Morgunblaðið - 10.02.1981, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1981
23
r
• Leikmenn HK taka vel á i vörninni. Ragnar ólafsson í liöi HK (til
hægri á myndinni) átti mjög góðan leik gegn Aftureidingu og skoraði
5 mörk.
Eftirminnilegur
afmælisdagur
LAUGARDAGURINN 7. febrúar
1981 verður Magnúsi Pálssyni
markverði ÍR-inga liklega lengi
eftirminnilegur. Magnús varð þá
18 ára og hann hélt vel upp á
daginn. Hann stóð í markinu
allan leikinn og varði stórkost-
lega. Átján sinnum kom hann i
veg fyrir að leikmenn KA skor-
uðu, þar af varði hann tvö
vitaskot frá Gunnari Gislasyni.
Magnús var bezti maöur ÍR, sem
vann stóran sigur á KA, úrslit
leiksins urðu 24 — 15 og staðan i
hálfleik var 9—5 fyrir ÍR.
IR-ingar unnu sanngjarnan sig-
ur, þótt sérfræðingar kunni að
segja að hann hafi verið einum of
stór. Það var fyrst og fremst þétt
og sterk vörn IR-inga sem lagði
grunninn að sigrinum. Til marks
um það hve vörn ÍR var sterk
skoruðu leikmenn KA sitt annað
mark þegar liðin var 21 mínúta af
fyrri hálfleik, en fyrsta mark sitt
skoruðu þeir á níundu mínútu.
IR-ingar léku sem einn maður í
vörn og það gerði gæfumuninn.
Sóknarleikur ÍR-inga var lengi
vel hins vegar frekar þungur
miðað við hinn létta og hraða
sóknarleik KA. I seinni hálfleik
brá þó oft við skemmtilegum
fléttum og góðum sendingum sem
gáfu falleg mörk, og þegar á
heildina er litið fer ekki á milli
mála hvort liðið á erindi í fyrstu
deild. Sex leikmenn í liði ÍR
skoruðu þrjú mörk eða fleiri, flest
skoruð með gegnumbrotum eða af
línu. Brynjólfur Markússon sk,or-
aði flest mörk ÍR-inga eða fimm.
STAÐAN
Staðan í 2. deild karla eftir
leiki helgarinnar er nú þessi:
ÍR - KA 24-15
HK — UMFA 22-19
UBK - KA 23-17
Breiðablik 10 7 1 2 218-200 15
HK 9 5 2 2 188-157 12
ÍR 10 4 4 2 219-190 12
KA 8 5 0 3 175-155 10
Týr 9 5 0 4 168-162 10
Afturelding 11 5 0 6 222-230 10
Ármann 9 2 2 5 167-184 6
Þór, Ak. 10 0 1 9 194-260 1
ÍR —
KA
24:15
Einna laglegustu mörkin skoraði
Ársæll Hafsteinsson.
Við þennan sigur hlýtur ÍR-
ingum að aukast hugrekki og
stefna þeir sjálfsagt ákveðnar að
því að komast í 1. deild. Eftir
frekar daufa byrjun í mótinu
virðast þeir vera að komast á
skrið. Þegar leikmenn liðsins voru
lausir við allan taugaspenning
náðu þejr á stundum að ieika
skemmtilegan handknattleik, sér-
staklega síðust 20 mínútur leiks-
ins.
Lið KA fékk eiginlega aldrei
rönd við reist í leiknum, þótt það
sýndi léttan og lipran leik. Við
tapið minnkuðu líkur á því að liðið
kæmist í 1. deild. Hin sterka vörn
IR-inga sló leikmenn KA strax
útaf laginu. Norðanmenn mættu
ákveðnir til leiks í seinni hálfleik,
voru fastir fyrir í vörninni og
náðu að minnka muninn í tvö
mörk á áttundu mínútu. En þá
tóku IR-ingar leikinn aftur í sínar
hendur og skoruðu næstu fjögur
mörk. Síðasta kortérið opnaðist
leikurinn og 17 mörk þá skoruð,
mörg þeirra stórskemmtileg.
Mörk IR: Brynjólfur Markússon 5,
Bjarni Bessason 4, Bjarni Hákon-
arson 4, Ársæll Hafsteinsson 3,
Guðjón Marteinsson 3, Sigurður
Svavarsson 3, Bjarni Bjarnason 1
og Guðmundur Þórðarson 1.
Mörk KA: Gunnar Gíslason 5,
Friðjón Jónsson 3, Erlingur
Kristjánsson 2, Guðmundur Guð-
mundsson 2, Jóhann Einarsson 1,
Magnús Birgisson 1 og Þorleifur
Ananíusarson 1.
Einar átti stórleik í
markinu og HK sigraði
LIÐ HK VANN öruggan sigur á liði UMFA í 2. deild er liðin léku að
Varmá i Mosfellssveit á laugardag. IIK sigraði 22—19 í leiknum eftir
að hafa verið yfir í hálflcik, 13—10. IIK var betra liðið á vellinum og
lék oft vel. Sér i lagi var varnarleikur liðsins og markvarsla góð. Það
er alveg ljóst að HK blandar sér í haráttuna um toppsætið í 2. deild en
með tapi sínu á Afturelding enga möguleika að vera í baráttunni um
efstu sætin.
Fyrri hálfleikur liðanna var
nokkuð jafn. HK átti þó frum-
kvæðið í leiknum og voru leik-
menn HK mun ákveðnari í öllum
leik sínum. Leikmenn UMFA
börðust vel í leiknum og voru ekki
á því að gefa neitt eftir. Þrjú mörk
skildu liðin í hálfleik.
