Morgunblaðið - 17.01.1981, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 17.01.1981, Blaðsíða 48
^Síminn á afgreióslunm er 83033 jfM«r0unbInbib Síminn á afgreiðslunni er 83033 Jn«r0unblntiib LAUGARDAGUR 17. JANUAR 1981 Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri VSÍ: 5% skerðingu 1. júní og 4% 1. september þarf til að ná markmiðum stjórnarinnar „AUÐVITAÐ «etur menn greint á um hversu hátt ska! reiða til höggs KUftnvart meinsemd verð- þenslunnar. Ég hyKK þó, að enxrinn vilji setja markið lægra en felst í annarri útKáfu á 40% markmiði rikisstjórnarinnar. Til þess að því metci ná, þarf veru- letra skerðintru á verðbótum 1. júní «k aftur nokkra skerðinKU 1. september.“ betta saKði bor- steinn Pálsson, framkvæmda- stjóri Vinnuveitcndasambands ís- lands í ra‘ðu. sem hann flutti á Varðarfundi í fyrrakvöld. t sam- tali við MorKunblaðið saKði bor- steinn, að þessi skerðinK yrði að vera hinn I. júni 5% ok hinn 1. september 4%. borsteinn sagði ennfremur í ræðu sinni í fyrrakvöld: „í því skyni að tryggja óbreyttan kaup- mátt lægri launa yrði að ákveða niðurskurð á rekstrargjöldum rík- issjóðs til þess að standa undir verulegum skattalækkunum í þágu launþega ... Sennilega þarf á tveimur næstu árum að skera opinber útgjöld niður um 4—5% til þess að auka með þeim hætti ráðstöfunartekjur einstaklinga og koma í veg fyrir verðþensluöldur og kjaraskerðingu af völdum óraunhæfra kjarasamninga. Ræða Þorsteins Pálssonar er birt í heild á blaðsíðum 20 og 21 í Morgunblaðinu í dag. Fá loðnuskipin að veiða 25 þúsund tonn af þorski? LJóxm. Mbl. Emilia. bjóðleikhúsið frumsýnir i dag leikritið Oliver Twlst, sem Árni Ibsen hefur samið eftir sögu Charles Dickens. Á myndinni er Fagin, sem Baldvin Halldórsson leikur, að kenna Oliver, sem Sigurður Sverrir Stephensen leikur, lífsbrögð undirheimanna. Sjá frásögn bls. 8. LÍKLEGT er að loðnuskipin 52 fái heimild til að veiða samtals 25 þúsund tonn af þorski á þessari vertíð. Undanfarið hafa verið haldnir fundir um þessi mál í sjávarútvegsráðuneytinu og á mánudag verður væntanlega tekin ákvörðun um aflamagn og framkvamd þessa máls, en þá hitta fulltrúar útgerðarmanna loðnuskipa sjávarútvegsráðherra að máli. Utgerðarmenn munu vera andvíg- ir því, að sérstakur kvóti verði settur á hvern bát eins og nú er á loðnuveiðunum. Vilja þeir, að ákveð- inn verði heildarkvóti, og síðan geti skipstjórar keppt innan þess ramma. Sverrir Leósson, útgerðarmaður á Akureyri, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær, að hann teldi það sjálfsagt mál að þessi skip sætu við sama borð og aðrir. „Ég tel ekki rétt að tala um loðnuskip í þessu sam- bandi,“ sagði Sverrir. „Þarna er um fiskiskip að ræða, sem að vísu veiða loðnu nokkra mánuði á ári. Þann tíma, sem þau eru ekki á loðnuveið- um eiga þau að hafa sama rétt til þorskveiða og annarra veiða og önnur skip. Ef hugmyndin er að setja kvóta á þorskveiðar þessara skipa þá lít ég þannig á, að kvóti eigi að vera á öllum veiðiskap, ekki aðeins þorsk- veiðum hluta flotans, loðnuveiðum og síldveiðum að hluta. Ég hef hins vegar verið á móti kvótaskipting- unni og það er ekki einfalt mál að ákveða einhvern ákveðinn kvóta á 86 togara og 774 báta. Slík skipting hyglir þeim lakari, en kemur niður á góðum skipstjórum, sem hafa góða skipshöfn, og góðum útgerðum,“ sagði Sverrir Leósson að lokum. Togara- og bátakjarasamningar: V erkf all bodað í næstu viku? SÁTTAFUNDUR um báta- og togarakjör, sem hófst í gær klukkan 14 og stóð i sex klukku- stundir, varð gjörsamlega árang- urslaus. Engu að síður eru deilu- aðilar boðaðir til fundar í daK klukkan 14, en allt er óvist um árangur og hafa viðræður ekkert komizt af stað. Vegna sáttafund- arins i gær var ekki haldinn fundur i yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins, en fiskverðs- Aðstoð við útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki í Vestmannaeyjum dugir skammt: „Aöeins verið að færa fyrirtækin til í gálgammf - segir bankastjóri Útvegsbankans í Eyjum „ÉG LÍT svo á að með þessu sé aðeins verið að færa fyrirtækin til í gálganum,“ sagði Halldór Guðbjarnarson bankastjóri i Útvegsbank- anum i Vestmannaeyjum i samtali við Morgunblaðið i