Morgunblaðið - 17.01.1981, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1981
Sigurður Harðarson
Birgir ísl. Gunnarsson
ólafur B. Thors
Umræður um deiliskipulag fyrir Ártúnsholt og Selás:
Magnús L. Sveinsson
Sigurjón Pétursson
Reykjavík hrekst áfram án fyrir-
heits og takmarks í skipulagsmálum
*
- segir Olafur B. Thors
Samþykkt var á fundi borgarstjórnar á fimmtudagskvöldið
aó hefja undirbúning að deiliskipulagi svæða vestan Árbæjar-
safns og á Selási. í borgarráði þann 30. desember var
samþykkt án ágreinings að hefja undirhúning deiiiskipulags i
Selási. en ágreiningur varð um svæðið vestan Árbæjarsafns
(milli safnsins og Vesturlandsvegar). Á borgarstjórnarfundin-
um urðu talsverðar umræður um þetta mál og verða þær
lauslega raktar hér á eftir.
Ekki þarf að
spilla trjánum
Fyrstur tók til máls Sigurður
Harðarson (Abl), en hann er
formaður skipulagsnefndar. Sig-
urður sagði, að á svæðinu vestan
Árbæjarsafns væri áformað að
byggja um 600 íbúðir, enda væri
það svæði ákjósanlegt til bygg-
inga. Að vísu væru á svæðinu um
900 trjáplöntur sem gróðursettar
hefðu verið þar á undanförnum
árum, en komast mætti hjá því að
valda spjöllum á þeim með því að
taka tillit til þeirra við byggingar-
framkvæmdirnar, eða flytja þær
um set þegar öðru væri ekki við
komið. Þá minntist Sigurður á
bókun umhverfismálaráðs, þar
sem fjaliað var um þetta mál og
sagði hann, að sér virtist um-
hverfismálaráð ekki Ieggjast gegn
þessum skipulagshugmyndum, þó
á svæðinu væru 900 trjáplöntur.
Spádómar
sjálfstæðismanna
komnir á daginn
Næstur talaði Birgir ísl. Gunn-
arsson (S). Hann sagði, að þann 6.
mars sl. hefðu farið fram ítarlegar
umræður um skipulagsmál í borg-
arstjórn, en á þeim fundi hefði
verið ákveðið að fresta að stað-
festa endurskoðað Aðalskipulag,
en senda það þess í stað í
endurskoðun hjá Borgarskipulagi.
Sú endurskoðun hefði átt að taka
tvo mánuði. Birgir sagði, að sjálf-
stæðismenn hefðu talið eðlilegt að
staðfesta það Aðalskipulag, sem
þá lá fyrir. Síðan rifjaði Birgir
upp umræður sem urðu á borgar-
stjórnarfundinum þann 6. mars.
Birgir sagði, að það hefði komið á
daginn sem sjálfstæðismenn þá
héldu fram, enda væri nú þegar
farið að bera á lóðaskorti í borg-
inni.
Engin lóð undir
atvinnuhúsnæði
„Það hefur engri lóð undir
atvinnuhúsnæði verið úthlutað á
þessu kjörtímabili og ekki líður sú
vika að ekki komi einhverjir
fyrirsvarsmenn fyrirtækja í borg-
inni til ráðamanna borgarinnar og
fari þess á leit að fá úthlutað lóð
fyrir atvinnustarfsemi. Þeir fá
allir sama svarið: Það er engin lóð
til og ekki líkur á að það breytist á
næstunni," sagði Birgir. Þá benti
Birgir einnig á, að litið framboð
væri á lóðum undir íbúðarhús-
næði. Hann sagði, að svokölluð
„þétting byggðar" hefði bjargað
vinstri meirihlutanum í borgar-
stjórn, að nokkru leyti, þeir hefðu
gripið til þess ráðs að byggja á
samþykktum útivistarsvæðum og
opnum svæðum í borginni.
Síðan vék Birgir orðum sínum
að Aðalskipulaginu og sagði, að í
mars hefði Borgarskipulagi verið
falið að endurskoða skipulagið.
„Endurskoðuninni átti að vera
lokið innan 2ja mánaða, en við
sjálfstæðismenn létum bóka á
fundinum, að þetta myndi örugg-
lega taka lengri tíma, ef endur-
skoðunin ætti ekki að vera hálfkák
eitt. Nú eru sjö mánuðir liðnir frá
þeim tíma sem endurskoðuninni
átti að vera lokið, og enn er ekki
séð fyrir endann á henni. Nú er
gripið til þess þrautaráðs að taka
tvö svæði út úr og nú á að fara að
gera deiliskipulag af þeim. Þessi
svæði eru tekin úr öllu samhengi
við Aðalskipulagið og reynir
vinstri meirihlutinn að bjarga sér
i horn með þessu móti,“ sagði
Birgir.
