Morgunblaðið - 03.02.1981, Side 2

Morgunblaðið - 03.02.1981, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1981 Ekki að vænta breytinga á ráðgjöf fiskifræðinga ís hamlaði mælingum á loðnustofninum vestan Kolbeinseyjar ÞESS er ekki að vænta að fiskifræðingar breyti tillotcum sínum verulega frá því, sem þeir gerðu i október um veiði úr íslenzka loðnustofninum i vetur. Siðustu vikur hafa fiskifræðingar mælt stærð loðnustofnsins og sagði Hjálmar Vilhjálmsson i gær, að það sem þeir hefðu séð i leiðangrinum, sem lauk á laugardag, væri það lítið frábrugðið þvi, sem þeir hefðu vænzt að sjá miðað við mælinguna í október, að ráðgjöfin breyttist sennilega ekki. Hjálmar Vilhjálmsson var leið- — Vissulega var mjög bagalegt angursstjóri á Bjarna Sæmunds- að geta ekki kannað svæðið frá syni í þessum rannsóknum, en Páll Reynisson, verkfræðingur, um borð í Árna Friðrikssyni. Kannað var svæðið út af Aust- fjörðum, Norðausturlandi og aust- anverðu Norðurlandi. Hins vegar var ekki hægt að kanna svæðið vestan Kolbeinseyjar að þessu sinni vegna íss. Hjálmar sagði, að eftir væri að bera niðurstöðurnar saman og skoða þær í heild. Hins vegar sagðist hann aldrei hafa séð jafn vesældarlega göngu austur fyrir landi og núna. Um vestursvæðið hafði Hjálmar þetta að segja: vestanverðu Norðurlandi og úti af Vestfjörðum, sagði Hjálmar. — Mér finnst þó frekar ósennilegt að inn á austursvæðið eigi eftir að koma meiri loðna. Stundum hefur loðna verið á vestara svæðinu, sem síðan hefur gengið beint suður með Vestfjörðum til Breiðafjarðar og Faxaflóa. Ég hef reynt að halda uppi spurnum um þetta svæði, en vegna íss hefur lítil umferð verið þarna og upplýsingar því af skorn- um skammti. Það litla sem ég hef þó fengið og kannski er hægt að taka eitthvað mið af er því miður neikvætt, sagði Hjálmar. Umræður um vaxtafrádrátt á Alþingi: Stjórnarsinnar vilja ekki veita eins mikinn frá- drátt og sjálfstæðismenn BIRGIR ísleifur Gunnarsson spurði um það utan dagskrár í neðri deild Alþingis í gær, hvort frumvarp hans og Halldórs Blöndal um rýmkun vaxtaírádráttar við skattálagningu 1981 myndi ekki senn fá afgreiðslu frá fjárhagsnefnd svo þinginu gæfist kostur á að taka afstöðu til þess. Vitnaði hann til þcss að fjármálaráðherra hefði mælt fyrir frumvarpi sama efnis i efri deiid, sem gengur mun skemmra, og lagt áherzlu á að það fengist afgreitt áður en framtalsfresti lýkur 10. febrúar nk. Halldór Ásgrímsson, formaður viðkomandi þingnefndar, sagði það sitt mat að ekki kæmi til greina að ganga það langt í vaxtafrádrætti sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins legðu til. Hinsvegar kæmi til greina að hækka hámark vaxtafrádráttar frá því sem nú væri og lengja þann tíma frá kaupum eða bygg- ingu, sem vaxtafrádráttur væri miðaður við, þ.e í 2 ár frá kaupum og 4 ár frá því bygging hefst Halldór Ásgrímsson sagði að þessi mál væru nú í athugun og undir- búningi „og stefnt að því að niðurstaða fáist innan stjórnar- flokkanna í þessari víku". Frumvarp Halldórs og Birgis miðast við vaxtafrádrátt 4. m.g.kr. hjá einstaklingi en helmingi hærri hjá hjónum. Stjórnarfrumvarpið gerir ráð fyrir því, miðað við skattvísitölu 145, verður hámark vaxtafrádráttar 3,6 g.kr. hjá ein- staklingi en 7,2 g.kr. hjá hjónum. Allír borgarbúar í þessum hverfum eru hvattir til að fjöl- menna, en á fundinum munu frummælendur flytja ræður um borgarmálefni, en svara síðan fyrirspurnum fundarmanna um einstök mál, hvort heldur þau MarkúH Örn Antonmon fjalla um borgarmálin í heild eða einstök hvérfi