Morgunblaðið - 10.02.1981, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1981
Peninga-
markadurinn
/■
GENGISSKRANING
Nr. 27 — 9. febrúar 1981
Eining Kl. 13.00 Kaup Sala
1 Bandaríkjadollar 6,230 64248
1 Stmrlingspund 14,569 14,611
1 Ksnsdadollar 5,211 5,226
1 Dónsk króna 0,9502 0,9530
1 Norsk króna 1,1582 1,1616
1 Sasnsk króna 1,3576 1,3615
1 Finnskt mark 1,5432 1,5477
1 Franakur franki 1,2655 142691
1 Balg. franki 0,1818 0,1823
1 Svissn. franki 3,2158 3,2255
1 Hoiiensk florina 2,6888 2,6966
1 V.-þýzkt mark 2,9173 2,9258
1 Hölak líra 0,00615 0,00617
1 Austurr. Sch. 0,4120 0,4132
1 Portug. Escudo 0,1114 0,1118
1 Spánskur posati 0,0733 0,0735
1 Japanskt y«n 0,03061 0,03070
1 írskt pund 10,878 10,909
SDR (aératðk
dréttarr.) 6/2 7,7152 7,7375
V /
r \
GENGISSKRANING
FERDAMANNAGJALDEYRIS
9. febrúar 1981
Nýkr. Ný kr.
Einéng Kl. 13.00 Kaup Sala
1 BandarBtjadoHar 6,853 6,873
1 Starlingspund 16,026 16,073
1 Kanadadollar 5,732 5,748
1 Dönsk króna 1,0452 1,0483
1 Norsk króna 1,2740 1,2778
1 Saanak króna 1,4934 1,4977
1 Finnskt marfc 1,6975 1,7024
1 Franskur franki 1,3921 1,3960
1 Botg. franki 0,1999 0,2005
1 Sviasn. franki 3,5374 3,5476
1 HoMansk ftonna 2,9577 2,9663
1 V.-|>ýzkt mark 3,2090 3,2184
1 Hðlak Ifra 0,00677 0,00679
1 Austurr. Sch. 0,4532 0,4545
1 Portug. Escudo 0,1225 0,1230
1 Spénskur peseti 0,0806 0,0809
1 Japanskt yan 0,03367 0,03377
1 írskt pund 11,966 11,999
V
Vextir:
INNLÁNSVEXTIR:.
(ársvextir)
1. Almennar sparisjóösbækur.35,0%
2. 6 mán. sparisjóösbækur ..36,0%
3.12 mán. og 10 ára sparisjóðsb.37,5%
4. Vaxtaaukareikningar, 3 mán.....40,5%
5. Vaxtaaukareikningar, 12 mán....46,0%
6. Ávisana- og hlaupareikningur.19,0%
7. Vísitölubundnir sparifjárreikn. 1,0%
ÚTLÁNSVEXTIR:
(ársvextir)
1. Víxlar, forvextir ..................34,0%
2. Hlaupareikningar....................36,0%
3. Lán vegna útflutningsafuröa....... 8,5%
4. Önnur endurseljanleg afuröalán ... 29,0%
5. Lán meö ríkisábyrgð.................37,0%
6. Almenn skuldabréf...................38,0%
7. Vaxtaaukalán........................45,0%
B. Vísitölubundin skuldabréf .......... 2,5%
9. Vanskilavextir á mán................4,75%
Þess ber aö geta, aö lán vegna
útflutningsafuröa eru verötryggö
miöaö viö gengi Bandaríkjadollars.
Lífeyrissjódslán:
Lífeyritsjóöur starfsmanna ríkis-
ins: Lánsupphæö er nú 80 þúsund
nýkrónur og er lánið vísitölubundið
meö lánskjaravísitölu, en ársvextir
eru 2%. Lánstími er allt aö 25 ár, en
getur veriö skemmri, óski lántakandi
þess, og eins ef eign sú, sem veö er í
er lítilfjörleg, þá getur sjóöurinn stytt
lánstímann.
