Morgunblaðið - 17.01.1981, Page 46

Morgunblaðið - 17.01.1981, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1981 „Alls óhræddur verði vörnin í lagi gegn Lugi“ - segir Kristján Sigmundsson • íslandsmeistarar Vikings i handknattleik eiga erfitt verkefni fyrir höndum á morgun er þeir mæta sænsku meisturunum Lugi. Tekst Víkingi að sigra? „ÉG ER alls óhræddur við Lugi verði vörnin og markvarzlan i lagi,“ sagði Kristján Sigmunds- son, markvörður Víkings og is- lenzka landsliðsins þegar hann var spurður um möguleika Vik- ings gegn Lugi. Kristján hefur aldrei verið betri en einmitt i vetur og vist er, að Vikingsliðið Sveitaglíma íslands í dag Sveitaglíma íslands fer fram i iþróttahúsi Vogaskóla i dag og hefst hún klukkan 16.30. 4 sveitir hafa boðað komu sina og glima allir við alla. Ætti keppni að geta orðið spennandi. Mullersmót á skíðum Mullersmótið árlega á skíðum fer fram í Hveradölum í dag og hefst það klukkan 14.00. Keppt verður i flokkasvigi. getur þakkað honum öðrum fremur, að enginn leikur hefur tapast i 1. deild. Þegar Vikingur vann nauma sigra i fyrstu um- ferðum íslandsmótsins og slapp fyrir horn gegn KR með því að skora þrjú mörk á síðustu 47 sekúndum leiksins og þannig ná jafntefli, var það Kristján sem bókstaflega hélt Vikingum á floti með markvörzlu sinni. Siðan hef- ur Vikingsliðið styrkzt leik frá leik og aukið yfirburði sina jafnt og þétt i 1. deild. „Við Víkingar erum ennþá minnugir leikjanna við sænska liðið Heim í fyrra," sagði Kristján og hélt áfram: „Við töpuðum fyrri leiknum á útivelli með fjögurra marka mun og töldum okkur sigur vísan í seinni leiknum. En þegar á hólminn kom vorum við of tauga- spenntir og gátum ekki staðið við stóru orðin. Þetta má ekki endur- taka sig. Það má aldrei vanmeta nein lið, allra sízt sænsk. Ég býst við því, að Svíarnir berjist af fullum krafti og þá veltur mest á vörn okkar og markvörzlunni. Það hefur sýnt sig, að sóknin skilar þeim árangri, sem að er stefnt.“ ÍSLANDSMEISTARAR Vlkings og sænsku meistararnir Lugi frá Lundi mætast i 8-liða úrslitum Evrópukeppni meistaraliða í handknattleik i Laugardalshöli sunnudaginn 18. janúar og hefst leikurinn klukkan 20. Seinni leikur liðanna fer fram í Lundi viku seinna eða sunnudaginn 25. janúar. Víkingar sátu yfir i 1. umferð keppninnar en slógu ungversku meistarana Tatabanya út i 2. umferð eins og frægt varð. í 2. umferð sló Lugi út færeysku meistarana. Dómarar leiksins eru danskir, Hjöler og Jörgensen, en sá fyrr- nefndi dæmdi leik Vikings og Tatabanya i Laugardalshölí ásamt Ohlsen og þótti dómgæzla þeirra með þvi bezta, sem hér hefur sézt. Jón Hjaltalín heiðursgestur Heiðursgestur leiksins verður Jón Hjaltalín. Hann hóf feril sinn með Víkingi og varð fljótt aðal- skytta Víkings og landsliðsins. Þegar Jón var rúmlega tvítugur hélt hann til Svíþjóðar til að nema rafmagnsverkfræði og gerðist jafnframt leikmaður hjá Lugi, og lék hann með félaginu um margra ára skeið. Jón er nú búsettur hér á landi. Erfiður leikur Það er alveg ljóst að leikur Víkings gegn Lugi verður mjög erfiður og Víkingsliðið verður að ná góðum leik ætli þeir sér að sigra í leiknum. Nokkurrar bjarts- ýni á hagstæð úrslit virðist gæta í herbúðum Víkinga. Þannig spáði Þorbergur Aðalsteinsson fimm marka sigri fyrir Víking, 20—15, á blaðamannafundi fyrir skömmu. Kristján Sigmundsson mark- vörður spáði tveggja marka sigri fyrir Víking. Rósmundur Jónsson spáði 18—16 fyrir Víking. Bogdan þjálfari varaði hins vegar við of mikilli bjartsýni. Páll Björgvins- son lagði mikla áherslu á það að góður stuðningur áhorfenda væri upp á 4 til 5 mörk. Og víst er að áhorfendur munu ekki bregðast nú frekar en svo oft áður. Þeir hafa sýnt að þeir geta fleytt liðum yfir flúðirnar þegar svo ber undir. Leikmenn