Morgunblaðið - 19.02.1981, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 19.02.1981, Qupperneq 21
----------------------' 11...---------:------ MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGILR lftJ'EBRUAR 1981 21 ÓVEÐRIÐ OG AFLEIÐINGAR ÞESS Vindhraðinn fór allt uppí 120 hnúta! „ÓVEÐRIÐ aðfaranótt þriðju- dagsins minnir mjög á óveðrið 24. september 1973**, sagði Knút- ur Knúdsen, veðurfræðingur í samtali við Mbl. í gær.: „Við köllum það sambærileg veður, þegar vindhraðinn er kominn yfir 70 hnúta.“ Hnútur er 1 sjómíla á klukku- stund, og sýna vindmælar hnúta. Vindstig eru aftur á móti miðuð við mann sem stendur utandyra, þannig að hann finnur það hvort það eru til dæmis 6 vindstig eða 8 vindstig. Eftirfarandi skala nota veður- fræðingar í spám sínum: 4—5 vindstig er kaldi og 11—21 hnútar. 6 vindstig er stinningskaldi og 22—27 hnútar. 7 vindstig kallast allhvasst og 28—33 hnútar. 8 vindstig er hvassviðri og 34—40 hnútar. 9 vindstig er stormur og 41—47 hnútar. 10 vindstig er rok og 48—55 hnútar. 11 vindstig er ofsaveður 56—63 hnútar. 12 vindstig og yfir kallast fárviðri, 64 hnútar og uppúr. Á Reykjavíkurflugvelli mældust mest í fárviðrinu 77 hnútar í fárviðrinu í vindhviðu 102 hnútar, en 1973 mældust mest 72 hnútar og 108 í vindhviðum. Á Stórhöfða mældist mest i hviðu 117 hnútar, og hann sló út vindmælinn á Þyrli í Hvalfirði, þegar hann í eitt skipti mældi 120 hnúta. Miklar skemmdir í Dalasýslu: Fé flutt frá Svínhóli! MJÖG miklar skemmdir urðu i óveðrinu i Dalasýslu, að sögn Péturs Þorsteinssonar. sýslu- manns: „Það eru yfir 20 ibúðar- hús skemmd, fauk af þeim járn og rúður brotnuðu o.fl. Og milli 20 til 30 gripahús eru mikið skemmd. Svo fór, eins og kunn- ugt er Staðarhólskirkja af grunninum og lenti á félagsheim- ilinu i Tjarnarlundi, og brotnaði við það einn veggur þess. Hún hangir saman, kirkjan, en skekktist mikið, og sagði mér hreppstjórinn í Saurbænum, að það væri erfitt að gera sér grein fyrir því hvort hægt væri að koma kirkjunni aftur fyrir á grunnin- um, hún hefði skekkst það mikið. Svo fór af henni turninn. Staðar- hólskirkja (átti fyrir skömmu 80 ára afmæli og var þá gerð mynd- arlega upp. Mér skilst að það hafi tekist að bjarga munum úr kirkj- unni. Hér fuku bílar og ýmislegt fauk á þá, og það má segja það sé opið inná skrifstofuna á verslunarhús- inu í Skriðulandi í Saurbæ. Það varð meira og minna stórtjón í öllum sveitunum, nema einni, en hér eru níu sýslur. Þakið fauk af fjárhúsuinu á Svínhóli í Miðdal, en þar var fé allt nýrúið og þurfti að flytja það burtu. Almannavarnarnefndin hefur starfað hér mikið og skipulagt viðgerðir. Það er komið vel á veg, að birgja þau hús til bráðabirgða, sem urðu fyrir mestu skemmdun- um.“ -sT'. ~Z: ,* O''*. -'VV Útum allar sveitir á Suður- og Vesturlandi hafa bændur verið að lagfæra hús sín eftir fárviðrið og þessa mynd tók ljósmyndari Mbl. Ragnar Axelsson er hann flaug yfir sveitir Dalasýslu í gær. Miklar skemmdir af völdum fárviðrisins í Húnaþingi (íeitaskarói, 17. febrúar. 