Morgunblaðið - 10.02.1981, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1981
29
Verðtryggðu lánin:
6 mánaða innláns-
reikningar með 1%
vöxtum og lágmarks-
tími útlánanna 2,5 ár
Hér má þekkja þá Jón Benediktsson, fyrrverandi yfirlöKregluþjón, heiðursgest kvöldsins og einn af
stofnendum Sjálfstæðisfélags Akureyrar, Gisla Jónsson bæjarfulltrúa, Davið Kristjánsson fram-
kvæmdastjóra og Björn J. Arnviðarson.
Fjölmenni á 50 ára afmælishátíð
Sjálfstæðisfélags Akureyrar
Fimmtíu ára afmælisfagnaður
Sjálfstæðisfélags Akureyrar, og
um leið árshátíð sjálfstæðisfé-
laganna þar í bæ, var haldin
fyrir skömmu, í Sjálfstæðishús-
inu að sjálfsögðu. Mikil stemmn-
ing ríkti á hátíðinni, sem var
mjög fjölsótt. Heiðursgestir voru
hjónin Aðalheiður og Jónas G.
Rafnar, en hann var um hríð
þingmaður fyrir norðan.
Flutti Jónas hátíðarræðuna,
en einnig tóku til máls þeir Gísli
Jónsson menntaskólakennari og
oddviti sjálfstæðismanna i bæj-
arstjórn, og Lárus Jónsson al-
þingismaður. Formaður Sjálf-
stæðisfélags Akureyrar, Sverrir
Leósson, var veislustjóri.
Að borðhaldi og ávörpum
loknum var stiginn dans fram
eftir nóttu.
Bjarni Rafnar læknir og Bergljót, kona hans, ásamt Jónasi Rafnar
bankastjóra og konu hans, Aðalheiði.
Gisli Jónsson bæjarfulltrúi ásamt Halldóri Blöndal
alþingismanni og Ragnhildi, dóttur hans. LjóKm.: Sv.p.
Auður Magnúsdóttir ásamt Jóni Benedikts-
syni, fyrrverandi yfirlögregluþjóni, en hann
var sérstakur heiðursgestur i afmælishóf
inu, þar sem hann er einn þriggja stofnenda
þess, sem nú eru á lífi. Hinir eru Páll
Einarsson, fyrrv. fulltrúi hjá bæjarfógeta,
og Sverrir Ragnars sparisjóðsstjóri, en þeir
gátu ekki setið hófið.
Kjaramálaráðstefna fóstra:
„Hvikum hvergi frá settum kröfum“
Verða barnaheimili á Akureyri
og í Kópavogi óstarfhæf?
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í
gær, að lágmarkstimi visitölu-
tryggðra útlána skuli vera tvö
og háift ár og vextir 2,5%, en
fyrir heigina samþykkti ríkis-
stjórnin, að vextir af nýju sex
mánaða visitölutryggðu innláns-
reikningunum verði 1%. Sem
kunnugt er, lagði Seðlabankinn
upphaflega til að sex mánaða
reikningarnir yrðu vaxtaiausir
og lágmarkstimi útlánanna eitt
ár. Iieimilt verður að færa inn-
stæður af 12 mánaða vaxtaauka-
innlánum á nýju sex mánaða
reikningana og einnig innstæð-
ur af 6 mánaða, 12 mánaða og 10
ára sparisjóðsbókum.
Tómas Árnason, viðskiptaráð-
herra, sagði, að í umræðum um
tillögur Seðlabankans hefði
mönnum litist illa á vaxtalausa
reikninga. „Menn vildu hafa ein-
hverja vaxtaögn til að gera þetta
meira aðlaðandi fyrir fólkið og
auka sparnaðinn og styrkja
bankakerfið," sagði Tómas. Ríkis-
stjórnin hafnaði strax þeim
möguleika, að lágmarkstími vísi-
tölutryggðra útlána yrði eitt ár
og var rætt um lágmarkstíma allt
að fjórum árum. Tómas sagði, að
„menn hefðu að lokum lent á2xh
ári sem eftir atvikum hæfilegum
tírna".