eða götur. Fundarstjóri í kvöld verður Garðar Ingvarsson en fundarrit- arar Hróbjartur Lúthersson og Jóhannes Sigurðsson. Krafla: Engar breytingar á gufu- streymi þrátt fyrir gosið ENGAR hreytingar hafa orðið á gufustreymi við Kröflu. þrátt fyrir jarðhræringarnar siðustu daga. Orkuframleiðsla virkjun- arinnar er nú um 10 megawött og hefur verið það undanfarinn mánuð. samkvæmt þeim upplýs- ingum sem Mbl. fékk hjá Jóhanni Haukssyni i Kröflu. vel 15. og Hann sagði ennfremur að hefði miðað með tengingu holunnar, sem er sú nýjasta vonir stæðu til að verkinu yrði lokið í þessum mánuði. Hann sagði að reiknað væri með að með tilkomu tengingarinnar myndi orkuframleiðsla Kröflu aukast um 2 megawött. Aðspurður um það hvort farið yrði aftur á næstunni til mælinga og rannsókna á loðnustofninum sagði Hjálmar, að samkvæmt skipaáætlun Hafrannsóknastofn- unar yrði ekki um slíkt að ræða. Hann myndi þó leggja mikla áherzlu á að svo yrði. Ný fréttastofa á Norðurlandi? INGVAR Gislason menntamálaráö- herra hefur skipað nefnd til að kanna möguleika á rekstri frétta- stofu á Norðurlandi er gæti hugs- anlega þjónað bæði útvarpi og sjónvarpi. Sagði ráðherra i samtali við Mbl., að nefnd þessi væri skipuð i framhaldi af ályktun fjórðungsþings Norðlendinga um þetta efni. Fimm menn sitja í nefndinni. Frá útvarpinu Andrés Björnsson út- varpsstjóri og Vilhjálmur Hjálm- arsson formaður útvarpsráðs, Krist- inn Jóhannsson ritstjóri íslendings og Hermann Sveinbjörnsson rit- stjóri Dags og Knútur Hallsson deildarstjóri í menntamálaráðu- neytinu og er hann jafnframt for- maður nefndarinnar. Ingvar Gísla- son sagöi, að nefndinni væri ætlað að kanna möguleika á rekstrar- grundvelli slíkrar fréttastofu og kostnað við hana og ætti hún að geta þjónað bæði útvarpi og sjón- varpi, hér gæti e.t.v. verið nánast deild frá fréttastofunum syðra. Annar hverfafundur sjálf- stæðismanna í Sigtúni í kvöld ANNAR hverfafundurinn af fimm sem borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins efna til í hverfum Reykjavikur i vikunni, verður í kvöld í veitingahúsinu Sigtúni, efri hæð. Fundurinn er fyrir íbúa Laugarness, Fossvogs og Lang- holtshverfis, og Smáibúða- og Bústaðahverfis. Ræðumenn á fundinum í kvöld verða þeir Davíð Oddsson og Markús Antonsson. Kötlufellsmálið: Gert að sæta geðrannsókn Á LAUGARDAG kom fyrir Saka- dóm Reykjavikur Björg Benja- minsdóttir, sem viðurkennt hefur, að hafa hellt benzini yfir eigin- mann sinn, Sigfús Steingrimsson, og síðan borið eld að með þeim afleiðingum að hann lézt. Björg staðfesti fyrir dómi skýrslu, sem hún hafði gefið hjá Rannsóknar- lögreglu ríkisins. í dómshaldinu gerði RLR kröfu um að Björg skuli sæta geðrannsókn mcðan hún situr í gæzluvarðhaldi. Rann- sókn málsins er haldið áfram. „Þú og ég“ — Helga Möller og Jóhann Helgason. Skífur með „Þú og ég“ gefnar út í Svíþjóð, Grikklandi og Japan ÝMSIR islenzkir tónlistarmenn hafa á undanförnum árum reynt að komast inn á alþjóðlegan markað, en árangurinn verið misjafn. Nú virðist þessi draumur vera að rætast hjá söngvurun- um Helgu Möller og Jóhanni Helgasyni eða öðru nafni „Þú og ég“. Fyrir nokkru undirritaði umboðsmaður þeirra, Steinar Berg, samninga við fyrirtæki erlendis um útgáfu á hljómplötum með þeim á þessu ári. Sérstaklega er athyglisverður samningur , sem gerður hefur verið við Japani, en þar í landi verður lögð mikil áherzla á að auglýsa þau upp og gera Japanir sér vonir um að skifur með „Þú og ég“ seljist i hundruðum þúsunda i Japan á þessu ári. Steinar Berg sagði í samtali