Morgunblaðið - 19.02.1981, Page 14

Morgunblaðið - 19.02.1981, Page 14
i:— 14 TT * MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1981 Sigurður Þórðarson: Lausn á bráðum vanda öldrunarsjúklinga Undanfarna mánuði og misseri hefur farið fram umræða í fjöl- miðlum um vandamál atdraðra, sérstaklega hér á höfuðborgar- svæðinu. í umræðu þessari hefur komið fram, að skortur er á rými fyrir allt að 300 manns á stofnun- um. Bent er á, að á höfuðborgar- svæðinu er hafin bygging hjúkr- unarrýmis á þremur stöðum fyrir þessa þjónustu með allt að 300 sjúkrarúmum. Talið er að allt að 3—4 ár líði þar til þessi aðstaða verði tilbúin til notkunar. Menn virðast ennfremur sammála um nauðsyn þess, að nú þegar verði sköpuð aðstaða fyrir allt að 100 langlegusjúklinga á stofnunum. Fram hefur komið, að hlutaðeig- andi aðilar telja skjótustu lausn þessa máls vera kaup á húsnæði, sem yrði breytt í hjúkrunarheim- ili. í þessari umræðu hefur lítið sem ekkert verið horft til þess, að betur mætti nýta þá heilbrigðis- aðstöðu, sem fyrir hendi er á höfuðborgarsvæðinu. í erindi, sem sá er þetta ritar flutti á heilbrigðisþingi sl. haust, var vakin athygli á, að nýting sjúkrahúsa hér á landi í saman- burði við önnur lönd væri okkur óhagstæð. Kemur þetta m.a. fram í því að legutími sjúklinga á sjúkrahúsum hér á landi er lengri en í nálægum þjóðlöndum. í grein- argerð frá landlæknisembættinu, sem lögð var fram á heilbrigðis- þinginu, þar sem fjallað var sér- staklega um nýtingu sjúkrahúsa hérlendis í samanburði við ná- grannalönd okkar, var kpmizt að sömu niðurstöðu. Davíð Á. Gunn- arsson, forstjóri Ríkisspítalanna, tók undir þetta í skýrslu sinni, sem lögð var fram á heilbrigðis- þinginu. Þá var ennfremur vakin athygli á því, að gera þurfi auknar kröfur til þeirra, sem fara með stjórn heilbrigðismála, að aðstaða sú, sem fyrir hendi er, verði aðlöguð þeim þörfum, sem brýnastar eru á hverjum tíma á sviði heilbrigðis- þjónustunnar. Þá var á það bent, að kostnaður við heilbrigðisþjón- ustuna er við efri mörk þess, sem réttlætanlegt er að verja til þessa málaflokks að teknu tilliti til annarra þarfa þjóðfélagsins. Nýting núver- andi aðstöðu Sjúkrarúm á Ríkisspítulum, Borgarspítala og Landakotsspít- ala, að þeim rúmum frátöldum sem tengjast beint öldrunarþjón- ustu og vistun þroskaheftra, eru um 1100. Til að skapa rými fyrir allt að 100 öldrunarsjúklinga, þarf um það bil 8% af því rými, sem er fyrir hendi hjá nefndum stofnun- um. Spyrja má, hvort skapa megi okigjLg 367 1 \ex\6 n AUCLÝSINCASTOFfl MYNDAMÖTA HF Sigurður Þórðarson þessa aðstöðu á áðurnefndum sjúkrahúsum án þess að það valdi umtalsverðri röskun á núverandi starfsemi þeirra. Ennfremur má huga að því, hvort ekki sé skyn- samlegra að verja auknum fjár- munum til að bæta rekstur og nýtingu þeirra stofnana, sem fyrir hendi eru, fremur en að bæta við nýjum stofnunum og rekstrar- útgjöldum því samfara. I þessu sambandi vil ég vekja athygli þeirra aðila, sem ákvarð- anir taka í þessum málum, á eftirfarandi atriðum: a) Með styttingu legutíma sjúkl- inga á sjúkrahúsum um einn dag, skapast aðstaða fyrir allt að 80—100 langlegusjúklinga. Þrátt fyrir þessa styttingu