í upphafi síðari hálfleiks var
mikill hugur og kraftur í leik-
mönnum Aftureldingar og þeim
tókst að skora þrjú fyrstu mörk
leiksins og jafna metin, 13—13. En
HK náði forystunni aftur og um
miðjan síðari hálfleik var staðan
17—15. HK jók muninn í 19—15 og
komst svo í 21—16. Þar með var
leikurinn alveg í þeirra höndum.
UMFA seig aðeins á í lok leiksins
en átti enga möguleika á að jafna
metin.
Besti maður í liði HK var Einar
Þorvarðarson markvörður. Hann
varði allan tímann mjög vel. Alls
varði hann 14 skot í leiknum, þar
af tvö vítaköst. Þeir Hilmar,
Ragnar óg Hallvarður áttu allir
góðan leik og drifu leik liðsins
áfram. Þá var Sigurður góður og
er hann mjög góður skotmaður.
Björn Bjarnason var bestur í
liði UMFA. Björn skoraði fimm
umfa 23:19
mörk af 10 í fyrri hálfleik og lék
vel. Þá er hann sterkur varnar-
maður. Steingrímur og Sigurjón
voru góðir. Það sem varð UMFA
dýrt í þessum leik var að hinn
snjalli markvörður liðsins, Emil
Karlsson, varði ekki eins vel og oft
áður.
Mörk HK: Hilmar 5, Ragnar 5,
Hallvarður 5, Sigurður 4, Berg-
sveinn 2, og Kristinn 1.
Mörk UMFA: Björn 6, Steinar 4,
Sigurjón 4, Þórður 2, Ágúst 1 og
Magnús 1. — þr.
Nýlióarnir í 2. deild
UBK sigruðu KA örugglega
NÝLIÐARNIR í 2. deild Breiðablik, úr Kópavogi, standa sig vel í 2.
deild um þesar mundir. Á sunnudag gerði liðið sér lítið fvrir og vann
öruggan sigur á liði KA frá Akureyri með 23 mörkum gegn 17. Sex
marka sigur var mjög verðskuldaður af hinum frekar reynslulitlu og
ungu en bráðefnilegu leikmönnum Breiðabliks. Með sama áframhaldi
á liðið góða möguleika á að berjast um sæti i 1. deild í næsta ári.
Fyrri hálfleikur liðanna að tækifærum og tvö vítaköst í röð á
UBK
KA
23:17
Varmá á sunnudag vr frekar
sveiflukenndur. Lið UBK komst í
4—2 eftir 10 mínútna leik en
þegar fyrri hálfleikur var hálfnað-
ur var staðan jöfrt, 5—5. Næstu
mínútur var mikill hraði í leiknum
af beggja hálfu og mikið um
mistök, leikmenn réðu ekki við
þann hraða sem leikið var á.
Jafnræði var með liðunum og
hvert liðið skoraði þrjú mörk
síðustu 15 mínúturnar. Staðan í
hálfleik 9—9.
Síðari hálfleikur var mun betur
leikinn, af báðum liðum. Leik-
menn UBK voru mjög ákveðnir og
náðu forystunni í síðari hálfleik
og héldu henni út leikinn. Svo til
allan síðari hálfleik var þriggja
marka munur og átti lið KA
ekkert svar við leik UBK. Undir
lok leiksins hrundi leikur KA
gjörsamlega og skoruðu þá leik-
menn UBK hvert markið af öðru.
Sigur Breiðabliks hefði vel getað
orðið stærri en sex mörk. Liðið
misnotaði fjöldann allan af góðum
mikilvægu augnabliki í leiknum.
En það kom ekki að sök.
Lið Breiðabliks er skipað mjög
jöfnum leikmönnum sem eru upp-
fullir af baráttu og leikgleði.
Markverðir liðsins, þeir Benedikt
og Heimir, léku hvor sinn hálfleik-
inn og vörðu báðir mjög vel. Þá
var varnarleikur liðsins góður.
Júlíus Guðmundsson átti góðan
leik svo og Stefán Magnússon,
Brynjar og Björn. Hörður Már
skoraði 5 mörk í leiknum, en var
nokkuð mistækur framanaf.
Lið KA lék frekar óskipulegan
handknattleik. Mikið var um hnoð
inn á miðju vallarins og boltinn
gekk illa á milli leikmanna. Þá var
varnarleikur liðsins svo og mark-
varsla afar slök. Friðjón Jónsson
var góður framan af en síðan ekki
söguna meir. Jóhann Einarsson
skoraði nokkur falleg mörk. Ann-
ars vantar lið KA tilfinnanlega
góðar skyttur. Með tapi í tveimur
síðustu leikjum á lið KA nú litla
möguleika á að verða í efsta
sætinu í 2. deild.
Mörk Breiðabliks:
Björn Jónsson 6, 4v, Hörður Már
Kristjánsson 5, Brynjar BjörnSson
3, Stefán Magnússon 3, Júlíus
Guðmundsson 4, Kristján Hall-
dórsson 2 og Aðalsteinn Jónsson 1.
Mörk KA:
Friðjón Jónsson 6, 3v, Jóhann
Einarsson 4, Gunnar Gíslason 2,
Björn Friðþjófsson 2, Jóhannes
Bjarnason, Magnús Birgisson og
Þorleifur Ananíasson 1 mark
hver. — þr.
Bjarni Bessason átti góðan leik með ÍR og skoraði 4 falleg mörk.