við Mbl. í gær að nú í lok febrúar kæmi út í Svíþjóð tveggja laga plata með þeim Jóhanni og Helgu og verður henni dreift um öll Norðurlönd. Á plötunni verð- ur lagið „í Reykjavíkurborg" og heitir það „My Hometown" á ensku. Það er fyrirtækið CBS, sem gefur plötuna út og dreifir um Norðurlönd og líklegt er að platan verði einnig gefin út í Þýzkalandi í vor. Þá er ákveðið að gefa út breiðskífur með „Þú og ég“ í Grikklandi í vor. í Japan kemur út plata með þeim tvímenningunum 21. júlí og verður það tveggja laga plata. Tvær litiar plötur verða gefnar út síðar á árinu og ein stór hljómplata. Að þessum hljóm- plötuútgáfum standa fyrirtækin Epic-Sony og Pacific. Kvik- myndatökumenn koma hingað til lands frá Japan í vor til að mynda Jóhann og Helgu í ís- lenzku umhverfi. Þau halda síð- an til Japan í júlímánuði og verða þar í landi er fyrsta tveggja laga platan kemur út. Að sögn Steinars velja fyrr- nefnd japönsk fyrirtæki á hverju ári út einhverja tónlistarmenn, sem þau hafa trú á og kosta miklu til við að auglýsa þá upp. í fyrra voru Nolans-systur í hlut- verki „Þú og ég“ og seldust milljón eintök af tveggja laga plötu þeirra og 300 þúsund stykki af stórri skífu með þeim systrum. Rafmagnsneytendur RR: 3 milljarðar í jöfnunargjald og 3,7 milljarðar í söluskatt NEYTENDUR Rafmagnsveitu Reykjavíkur greiða á þessu ári rúma 3 milljarða g.króna i verðjöfnunargjald á rafmagnsnotkun sina. Einnig greiða þeir i sölugjald á árinu 3,7 milljarðar króna svo sem sjá má í fjárhagsáætlun Reykjavikurborgar. Þetta leggst ofan á rafmágnsverð hjá notendum i Reykjavik, Kópavogi, Seltjarnar- nesi, Garðabæ, Mosfellshreppi og Kjalarnesi, en aðrar rafveitur greiða sömu prósentutölu eða 19% í jöfnunargjald, nema til húshitunar. Á henni er ekkert jöfnunargjald. Jöfnunargjaldið gengur 80% til Rafmagnsveitna rikisins og 20% til Orkubús Vestfjarða til niðurgreiðslu á rafmagni hjá þessum aðilum. Rafmagnsveiturnar eru sem kunnugt er með mikla húshitun. Soluskatturinn af rafmagninu rennur aftur á móti í ríkissjóð. Þá má geta þess að framlag Við lokun Járnblendiverksmiðj- Reykvíkinga vegna eignaraðildar unnar í kjölfar erfiðleika í vatns- að Landsvirkjun er í ár til virkj- unar við Hrauneyjafoss 351 millj- ónir kr. og að auki hlutdeild í jafnmiklu framlagi á móti frá ríkinu. Til virkjana Landsvirkjun- ar hafa eignaraðilar lagt fram árlega fé um langan tíma. Hlutur þeirra þar af skattfé til Reykja- víkurborgar og ríkisins er um 75%. búskap á hálendinu, hefur Raf- magnsveitu Reykjavíkur nú verið boðin raforka, sem við það losnar fyrir hærra verð og er það nú til umræðu í borgarráði. En auka- kostnaður Rafmagnsveitu Reykja- víkur af því nemur þá 1,2 milljörð- um króna. Að því er Aðalsteinn Guðjonsen, rafmagnsveitustjóri tjáði Mbl. er líklegt að því boði verði tekið. Það sé skárri kostur en rafmagnsskömmtun. Annað hvort verði að taka það eða skammta rafmagn. Kvaðst Aðalsteinn ekki vita hvernig því yrði mætt. Rafmagns- veita Reykjavíkur hefði í raun enga hækkun fengið frá því 1 ágúst 1979, því hækkanir hefðu tæplega vegið á móti hækkunum frá heild- salanum Landsvirkjun, en RR ekkert fengið til að mæta hækkun- um í verðbólgunni. Beiðni hefði legið um 28% verðhækkun 1. febrúar, en af þeim 10% sem afgreidd voru sem hækkun af ríkisstjórninni fyrir áramótin kæmi aðeins 2,2% í hlut Raf- magnsveitu Reykjavíkur. Sjái hann ekki fram á hvernig eigi að mæta aukahækkuninni á raforku- kaupum ef ekki fáist hækkun á gjaldskrá á móti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.