Morgunblaðið - 10.02.1981, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRUAR 1981
35
Davíð Oddsson flytur framsögu-
ræðu sína. Honum á vinstri
hönd er Páll Gíslason, og honum
til hægri handar eru Konráð
Ingi Torfason og Einar Strand.
voru í tíð sjálfstæðismanna, ekki
væri staðið nægilega vel að mál-
efnum aldraðra og svo mætti lengi
telja.
Borgarstjóraembættið sagði
hann hafa verið gert máttlaust
með því að taka af því pólitísk
völd og frumkvæði, enda virtist nú
sem heldur betur ætti að kúvenda
í því máli, með því að koma upp
fimm til sjö pólitískum borgar-
stjórum. Miklar breytingar væru
þar á orðnar frá því er vinstri
flokkarnir vildu afnema hið póli-
tíska borgarstjóraembætti!
Þannig ræki sig hvað á annars
horn, kosningaloforð og efndir,
stjórn borgarinnar væri í megn-
asta ólestri og meirihlutinn klof-
inn og ófær um að ná því sam-
komulagi og samstöðu sem nauð-
synlegt væri til að stjórna borg-
inni.
Tapið 1978 örlaga-
ríkt fyrir borgarbúa
Páll Gislason sagði, að tap
Sjálfstæðisflokksins í borgar-
stjórnarkosningunum árið 1978
hefði verið flokknum mikið áfall,
eins og fólki væri enn í fersku
minni. Síðar hefði svo komið í ljós,
að „fall borgarinnar" eins og það
hafi verið nefnt, hafi ekki síður
verið áfall fyrir Reykjavík og
Reykvíkinga. Glundroðakenningin
hefði sannast á stjórn borgarinn-
ar, ekki væri samstaða um fjöl-
mörg nauðsynleg mál, sem síðan
bitnuðu seint og snemma á íbúum
höfuðborgarinnar. Nærtækt dæmi
um það væri skipulagsmálin. —
Þessu sagði Páll að væri á annan
veg farið hjá Sjálfstæðisflokkn-
um, þar væri samstaða um öll
mikilvægustu málin í borgar-
stjórn.
Nú sagði hann stöðnun og aft-
urför vera áberandi á alltof mörg-
um sviðum borgarlífsins. Það sæ-
ist best á því að á næstu árum
væri gert ráð fyrir að um 60% af
íbúðarbyggingum á höfuðborgar-
svæðinu yrðu í Reykjavík, þótt þar
byggju um 75% íbúa á þessu
svæði. Enn virtist því eiga að
halla undan fæti hjá Reykjavík.
Páll vék að fjölmörgum málum í
ræðu sinni, svo sem skipulagsmál-
unum, nauðsyn þess að tryggt yrði
svæði fyrir landsbyggðasafn við
Árbæjarsafn, nauðsyn uppbygg-
ingar heilsugæslu og öldrunar-
þjónustu og dagvistunarstofnana,
sem ekki hefði verið unnið nægi-
lega vel að á tíma núverandi
vinstri meirihluta. Páll sagði allt
leggjast á eitt um að brýna
nauðsyn bæri til að skipta um
stjórn í Reykjavík eftir sextán
mánuði, frelsa yrði borgina í maí
árið 1982.
Að lokinni framsöguræðu Páls
var fundargestum boðið upp á
kaffi og kökur af félagi Sjálfstæð-
isflokksins í hverfinu, en að því
loknu var tekið til við fyrirspurnir
og svör borgarfulltrúanna við
þeim.
sagnakennt kynni aö
viröast, og því heföi ver-
iö ákveðið aö láta
Hæstarétt skera endan-
lega úr um þaö. Meö því
væri ekki á neinn hátt
tekin afstaöa til dóms-
niðurstööunnar.
Fjölbrautaskóli
í Árbæjarhverfi?
Helgi örn Viggósson
spuröi hvort til athugun-
ar vasri aö byggja Fjöl-
brautaskóla í hverfinu.
