Morgunblaðið - 17.01.1981, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1981
47
r
Tveir markverðir úr
2. deild út með landsliðinu
HILMAR Björnsson landsliðs-
þjálfari í handknattleik hefur
valið 14 manna hóp sem fer í hina
stuttu og erfiðu keppnisferð til
Vestur-Þýskalands og Danmerk-
ur. Hópurinn er mjög breyttur
frá Norðurlandamótinu og lands-
leikjunum við Belga og Vestur-
Þjóðverja, því Víkingarnir eru
uppteknir af Gvrópuleikjum sín-
um. Reikna má með þvi að
lokahópurinn fyrir B-keppnina
verði þvi töluvert frábrugðinn
þeim er nú leggur land undir fót.
Hópinn nú skipa eftirtaldir leik-
menn:
Jens Einarsson Tý
Einar Þorvarðarson HK
Gunnar Einarsson Haukum
Axel Axelsson Fram
Ólafur H. Jónsson Þrótti
Bjarni Guðmundsson Val
Páll Ólafsson Þrótti
Brynjar Harðarson Val
Sigurður Sveinsson Þrótti
Steindór Gunnarsson Val
Atli Hilmarsson Fram
Þorbjörn Guðmundsson Val
Stefán Halldórsson Val
Jóhannes Stefánsson KR
Nýjustu mennirnir í hópnum
eru KR-ingurinn Jóhannes Stef-
ánsson og Gunnar Einarsson
markvörður Hauka. Annars er
einnig athyglisvert, að tveir
þriggja markvarðanna eru leik-
menn í 2. deild, þ.e.a.s. þeir Jens
og Einar. Jens er þó margreyndur
iandsliðsmarkvörður og Einar
lengi verið meðal bestu markvarða
landsins.
I þessari ferð verða leiknir þrír
landsleikir sem fyrr segir. Fyrsti
leikurinn fer fram í Hamborg 20.
janúar og mæta íslendingar þá
Vestur-Þjóðverjum. 22. janúar
mætast þjóðirnar á ný í Lubeck.
23. janúar fer síðan fram lands-
leikur við Dani í borginni Ribe.
Tókst á síðustu stundu að koma
þeim leik á, eftir að Belgar höfðu
boðað forföll, en leika átti tvo leiki
við þá að loknum leikjunum við
Vestur-Þjóðverja.
Fljótlega leika íslendingar og
Frakkar síðan þrjá landsleiki í
Laugardalshöilinni og að þeim
ieikjum loknum mun Hilmar velja
þann 16 manna hóp sem fer á
• Gunnar Einarsson
B-keppnina í Frakklandi. Síðasti
liðurinn í undirbúningnum fyrir
B-keppnina, eru síðan þrír lands-
leikir á heimavelli gegn Austur-
Þjóðverjum, sennilega besta hand-
knattleikslandsliði í heiminum í
dag.
t,
Nú styttist óðum í B-heims-
meistarakeppnina i handknatt-
leik sem fram fer í Frakklandi í
lok næsta mánaðar. Tekst ís-
lenska landsliðinu í handknatt-
leik að tryggja sér sæti i A-
keppninni sem fram fer árið 1982
í Vestur-Þýskalandi og verða
meðal bestu þjóða heims í íþrótt-
inni eins og undanfarin ár?
Hilmar Björnsson landsliðsþjálf-
ari er nú að leggja síðustu drög
að undirbúningi sinum og fram-
undan eru 9 landsleikir. Mbl.
innti Hilmar eftir þvi hvernig
honum litist á verkefnin sem
framundan eru.
— Ég er nokkuð bjartsýnn á að
vel gangi. Við fáum 9 landsleiki og
þeir geta gefið okkur góða mynd
af því hvar við stöndum. Ferð
okkar út á mánudag er fyrst og
fremst hugsuð sem æfingaferð.
Menn fá þar tækifæri til þess að
sýna getu sýna. Við förum með 16
leikmenn til Frakklands, og ljóst
er að nokkur breyting verður á
hópnum sem var valinn.
Eg mun að öllum líkindum
byggja landsliðið upp í kring um
Víkingsliðið. Og eitt af því sem ég
býð eftir er hvort Árni Indriðason,
Víkingi, gefur kost á sér í hópinn.
Við eigum stórt verkefni framund-
an og verðum að undirbúa okkur
Lið ÍS:
Bjarni Gunnar Sveinsson 5
Ingi Stefánsson 4
Gunnar Thors 4
Jón Oddsson 4
Árni Guðmundsson 8
Gisli Gislason 6
Albert Guðmundsson 4
Lið UMFN:
Guðsteinn Ingimarsson 4
Gunnar Þorvarðarson 3
Július Valgeirsson 5
Jónas Valgeirsson 5
Jónas Jóhannesson 4
Árni Lárusson 3
Valur Ingimundarson 3
Þorsteinn Bjarnason 3
vel. Jafnframt þurfum við á öllum
okkar bestu mönnum að halda.
Síðustu þrír leikir okkar í und-
irbúningnum verða hér heima við
Austur-Þjóðverja, besta lið heims-
ins í dag. Þá reynir á okkur og við
þurfum að vera við því búnir að
sýna kröftuga mótspyrnu. Lands-
liðið mun æfa af miklum krafti
fram að B-keppninni, því aðeins
með góðum undirbúningi tekst
okkur að ná takmarki okkar.
þr.