Pólitíska festu
skortir hjá
meirihlutanum
Birgir sagðist telja, að vel gæti
komið til greina að byggja á
Selásnum, öðru því svæða sem til
stendur að skipuleggja, en rök
mæltu því í mót að byggja á
Ártúnsholtinu. Birgir sagði ljóst,
að öll skipulagsmál borgarinnar
væru í slíkum ólestri, að óviðun-
andi væri. Hann sagði því um að
kenna að alla pólitiska festu skorti
hjá meirihlutanum, „þeir vita ekki
í hvorn fótinn þeir eiga að stíga í
skipulagsmálum," sagði Birgir.
Birgir sagði, að mikil eftirspurn
væri eftir lóðum undir íbúðar-
húsnæði, og nefndi hann sem
dæmi, að um 1000 umsóknir hefðu
borist þegar lóðum var úthlutað
síðast og ekki væru líkur á að
umsóknum myndi fækka á næst-
unni.
„Það hefði einhverntíma þótt
gagnrýnisefni að taka tvö svæði út
úr og ætla sér að byggja á þeim,
án undanfarandi athugunar. Við
viljum því enga ábyrgð bera á
þessum vinnubrögðum og förum
því fram á að tillagan verði borin
undir atkvæði í tvennu lagi,“ sagði
Birgir.
Þá vék Birgir máli sínu að
Ártúnsholtinu og sagði, að margt
væri óljóst varðandi þetta svæði.
Hann sagði, að með ólíkindum
væri að tekin væri grundvallaraf-
staða til þess svæðis og ákveðið að
taka það til deiliskipulags, án þess
að mörg atriði væru ljós. Afmörk-
un svæðisins væri óljós svo og
tengsl þess við Árbæjarsafn. Allar
hugmyndir varðandi svæðið væru
óljósar, t.d. væri óljóst, hvernig
meðhöndla ætti þær 900 trjáplönt-
ur sem á svæðinu væru. Menn
væru ýmist að tala um að byggja
innan um plönturnar eða flytja
þær. Þá mætti nefna, að með
þessum nýju hugmyndum væri
verið að raska verulega þeim
hugmyndum sem áður hefðu verið
uppi um svæðið. Þá hefði ekkert
samráð verið haft við íbúana í
Árbæjarhverfi, en það hefði verið
eitt þeirra mála sem vinstri meiri-
hlutinn hefði ætlað sér að gera. Þá
vitnaði Birgir í tvö bréf sem borist
hefðu og í báðum bréfunum væri
mælt á móti því að byggja á
Ártúnsholtinu. Ánnað bréfið væri
frá Framfarafélagi Árbæjar- og
Selásshverfis, en hitt frá Skóg-
ræktarfélagi Reykjavíkur, en
trjáplönturnar sem á svæðinu
væru, hefðu verið gróðursettar í
samvinnu við það félag.
í lok máls síns las Birgir upp
bókun frá borgarfulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins og er hún svo-
hljóðandi:
Tökum enga
ábyrgð á þessum
vinnubrögðum
„Við vísum til bókunar fulltrúa
flokksins í skipulagsnefnd frá 22.
desember 1980, þar sem harðlega
er gagnrýnt, hvernig staðið hefur
verið að skipulagsmálum borgar-
innar undanfarin misseri. Þar
kemur m.a. fram eftirfarandi:
1) Þrátt fyrir samþykki borgar-
stjórnar um endurskoðun á aðal-
skipulagi varðandi ný byggingar-
svæði, sem Ijúka átti í maí sl. sér
enn ekki fyrir endann á því verki
og eru þó nú 7 mánuðir liðnir frá
því endurskoðuninni átti að vera
lokið.
2) Ljóst er, að alla pólitíska
forystu hefur skort til að taka
ákvarðanir og móta heildarstefnu
í aðalskipulagsmálum borgarinn-
ar.
3) Við vísum á bug þeirri full-
yrðingu í tillögu meiri hlutans, að
ekki hafi verið unnt að ljúka við
gerð aðalskipulagstillögu vegna
óvissu um stöðu borgarinnar
gagnvart landi og bendum á, að
þrátt fyrir ítrekuð tilmæli, sbr.
bókun í skipulagsnefnd þ. 20.
febrúar 1980 og munnleg tilmæli í
borgarstjórn 6. marz sl., hefur
borgarstjóri ekki enn gert neina
grein fyrir því, hvað gert hafi
verið til að ná fram samningum