Davíö Oddsson svar-
aöl, og sagöi slíkt ekki
hafa veriö til umræöu,
setlunin væri aö Fjöl-
brautaskólinn í Breiö-
holti sinnti þessum
hverfum einnig. Höföa-
bakkabrúin myndi einnig
auðvelda samgöngur
milli hverfanna, og þar
meö auövelda nemum úr
Árbæjar- og Seláshverf-
um skólagönguna. Dav-
íö sagöi hins vegar
mögulegt, aö þessi viö-
horf breyttust, ef fólki
fjölgaöi mjög í hverfinu,
en eins og væri, stæöi
þaö ekki til.
Má ekki byggja
á flugvallarsvæðinu?
Asmundur Jóhanns-
son hélt ræöu og kom
víöa viö, einkum í þeim
málum er lúta aö Arbæj-
arhverfi sérstaklega.
Hann sagöist fagna því
aö borgarfulltrúar kæmu
og ræddu viö borgar-
búa, en þeim væri ekki
síöur hollt aö hlusta en
tala á slíkum fundum.
Meöal þess sem Ás-
mundur ræddi um, var
hvort ekki mætti byggja
á Reykjavíkurflugvelii, ef
unnt væri aö finna nýtt
flugvallarstæöi. Varaöi
hann viö aö þenja borg-
ina of mikiö út, svo sem
á Keldnaholtssvæöiö
sem heföi margvíslega
vankanta í för meö sér.
Davíö Oddsson sagöi
æskilegt, aö unnt yröi aö
fá flugvöllinn til bygg-
inga, en ekki væri raun-
hæft að búast viö aö
völlurinn yröi fluttur inn-
an skamms. Ástandiö
væri þaö siæmt f fiug-
vallamálum lands-
manna, aö útilokaö væri
aö Alþingi veitti fé til nýs
Reykjavíkurflugvallar á
meöan enn skorti nauö-
synlegustu tæki til fjöl-
margra flugvalla úti á
landi.
En jafnvel þótt svo
yröi, aö byggt yröi á
flugvellinum, sagöi Davíö
þaö ekki mega koma í
veg fyrir að hugaö væri
aö nýjum svæðum, sem
þörf yrði fyrir innan
skamms, hvort sem
flugvöllurinn færi eöa
ekki. Fyrirhyggja væri
nauðsynleg í þessum
efnum, en hana skorti nú
tilfinnanlega hjá borgar-
yfirvöldum.
Umferð aukist
ekki um Rofabæ
Ásta Gunnarsdóttir
ræddi meðal annars um
strætisvagnaferðir um
hverfiö, eftir aö Selásinn
væri oröinn byggöur.
Spuröi hún hvort ekki
væri unnt aö koma á
einskonar hringakstri
um hverfin, þannig að
umferö þyrfti ekki aö
aukast um Rofabæinn.
Páli Gíslason sagöi
ekki vera endanlega frá
gengiö meö strætis-
vagnaferöir um þessi
hverfi í framtíöinni, en
sjónarmiö þau, er Ásta
heföi komiö fram meö,
yröi vissulega aö kanna
áöur en til þess kæmi.
Skóli og skíðabrekkur
Gísli Baldvinsson
ræddi meöal annars um
skíöabrekkur í Ártúns-
brekku, og um gönguleiö
frá Stíflu yfir í Hólana.
Spuröi hann hvort eitt-
hvað væri ákveöið í gerð
mannvirkja eöa úti-
vistarsvæöa.
Páll Gíslason sagöi
þegar nokkuö hafa veriö
gert fyrir skíöafóik á
þessum svæöum, og
reynslan sýndi aö þaö
væri vel þess viröi aö
auka þar viö. Skíöalyftu
yröi til dæmis aö hafa á
þessum stööum, og væri
þegar búiö aö setja þá
fyrri upp í Ártúnsbrekku.
— AH
Ný áætlun Ferða-
félagsins komin út
FERÐAFÉLAG íslands heíur
gefið út áætlun um ferðir á
þessu ári og eru þar auglýstar
dagsferðir, helgarferðir og
sumarleyfisferðir. Þá auglýsa
hinar ýmsu félagsdeiidir ferðir
á sinum vegum. Meðal sér-
stakra ferða FÍ má nefna
fræðsluferðir sem farnar eru á
laugardögum og eru þá aug-
Iýstar hverju sinni.
