Morgunblaðið - 03.02.1981, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 03.02.1981, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1981 21 Stenmark var í 11. sæti eftir fyrri umferð — en náði samt bestum heildartíma OFT HEFUR Ingemar Stenmark verið aftarlega eftir fyrri um- ferðina í svigkeppnum og oft komið á óvart. Um síðustu helgi var keppt i heimsbikarnum á skiðum i St. Anton. Stenmark var í 11. sœti eftir fyrri umferðina. En með jjjlórglæsilegri siðari um- ferð náði kappinn fyrsta sæti á mun betri tima samanlagt en annar maður. Úrslitin i svig- keppninni urðu þessi: Stenmark Svíþjóð 1:40,94 Phil Mahre USA 1:41,06 Jarle Halsnes Noregi 1:41,62 V. Andreev Sovétr. 1:41,64 Stenmark er nú efstur i heims- bikarkeppninni á skíðum. hefur hlotið 200 stig. I öðru sæti er Phil Mahre með 168 stig. t þriðja sæti er svo Peter Muller frá Sviss með 140 stig. Pétur er að ná sér á strik — AZ hefur ekki tapað leik í deildinni og skorað 62 mörk nÉG VAR að koma inn frá lækninum, og hann sagði að ég mætti Ieika æfingaleik á miðviku- dag,“ sagði Pétur Pétursson knattspyrnumaður er Mbl. ræddi við hann i gærdag. — Ég mun leika iéttan æf- ingaleik með C-liði Feyenoord á miðvikudag. Meiðslin hafa gróið vel, og ég styrkist með degi hverjum. Ég er búinn að æfa vel að undanförnu, en er þó úthalds- laus ennþá. Fyrst æfði ég með sjúkraþjálfara cn siðan fór ég að Köln lagði botnliðið AÐEINS einn leikur fór fram í vestur-þýsku knattspyrnunni um helgina, var það viðureign Ar- menia Bielefeldt og FC Köln. Köln sigraði með þvi að skora eina mark leiksins. Markið skor- aði Dieter Múller í fyrri hálfleik. Leikmenn Bielefeldt fengu nokk- ur góð marktækifæri, en nýttu þau ekki. Er liðið nú lang neðst i þýsku úrvalsdeildinni með aðeins niu stig, en næsta lið hefur 12 stig. Köln flutti sig upp um eitt sæti, fór úr áttunda upp i sjöunda. fara á æfingar hjá aðalliði félags- ins. Lið Feyenoord er nú í öðru sæti, en hefur ekki gengið vel að undanförnu. Það gengur illa að skora. Úrslit leikja i 1. deild í Hol- landi um helgina urðu þessi: Groningen — Exelsior FC Haag — Einhoven Zwolle — Wageningen Nijmegen — Roda JC MVV - FC Utrecht FC Twente — Tilburg Feyenoord — Sparta AZ 67 — Nac Breda Ajax — Go Eagles AZ heldur áfram 2-2 1- 4 1-0 2- 2 1- 3 5- 1 2- 2 6- 1 4-2 sigurgöngu sinni í deildinni, hefur leikið 18 leiki og ekki tapað neinum. Gert aðeins eitt jafntefli og markatalan hreint ótrúleg. Liðið hefur skorað 62 mörk en fengið á sig 16 mörk. Liðið hefur sjö stiga forskot í deildinni á Feyenoord sem er nú í öðru sæti. Rotterdam liðin Feyenoord og Sparta gerðu jafntefli, 2—2. Mörk Feyenoord skoruðu þeir Vermeul- en og Notten. Efstu liðin í 1. deild í Hollandi eru nú þessi: AZ er efst með 35 stig, Feyenoord 28, PSV 23, Ut- recht 23, FC Twente 23. KnaitsDyrna Góður árangur — á meistaramótinu í atrennulausum stökkum Meistaramót tslands i atrennu- lausum stökkum fór fram i iþróttahúsinu i Keflavik á laug- ardaginn. Keppt var i þremur greinum, langstökki karla og kvenna, hástökki og þrístökki. I þristökkinu sigraði Guðmundur Nikulásson úr UMB. Stökk Guð- mundur 9,46 metra. Annar varð Heimir Leifsson með stökk 9,45 metra og Elias Sveinsson varð þriðji með 9,36 metra stökk. Elías bætti um betur í hástökk- inu, sigraði og lyfti sér yfir 1,60 metra. Heimir Leifsson varð ann- ar, en stökk þó einnig yfir 1,60. Þriðji varð Guðmundur Nikulás- son, stökk yfir 1,55 metra. í langstökkinu sigraði Kári Jónsson UMFS, stökk 3,28 metra. Heimir Leifsson varð annar með 3,21 metra stökk og þriðji varð Guðmundur Nikulásson með 3,20 metra. Kvenfólkið keppti aðeins í lang- stökki og þar sigraði hlaupakonan kunna úr KR, Helga Halldórsdótt- ir, en hún stökk 2,71 metra. önnur varð Jóna Grétarsdóttir Ármanni, stökk 2,58 metra. Þriðja varð Fjóla Lýðsdóttir HSS, en lengsta stökk hennar mældist 2,54 