Morgunblaðið - 03.02.1981, Side 38

Morgunblaðið - 03.02.1981, Side 38
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1981 • Eigendur hinnar nýju líkamsræktarstofu í Brautarholti 4. beir Guðmundur Sæmundsson og Birgir Viðar ásamt eiginkonum sínum. Eins og sjá má eru húsakynnin mjög nýtiskuleg og glæsileg og eftir nýjustu fyrirmynd. Ljósm. Rannar Axelaaon. Glæsileg aðstaða fyrir allan almenning til æfinga OPNUÐ hefur verið ný heilsu- rækt í Brautarholti 4 i Reykja- vík. Stofan sem er byggð eftir bandariskri fyrirmynd er öll hin glæsiiegasta og sú fyrsta sem býður upp á fullkomna aðstöðu til lyftingaæfinga og jafnframt hefur gufubaðstofu og vatns- nudd. Eigendur þessarar nýju stofu eru Guðmundur Sæmunds- son og Birgir Viðar Jónsson. Heilsurækt þessi er ætluð fyrir allan aimenning sem áhuga hefur á líkamsrækt en hefur ekki að- stöðu til þess að sækja æfingar í leikfimisali borgarinnar eða stunda æfingar hjá hinum ýmsu íþróttafélögum. Stofan sem ber nafnið Apollo er opin jafnt fyrir karla sem kvenmenn og eru kenn- arar allan daginn á staðnum og veita ráðleggingar. Þá er um hóptíma að ræða og getur hver og einn fengið að æfa eftir leiðsögn. Stofan er opin frá kl. 10 fyrir hádegi til kl. 22.00. Allar nánari upplýsingar eru veittar á staðn- um. Hreinn kastaði 19.75 m HREINN Halldórsson KR náði ágætum árangri i kúluvarpi á innanhússmóti i frjálsum iþrótt- um á vegum KR á sunnudag. Hreinn kastaði 19,75 metra og átti öll köst sín vel yfir 19 metra. óskar Jakobsson gerði öll sín köst ógild en kastaði líka vel yfir 19 m. Helgi Helgason USAH kastaði 13,89 og náði sínum besta árangri. Sigurður Sigurðsson sigraði í stangarstökki. stökk 4,55 metra. Þeir Hreinn Hall- dórsson og Óskar eru i góðri æfingu um þessar mundir og stefna báðir á að ná góðum árangri á Evrópumeistaramótinu i frjálsum iþróttum innanhúss sem er ekki langt undan. - þr • Einn kennaranna við líkamsræktunarstofuna Finnur Karlsson margreyndur lyftingakappi reynir eitt tækið, og fyigist um leið mjög vel með i stórum spegli. LjÓNm. Ragnar Axelsson. Skíóagönguskóli Morgunblaðsins • Klístur er borið á með hæfilegri „pulsu“ langs eftir skíðaröndunum beggja vegna eða setja klístur-„pulsur“ þvers á skíðin. Dreifið úr með hendinni eða með spaða sem fvltrir túpunni. Mj ÚKT © Bvll's • Þar sem skíðin skrika, verður að bera á mýkri áburð. Áburðurinn er að sjálfsögðu borinn á undir miðjuna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.