Morgunblaðið - 10.02.1981, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1981
11
Ásgeir Ásgeirsson þáverandi forseti tslands veitir móttöku skjali
er hann var gerður að æfifélaKa Angliu á 45 ára afmælisfaKnaði
félagsins í Sjálfstæðishúsinu gamla árið 1966.
Brian Iloit þáverandi formaður Angliu heiðrar HalÍKrím Fr.
HalÍKrimsson, Harald Á. Sigurðsson og SÍKurð B. Sigurðsson á 45
ára afmælisfagnaði Angiiu 1966. FaKnaðurinn var haldinn i
Sjálfstæðishúsinu Kamla ok má sjá mörK kunn andlit i hópi Kesta.
Colin Porter
99 Ég á hvort eð er
erindi til íslands 44
- sagði leikarinn Howard Lang er fór með hlut-
verk Baines skipstjóra í Onedin-þáttunum, en
hann kemur til landsins í vikunni og verður heið-
ursgestur í 60 ára afmælisfagnaði Angliu
Howard LanK i hlutverki Baines skipstjóra.
UM ÞESSAR mundir verður
ensk-islenska félaKÍð AnKlia sex-
tiu ára, en félaKÍð var stofnað
árið 1921 í þvi auKnamiði að efla
samKanK milli IslendinKa ok
enskumælandi manna. í tilefni
þessara timamóta i söku félaKs-
ins verður haldinn afmælisfaKn-
aður í félaKsheimili Seltjarnar-
ness næstkomandi lauKardaK,
14. febrúar. Þar verður heiðurs-
Kestur brezki leikarinn Uoward
LanK, sem er islenzkum sjón-
varpsáhorfendum að KÓðu kunn-
ur, þar sem hann fór með
hlutverk Baines skipstjóra i
Onedin-þáttunum. LanK var
einnÍK Kestur AnKliu á árshátið
félaKsins 1975. t tilefni þessara
Stjórn AnKliu 1957. Á myndinni eru (sitjandi f.v.) Síkíús SÍKhvatsson, Hallgrimur Fr. Hallgrimsson,
Hilmar Foss, Einar Pétursson og Haraldur Á. Sigurðsson. Standandi (fv.) Geir Zoega, Brian Holt,
Þorsteinn Hannesson og Kristinn Hallsson.
i-tJ
* A 4*
Simon Williams kaupir sér islenzka lopapeysu. Sian Phillips
tímamóta í sögu Angliu ræddi
Mbl. örlítið við núverandi for-
mann félagsins. Colin Porter
fatahönnuð hjá Karnabæ.
Colin sagði að nú væru um 300
einstaklingar á öllum aldri í
félaginu, flestir þeirra væru ís-
lenzkir, en jafnframt væru í
félaginu fólk frá ýmsum ensku-
mælandi löndum, en einnig væru
í félaginu Kínverjar, ítalir og
SpánVerjar, svo eitthvað væri
nefnt. Félagsstarfið fer fram
fyrst og fremst yfir vetrarmánuð-
ina, þegar efnt er til kvikmynda-
sýninga, námskeiða og dans-
leikja. Góð aðsókn hefur verið að
enskunámskeiðum sem félagið
hefur gengizt fyrir undanfarin
ár. Þá hefur félagið staðið fyrir
hópferðum á söguslóðir á Bret-
landseyjum. Félagið hefur jafnan
haldið uppi góðu samstarfi við
brezka sendiráðið hér á landi, og
hafa ýmsir starfsmenn sendi-
ráðsins tekið virkan þátt í starfi
félagsins, að sögn Colins Porter.
Meðal þeirra sem á sínum tíma
áttu þátt í stofnun félagsins og
hlúðu að því fyrstu árin voru
ýmsir þjóðkunnir menn, og má
t.d. nefna Ásgeir Sigurðsson
konsúl, Helga Hermann Eiríks-
son, Magnús Matthíasson, Ottó P.
Arnar og John Lindsey. Síðar
komu svo við sögu Einar Péturs-
son, Haraldur Á. Sigurðsson,
Hallgrímur Fr. Hallgrímsson,
Sigurður B. Sigurðsson, Sigfús
Sighvatsson, Hilmar Foss, Geir
Zoega, Brian Holt, Gunnar
Schram, Þorsteinn Hannesson,
Már Elísson, Alan Boucher, Al-
bert Erlingsson o.fl. Fyrsti æfifé-
lagi Angliu var Ásgeir Ásgeirs-
son fyrrum forseti íslands.