Lífeyrissjóöur varzlunarmanna:
Lánsupphaeö er nú eftir 3ja ára aðild
aö lífeyrissjóönum 48.000 nýkrónur,
en fyrir hvern ársfjóröung umfram 3
ár bætast viö lániö 4 þúsund ný-
krónur, unz sjóösfélagi hefur náö 5
ára aöild aö sjóönum. Á tímabilinu
frá 5 til 10 ára sjóösaöild bætast viö
höfuöstól leyfilegrar lánsupphæöar 2
þúsund nýkrónur á hverjum ársfjórö-
ungi, en eftir 10 ára sjóösaöild er
lánsupphæöin orðin 120.000 nýkrón-
ur. Eftir 10 ára aöild bætast við eitt
þúsund nýkrónur fyrir hvern ársfjórð-
ung sem líður. Því er í raun ekkert
hámarkslán í sjóönum. Fimm ár
veröa aö líöa milli lána.
Höfuöstóll lánsins er tryggöur meö
byggingavísitölu, en lánsupphæöin
ber 2% ársvexti. Lánstíminn er 10 til
25 ár aö vali lántakanda.
Lánskjaravítitala fyrir febrúar-
mánuö 1981 er 215 stig og er þá
miöaö viö 100 1. júní ’79.
Byggingavísitala var hinn 1. janú-
ar stöastiiöinn 626 stig og er þá
miöaö við 100 í október 1975.
Handhafaskuldabréf í fasteigna-
viöskipturn. Alaengustu ársvexti' -ru
nú 18—20%.
Sjónvarp kl. 21.55:
Innrásiní Tékkó-
slóvakíu 1968
Á dagskrá sjónvarps kl. 21.55 er leikin bresk heimildamynd,
Innrásin, og fjallar um innrás Varsjárbandalagsríkjanna í Tékkósló-
vakíu árið 1968. Handrit David Boulton. Leikstjóri Leslie Woodhead.
Aðalhlutverk Paul Chapman, Julian Glover, Paul Hardwick og Ray
McAnally. Þýðandi Jón O. Eldwald. Myndin var áður á dagskrá 15.
desember 1980.
Myndin gerist að verulegu leyti í aðalstöðvum kommúnistaflokks
Tékkóslóvakíu, á skrifstofu Alexanders Dubecks, þáverandi aðalritara
flokksins, og í Moskvu nokkra daga fyrir innrásina og er byggð á
frásögn Zdenek Mlynars, ritara miðstjórnar tékkneska kommúnista-
flokksins og náins samstarfsmanns Dubceks, svo og á rannsóknum og
könnunum breska útvarpsins. Auk þess að lýsa innrásinni sjálfri og
eftirleiknum er í myndinni skyggnst á bak við tjöldin hjá
hæstráðendum í Prag og Moskvu þessa örlagaríku daga. Mynd sem
enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Óvænt endalok kl. 21.30:
Á dagskrá sjónvarps kl. 21.30 er
mynd úr sjónvarpsmyndaflokk-
num Óvænt endalok. Nefnist þessi
þáttur Listaverkið. Þýðandi er
Kristmann Eiðsson.
Sagan hefst í París árið 1946,
eftir síðari heimsstyrjöldina.
Gamall og umkomulaus maður
leitar sér fæðu í sorptunnum
Parísarbúa. Honum verður gengið
inn í fínasta listasafnið í borginni.
Stendur þar yfir málverkasýning
og hann þekkir það verk eftir
málara að nafni Soutine. Þeir
höfðu verið miklir mátar á yngri
árum. Hann heyrði það á tali
viðstaddra að málari þessi sé
orðinn fokdýr og fæstir hafi efni á
að kaupa verk hans. Þá fer hann að
rifja upp gamla tíma frá því að
þeir voru ungir menn. Hann var þá
sjálfur giftur ungri og glæsilegri
konu, og þau og Soutine voru
miklir mátar. Soutine fór ekkert í
launkofa með það, að hann var
ástfanginn af eiginkonunni og bað
sögumann margoft að hafa skipti á
eiginkonunni og málverkunum. I
einni af gleðisamkomum þeirra
þiggja hafði sögumanni okkar, sem
stundaði það að húðflúra fólk,
hugkvæmst að biðja Soutine að
mála mynd af konunni á bakið á
sér og húðflúra hana síðan eftir
sinni fyrirsögn, þannig að hann
beri mynd hennar á sér til æviloka.