legutímans verður legutimi sjúklinga hér á landi eftir sem áður iengri en hjá nálægum þjóðum. b) Nú þegar verði gerðar breyt- ingar á starfsemi þeirra stofnana heilbrigðisþjónustunnar, sem bent hefur verið á að hafi sérstaklega slæma nýtingu. Skjótt verði brugð- ist við ÁLYKTUN frá Aðalfundi Safriaðarfélags Áspresta- kalls — sendist til fjölmiðla. Aðalfundur Safnaðarfélags Ásprestakalls, haldinn 15. febrúar 1981, skorar á heil- brigðisyfirvöld á íslandi og ráðamenn Reykjavíkurborgar að sjá um að skjótt verði greitt úr því neyðarástandi er rikir í málefnum sjúks aldraðs fólks. Jafnframt er heitið á öll líknar- og menningarfélög svo og félagasamtök í landinu að taka höndum saman, ljá þessu máli lið og láta það ganga fyrir öllu öðru, þar til ráðin hefur verið bót á vandanum. Stjórn Safn.fél. Áspresta- kalls, Guðrún S. Jónasdóttir, Þuriður Ágústsdóttir, Eirikur Jónsson, Ragnar Jónsson, Steinþór ólafsson, Þórdís Kristjánsdóttir, Anna G. Guðmundsd. Aðgerðir til að við- halda sama þjónustu- stigi sjúkrahúsa Þær breytingar, sem verða sam- fara auknu álagi á starfsemi sjúkrahúsanna má bæta m.a. með eftirfarandi hætti: — Að auka nýtingu sjúkrastofn- ana fyrir þá sjúklinga, sem ekki þurfa bráða þjónustu. Væri það gert með því að lengja þann tíma, sem læknisþjónustan fer fram á sjúkrahúsum á degi hverjum. Með því fæst betri nýting á þeim fasta kostnaði, sem bundinn er í sjúkra- húsrekstrinum og styttri dvöl sjúklinga á sjúkrahúsum. — Að auka dagdeildar- og göngu- deildarþjónustu og stytta þannig eða koma í veg fyrir innlagnir á sjúkrahús. Skipulag og stjórnun Þegar skoðað er skipulag og stjórnun öldrunarþjónustu hér á landi, kemur greinilega í ljós hvað núverandi stjórnunar- og fjár- mögnunarkerfi móta það vand- ræðaástand, sem ríkir nú. I því sambandi má einkum nefna: — Að enginn einn aðili hefur haft heildaryfirstjórn þessara mála. Hefur það oft á tíðum leitt til þess, að fjölmargir aðilar eru að leysa sama viðfangsefni samtímis. Þetta hefur valdið því, að sú þjónusta, sem menn vilja veita öidruðum, hefur ekki komizt til framkvæmda nema á löngum tíma þrátt fyrir góðan vilja og öflugt starf einkaaðila. — Að ríkið greiði 85% af stofn- kostnaði og 100% af rekstri hjúkr- unarheimila, en fer samt sem áður ekki með neina beina stjórn þess- ara mála. Hefur þetta m.a. leitt til þess að óeðlilega mikil áherzla er lögð á vistun aldraðra á stofnun- um. — Að ekki hefur tekizt að tengja þjónustu við aldraða nægilega vel við aðra þætti félags- og heilbrigð- isþjónustunnar. Mikilvægt er, að litið sé á þarfir hinna öldruðu sem hluta af verkefnum heilbrigðis- þjónustunnar og að vandamál aldraðra verði aldrei einangruð frá öðrum brýnum verkefnum heilbrigðismála. Hjúkrun aldraðra sitji í fyrirrúmi Þessar ábendingar eru settar fram fyrst og fremst til lausnar á bráðum vanda öldrunarsjúklinga. Sumar aðgerðirnar vara aðeins í stuttan tíma, eða þar til sú aðstaða, sem nú er í uppbyggingu kemst í gagnið. Þá er ljóst, að veigamikið atriði í þessu máli er, að starfsfólk sjúkrahúsanna sé reiðubúið að fallast á, að hjúkrun aldraðra sé brýnasta óleysta verk- efni heilbrigðisþjónustunnar, og því tilbúið til að slaka á