Um aðrar vaxtabreytingar
sagði Tómas, að ekki hefðu verið
teknar um þær ákvarðanir.
Seðlabankinn gaf í gær út
eftirfarandi fréttatilkynningu:
„Með 3. gr. bráðabirgðalaga,
sem ríkisstjórnin setti í lok
síðastliðins árs, var eftirfarandi
ákvæði bætt við 36. gr. laga um
stjórn efnahagsmála o.fl. (nr. 13
frá 10. apríl 1979): „Stofna skal til
Fimm dansk-
ir blaðamenn
í heimsókn
f GÆR komu hingað til
lands fimm danskir blaða-
menn, sem utanrikisráðu-
neytið hefur boðið hingað
vegna heimsóknar forseta
íslands til Danmerkur síðar
i þessum mánuði. Munu
Danirnir hitta hér ýmsa
framámcnn i islensku þjóó-
lifi og atvinnulifi, að þvi er
Berglind Ásgeirsdóttir i
utanrikisráðuneytinu sagði
i samtali við blaðamann
Morgunblaðsins i gær.
Blaðamennirnir, sem
hingað komu í gær, eru Lars
Kjelbo frá Berlinske Ti-
dende, Mona Clemensen frá
Kristeligt Dagblad, Kaare
Toftkær Jensen frá Politik-
en, Lis Kildevang Jensen frá
Ritzau og Jergen Seholt frá
Aarhus Stiftstidende.
Frú Vigdís Finnbogadótt-
ir, forseti íslands, mun verða
í opinberri heimsókn í Dan-
mörku dagana 25. til 27.
febrúar næstkomandi. Þrem-
ur íslenskum blaðamönnum
hefur verið boðið til Dan-
merkur af þessu tilefni, en
þeir eru Elín Pálmadóttir á
Morgunblaðinu, Guðjón
Friðriksson frá Þjóðviljan-
um og Hallgrímur Thor-
steinsson á útvarpinu.
verðtryggðra sparifjárreikninga í
bönkum og sparisjóðum, þar sem
binda má fé til sex mánaða."
Hafa nú verið settar reglur um
þessa reikninga, og er heimilt að
opna þá í innlánsstofnunum frá
og með 13. febrúar nk.
Frá 1. júlí síðasta árs hafa
verið í notkun verðtryggðir spari-
fjárreikningar með tveggja ára
bindingu við upphaf hvers reikn-
ings, en eins árs bindingu að
fyrsta ári liðnu. Styttist bindi-
tími fjár á þessum reikningum nú
sjálfkrafa í sex mánuði. Verða
vextir þessara innlána óbreyttir
eftir breytinguna, 1% ofan á
verðtryggðan stofn. Reiknast
vísitölutrygging sem fyrr á
óhreyfða stöðu milli mánaða-
móta, en inn- og útborganir
reiknast innan mánaðar með sér-
stökum verðbótum, sem nú eru
hinar sömu og vextir 12 mánaða
vaxtaaukainnlána.
Ákveðið hefur verið að leyfa
yfirfærslu innstæðna af 12 mán-
aða vaxtaaukainnlánum á 6 mán-
aða vísitölureikninga, með nýrri
bindingu frá yfirfærsludegi, sem
þó verði ekki fyrr en 1. apríl nk.
Hið sama gildir um fé á 6
mánaða, 12 mánaða og 10 ára
sparisjóðsbókum, en þeim hefur
fylgt réttur til yfirfærslu á 12
mánaða vaxtaaukainnlán.
Ekki verða að svo stöddu gerð-
ar neinar verulegar breytingar
útlánakjara til þess að gera
innlánsstofnunum kleift að mæta
hinum nýju skuldbindingum
bankakerfisins á innlánshlið, en
reynslan verður að skera úr um
það, hve langt þurfi að ganga í
því efni. Þó verður lágmarkstími
útlána með vísitölutryggingu
styttur úr 4 árum \ 2xh ár, að
óbreyttum 2,5% vöxtum. Miðar
sú breyting m.a. að því að auð-
velda væntanlega lengingu lána í
þágu íbúðareigenda."