Það hefur verið viðtekin venja,
að sami maður gegni ekki for-
mennsku í félaginu nema tvö
starfsár í einu. Samkvæmt þessu
lætur Colin Porter af formennsku
á næsta aðalfundi félagsins. í
stjórn félagsins eru 12 menn,
fimm Bretar, sex íslendingar og
einn ítali.
Góður andi
„Ég hef starfað í félaginu í 15
ár, og góður andi hefur alltaf
verið ríkjandi," sagði Colin Port-
er. „Mér líður vel á íslandi, þótt
ástandið hafi verið svolítið
skringilegt síðustu árin, kom
hingað 1956 og hef verið hér
óslitið frá 1960.
Það bregzt ekki, að ef Bretar
tolla hér í tvö ár, þá ílengjast þeir
hér á landi. Ég held ég geti
fullyrt að það sé að ýmsu leyti
betra að vera hér búsettur en á
Bretlandseyjum. Hér er allt svo
frjálst og heilbrigt. Ég get leyft
krökkunum mínum t.d. að vera
úti til kl. 11 á kvöldin án þess að
þurfa að óttast eitt eða neitt, en
þessu er öðru vísi farið ytra.
Þá er veðurfarið og sérstaklega
tæra loftið svo aðlaðandi, einnig
landið, náttúran og sveitirnar,
sem ég get ekki án verið," sagði
Colin Porter, sem ver drjúgum
stundum fyrir utan höfuðborgina
í leit að fyrirmyndum í listaverk
sín, en hann er iðinn listmálari.
„Nei, það sló aldrei skugga á
vináttuna meðan á þorskastríð-
unum stóð. Það var miklu frekar
að samkenndin ykist, íslendingar
börðust fyrir góðum málstað, sem
flestir eða allir höfðu samúð með.
Átökin voru fyrst og síðast á
stjórnmálasviðinu, og voru þau
eftirlátin pólitíkusunum."
Góðir gestir
Eins og áður segir verður
Howard Lang, eða Baines skip-
stjóri, heiðursgestur Anglia á
afmælisfagnaði félagsins. Áður
hefur félagið boðið til sín merkis-
mönnum, og má þar nefna Roy
Jenkins þingmann, ráðherra og á
sínum tíma einn æðsta leiðtoga
Efnahagsbandalags Evrópu,
verðlaunaskáldið Sir John Betje-
man, Maybray King lávarð, John
Neville leikara, Sheilu Scott flug-
konu, Simon Williams leikara
Sian Phillips leikkonu, en þau tvö
síðasttöldu eru sjónvarpsáhorf-
endum kunn fyrir hlutverk sín í
þáttunum „Húsbændur og hjú“
og „Ég, Claudius".
„Það var auðsótt að fá Howard
Lang til að koma aftur til okkar,“
sagði Colin Porter. „Hann er
nýkominn til Englands eftir störf
í Ástralíu og Ameríku og kemur
hingað næstkomandi fimmtudag.
Búið er að taka upp röð þátta í
Onedin-flokknum, sem við höfum
ekki séð hér. Lang líkaði vel hér
1975. Sjórinn og bátar eiga hug
hans allan og hann vildi helzt
ekkert skoða hér síðast nema
höfnina og umhverfi hennar.
Hann dvaldist lengi niðri við
höfn, innan um skipin og bátana
og ræddi við menn á bryggjunum.
Hann á sjálfur seglskútu og unir
sér hvergi betur en niðri á strönd
eða úti á sjó, þar sem saltur
sjávarblærinn leikur um vanga.
Þegar ég talaði við hann í síma
um daginn tók hann boði okkar
fegins hendi: „Heyrðu góði, ég
verð hvort eð er að koma til
íslands, því ég er búinn að týna
tveimur hnöppum af yfirhöfn
sem ég keypti í Rammagerðinni á
sínum tíma. Ég þarf að fá nýjar
tölur í staðinn", sagði hann,“
sagði Colin Porter að lokum