Morgunblaðið - 19.02.1981, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUH'rS.'vRHRRÚAR 1981
17
Þýtt beint úr
frummálinu
- Leiðrétting
Herra ritstjóri.
í Morgunblaðinu 8. febr. 1981
birtist langt viðtal við hinn kunna
finnska bókmenntafræðing Kai
Laitinen prófessor, sem var nýlega á
ferð á íslandi. Viðtalið bar yfir-
skriftina: Úr skóginum til borgar-
innar.
Á einum stað í viðtalinu stendur,
þegar talið berst að þýðingum á
íslenskum bókmenntum á finnsku,
að Laitinen prófessor hafi sagt
eftirfarandi: „En eins og ég segi, við
þekkjum allt of lítið til ungra,
íslenskra höfunda. Maj Lis Holm-
berg hefur að vísu gefið út úrval
íslenskra ljóða, sem að því er mér er
tjáð gefur sanna mynd af íslenskri
ljóðagerð. En Holmberg þýddi úr
sænsku. Það þarf að þýða beint."
Að þýða beint úr íslensku, ýmist
á finnsku eða sænsku, er einmitt
það sem ég hef gert og geri í
þýðingum mínum á íslenskum ljóð-
um (til þessa eitt safn á finnsku og
þrjú á sænsku). Ég hef talað við
Laitinen prófessor um þetta atriði í
viðtalinu eftir heimkomu hans til
Helsingfors, og hann segist ekki
hafa komist svo að orði eins og fram
kemur í viðtalinu við lok tilvitnun-
arinnar. Þvert á móti hafi hann sýnt
fram á, hve óvenjulegt það væri að
einn og sami maður þýddi beint úr
frummáli á tvö önnur mál. Það er
með fullri vitund hans, að ég bið
yður nú vinsamlegast, herra rit-
stjóri, að birta þessi orð sem
leiðréttingu á misskilningi þess,
sem átti viðtalið við prófessorinn.
Helsingfors, 13. febr. 1981.
Maj Lis Holmberg.
Röskun á fyrri ákvörðun
um um Sundasvæðið
Sundasamtökin hafa ritað
borgarstjórn eftirfarandi bréf:
Þótt ekki hafi verið skýrt frá
því opinberlega, hafa Sunda-
samtökin fregnað, að fimmtu-
daginn 5. febrúar sl. hafi átt að
afgreiða endanlega í borgar-
stjórn tillögu um húsbyggingu á
Sundasvæðinu, sem gróflega
brýtur í bága við fyrri ákvarð-
anir borgaryfirvalda um sama
svæði. Hér er um að ræða
svæðið fyrir neðan Elliðavoginn
frá Holtavegi (Holtagörðum) að
Skeiðarvogi.
Sjávarmegin við Elliðavoginn
hafa borgaryfirvöld heimilað
lágreistar byggingar, sem að
hluta eru grafnar niður fyrir
götulínu. Agreiningur var á
sínum tíma um smávegis hækk-
un þessara bygginga, og greiddi
núverandi forseti borgarstjórn-
ar m.a. atkvæði gegn þeirri
hækkun. Þrátt fyrir skoðana-
mun um þetta atriði, hefur það
verið sameiginlegt álit borgar-
yfirvalda og annarra, að byggð
á þessum kafla við Elliðavoginn
ætti að vera lágreist, svo að
ekki lokist með öllu fyrir útsýni
til sjávar og fjalla á þessum
eina kafla við Sundin, sem enn
er óbyggður.
íbúar í þessu nágrenni og
Sundasamtökin skilja vel þörf-
ina fyrir starfsemi tengda höfn-
inni á þessum slóðum, en hafa
jafnframt metið mikils vilja
borgaryfirvalda til að aðlaga
byggingar þarna landslagi, sem
býður upp á margvíslega mögu-
leika þótt ekki séu byggð há
hús.
Sú tillaga, sem lögð var fyrir
borgarstjórn 5. febrúar, en
hlaut þá ekki afgreiðslu, fjallar
um húsbyggingu við nýja götu,
Skútuvog, sem liggja á samsíða
Elliðavoginum nær sjónum.
Þær lágreistu byggingar við
Elliðavoginn, sem áður getur,
tilheyra raunar Skútuvogi, þ.e.
liggja milli Elliðavogs og
Skútuvogs. Skipulagstillagan,
sem til meðferðar er, felur það í
sér, að nýja byggingin rís hátt
upp fyrir lágreistu húsin við
Elliðavog (og Skútuvog) og ger-
ir að engu fyrri ákvarðanir um
að varðveita nokkurt útsýni á
þessu svæði. Hljóta allir að sjá
fánýti þess, að skipuleggja lág
hús öðrum megin við Skútuvog
til að vernda útsýni, en leyfa
svo miklu hærri hús, sem
byrgja alla sýn hinum megin
við sömu götu.
