Morgunblaðið - 10.02.1981, Síða 46

Morgunblaðið - 10.02.1981, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1981 Indland: Tugir manna létust er sirkustjald brann Nýju Delí, 9. febrúar. AP. AÐ MINNSTA kosti 66 manns hafa látist af völdum sára er þeir hlutu er sirkustjaid brann i Bangalore á Suður-Indlandi. Um 4000 manns voru i tjaldinu er eidurinn kom upp og liggja 500 þeirra slasaðir á sjúkrahúsum i Bengalore og víðar. 75 eru taldir vera i mikilli hættu. Fyrstu fréttir af brunanum voru óljósar. Lögregluyfirvöld sögðu í fyrstu að 6 börn hefðu látist en síðar tilkynnti indverska fréttastofan að um 100 manns hefðu látið lífið. Skýrsiur hermdu síðast að 66 manns hefðu látist. Ekki hefur verið hægt að bera kennsl á öll líkin en víst er að meðal látinna eru að minnsta kosti 19 börn. Ekki var ljóst í gær hvað orsakaði eldinn. Talið er að það hafi annað hvort verið vindill eða neisti frá rafmagnslínu efst í tjaldinu. Tjaldið var fljótt alelda og eftir 10 mínútur var það orðið að ösku. Sadat ræðir við ráðamenn í EBE Luxemborg, 9. febrúar. — AP. ANWAR Sadat, Egyptaiandsfor- seti, kom i dag til Luxemborgar og hefur i dag átt viðræður við frammámenn Efnahagsbanda- lags Evrópu um þráteflið í Aust- urlöndum nær. Árásir á her- búðir í Uganda Kampala, 9. febrúar. — AP. SNEMMA i morgun var ráðist Veður víða um heim Akureyri -10 iéttskýjaó Amsterdam 9 skýjaó Aþena 16 heióskírt Berlín 7 skýjaó BrUssel 8 skýjaó Chicsgo -8 skýjaó Feneyjar 8 þokumóóa Frankfurt 10 skýjaó Fssreyjar 1 skýjaó Qenf 6 skýjað Helsinki 0 skýjað Jerúsalem 8 heióskírt Jóhannesarb. 16 skýjaó Kaupmannahöfn 8 heiðskírt Las Paimas 20 heióskírt Lissabon 17 skýjaó London 9 skýjað Los Angeies 17 rigning Madrid 18 heiðskirt Malaga 17 skýjaó Mallorca 14 skýjaó Miami 28 skýjaó Moskva 1 skýjaó New York 8 heióskírt Osió vantar París 11 skýjaó Reykjavík -6 snjóól Rió de Janeiro 35 skýjað Rómaborg 17 skýjaó Stokkhólmur 0 heiöskírt Tei Aviv 14 heióskírt Tókýó 11 heióskírt Vancouver 5 skýjað Vínarborg 13 heióskírt á fimm herbúðir, sjö lögreglu- stöðvar og á fangelsi viða i Uganda og virðast árásirnar hafa verið vel skipulagðar. í Nairobi í Kenya lýstu þrír menn yfir því við fréttamenn, að Frelsishreyfing Uganda stæði að baki árásunum og væri stefnt að borgarastríði til að koma Milton Obote frá völdum og endurreisa lýðræði i land- inu. f aðalstöðvum hersins í Kampala var í dag staðfest, að ráðist hefði verið á tvær lög- reglustöðvar en ekki var getið um herbúðirnar. Sagt var að einn lögreglumaður hefði fallið. Haft er eftir vitnum, að í árásunum á herbúðirnar hafi árásarmennirnir komist yfir mikið af vopnum. í alla nótt kváðu við skot- hvellir í Kampala-borg og sprengingar og þúsundir manna héldu sig heima í dag af þeim sökum. Vegartálmum var komið upp í borginni og utan hennar í dag og er hermt, að hermenn hafi skotið til bana háttsettan starfsmann póstþjónustunnar þegar hann neyddist til að stöðva bíl sinn. Ónefndir embættismenn í varnarmálaráðuneytinu í Ug- anda segjast ekki vita hverjir stóðu fyrir árásunum á herbúð- irnar og lögreglustöðvarnar og segjast aldrei hafa heyrt nefnda Frelsishreyfingu Uganda. í yfirlýsingu, sem egypska utan- ríkisráðuneytið gaf út í dag, sagði, að heimsókn Sadats og viðræður hans við Frakklandsforseta seinna í vikunni hefðu „mikla pólitíska þýðingu". Sadat mun einnig ræða við Gaston Thorn, forseta Evrópu- ráðsins, og fleiri ráðamenn í Evrópu. Efnahagsbandalagið hefur að undanförnu reynt að hafa frum- kvæði að nýjum friðarviðræðum í Austurlöndum nær og í yfirlýs- ingu egypska utanríkisráðuneytis- ins sagði, að jákvæð og skynsam- leg“ væri sú ósk EBE, að ríkis- stjórnir í þessum heimshluta skilgreindu betur meginskilyrðin fyrir framtíðarsamkomulagi. Mark D. Chapman Ungir knattspyrnuáhugamenn i sjúkrahúsi i Pireus, Grikklandi. Þeir komust lifs af þegar 19 biðu bana og rúmlega 50 slösuðust alvarlega i troðningum á iþróttavelli borgarinnar. Heimaliðið, Olympiakos, hafði sigrað Aþenuliðið AEX, með sex mörkum gegn engu og þar með haldið forystu sinni i fyrstu deild. Tugir tróðust undir á knattspyrnuvelli Aþenn, 9. febrúar. AP. NÍTJÁN manns létust og um 50 særðust alvarlega er mikil örtröð myndaðist við útgönguhlið á knattspyrnuvelli í Karaisaki, nærri Pireus