Morgunblaðið - 03.02.1981, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 03.02.1981, Qupperneq 42
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1981 eina eða tvær félagslegar stefnur og hefur svo reynt að finna sig í því samfélagi sem hann þó getur varla skilgreint. Hann er þekktari heldur en kanslari Vestur-Þýska- lands og hefur miklu meiri tekjur heldur en hann. „Kanslarinn ógæfa þjóöarinnar“ Franz Beckenbauer lifir undir stöðugri pressu, sem hann á hverj- um degi styrkir ómeðvitandi. Hinar geysilegu vinsældir hafa gert hann tortrygginn, ómann- blendinn og að hann hafi það á tilfinningunni að hann sé hroka- fuílur sem hann er ekki, langt frá því. Hann er vingjarnlegur, heið- arlegur, pínulítið tilgerðarlegur þegar hann tjáir sig, en skjótur í tilsvörum þrátt fyrir að málefnið varði ekki knattspyrnuna. En inn á milli eru honum oft lögð orð í munn sem hann hefur aldrei sagt. I kvikmyndinni sem fjallar um líf hans og persónu- leika, sem var fyrst sýnd eftir kosningarnar í V-Þ 1969, þegar SPD komst til valda og Willy Brandt varð kanslari. Þar var fullyrt að Beckenbauer hefði sagt: „Willy Brandt er ógæfa þjóðarinn- ar.“ „Ég varð alveg bit, en fannst tilgangslaust að mótmæla," skrif- ar hann í „Einer wie ich“. Að Franz Beckenbauer væri hægra megin og hefði afturhaldssama CSU foringjann Franz Josef Strauss sem fyrirmynd vár ekkert leyndarmál. „Ég játa það vel að mér líkar betur við Strauss heldur en Brandt, en ég er ekki á móti Brandt, heldur ekki persónulega," sagði hann að lokum. Síðan hefur Beckenbauer ekki setið í stúdíóinu hjá ZDF, þýska sjónvarpsfélaginu sem framleiddi myndina. í „Einer wie ich“ segir Franz Beckenbauer frá öðru dæmi þar sem þýska pressan býr til frétt sem byggð er á slúðri, þar segir meðal annars: „Með stóru letri stóð að arabískur fursti frá Ku- wait hafi boðið Bayern Munchen 40 milljónir D-mark fyrir mig. Enginn í Bayern hefur heyrt frá þessum fursta. Hins vegar hefði hann getað keypt allt liðið fyrir þennan pening. Þessi blaðalýgi vakti þess vegna hlátur. Franz Beckenbauer gengur allt- af með þann draum að verða stjórnmálamaður. Hann er ekki ættjarðarvinur heldur átthaga- • Franz Beckenbauer á hátindi frægðar sinnar fagnar sigri gegn Hollendingum i úrslitaleik heimsmeistarakeppninnar 1974. KNATTSPYRNUNNAR Það var 14. ágúst árið 1965 sem Franz Beckenbauer lék sinn fyrsta leik í 1. deild í Vestur-Þýskalandi með liði sínu, Bayern. Hann lék sem vinstri útherji og vakti strax athygli. Það má segja að mjög óvenjulegur knattspyrnu- ferill hafi byrjað þennan dag. Beckenbauer er einn af þeim stóru frá upphafi í knattspyrnusögunni. Og því að vera að rifja það upp. Jú þegar flestir eru að leggja skóna á hilluna eöa eru þegar hættir, orðnir 35 ára gamlir, leikur „keisarinn“ á nýjan leik í Þýskalandi. Flestir töldu daga „keisarans“ talda sem knattspyrnu- manns þegar hann gerði samning við liö Cosmos í Bandaríkjunum. Eftir þriggja ára dvöl þar sneri hann heim. Og það var ekki lakara lið en Hamborg SV sem gerði honum tilboð. Ekki eingöngu vegna þess að hann hét Beckenbauer heldur vegna þess að hann lék jafn vel og þegar hann gerði