Lugi eru flestir vel yfir 1.90 m á hæð og í góðri líkamlegri þjálfun, eru sterkir og fljótir. Þá eru þeir skotmenn góðir. Sigur verður að vinnast í heimaleiknum ætli Víkingar að gera sér vonir um að komast í 4-liða úrslitin í Evrópukeppni meistaraliða. Áhorfendur geta gert gæfumuninn „Ahorfendur voru stórkostlegir þegar við lékum við Tatabanya í Laugardalshöll og það var ekki síst þeim að þakka að við kom- umst áfram í Evrópukeppninni. Það getur oltið á stuðningi áhorf- enda, hvernig leikur okkar í Höll- inni gegn Lugi þróast," sagði Þorbergur Aðalsteinsson, stór- skytta Víkings, þegar rætt var við hann um leikina gegn Lugi. Það var einmitt Þorbergur sem kom Víking áfram í 8-liða úrslit Evr- ópukeppni meistaraliða þegar hann skoraði sigurmark Víkings í Ungverjalandi þegar venjulegum leiktíma var lokið. „Lugi hefur tekið miklum fram- förum eftir slaka byrjun í All- svenskan og það er því rétt að vera ekki of sigurviss fyrir leikina," sagði Þorbergur. „Ég held að Víkingur hafi aldrei átt á að skipa sterkara liði og því hreinlega verðum við að grípa tækifærið og reyna að komast eins langt í Evrópukeppninni og við getum. Ef við leikum af skynsemi þá eiga möguleikar okkar að vera miklir en við þurfum auðvitað að hafa í huga að leikur vinnst hvergi nema á leikvellinum sjálfum." - þr Handknattleikur um helgina Laugardalshöll Kl. 14.00 I. d. ka. Kl. 16.00 II. d. ka. Kl. 17.15 I. d. kv. Kl. 18.15 2. fl. ka. B Valur - Fylkir Laugardagur 17. janúar Fram - KR. Óli Olsen - Ingvar V. IR - Þór. Einar Sveins. - Helgi Gunnars. Valur - Fram. Einar Sveins. - Helgi Gunnars. Varmá Kl. 15.00 Kl. 16.15 d. ka d. kv. B Hafnarfjörður Kl. 14.00 I. d. kv. Kl. 15.00 I. d. kv. Kl. 16.00 2. fl. ka. C Kl. 16.45 2. fl. ka. B Vestmannaeyjar kl. 13.30 III. d. ka. Laugardagur 17. janúar UMFA - Týr. Hjálmur Sig. - Gunnar Steingr. HK - ÍBV. Hjálmur Sig. - Gunnar Steingr. Laugardagur 17. janúar FH - í A. Pétur Guðm. - Jón Magnúss. Haukar - Víkingur. Pétur Guðm. - Jón Magnúss. Haukar- ÍR FH - Víkingur Laugardagur 17. janúar Þór - Reynir. Stefán Arnalds. - Ólafur Haralds. Akureyri kl. 16.00 I. d. kv. Njarðvík Kl. 13.00 II. d. kv. A Keflavik Kl. 14.30 Laugardagur 17. janúar Þór - KR. Guðm. Lár. - Jón Hensley Laugardagur 17. janúar UMFN - UMFA. Sig. Gíslas. - Steingr. Sig. Laugardagur 17. janúar II. d. kv. A ÍBK - ÍR. Sig. Gíslas. - Steingr. Sig. Laugardalshöll Kl. 14.00 II. d. ka. Kl. 15.15 Il.d. kv. B Kl. 16.15 Il.d. kv. A Kl. 17.15 2. fl. ka. B Kl. 20.00 I. d. ka. Ásgarður Kl. 20.00 III. d. ka. Laugardalshöll Kl. 19.00 2. fl. ka. C Kl. 20.00 I. d. kv. Sunnudagur 18. janúar Ármann - HK. Rögnvald E. - Ólafur Steingr. Þróttur - ÍBV. Erlingur K. - Alf P. Fylkir - Stjarnan. Erlingur K. - Alf P. Fylkir - Fram Þróttur - Víkingur. Jón Friðst. - Árni Tómass. Sunnudagur 18. janúar Stjarnan - IBK. Ingvar V. - Guðm. Magnúss. Þriðjudagur 20. janúar ÍR - UBK Víkingur - KR. Stefán Arnalds - Ólafur Haralds. Körfuknattleikur um helgina EFTIRTALDIR leikir fara fram í íslandsmótinu i körfuknattleik um helgina og i vikunni sem framundan er. Hagaskóli 17 janúar laugardagur: kl. 14.00 Ú Ármann—Valur Njarðvík kl. 14.00 I UMFG-UMFS Akureyri kl. 14.00 I Þór-Fram Hagaskóli kl. 16.00 II Esja-ÍA Hagaskóli 18. janúar sunnudagur: kl. 13.30 Ú KR-ÍS Hagaskóli 19. janúar mánudagur: kl. 20.00 Ú ÍR—Ármann Hagaskóli 22. janúar fimmtudagur: kl. 20.00 Ú ÍR-ÍS Keflavík kl. 20.00 I ÍBK-Fram Njarðvík 23. janúar föstudagur: kl. 20.00 Ú UMFN—Valur • Rúllu-skiðaííanga gefur ágæta raun til undirbúnings komandi vetrar. Ekki við hæfi byrjenda. • Rúllu-skíði eru notuð eins og venjuleg skíði og flestar gerðir sem til eru, eru ætlaðar til notkunar á malbiki. Hafið gát á umferðinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.