Göngudagur FÍ verður 14.
júní, en það er í þriðja sinn, sem
efnt er til hans. Er þá valin létt
gönguleið og hefur það verið
reynslan, að fjölskyldur taka sig
saman í þessar ferðir. Reglu-
legar helgarferðir eru til fjög-
urra staða á hálendinu þar sem
félagið rekur sæluhús. Við
Álftavatn er nýtt sæluhús, á
Hveravöllum var sl. sumar reist
nýtt sæluhús.
Sumarleyfisferðir eru í ár 23,
öku- og gönguferðir eða einungis
gönguferðir. Meðal nýjunga má
nefna ferð á Hornstrandir í
ágúst þegar gróður er þar feg-
urstur, gönguferð um Kjalveg og
gistingu í nýjum gönguskála FI
við Þverbrekknamúla og göngu-
ferð frá Snæfelli í Lónsöræfi.
% FEROAFÉLAG ÍSLANDS
0*' Simar »9633 - W98
FEROAAÆTLUN -JQQ-4
ICELAND TOURS I jQ I
Nokkrar myndir prýða áætlun
Ferðafélagsins og á forsiðu er
mynd frá Hrafntinnuskeri eftir
Pál Jónsson.
Rokkhljómleikar
Rokkhljómieikar verða i
Stúdentakjallaranum i kvöld,
þriðjudagskvöld og hefjast þeir
kl. 21. Hljómsvcitin Head Ef-
fects heldur þar sina fyrstu
hljómleika eftir nokkurt hlé og
mannaskipti.
Hljómsveitina skipa nú Gra-
ham Smith sem leikur á raf-
magnsfiðlu, Richard Korn sem
leikur á bassa, Gestur Guðnason
leikur á gítar og Jónas Björns-
son á trommur. Graham Smith
er breskur og leikur nú með
Sinfóníuhljómsveit íslands en
Korn- er frá Bandaríkjunum og
hefur einnig leikið með Sinfóníu-
hljómsveitinni.
Á hljómleikunum í kvöld
verða nær eingöngu leikin lög
eftir meðlimi hljómsveitarinnar.
Tveir af meðlimum hljómsveitarinnar Head Effects, Graham
Smith (t.v.) og Richard Korn. • Lió«m. Kristinn.
Rétt númer lukkudaga
VIÐ BIRTINGU vinningsnúmera úr Lukkudögum í Mbl. sl. þriðjudag
komu fram viliur í númerum desembermánaðar. Birtast réttu
númerin hér á eftir:
Vinningar í DESEMBER 1980
Nr.
1 Sharp vasatölva m/klukku
og vekjara .................. 2360
2 Braun LS 35 krullujárn .... 25367
3 Skáldverk Kristmanns Guðmundss.
7 bindi frá A.B............. 27920
4 Philips vekjarakiukka
m/útvarpi .................. 12229
5 Sharp Vasatölva CL 8145 ... 10665
6 Vöruúttekt að eigin vali
frá Liverpool .............. 19464
7 Reiðhjól að eigin vali
frá Fálkanum ............... 24742
8 Kodak Pocket A1 myndavél .. 14771
9 Sharp vasatölva CL 8145 ... 21418
10 Henson æfingagalli ......... 8728
11 Henson æfingagalii ......... 2656
12 Henson æfingagalli ......... 3785
13 Philips vekjaraklukka
m/útvarpi .................. 26026
14 Tesai ferðaútvarp .......... 9259
15 Henson æfingagalli ........ 11838
16 Kodak Pocket A1 myndavél .. 16325
17 Sharp vasatðlva m/klukku
og vekjara ................. 29839
18 Sharp vasatölva CL 8145 ... 16253
19 Tesai ferðaútvarp ......... 28593
20 Kodak Pocket A1 mvndavél .. 4365
21 Philips vekjaraklukka
m/útvarpi ................... 3544
22 Braun LS 35 krullujárn .... 27633
23 Sharp vasatölva CL 8145 .... 2607
24 Sharp vasatölva CL 8145 ... 10844
25 Mulinette kvörn ............ 5375
26 Henson æfingagalli ......... 6437
27 Kodak Pocket A1 myndavél .. 2721
28 Sharp vasatölva CL 8145 ... 28768
29 Kodak Ektra 12 myndavél .... 18243
30 Kodak Ektra 12 myndavél .... 9317
31 Skil 1552H verkfærasett ... 27308
Upplýsingar fyrir vinningshafa í
síma: 33622.