Morgunblaðið - 19.02.1981, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 19.02.1981, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ. FJltyMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1981 ÓVEÐRIÐ OG AFLEIÐINGAR ÞESS Hér má sjá þakið af leguskálanum úti á miðju bilastæði en þakið sviptist af i heilu lagi ásamt myndarlegum stólpum. Ljósm. Mbl. F.P. Vífilsstaðir: Þökin af í heilu lagi og myndar- legir stólpar með „ByKgingin frá 1910 stóð sig best,“ sagði Hrafnkell Helgason yfirlæknir á Vífilsstaðaspítala í viðtali við Mbl. á þriðjudag, en þök af tveimur viðbyggingum við aðalsjúkrahússbygginguna fuku af í heilu lagi nóttina áður, auk þess plötur af íbúðarhúsum á staðnum og ketilhúsi. Bifreið eins sjúklinganna á spítalanum varð undir hluta af einu þakinu og skemmdist mjög mikið. Hrafnkell sagði, að þökin, sem fuku af í heilu lagi, hefðu verið á svonefndum leguskála og á rafmagns- verkstæði og saumastofu. Leguskálinn er opinn til suð- urs og sagði hann, að veður- hamurinn hefði rifið þökin af og hefðu myndarlegir stöplar rifnað upp og fokið með þökunum, sem skullu niður skammt frá. Þá hefðu þakplötur fokið af íbúðar- húsum og ketilhúsi og brotið tvær rúður í aðalbygging- unni, eina í forstofu og aðra á sjúkrastofu. Þá sagði Hrafnkell: „Einu verulegu vandræðin vegna þessa voru hjá fólkinu, sem bjó í íbúðarhúsinu sem þakplöturnar fuku af. Það átti í mjög miklum erfiðleik- um með að komast frá hús- inu, sem er steinsnar frá aðalbyggingunni, þangað yfir. Það tókst þó og eitthvað af fólkinu svaf í aðalbygg- ingunni í nótt. Þetta var hvað verst á tímabilinu frá kl. 10—11.30 um kvöldið, en snerist síðan meira í vestrið og lægði. Það má telja mildi, að aðeins ein bifreið skemmdist verulega, því margir bílar stóðu allt í kringum svæðið sem er nú þakið af þekjum. Ég kalla það ekki skemmdir, þó einn og einn bíll hafi rispast eitthvað. Gamla húsið, aðal- byggingin, er frá 1910 og hún stóð sig bezt, haggaðist ekki, enda vel byggð.“ Hrafnkell sagði í lokin að á Vífils- stöðum hefðu bæði sjúkl- ingar og starfsfólk tekið hlutunum með jafnaðargeði og vildi hann nota tækifærið og þakka þeim fjölda sem aðstoðað hefði, bæði í óveðr- inu svo og þeim, sem lögðu hönd á plóginn við lagfær- ingar í gær. Mesta mildi var aö fjöldi bifreiöa sem þarna voru skildu sleppa án mikilla skemmda. Þessi bifreið var sú eina sem skemmdist verulega. Til vinstri má sjá eftirstöðvar rafmaKnsverkstæðisins. í flugstöðinni i Vestmannaeyjum brotnuðu 40 rúður og götin eftir steinana voru cins og eftir byssukúlur. Einnig fauk hluti þakins af flugstöðinni, eins og glöggf sést á þessari mynd. Ljósm. Mbi. Kristján. Á Seltjarnarnesi fauk þak af húsi i heilu lagi. Ljónm. Mbl. ÓI.K.Mmg. Mikið tjón á gróður- húsum í Hveragerði: Vafamál hvort borgar sig að endurbyggja — segir Þórhallur Stein- þórsson garðyrkjubóndi „STÆRSTA gróðurhúsið hjá mér skemmdist mikið. svo rækilega að það er vafamál hvort það borgar sig að endurbyggja það,“ sagði Þórhall- ur Steinþórsson, garðyrkjubóndi i Hveragerði, en garðrykjustöð hans varð fyrir miklum skemmdum i óveðrinu. Þórhallur sagðist vera með þrjú gróðurhús, samtals um 900 fermetra að stærð og húsið sem skemmdist mest var 500 fermetrar. „Ég á eftir að athuga tjónið á hinum húsunum nánar, en ég held að óhætt sé að segja að þau hús hafi sloppið með skrámur," sagði Þórhallur. „Það kom til mín kennari frá Garðyrkjuskólanum í morgun með tvo nemendur með sér og þeir hjálpuðu mér við að lagfæra húsin eins og kostur var. Það má segja að það hafi verið lán í óláni að það var ekki gróður í húsunum hjá mér. Það hafa mörg hús laskast hér í Hveragerði og hér hefur orðið mikið tjón, að því er mér virðist," sagði Þórhallur. Aðspurður um hvert fjárhagstjónið væri, sagð- ist Þórhallur ekki geta svarað því, en það væri mikið. „Þá var þetta allt óvátryggt og ég held að það sé þannig hjá flestum," sagði Þórhallur Steinþórsson að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.