Morgunblaðið - 03.02.1981, Síða 34

Morgunblaðið - 03.02.1981, Síða 34
42 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1981 Leynisamningur Mexikó og Kúbu Chicago, 2. febrúar. — AP. Utanrikisráðuneytið banda- riska hefur komist yfir skjal, sem virðist vera texti leynilegs oliu- samninKs milli Mexikó og Kúbu frá þvi í desember sl. Samkv. þessum samningi heita Mexikó- menn þvi að útvega Kúbu- mönnum tæki til olíuleitar og vinnslu. Þessar upplýsingar komu fram í blaðinu The Chicago Tribune sl. sunnudag, sem hefur það jafn- framt eftir ónafngreindum starfs- mönnum utanríkisráðuneytisins, að óttast sé að Mexikómenn sjái Kúbumönnum fyrir bandarískri tæknikunnáttu þrátt fyrir bann bandarískra stjórnvalda. Mexikómenn hafa ekki dregið neina dul á aðstoð sína við Kúbu- menn og i skjalinu er kveðið á um olíuleit á landgrunni Kúbu, við- hald á olíuhreinsunarstöðvum, vöruskipti og miðlun tækniþekk- ingar. Mexikómenn kaupa mest allan tæknibúnað sinn fyrir olíu- iðnaðinn í Bandaríkjunum. Times: Prentarar á móti kröfum Murdochs London, 2. febrúar. — AP. VIÐRÆÐUR ástralska biaðakóngs- ins Robert Murdoch og fulltrúa hrezka prentiðnaðarins vegna fyrirhugaðra kaupa Murdochs á Times og Sunday Times, runnu út i sandinn í dag, og eru nú litlar likur á að samkomulag náist um kaupin fyrir 12. febrúar, en þá rennur út frestur sem Murdoch setti sér til að ganga frá öllum atriðum vegna kaupanna. Prentararnir voru í fyrstu sam- Veður víða um heim Akureyrí 0 snjóól Amtterdam 7 heiðskírt Aþena 16 heióskfrí Berlín 7 heiöskírt BrUssel 9 heiöskírt Chicago 2 skýjað Feneyjar 11 þokumóða Frankfurt -3 heiöskírí Faereyjar 6 skýjað Ganf -2 þoka Helainki Sékýjað Jerúsalem 10 skýjað Jóhannesarb. 25 heiðskirt Kaupmannahöfn 6 skýjað Laa Palmas 18 heiðskírí Lissabon 16 heiöskírt London 12 skýjað Los Angeles 20 heiðskírt Madrid 11 haiðskírt Malaga 12 léttskýjað Mallorca 14 místur Miami 22 skýjað Moskva -3 heíðskírt Naw York 5 rigning Osló 10 heiðskírí París 12 heiðskírt Reykjavík 3 skýjað Ríó da Janeiro 35 heiðskirí Rómaborg 12 heiðskírí Stokkhólmur 10 skýjað Tal Aviv 16 skýjað Tókýó 9 heiöskírt Vancouver 7 skýjað Vínarborg 10 heiðskírí þykkir kaupunum, þar sem ella vofði það yfir að útgáfu blaðanna yrði hætt. Hins vegar hafna þeir nú kröfum Murdochs um hagræðingu og að launahækkunum verði frestað. Talsmenn prentiðnaðarins segja kröfur hans óaðgengilegar, þær feli m.a. í sér uppsagnir, og ekki vilja þeir hlusta á hugmyndir hans um að blöðin verði prentuð utan Lundúna. „Hann krefst of mikils á of skömm- um tíma,“ sögðu talsmennirnir í dag. Fréttamenn við Sunday Times hafa ákveðið að krefjast dómsúr- skurðar í vikunni þar sem opinberri nefnd verði fyrirskipað að ganga úr skugga um hvort fyrirhuguð kaup Murdochs á blöðunum brjóti í bága við lög um bann við hringamyndun- um og einokunaraðstöðu. Sýndi Ertl hrottaskap? Bonn, 2. febrúar. — AP. VESTUR-þýzkir embættismenn visuðu i dag á bug fullyrðingum um að Josef Ertl landbúnaðarráð- herra V-Þýzkalands hefði neytt Dani til að leyfa V-Þjóðverjum þorskveiðar við Grænland með hrottaskap og yfirtroðslu. Danskir fulltrúar i samningaviðræðunum i Brussel i siðasta mánuði sögðu að Ertl hefði æpt og öskrað og steytt hnefanum á fundunum þar til hann fékk sinu framgengt. Karl Theodor Paschke talsmaður utanríkisráðuneytisins sagði í dag, að