garðinn frægan. Nú er ekki talað um annað í knattspyrnuheiminum í Vestur-Þýskalandi en að fá „keisarann“ í landsliðið aftur. Við skulum rifja upp feril þessa einstaka knattspyrnumanns. Hér er fyrsta greinin. Keisarinn meöal kónga knatt- spyrnunnar Franz Beckenbauer, venjulegast þekktur sem „Keisari Franz“. Hann hefur enga hugmynd um hvers vegna eða hvaðan það nafn er komið. „Gárungarnir segja, að ég líkist Lúðvík II konungi í Bayern. Sjálfur skynja ég mig sem mann frá gamla tímanum, þegar knattspyrnan var leikin fyrir ánægjuna. Mér dettur í það minnsta ekki í hug að reisa höll eins og Lúðvík II eða einhverja slíka loftkastala. Ég vil vera niðrá jörðinni, á grasteppinu. En eitt annað er það sem Franz Beckenbauer vill, það er að gera. allt sem hann langar til. Hann er og verður viðfangsefni almanna- rómsins. Allt sem hann tekur sér fyrir hendur er umtalað af al- menningi, yfirleitt allt skælt og snúið. Hann les í þýsku pressunni að hann sé „das aussergewohnliche" súperstjarna sem fær föt sín saumuð af klæðskera frá Vín. Leigi þotu tii að vera viðstaddur óperu í Vín eða í Scala í Milanó. Franz Beckenbauer, keisarinn meðal kónganna í knattspyrnunni, skynjar sjálfan sig óþolinmóðan og óánægðan og glettni fylgir með eða bara eins og hinn venjulegi maður — eða eins og konan hans segir: „Á milli undir- og yfirstétt- ar“. Maðurinn minn er fæddur 100 ár- um of seint En hefur hann rétt fyrir sér? Veit hann í raun og veru hvernig hann er? Knattspyrnusérfræð- ingar segja hann tíu árum á undan sinni samtíð. Konu hans finnst aftur á móti hann vera fæddur 100 árum of seint. „Franz tilheyrir annarri öld, rólegri og ekki eins tæknilegri, en mann- eskjulegri og tilfinningameiri." Aðrir greina hann sem mikinn tilfinningamann, sem ailtaf er að leita að sjálfum sér, viðkvæmur sem á sinn hátt hefur klæðst hami kaupsýslunnar. „Franz er eirðar- laus nema þegar hann er heima hjá sér í tíu herbergja „villunni" í Grúnwald, millahverfi í útjaðri Múnchen. Sá besti er hvorki fé- lagslyndur sem landsliðsleikmað- ur né atvinnuleikmaður. Konan hans er sú eina sem hann hefur aðdáun á, ber virðingu fyrir, elskar og á samleið með. Þessu hefur hann aldrei leynt og það gerir hann heldur ekki í síðustu bók sinni sem er sú fjórða í röðinni „Eine wie ich“. Ævisaga Franz Beckenbauer minnir á uppvaskara. Hann kem- ur frá verkamannahverfinu Gies- ing í Múnchen, þar sem pabbi hans var póstur. Hann tók gagn- fræðapróf og hlaut fræðslu í gegnum tryggingakerfið. í krafti snilli sinnar sem knattspyrnu- maður leið hann áfram gegnum • Beckenbauer lyftir sigurlaununum. Æðsta takmark- inu hefur verið náð að leiða landslið sitt til sigurs í heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu. Hinn frægi þjálfari Ilelmuth Schön fagnar fyrirliða sínum í lok úrslitaleiksins. Hann hefur sagt um Beckenbauer að hann sé listamaður hvað knattspyrnu snertir. Allar hreyfingar úthugsaðar og sendingar hans á meðspilar- ana með ólíkindum nákvæmar og vel úthugsaðar. Vestur-Þýskaland hefur aldrei átt annan eins fyrirliða, sagði Schön. KEISARINN MEÐAL KÓNGA J 'i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.