á Grikklandi í gær. Er þetta mesti harmleikur í sögu iþrótta þar i landi. Slysið átti sér stað er um 40.000 manns gengu út af knattspyrnuvelli eftir að heimaliðið, Olympiacos, hafði unnið Aek frá Aþenu, 6:0. Orsakir slyssins eru óljósar. Sumir hinna slösuðu segja, að einn áhorfendanna hafi hrasað um þrep við útganginn og fellt aðra þar sem hann lá. Þessa skýringu gaf einnig lögreglan og forsætisráðherrann, George Rallis, sem heimsótti í gærkvöldi sjúkrahúsið, þar sem hinir slösuðu liggja. Sumir sjónarvottar segja aftur á móti, að útgönguhliðið hafi verið lokað, er áhorfendur þyrptust út af vellinum. Þegar það var opnað, hafi mannfjöldinn þrýst svo á þá, sem upp við hliðið stóðu, að þeir hafi dottið fram fyrir sig og troðist undir. Flest fórnarlambanna voru ungir menn. Ein kona lést einnig og 14 ára gamall piltur. Líkin eru mjög illa farin og hefur ekki verið hægt að bera kennsl á þau öll. Að minnsta kosti 5 hinna slösuðu eru enn í lífshættu. Gríska knattspyrnusambandið hefur ákveðið, að ðllum leikjum um næstu helgi verði annað hvort aflýst eða frestað. Formaður Olympiacos-knattspyrnufélagsins sagði, að félagið myndi standa straum af kostnaði við útför hinna látnu og aðstoða þá slösuðu fjár- hagslega ef þörf krefði. Meintur morðingi Lennons: Svörin er að finna í bók eftir Salinger New York, 9. febrúar. AP. MARK David Chapman, sem sakaður er um að hafa myrt bitilinn John Lennon, hefur ritað bréf til blaðsins The New York Times þar sem hann hvetur fólk til að lesa bókina „Bjargvætturinn í grasinu“ eftir J.D. Saiinger til að „eiga auðveldara með að skilja hvað gerðist“. Eintak af þessari bók fannst í fórum Chapmans þegar hann var handtekinn 8. desember sl. spölkorn þar frá sem John Lennon lá dauð- vona fyrir framan heimili sitt á Manhattan. í bókinni er fjallað um 16 ára ungling, sem er að því kominn að bresta andlega vegna þess að hann getur hvorki sætt sig við né lifað í ástlausri veröld, að því er honum sjálfum finnst. „Ég óska þess, að þið látið öll verða af því að lesa „Bjargvættinn í grasinu", segir Chapman í bréfinu, „og mun ég gera allt hvað ég get til að svo verði. Þessi bók á svör við svo mörgu og ég vona að sá, sem vill vita þau, lesi bókina." Chapman hefur fyrr meir átt við geðræn vandamál að stríða og við réttarhöldin í fyrra mánuði lýsti hann sig ósakhæfan vegna geðveiki. Hdrprúður í aag — sköllóttur d morgun EINHVER von um betri daga virðist í vændum fyrir sköllótta menn og þá sem þola það illa er hár þeirra tekur að þynnast og kollvikin að færast aftur undir hnakka. Bandarískt lyfjafram- leiðslufyrirtæki er nú að gera tilraunir með lyf sem gefur nýja von. Lyfið heitir Minoxidil og gæti orðið fyrsta lyfið sem gerir sköllóttum mönnum kleift að safna hári. Lyfið var upphaflega framleitt til að lækna mjög háan blóð- þrýsting og við tilraunir með það kom í ljós að það hafði sínar aukaverkanir; hár tók að spretta um allan líkama sjúklinganna sem í andliti og á höfði. Það sem kom einna mest á óvart var að skyndilega tók nauðasköllóttum mönnum að vaxa hár, en talið var áður að hár þeirra mundi aldrei spretta. Lyfið er hins vegar það sterkt, að heilbrigðu fólki er alls ekki óhætt að taka það og af þeim sökum er verið að gera tilraunir með áburðarvökva er inniheldur efnasambandið. Fyrstu tilraunir með þennan vökva gáfu ekki nógu áreiðan- legar vísbendingar, en tilraun- irnar voru gerðar á sköllóttum föngum í ríkisfangelsinu í Michi- ganfylki. Framundan eru um- fangsmeiri tilraunir með ýmis afbrigði vökvans. Galli á gjöf Njarðar Formælendur lyfjafyrirtækis- Ætli þeir Telly Savalas og Yul eigi eftir að reyna hið lyf og HklZZ Mri? að fyrir stafni sé löng og erfið bið, og að vandi sköllóttra verði ekki leystur alveg í bráð. Og þótt undralyfið eigi eftir að standa sköllóttum eða hárlitlum til boða hefur það enn sem komið er hvimleiðar aukaverk- anir. Lyfið virkar þannig, að hár tekur að vaxa fljótt eftir með- ferð og sprettur um tvo senti- metra á átta vikum. En þá fellur það allt saman skyndilega. Það er bót í máli að það byrjar að vaxa enn á ný og hefst þá nýr átta vikna hringur. ins leggja á það ríka áherzlu að tilraunir með hið nýja undralyf séu á algjöru byrjunarstigi, og

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.