Hans-Dietrich Genscher utan- ríkisráðherra hyggðist svara kvört- unarbréfi danska starfsbróður síns, þar sem látin var í ljós óánægja með framferði Ertls, sem hefði „orgað, æpt og öskrað" á fundunum. „Eg trúi því ekki að óreyndu, að Ertl hafi „öskrað á þorsk", „sagði Erwin Reuss blaðafulltrúi Ertls. Reuss sagði ennfremur, að hefðu Danir neitað V-Þjóðverjum um heimildir til þorskveiða við Græn- land, hefði úthafsfloti Þjóðverja ekki haft á neinar slóðir að sækja. Undanfarið hafa harðir bardagar geisað í Kunar-héraði i Afganistan. Sovétmenn hafa beitt fallbyssuþyrlum og stórskotaliði i baráttunni gegn frelsissveitum Afgana, og hafa heilu þorpin verið lögð í rúst. Á þessari mynd AP-fréttastofunnar sjást rústir eftir árásir Sovétmanna. Skoðanakönnun The Observer: Nýi miðjuflokkurirai fengi flest atkvæði Lundúnum, 2. febrúar. — AP. MARGRÉT Thatcher, forsæt- isráðherra Bretlands, sagði í sjónvarpsviðtali í gær, að hún hygðist ekki hverfa frá hinni hörðu efnahagsstefnu sinni, þrátt fyrir vaxandi andstöðu. „Við vissum að það yrði erfitt og sársaukafullt,“ saðgi Thatcher í viðtalinu en fyrir tæpum tveimur árum vann íhaldsflokkurinn mikinn kosningasigur undir stjórn Thatchers og þá hét hún því, að endurreisa brezkt efna- hagslíf með harðri stefnu i efnahagsmálum. Fyrir skömmu lýstu um 20 þingmenn brezka íhaldsflokksins því yfir að þeir íhuguðu nú, að ganga til liðs við hófsaman sósí aldemókratískan flokk, sem líkur eru á að myndaður verði. Þegar hafa fjölmargir þingmenn Verka- mannaflokksins, undir stjórn þre- menningaklikunnar svonefndu — Shirley Williams, David Owens og William Rogers lýst því yfir, að þeir mundu hugsanlega segja sig úr Verkamannaflokknum. Raunar hefur David Owen þegar lýst því yfir, að hann muni ekki framar bjóða sig fram fyrir Verkamanna- flokkinn. Tvö brezk dagblöð birtu í gær niðurstöður skoðanakannana sem gerðar voru í síðustu viku. I skoðanakönnun The Observer fékk hinn nýi sósíaldemókratíski flokk- ur 41% atkvæða þeirra, sem spurðir voru. Verkamannaflokk- urinn fékk 32% en íhaldsflokkur- inn aðeins 25%. Þá kom fram í Stokkhólmi, 2. íebrúar. Frá fréttaritara Mbl. Guðfinnu Ragnarsdóttur. SPARNAÐARRÁÐSTAFANIR sænsku rikisstjórnarinnar með lækkuðum styrkjum og vaxta- hækkunum hafa komið mjög hart niður á sænskum bæjar- og sveit- arfélögum. Bara útgjöldin vegna vaxtahækkana úr 10 i 12% aukast um 500 milljónir sænskra kr. Sparnaðaraðgerðirnar koma fyrst og fremst niður á dagheimilis- og elliheimilistryggingunum. Þar verður samdrátturinn mestur. Fjöldi bæjar- og sveitarfélaga hef- ur nú þegar tilkynnt að ekki verði hægt að standa við gerðar áætlan- ir um fleiri dag- og elliheimili. Dagheimilisgjöld munu einnig hækka og sömuleiðis gjöld fyrir ýmsa aðra þjónustu. A mörgum stöðum er einnig rætt um að spara skólamatinn eða krefjast auka- gjalds fyrir hann en í Svíþjóð fá öll skólabörn fullgilda máltíð í skólan- skoðanakönnun Observer, að fleiri kjósendur Ihaldsflokksins mundu hlaupast undan merkjum yfir til nýja miðjuflokksins en frá Verka- mannaflokknum. um ein'u sinni á dag sér að kostnað- arlausu. Sömuleiðis munu styrkir bæjar- og sveitarfélaganna til ýmiss konar félagsstarfsemi lækka eða hverfa. Allur þessi samdráttur, ekki síst í byggingarframkvæmdum, er talinn hafa í för með sér aukið atvinnu- leysi. Sparnaðaraðgerðirnar