• Atli Eðvaldsson er eini islenski knattspyrnumaðurinn sem leikið
hefur sem atvinnumaður i þýsku 1. deildinni i knattspyrnu. Atli sem
sést hér i leik i deildinni segir frá reynslu sinni i viðtali i fþróttablaði
Morgunblaðsins á þriðjudag.
Ardiles settur
út í kuldann
— mætti allt of seint
• Osvaldo Ardiles sýndi á sér
nýja hlið.
ekki hafa hirt um það og siðan
mætti hann næstum viku síðar og
afar ferðalúinn. Tottenham mæt-
ir Arsenal einnig án Ricardo
Villa, sem á við meiðsl i hné að
strfða. Tveir lykilmenn Arsenal
eiga einnig i meiðslum. Brian
Talbot og David O'Leary. Hvor-
ugur verður með i dag.
• Það þýðir litið að skriða fyrir
dómaranum, ef búið er að dæma
eitthvað, þá verður þvi varla
breytt. Það ber þó ekki á öðru en
að Fortuna Diisseldorf-Ieikmað-
urinn Heiner Baltes beiti öllum
ráðum til þess að dómarinn gefi
sig og stingi gula spjaldinu i
vasann aftur ...
ARGENTÍNSKI knattspyrnu-
snillingurinn Osvaldo Ardiles,
verður ekki í liði Tottenham sem
mætir Arsenal i 1. deild ensku
deildarkeppninnar i dag.
Framkvæmdastjóri Tottenham.
Keith Burkinshaw, lét hafa eftir
sér, að hann væri fýldur út i litla
Argentinumanninn, þar sem
hann lagði fyrir hann að koma
aftur til Englands með fyrstu vél
að „gullkeppninni“ svokölluðu
lokinni. Hins vegar mun Ardiles
Kðrfuknatlielkur
Bjarni vann
punktamótið
PUNKTAMÓT Víkings í borð-
tennis fór fram siðustu kvöldin
og var keppni hörð og spennandi.
í meistaraflokki karla sigraði
Bjarni Kristjánsson UMFK, en í
meistaraflokki kvenna bar Ragn-
hildur Sigurðardóttir sigur úr
býtum. Ragnhildur tilheyrir
UMSB. í fyrsta flokki kai
sigraði Jóhannes Hauksson I
og i fyrsta flokki kvenna va
Erna Sigmundsdóttir hlutsköi
ust. Loks var keppt i öðrt
flokki karla og þar sigraði Gui
ar Eiriksson Erninum.
Níu landsleikir
eru framundan
í handknattleik
fram að B-keppni
Kvenna-
knatt-
spyrna
Laugardaginn 24. janúar
1981. boðar Knattspyrnu-
samband íslands til
umræðufundar um kvenna-
knattspyrnu og framtið
hennar á Íslandi.
1. Fundarsetning. Gunnar
Sigurðsson formaður
kvennanefndar KSl.
2. Ávarp. Ellert B. Schram
formaður KSÍ.
3. Erindi. Reynir Karlsson
æskulýðsfulltrúi rikisins,
ræðir um þróun kvenna-
knattspyrnu i nágranna-
löndum okkar og stöðu
kvennaknattspyrnu á ts-
landi og framtíðarmögu-
leika hennar.
4. Frjálsar umræður og
skoðanaskipti fundargesta.
Fundurinn hefst kl. 15.00
að Hótel Loftleiðum og er
opinn öllum þeim, sem
áhuga hafa á framgangi
kvennaknattspyrnunnar.
Sálfræði
langhlaupa
EINS OG áður hefur komið
fram. verður á morgun.
sunnudag, haldinn fræðislu-
fundur um hlaup i öskju-
hliðarskólanum. frá kl. 16
til 19. Nú hefur einn fyrir-
lesari bæzt í hóp þeirra sem
fjalia þar um ýmis atriði
hiaupaþjálfunar, en það er
Högni Oskarsson læknir og
hlaupari, sem fjallar um
sálfræði langhlaupa. Högni
hefur um langt árabil lagt
stund á langhlaup sér til
hressingar, auk þess sem
hann átti um tima Íslands-
met i maraþonhlaupi. Að
loknu læknanámi við Há-
skóla tslands hélt Högni til
Bandaríkjanna til fram-
haldsnáms og sérhæfði sig i
geðiækningum.
íslandsmót
í lyftingum
ÍSLANDSMÓT fatlaðra í
lyftingum fer fram í Sjón-
varpssal laugardaginn 7.
febr. nk.
Keppt verður i eftirtöld-
um þyngdarflokkum: 52 kg..
56 kg.. 60 kg.. 67.5 kg.. 75
kg„ 82,5 kg.. 90 kg„ og +90
kg.
Mótið er haldið i sam-
starfi við Lyftingasamhand
tslands og iþróttafréttarit-
ara Sjónvarpsins. Bjarna
Felixson.
Þátttökutilkynningar
þurfa að berast íþróttasam-
bandi Fatlaðra íyrir 31. jan.
nk.
Arnarmót í
borðtennis
Borðtennisklúbburinn
örninn heldur hið árlega
Arnarmót laugardaginn 24.
janúar kl. 14 i Laugardals-
höll.
Þetta er 10. árið sem
keppt er um hinn veglega
Arnarbikar. Mótið er
punktamót og verður keppt
í meistara-. 1. og 2. fl. karla
og meistara- og 1. fl. kvenna.
Keppt verður með stiga 3
stjörnu kúlum. Þátttaka
kostar 30 krónur. Yfirdóm-
ari verður Aðalsteinn Ei-
ríksson.