metrar. Það virðist skipta litlu máli fyrir skíðakónginn Stenmark þótt hann sé aftarlega eftir fyrri umferð, hann nær alltaf besta timanum. Hann er nú efstur i heimsbikarkeppninni á skiðum. Pétur Pétursson er að ná sér eftir meiðslin sem hann hlaut. Unglingamót í borðtennis BORÐTENNISDEILD KR heldur sitt árlega unglingamót í íþrótta- sal Fossvogsskóla, laugardaginn 7. febrúar 1980 og hefst það kl. 13.15. Verðlaun verða fyrir þrjú efstu sætin. Þátttökugjald er nýkr. 20.00 pr. mann í einliðaleik og nýkr. 20.00 pr. par i tviliðaleik. Skráningarfrestur er til fimmtudagskvölds 5. febrúar 1980 til mótanefndarmanna. Elias Sveinsson íslandsmeistari i hástökki án atrennu. Spænska knattspyrnan Efsta liðið ATLETICO Madrid hefur enn þriggja stiga forystu i spænsku deildarkeppninni i knattspyrnu þrátt fyrir 1—3 ósigur gegn Atletico Bilbao á sunnudaginn. Næsta lið, Valencia, vann Sala- manca 1—0 á útivelli og lifa leikmenn liðsins þvi i voninni um að lið Atletico Madrid tapi fleiri leikjum á næstunni. Úrslit leikja urðu annars sem hér segir: Real Betis — Real Sociedad 1—0 fékk skell Hercules — Las Palmas 2—3 Barcelona — Osasuna 6—0 Salamanca — Valencia 0—1 Zaragoza — Gijon 0—0 Real Madrid — Espanol 1—2 Valladolid — Murcia 1—0 Almeria — Sevilla 0—0 Atl. Bilbao — Atl. Madrid 3—1 Atletico Madrid hefur nú 32 stig, Valencia kemur næst, sem fyrr segir, með 29 stig, Barcelona hefur 28 stig. Arni varð þrefaldur sigurvegari VEÐURGUÐIRNIR léku ekki við skíðafólkið á punktamótinu sem fram fór um siðustu helgi á Akureyri. Mikil hríð var báða keppnisdagana og gerði það keppendum erfitt fyrir. Árni Þ. Árnason, Reykjavik, sigraði í svigi og stórsvigi karla og jafnframt i alpatvíkeppni. Ásdis Alfreðsdóttir sigraði í stórsvigi kvenna og Nanna Leifsdóttir i svigi kvenna. Ásta Ásmundsdóttir sigraði i alpatvikeppni kvenna. Úrslit i mótinu urðu þessi: Úrslit í stórsvigi karla Árni Þ. Árnason, R. Haukur Jóhannsson, A. Guðmundur Jóhannsson, í. Björn Vikingsson, A. Elias Bjarnason, A. Bjarni Bjarnason, A. Valþór Þorgeirsson, A. ólafur Harðarson, Á. Helgi Geirharðsson, R. Einar Úlfsson, R. Helgi Eðvaldsson, A. Hafliði B. Harðarson, R. Kristján Jóhannsson, R. Úrslit í svigi karla Árni Þ. Árnason, R. Guðmundur Jóhannsson, f. Haukur Jóhannsson, A. ólafur Harðarson, Á. Elias Bjarnason, Á. Björn Vikingsson, A. Valþór Þorgeirsson, A. Bjarni Bjarnason, Á. Benedikt Einarsson, í. Björgvin Hjörleifsson, D. Helgi Eðvaldsson, A. Samúel Björnsson, A. Kristján Jóhannsson, R. Úrslit í kvennaflokki, stórsvig Ásdís Alfreðsdóttir, R. Ásta Ásmundsdóttir, A. Halldóra Björnsdóttir, R. Guðrún Björnsdóttir, R. Kristin Simonardóttir, D. Marta Óskarsdóttir, R. Sigrún Þórhallsdóttir, í. Ásdis Frimannsdóttir, A. Úrslit í svigi kvenna Nanna Leifsdóttir, A. Ásta Ásmundsdóttir, A. Halldóra Björnsdóttir, R. Ásdis Alfreðsdóttir, R. Kristín Simonardóttir, D. Marta Óskarsdóttir, R. Ásta Óskarsdóttir, R. Ásdis Frímannsdóttir, A. Ragnhildur Skúladóttir, R. Samt. 59.93 57.18 117.11 60.42 57.54 117.96 61.93 57.53 119.46 62.16 57.58 119.74 61.75 58.62 120.37 62.61 58.03 120.64 61.36 60.29 121.65 63.47 58.59 122.06 63.90 58.18 122.08 64.81 60.72 125.53 67.67 62.40 130.07 74.09 64.39 138.48 74.16 66.70 140.86 Samt. 42.99 44.60 86.62 43.33 44.60 87.93 42.77 45.60 88.37 43.10 45.30 88.40 43.97 46.37 90.34 44.25 46.34 90.59 45.15 46.87 92.02 47.16 47.39 94.55 47.19 47.92 95.11 47.59 48.11 95.70 47.92 48.60 96.52 49.78 48.35 98.13 48.58 50.01 98.59 Samt. 79.74 80.31 160.05 79.60 80.98 160.58 83.35 81.83 165.18 79.78 85.76 165.54 85.11 84.89 170.00 84.98 87.16 172.14 83,32 90.21 173.53 86.42 94.21 180.63 Samt. 46.35 45.95 92.30 46.52 46.90 93.42 48.82 48.26 97.08 46.95 51.32 98.27 50.64 49.04 99.68 52.40 54.71 107.11 55.75 51.68 107.43 53.36 54.29 107.65 57.94 55.84 113.78 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.