koma mjög misjafnlega niður á bæjar- og sveitarfélögunum. Verst er ástand- ið hjá þeim sem hafa ný og há lán, þar er vaxtaaukningin mest. Ýmsar raddir eru uppi um hækkun útsvara en slíkt er þó varla talið trúlegt því að ríkisstjórnin hefur mælst gegn því. Útsvar er víða mjög hátt og hefur á undanförnum 20 árum tvöfaldast og er nú víðast 30 kr. sænskar fyrir hverjar 100 kr. Á sama tíma hefur þáttur bæjar- og sveitarfélaganna í framleiðslu á vörum og þjónustu aukist úr 11% og fjöldi starfsfólks aukist úr 300.000 í 1.000.000. Bæjar- og sveitarfélög í Svíþjóð: Mikill samdráttur í félagslegri þjónustu Gro Harlem Brundtland -tekst henni að laða kjósendur að Verkamannaflokk Gro Harlem Brundtland er þekkt fyrir ýmislegt annað en að fara troðnar slóðir. Innan Verka- mannaflokksins hefur hún verið umdeild og í umhverfismálaráðu- neytinu þótti hún harður hús- bóndi. Bjartmar Gjerde, fyrrum olíu- og orkumálaráðherra og nú síðast keppinautur hennar um forsætisráðherraembættið, kvart- aði sáran undan frekju hennar og yfirgangi þegar bæði sátu í stjórn- inni, og ýmsir grónir áhrifamenn í flokknum kunna ekki að meta hana. Konan hefur jafnan verið talin nokkuð orðhvöt og fylgin sér, en slíkir eðlisþættir eru misjafn- lega metnir eftir því hver í hlut á. En eitt eru flokksvinsældir og annað lýðhylli, og fáum blandast hugur um það að Gro Harlem Brundtland á miklum persónu- vinsældum að fagna hjá þeim sem úrslitum ráða, þ.e. norskum kjós- endum, og þar stendur enginn innan Verkamannaflokksins henni á sporði, ef marka má nýlegar skoðanakannanir og fylgi hennar í kosningum hingað til. Gro Harlem Brundtland er læknir að mennt. Hún er rúmlega fertug að aldri, gift og móðir fjögurra barna. Maður hennar er sérfræðingur í öryggismálum og virkur í Hægri flokknum, þannig að hjónin eru á öndverðum meiði í stjórnmálum. Á námsárunum tók Gro Harlem Brundtland þátt í stúdentapólitík og þótti róttæk, en þegar hún tók sæti í norsku stjórninni árið 1974 sem umhverfismálaráðherra höfðu stjórnmálaafskipti hennar að mestu verið hljóðlát og bundin við nefndasetu. Þá var hún sem sé óþekkt meðal almennings, en ekki leið á löngu áður en nafn hennar var á allra vörum og henni var falið hvert trúnaðarstarfið af öðru. Hún var fljótlega kjörin varaformaður flokksins. Árið 1977 var hún kjörin á þing, en það var ekki fyrren hún lét af ráðherra- embætti síðla árs 1979 að hún tók sæti á þingi, því að í Noregi gegna menn ekki samtímis þingmennsku og ráðherradómi. Þegar Gro Harlem Brundtland fór úr stjórninni og tók sæti á þingi töldu margir það vísbend- ingu um að hún hefði ætlað sér annað hlutskipti en að vera til frambúðar skrautfjöður með tak- mörkuð völd. Gro Harlem Brundtland þótti sanna hæfni sina sem leiðtogi eftirminnilega þegar óhapp varð á olíupalli í Norðursjó með þeim afleiðingum að „svarta gullið" spýttist stjórnlaust í sjóinn dög- um saman og olli mikilli mengun. Hún stjórnaði björgunarstarfi af miklum skörungsskap og tók djarfar ákvarðanir um varúðar- ráðstafanir til að hindra meiri mengun en þegar var orðin, og hlaut mikið lof fyrir. Framan af ráðherraferli sinum var Gro Harlem Brundtland talin mjög afdráttarlaus í orkumálum og jafnvel um of. Hvað eftir annað lenti henni saman við Bjartmar Gjerde, olíu- og orkumálaráð-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.