Ljóst er, að skipulagsnefnd
Reykjavíkurborgar gerir sér
fulla grein fyrir þessum ann-
marka, sem er á því að leyfa
umrædda byggingu því nefndin
„vekur athygli borgarráðs á,
að húshæð er verulega hærri
en samþykkt skipulag ofan
Skútuvogs gerir ráð fyrir.“
eins og segir í fundargerðarbók
skipulagsnefndar..
Því miður virðist fleira vera á
döfinni á þessu svæði, sem
stangast á við fyrri ákvarðanir
og stefnu borgaryfirvalda.
Lóðamál hjá Reykjavíkur-
borg eru í höndum tveggja
aðila, sem ekki virðast alltaf
samstíga, þ.e. borgarráði og
hafnarstjórn. Verkefni borgar-
stjórnar hlýtur því að vera að
samræma gjörðir þessara aðila.
Umræddu máli um húsbygg-
ingu við Skútuvoginn fylgdi
bréf Reykjavíkurhafnar um enn
aðrar framkvæmdir, sem ráð-
gerðar eru á sama svæði, þ.e.
við Kleppsvíkina. í þessu bréfi
er fjallað um byggingar við
sjóinn, sem verða miklu hærri
en þau hús, sem ofar standa og
hér hafa verið rædd.
Sundasamtökin telja, að í
þeirri tillögu, sem liggur fyrir
borgarstjórn um byggingu við
Skútuvog og þeim ráðagerðum,
sem fram koma í bréfi Reykja-
víkurhafnar, felist svo mikil
röskun á fyrri ákvörðunum um
Sundasvæðið, að ekki verði við
unað. Skora samtökin á borgar-
stjórn að taka þessar nýju
tillögur til endurskoðunar og
gefa sér tíma til að vinna það
verk sem best.
Jafnframt benda samtökin á,
að algjörlega hefur verið van-
rækt að kynna almenningi mál
þetta og ekkert samráð hefur
verið haft við þá borgarbúa,
sem málið varðar og ekki
Sundasamtökin, sem telja sig
eiga samleið með borgaryfir-
völdum um að nýta og vernda
borgarlandið með framtíðar-
hagsmuni allra Reykvíkinga
fyrir augum.
Loks vilja Sundasamtökin
minna borgarstjórn á umhverf-
ismálaráð sem hún hefur sjálf
kosið. Einnig mætti umhverf-
ismálaráð að fyrra bragði láta
mál sem þau, er hér hafa verið
rædd, til sin taka.
Virðingarfyllst,
f.h. Sundasamtakanna,
Magnús Óskarsson,
Ingvi Þorsteinsson,
Kristján Jóhannsson,
Ragnhildur Þórarinsdóttir,
Sigurður Ásmundsson.
SKÁK
Félög sjálfstæöismanna í
Breiöholti gangast fyrir skák-
kennslu og fjöltefli, laugardag-
ana 21. febr., 28. febr. og 7.
marz kl. 14.00 aö Seljabraut
54 (Kjöt og fiskur) fyrir börn og
unglinga. Stjórnandi Hermann
Ragnarsson. Alþjóöameistar-
inn Margeir Pétursson mætir
og teflir fjöltefli.
Mætiö öll og hafiö meö ykkur
töfl. Nefndin.
Utgerðarmenn
Getum afgreitt í marz mánuöi 2 sett plötufrystitæki/
frystivélar sérstalega útbúin til notkunar um borö í
fiskiskipum t.d. frystingar á úthafsrækju.
Þar sem settin tvö eru sjálfstæðar einingar geta þær
selzt í einu eöa tvennu lagi.
Hagstætt verö, góöir greiðsluskilmálar.
Árni Óiafsson hf.,
Vatnagarði 14,
sími 83188.
HELO SAUNA
Enn er hægt að gera frábær kaup
á plötum á hljómplötumarkaðnum
á Stórútsölumarkaðnum í Sýn-
ingarhöllinni á Bíldshöföa.
Þu getur fengið úrvalsplötur á
sprenghlægilegum prísum allt frá
10 kr. •
Við höfum opið
frá kl. 1—6 í dag.
Á0ÍHUOMOCHD
Æ!^KARNABÆR
Ú"0 oVÓ^'
•*.
iaogav«g< 6« — Gi»vb» - AuM..rst* r'. .
SWrti trá stupt.boröi 8S0SS
Heildsöludreífing
sUÍAóíhf
Símar 85742 og 85055
■
. .