kröfum um nýjungar á öðrum sviðum heilbrigðisþjónustunnar. Enn- fremur, að starfsfólk sjúkrahúsa sætti sig áfram við þrönga starfs- aðstöðu, en láti þarfir hinna öldruðu sitja í fyrirrúmi. í þessari umræðu hefur mikið verið rætt um, að þjóðfélaginu beri skylda til að skapa öldruðum sem bezta umönnun og þjónustu; slíkt væri mælikvarði á siðferði þjóðarinnar. Undir þessi sjónar- mið ber að taka, en hverju vilja menn í reynd fórna? Er ekki kominn tími til, að sýna viljann í verki og láta á það reyna, hvort heilbrigðisþjónustan geti og hafi sveigjanleika til að sinna þessum mikla vanda, sem henni ber að leysa. Unnið að smiði 1400asta sem Vélaverkstæði J. Hinrikssonar hf. framieiðir. J. Hinriksson hf. — Vélaverkstæði: 1400. toghlerinn senn fullgerður Framleiðslan fær góðar umsagn- ir hjá erlendum skipstjórum FYRIRTÆKIÐ J. Hinriksson hf. vélaverkstæði, Súðarvogi 4, Reykjavík, hóf starfsemi sina árið 1953 og hefur einbeitt sér að framleiðslu á togbúnaði fyrir islenzka togara- og báta- flotann auk þess sem það hefur flutt verulegt magn úr haldi hin siðari ár. Framleiðslan stendur aðallega saman af tog- hlerum og togblökkum en einn- ig er framleiddur margskonar annar togbúnaður. Á föstudag var blaðamönnum boðið að fylgjast með er 1400. toghlerinn, sem fyrirtækið hefur framleitt var settur saman. Jósafat Hinriksson, eigandi fyrirtækisins, sagði að toghlerar J.H. hefðu getið sér gott orð meðal sjómanna fyrir meðfæri- leika og góða endingu, enda væri mjög til framleiðslunnar vand- að. Sagði hann að margir afla- hæstu togarar væru útbúnir með toghlerum frá fyrirtækinu. Framleiðsla J. Hinrikssonar hf. hefur að mestu verið seld á innanlandsmarkað en síðastliðin átta ár hefur nokkur hluti verið seldur á erlenda markaði. Fer sá hluti framleiðslunnar sífellt vaxandi og á síðasta ári voru um 15 prósent framleiðslunnar seld úr landi, — til Færeyja, Ný- fundnalands og Svíþjóðar. Sagði Jósafat Hinriksson að toghierar frá fyrirtækinu hefðu fengið mjög góðar umsagnir hjá erlend- um skipstjórum og teldi hann því góðar horfur með útflutning á þessari vöru í framtíðinni. Auk stál-toghlera og flot- vörpuhlera framleiðir fyrirtækið togvindur, flotvörpuvindur, toggálga, gálgablakkir, polla- og fótrúllur, bómur, ferliður, grandaravindur og dekkvindur. Þá flytur J. Hinriksson hf. einn- ig inn og selur á innanlands- markaði allskonar óunnið hrá- efni til járnsmíða. Jósafat Hinriksson við 1400asta toghlerann sem fyrirtæki hans framleiðir. Iðnráðgjöf — nýtt þjónustufyrirtæki STOFNAÐ hcfur vcrið í Reykjavík fyrirtækið Iðn- ráðgjöf sf. Er tilgangur þess að veita cinstaklingum. fyrirtækjum og stofnunum þjónustu við upphyggingu og rekstur fyrirtækja. Stofnendur fyrirtækisins eru Agnar Guðlaugsson, Ág- úst Gunnarsson og Gunnar Einarsson, allir iðnfræðingar frá Tækniskóla íslands. Hef- ur fyrirtækið aðstöðu að Borgartúni 29 í Reykjavík. Auk áðurnefndra verkefna er það tilgangur fyrirtækisins að taka að sér eftirlit, áætl- ana-, útboðs- og tilboðsgerð, en menntun iðnfræðinga lýt- ur að tæknilegri og rekstrar- legri hlið hvers kyns bygg- ingaframkvæmda, svo nokkuð sé nefnt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.