ár. Góð beitarlönd eru frumskilyrði þess að seiðin geti einhvern tímann orðið fullvaxta lax. Því getur það alls ekki talist óeðlilegt að Færeyingar áskilji sér rétt til þess að veiða hluta af þeim laxi sem þar hefur vaxið upp. Uppistaðan af laxinum veidd- um við Færeyjar er færeyskur lax. Af merktum laxi við Fær- eyjar merktum 1.953 og hafa 91 merktir laxar verið veiddir aft- ur. Hafa þeir m.a. veiðst við Noreg, England og írland en Laxar merktir íslandi. veiddir aftur i Færeyjum ís. 4401 sleppt 23.6.66 í Hæðalæk Veiddur á línu 1.7.68 við Færeyjar ís. 700 sleppt vorið ’74 í Kollafirði Veiddur á línu 28.7.75 við Færeyjar ís. 3288 sleppt 21.5.74 í Kollafirði Veiddur á stöng 10.9.75 í Leynavatni 18,6 cm. 85 cm og 5,5 kg. 16,9 cm. 17,4 cm. 59 cm og 2,45 kg. Umhleypingar og ógæftir hjá Vestfirðingum í des. DESEMBER einkcnndist af miklum umhleypingum og ógæftum. Þorskveiðibann var hjá bátunum frá 20. desember til áramóta. en fram að þvi gaf aðeins í 8—10 róðra vegna ógæfta. Sæmilegur afli var þó, þegar gaf til róðra. Togararnir voru einnig i banni hluta mánaðarins. þar sem þeim var gert að stöðva þorskveiðar í 18 daga á timabilinu frá 20. nóv- ember til áramóta. Fengu þeir flestir ágætan afla i byrjun mánaðarins. en siðari hlutann var afli mjög misjafn, segir i yfirliti frá skrifstofu Fiskifé- lagsins á ísafirði. I desember stunduðu 13 (12) togarar og 17 (25) bátar botn- fiskveiðar frá Vestfjörðum, og réru bátarnir allir með línu. Heildarafli mánaðarins var 5.651 lest, en var 6.655 lestir á sama tíma í fyrra. Afli bátanna var 832 lestir í 123 róðrum eða 6,8 lestir að meðaltali í róðri. í fyrra var desemberafli bátanna 2.657 lestir í 332 róðrum eða 8,0 lestir að meðaltali í róðri. Aflahæsti línubáturinn í des- ember var Ólafur Friðbertsson frá Suðureyri með 91,9 lestir í 10 róðrum, en í fyrra var Garðar frá Patreksfirði afla- hæstur í desember með 154,3 lestir í 15 róðrum. Júlíus Geirmundsson frá ísafirði var aflahæstur togaranna í desem- ber með 520,0 lestir, en í fyrra var Páll Pálsson frá Hnífsdal aflahæstur með 426,4 lestir. Aflahæsti línubáturinn á haustvertíðinni varð nú Ólafur Friðbertsson frá Suðureyri með 444,2 lestir í 62 róðrum en í fyrra var Orri frá ísafirði aflahæstur á haustvertíð með 645,6 lestir í 69 róðrum. enginn við Island, (sjá kort I). Þetta sýnir að íslenski laxinn ferðast ekki til Færeyja að neinu magni. Þann 27. ág. 1980 gaf Lögþing Færeyinga út reglugerð um lax- veiði og brot á þeim reglum eru missir veiðiréttinda og afli og veiðarfæri gerð upptæk. Jakob talar um „fiskræktar- legan ránsfeng" Færeyinga. Rússar hafa veitt merktan fær- eyskan lax en ekki hafa Færey- ingar brígslað Rússum um „fisk- ræktarlegan ránsfeng". En eins og máltækið segir: „Frændur eru frændum verstir". Grímur Guttormsson Þorkell Guðjónsson Jónatan Ágúst Helgason Myndabrengl urðu með minningargreinum í blaðinu í gær. Mynd af Þorkeli Guðjónssyni birtist með grein um Jónatan Ágúst Helgason og öfugt. Biðst blaðið velvirðingar á þessum mistökum. Byggt yfir Tjald Stykkishólmi, 15. janúar. 1981. NÚ EFTIR áramótin var lokið við að byggja yfir vélbótinn Tjald fró Rifi i skipasmíðastöðinni Skipa- vik. en unnið hafði verið að yfirbyggingunni nú f haust. Byggt er alveg yfir bátinn, til að hlífa mönnum á dekki við vinnu þeirra, og var báturinn settur niður í fyrradag og fór hann í fyrstu veiðiförina í dag. Þykir yfirbygg- ingin hafa heppnast mjög vel. Fréttaritari MYNDAMÓTHF. PRENTMYNOAGERÐ AÐALSTRETI • SlMAR: 17152-17355 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Keflavík 3ja herb. fbúö viö Mávabraut f góöu ástandl. Verö 280 þús. 4ra herb. sérhœö viö Hátún, sér Inngangur. Verö 350 þús. 3ja herb. fbúö viö Kirkjuteig. Verö 220 þús. 3ja herb. fbúö viö Vesturgötu. Sér inngangur. Verö 260 þús. 3ja herb. fbúö vlö Vesturgötu í nýlegu fjórbýlishúsi, 85 ferm. Sér inngangur. Bflskúr. Verö 400 þús. Glæsileg sérhæö viö Sunnu- braut. 136 ferm. ásamt bflskúr Eign í sérflokki. Verö 560 þús. Njarðvík 166 ferm. einbýlishús á besta staö í bænum ásamt bílskúr. Sklpti á íbúö f Reykjavfk eöa Suöurnesjum koma til greina. Verö 800 þús. Eignamiölun Suöurnesja, Hafnargötu 57, Kaflavfk, •kni 3888. Toyota Carina árg. ’79 Til sölu Uppl í síma 51061. Drápuhlíöargrjót (heilur). Uppl. f síma 51061. Krossinn Æskulýössamkoma í kvöld kl. 8.30 aö Auöbrekku 34. Kópa- vogi. Allir hjartanlega velkomnir □ Gimll 59811197 — 1 □ Helgafell 598117012 IV/V. Fimir fætur Dansæfing í Hreyfilshúsinu kl. 9—1, 18. janúar. Óháði söfnuðurinn efllr messu nk. sunnudag veröa katfiveitingar í Kirkjubæ til efl- ingar Bjargarsjóöi. Ffladelfía Bænavikunn) lýkur í kvöld kl. 20.30. e ÚTIVISTARFERÐIR Sunnud. 18.1. kl. 13: Hafravatn og nágrenni, létt gangaeöa skíöaganga Fararstj Erlingur Thoroddsen. Verö 40 kr. frftt f. börn m. fullorönum Fariö frá BSÍ aö vestanveröu. Myndakvöld, pönnukökukatfi. veröur aö Freyjugötu 27, mánu- daginn 19.1. kl. 20.30. Aöalbjörg Zophonfasdóttir sýnir myndir úr Loómundarfiröi og víöar. Tunglakinsganga á priöjudag W. 20. Otivist. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTII3 SÍMAR11798 og 19533. Dagsferöir 18. janúar kl. 13: Arnarbæli — Vetnsendaborg fyrir sunnan Elliðavatn. Farar- stjórl: Slgurður Kristinsson Skiöaganga á Helhsheiöi (ef færö leyfir). Fararstjóri: Hjálmar Guð- mundsson. Veró kr. 30.-. Fariö frá Umferöarmiðstööinni aö austanveröu. Farm. viö bfl. Feröafélag íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.