Og það varð úr, að Soutine lét
þetta eftir honum og lagði nafn
sitt við. Sem hann er staddur
þarna í allsleysi sínu á sýningunni
í París og heyrir um hvað verk
Soutines séu orðin dýr, fær hann
hugmynd sem hann heldur að geti
breytt allri sinni framtíð og bylt
lífi sínu.
— Með betri þáttum sem ég hef
séð í þessum myndaflokki, sagði
Kristmann Eiðsson.
Sæluhúsið við Jökulsá.
„Áöur fyrr á árunum“ kl 11. 11.00:
Reimleikar í sæluhúsum
Á dagskrá hljóðvarps kl. 11.00
er þátturinn „Aður fyrr á árun-
um“ í umsjá Ágústu Björnsdótt-
ur. Fjallað um reimleika í sælu-
húsum.
— Hugmyndin að þessum
þætti, að fjalla um reimleika í
sæluhúsum, kom upp í huga minn
þegar ég horfði á Hellisheiðar-
þáttinn í sjónvarpinu, um gamlar
ferðaslóðir þar og sæluhús. Lesn-
ar verða og sagðar draugasögur
úr Þjóðsögunum og fleiri ritum,
og fjalla þær allar um reimleika í
sæluhúsum, bæði norður í landi
og eins hérna sunnanlands, í
gömlu Kolviðarhóls-sæluhúsun-
um og Húsmúlakofanum. Þá eru
þarna frásagnir Theodórs Frið-
rikssonar um ýmislegt sem ferða-
langar urðu áskynja í Ferðafé-
lagsskálanum við Hvítárvatn og
frásagnir úr sæluhúsinu við Jök-
ulsá, þar sem Fjalla-Bensi hafðist
við, oft langtímum saman, og loks
frá sæluhúsi, sem einhvern tím-
ann var til í gamla daga, en er
ekki til lengur, á Reykjaheiði,
mögnuð saga, sem sjálfsagt
margir kannast við.
Útvarp Reykjavík
ÞRIÐJUDKGUR
10. FEBRÚAR
SÍÐDEGID
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Bæn. 7.15 leikfimi.
7.25 Morgunpósturinn.
8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregn-
ir. Forustugr. daghl. (útdr.).
Dagskrá.
Morgunorð: Sigurveig Guð-
mundsdóttir talar. Tónleik-
ar.
8.55 Daglegt mál. Endurt.
þáttur Bððvars Guðmunds-
sonar frá kvóldinu áður.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Jóna Þ. Vernharðsdóttir
heldur áfram að lesa söguna
„Margt er brallað“ eftir
Hrafnhildi Valgarðsdóttur
(5).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður
fregnir.
10.25 Sjávarútvegur og sigling-
ar. Umsjón: Guðmundur
Hallvarðsson.
10.40 Söngkvartettar eftir
Franz Schubert.
Elly Ameling, Janet Baker,
Peter Schreiser og Dietrich
Fischer-Dieskau syngja
kvartettlög eftir Franz Schu-
bert. Gerald Moore leikur á
pianó.
11.00 „Áður fyrr á árunum“
Ágústa Björnsdóttir sér um
þáttinn. Fjallað um reim-
leika I sæluhúsum. Lesari
auk umsjónarmanns: Sverrir
Kr. Bjarnason.
11.30 Morguntónleikar
Steven Star-'K og Thp Nat.
’.OÚal Arts Centre“ hljóm-
sveitin leika Fiðlukonsert
nr. 5 í A-dúr (K219) eftir
Mozart; Mario Bernardi stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar.
Þriðjudagssyrpa
Jónas Jónasson.
MORGUNINN
15.20 Miðdegissagan: „Dans-
mærin frá Laos“ eftir Louis
Charles Royer. Þýðandinn,
Gissur Ó. Erlingsson les(2).
15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Siðdegistónleikar.