gær um þau lánakjör sem Seðlabankinn hefur boðið útgerðarfyrirtækjum þar i bæ í sambandi við breytingu á skuldum og skammtimalánum i lengri lán. Stjórnvöld höfðu sem kunnugt er ákveðið slika skuldahreytingu vegna mjög slæmrar stöðu fyrirtækjanna i Vestmannaeyjum, sem rakin er að nokkru leyti til eldgosaáranna. Halldór sagði að í raun væri hér ekki um neina bót að ræða frá núverandi ástandi og því alveg ófullnægjandi aðgerðir. Seðla- bankinn hefur boðist til- að lána Útvegsbankanum í Vestmanna- eyjum fé með lánskjaravísitölu en án vaxta. Þetta fé myndi Útvegs- bankinn lána áfram til útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækja með lánskjaravísitölu og 1—2,5% nafnvöxtum. Ef miðað er við lánskjaravísitölu í fyrra, sem var 51,5% og nafnvöxtum bætt við, fara ársvextirnir í allt að 54%. Hins vegar eru dráttarvextir á heilu ári nú 57%. „Útgerðarfyrir- tækin í Eyjum hafa að vonum tekið þessu illa enda er ekki verið að bæta kjör þeirra á neinn hátt. Þau eiga reyndar ekki margra kosta völ, þau eru' í vanskilum og eiga það yfir höfði sér að gengið verði að þeim. Við erum ekkert hrifnir af því að lána útgerðinni á þessum kjörum, teljum að hún komist í vanskil strax á fyrsta gjalddaga," sagði Halldór. Að sögn Halldórs var búið að reikna út að 18 aðiiar í Vest- mannaeyjum þyrftu á þessum skuldabreytingum að halda gagn- vart bankanum, alls að upphæð 2012 milljónir gamalla króna. Seðlabankinn samþykkti ekki þessa útreikninga en var tilbúinn að lána Útvegsbankanum 1500 milljónir til að endurlána fyrir- tækjunum. Fyrst fékk Útvegs- bankinn 700 milljóna króna víxil með 37% vöxtum, eftirágreiddum. Þetta fé notaði bankinn til skuld- breytinga hjá þremur frystihúsum og kjörin voru þau sömu og bankinn hafði fengið hjá Seðla- bankanum að viðbættu einu pró- senti eða 38% vextir. Skuldabréf voru gefin út í samræmi við þetta. En þá kom babb í bátinn. „Þegar kom til endanlegrar ákvörðunar Seðlabankans varð niðurstaðan sú að bankinn kvaðst vera tilbúinn að lána alla upphæð- ina, 1500 milljónir, með lánskjara- vísitölu. Það var auðvitað ekki aftur snúið með þær skuldbreyt- ingar, sem búið var að gera, svo niðurstaðan varð sú að Seðlabank- inn féllst á að lána 700 milljónir á sambærilegum kjörum og við höfðum lánað út. Hins vegar varð bankanum ekki haggað með þær 800 milljónir sem eftir stóðu, þær vildi hann aðeins lána með láns- kjaravísitölu. Þetta voru allt önn- ur kjör en við höfðum átt von á og höfum við rætt málið við ráðherra og Seðlabankann með von um úrlausn. Aðrar skuldbreytingar bíða á meðan, þ.e. skuldbreyt- ingarnar við útgerðina. Það er engin úrlausn á hennar vanda að lána henni fé til langs tíma með lánskjaravísitölu," sagði Halldór að lokum. ákvörðun tengist mjög samning- unum. Sú sjálfhelda, sem þessi mál hafa verið i undanfarnar vikur er þvi enn i fullu gildi. Óskar Vigfússon, forseti Sjó- mannasambands Islands sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að ekkert hefði miðað í viðræðum aðila í gær. Hann kvað það fara eftir því, hvort eitthvað gerðist nú um helgina milli aðila, að sjómenn boðuðu verkföll eftir helgina eða ekki. „Miðað við þá stífni, sem verið hefur frá hendi útvegs- manna til þessa,“ sagði Óskar, „þá á ég ekki von á neinni breytingu nú um helgina.“ í gær var talið upp úr kjörkassa Sjómannaféiags Eyfirðinga, en allsherjaratkvæðagreiðsla fór þar fram um það, hvort félagsmenn heimiluðu stjórn félagsins að boða til vinnustöðvunar. Þetta mun hafa verið eitt síðasta „stóru" félaganna innan Sjómannasam- bandsins, sem ekki höfðu gengið frá verkfallsheimild. Nokkur smærri félög, dreifð um landið, munu enn ekki vera búin að afla sér verkfallsheimildar. Félags- menn Sjómannafélags Eyjafjarð- ar samþykktu að heimila verk- fallsboðun með 46 atkvæðum gegn 4. Að sögn Óskars eru nú félög frá Höfn í Hornafirði vestur og norð- ur um land að Bjargtöngum öll búin að afla sér verkfallsheimild- ar og „má segja að þar sé órofa keðja", eins og hann orðaði það. Þess skal getið að vestfirzkir sjómenn eru með gilda kjara- samninga og taka því ekki þátt í þessari kjarabaráttu félaga sinna annars staðar á landinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.