Kjaramálaráðstefnu Fóstrufé-
lags íslands lauk i gær, en hún
stóð yfir í þrjá daga. Ráðstefnan
var fjölmenn og umræður miklar.
f lok ráðstefnunnar var sam-
þykkt ályktun, auk stuðningsyf-
irlýsinga við fóstrur á Akureyri,
Kópavogi og í Vestmannaeyjum.
Að sögn Mörtu Sigurðardóttur
blaðafulltrúa Fóstrufélagsins
mun félagið nú biða átekta og
fylgjast með framvindu mála i
áðurnefndum þremur bæjarfélög-
um, en sem kunnugt er hefur
Fóstrufélagið ekki sjálfstæðan
samningsrétt. Þá sagði Marta
meginniðurstöðu ráðstefnunnar
vera að mikill einhugur rikti um
að hvika hvergi frá settum kröf-
um um betri vinnuaðstöðu og
laun.
í ályktun kjaramálaráðstefn-
unnar segir m.a.: „Kjaramála-
ráðstefnan lýsir andstöðu sinni
við starfsheitið deildarfóstra.
Starfsheitið hefur í för með sér
mismunun í launum meðal fóstra,
sem vinna hlið við hlið við sömu
störf. Stefnan í dagvistarmálum
er sú, að dagvistarheimili verði
eingöngu skipuð faglærðu fólki.
Rétt er að taka fram, að nú þegar
starfa tvær fóstrur saman á deild-
um dagvistarheimila hjá nokkrum
sveitarfélögum. Fram að þessu
hefur verið notað starfsheitið
„fóstra" fyrir allar fóstrur. í
þessum samningum hefur verið
boðið nýtt starfsheiti „deildar-
fóstra" og er það einum launa-
flokki hærra en fóstra. Nái þetta
fram að ganga þýðir það að tvær
fóstrur, sem vinna saman á deild,
með sömu menntun, verða i sitt
hvorum launaflokknum. Við slíkt
verður alls ekki unað.“
Þá var á ráðstefnunni fjallað
um starfsemi B.S.R.B. og aðildar-
félaga þess í kjarabaráttu fóstra
fyrr og nú, og rætt um þá
möguleika sem fyrir hendi eru. Þá
segir einnig i ályktuninni: „Jafn-
hliða viljum við, að lagður verði
grundvöllur að mótun uppeldis-
legra sjónarmiða í allri umræðu
um kjaramál, svo að augljóst verði
hverra hagur það er að störf okkar
verði metin til viðeigandi launa."
í stuðningsyfirlýsingunum við
fóstrur á Akureyri, í Kópavogi og í
Vestmannaeyjum eru áðurnefnd
atriði ályktunarinnar ítrekuð og
þar segir einnig, að ráðstefnan
telji sig hafa vissu fyrir því að
engin fóstra muni sækja um
fóstrustörf, sem auglýst hafa ver-
ið laus til umsóknar á Akureyri og
í Kópavogi. Segir í yfirlýsingun-
um: „Þetta mun í reynd þýða, að
dagvistarheimili Akureyrarbæjar
og Kópavogskaupstaðar verði
óstarfhæf sbr. lög um byggingu og
rekstur dagvistarheimila frá
1976/112. V. kafli 16. gr. en þar
segir: „Forstöðumaður dagvistar-
heimilis og starfslið, er annast
fósturstörf, skal hafa hlotið fóst-
urmenntun, svo og þeir sem ann-
ast umsjón með dagvistarheimil-
um á vegum rekstraraðila."
Aðspurð sagði Marta Sigurðar-
dóttir í viðtali við Mbl. í gær, að
hún vildi ekki trúa því fyrr en á
reyndi, að bæjarfélögin mætu
börnin svo lítils, að þau gripu til
þess að fá undanþágur hjá ráðu-
neytinu til ráða ófaglært fólk til
starfa á barnaheimilunum. „Ég er
þess fullviss að foreldrar og for-
ráðamenn barna koma til með að
láta ekki troða þannig á rétti
barnanna til að hljóta þá beztu
umönnun sem kostur er á,“ sagði
hún.