Sinfóniuhljómsveit Lundúna
leikur „La Valse“, hljóm-
sveitarverk eftir Maurice
Ravel; André Previn stj./
James Galway og Filharmon-
íusveitin i Lundúnum leika
Flautukonsert eftir Jacques
Ibert; Charles Dutoit stj./
Sinfóniuhljómsveitin í Bos-
ton leikur „Hafið", sinfón-
íska svítu eftir Claude De-
bussy; Charles Miinch stj.
17.20 Utvarpssaga barnanna:
„Gullskipið“.
Höfundurinn, Ilafsteinn
Snæland, les (8).
17.40 Litli barnatiminn
Stjórnandi: Finnborg Schev-
ing.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÓLDID_____________________
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Á vettvangi
Stjórnandi þáttarins: Sig-
mar B. Hauksson. Samstarfs-
maður: Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir.
20.00 Poppmúsik
20.15 Kvöldvaka
a. Einsöngur: Ágústa Ág-
ústsdóttir syngur islenzk
lög. Jónas Ingimundarson
leikur á pianó.
b. Ilestar, örlagavaldar í
Njáls sögu Árni Þórðarson
fyrrum skólastjóri flytur er-
indi.
c. Skagaf jörður.
Andrés Björnsson útvarps-
stjóri Ies úr kvæðaflokki
eftir Jónatan Jónsson.
d. Úr minningasamkeppni
aldraðra
Árni Björnsson þjóðhátta-
fræðingur les þátt eftir Ein-
ar Sigurfinnsson fyrrum
bónda á Efri-Steinsmýri f
Meðallandi.
e. Kvæðalög
Andrés Valberg kveður
nokkrar stemmur við eigin
lausavisur.
21.45 Útvarpssagan: „Rósin
rjóð“ eftir Ragnheiði Jóns-
dóttur. Sigrún Guðjónsdóttir
les (3).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 „Nú er hann enn á norð-
an
Umsjón: Guðbrandur Magn-
ússon blaðamaður. Fjallað
verður um málefni myndlist-
ar á Akureyri og rætt við
Helga Bergs bæjarstjóra,
Helga Vilbergs skólastjóra
Myndlistaskólans á Akur-
evri, Valgarð Stefánsson og
Orn Inga myndlistarmenn.
23.00 Á hljóðbergi.
Umsjónarmaðiir- “*”rn Th
!*jí>rnsson listfræðingur.
„She Stoops to Conquer“ —
eða „A Mistake of a Night“,
gleðileikur eftir OJiver
Goldsmith; fyrri hluti. Með
aðalhlutverk fara Alastair
Sim, Claire Bloom, Brenda
de Banzie, Alan Howard,
Tony Tanner og John Moff-
at. Leikstjóri: Iloward Sack-
ler.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Þriðjudagur
10. febrúar
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og
dagskrá.
20.35 Sponni og Sparði
Annar þáttur. Þýðandi og
sögumaður Guðni Kol-
beinsson.
20.40 Styrjöldin á austur-
vigstöðvunum
Annar hluti. Vigvöllurinn.
Hersveitir Hitiers geystust
inn i Rússland og mættu
litilli mótstöðu í fyrstu. En
siðan gekk i garð harðasti
vetur i manna minnn*"
Rússar sótt» * veðrið og
pa tók að siga á ógæfuhlið-
ina fyrir Þjóðverjum.
Þýðandi og þulur Gylfi
Pálsson.
21.30 óvænt endalok.
Listaverkið
Þýöandi Kristmann Elðs-
son.
21.55 Innrásin
Leikin, bresk heimilda-
mynd um innrás sovéska
hersins í Tékkóslóvakiu ár-
ið 1968. Handrit David
Boulton. Leikstjóri Leslie
Woodhead.
Aðalhlutverk Paul Chap-
man, Julian Glover, Paul
Hardwick og Ray McAn-
ally.
Myndin er byggð á frásögn
Zdenek Mlynars, sem
tTÚostjórnar tékkn-
eska kommúnistaflokksins
og náinn samstarfsmaður
Dubceks. þegar innrásin
var gerð.
Þýðandi Jón O. Edwald.
Áður á dagskrá 15. desem-
her 1980
23.50 Dagskrárlok.