1981. Fréttaritari Morgunblaðsins hafði samband við lögregluna á Blönduósi, til að fá upplýsingar um skemmdir af völdum óveðursins sem geisaði í nótt. Yfirlögregluþjónn kvaðst vilja lýsa yfir undrun sinni á hátterni Almannavarna ríkisins síðast liðna nótt. Þegar veðrið tók að ganga niður á Stór-Reykjavíkursvæðinu, var tilkynnt í útvarpinu að veðrið ætti enn eftir að versna á Norður- og Austurlandi. Síðan var útsendingu hætt. Rétt er að undirstrika, að það voru Almannavarnir rík- isins sem stóðu fyrir því, að Ríkisútvarpið hélt áfram út- sendingum sínum fram eftir nóttu. Var óspart útvarpað tilkynningum, aðvörunum og ráðleggingum til íbúa Reykja- víkur og nágrennis vegna veð- ursins. En síðan bregður svo undar- lega við, að þegar telja má að suðvesturhornið sé úr allri hættu, ákveða Almannavarnir ríkisins að nóg sé útvarpað að sinni. Þess vegna spyrja menn hér hvort Almannavörnum sé nákvæmlega sama hvort í hættu séu líf og limir þeirra er ekki búa á höfuðborgarsvæð- inu. Á Blönduósi, varð talsvert tjón á allmörgum húsum, rúð- ur brotnuðu og þakplötur fuku. Vinnuskúr frá Pósti og síma fór í loftköstum á annað hundrað metra, jeppi valt, en ekki urðu slys á mönnum. Hjálparsveitir og björgun- armenn voru kölluð út, og menn fóru í fjölmörg hús til að aðstoða húseigendur. Miklar skemmdir urðu einn- ig úti um sveitir. Til dæmis fauk þak af gömlum fjárhús- um og hlöðu á Fremsta-Gili, að Hvammi í Langadal fauk þak af gamalli fjárhúshlöðu í heilu lagi, þök skemmdust víða á íbúðarhúsum, nokkurra mánaða gamalt slitlag fauk af Langadalsveginum, sumarhús fauk og járnplata fauk og drap eitt hross, og mætti lengi telja. Endanlegar upplýsingar um tjón munu þó ekki liggja fyrir fyrr en í lok vikunnar. — Ágúst. Isafjörður: Rækjubát- urinn talinn ónýtur ísafiröi, 18. febr. EINA meiriháttar óhappið sem varð í óveðrinu mikla var að tólf tonna rækjubát- ur, Gunnar Sigurðsson ÍS 13, slitnaði frá bryggju í Sundahöfn og rak þvert yfir höfnina, um 100 metra spöl, og upp í grjótgarð, þar sem hann brotnaði og sökk. Báturinn er mikið skemmdur og óvíst hvort borgar sig að gera við hann. Úlfar Gunnar Sigurðsson ÍS 13 i grjótgarðinum i Sundahöfninni á ísafirði. Ljósm. Mbl. Úlfar. -*J /r* Þorlákshöfn: Þakplötufok og gróðurhúsa- skemmdir Þorlákshöfn, 18. febrúar. HÉR VAR mjög vont veður í fyrrakvöld, en ég tel þó að við höfum sioppið vel miðað við þær miklu skemmdir sem orðið hafa um allt land. Hér losnuðu plötur á húsþökum og á Reykjabraut 10 fauk járn- plata inn um stóran stofuglugga. Fólk var nýfarið úr stofunni til allra hamingju, því glerbrotin þeyttust um allt og húsgögn og annað skemmdust mikið. Þá fór plata inn um glugga á skrifstofu á Reykjabraut 5. Það var mikil mildi að hún fór fram hjá manni, sem sat þar við skrifborð sitt. Þarna urðu miklar skemmdir. Þá brotnuðu þrjú gróðurhús og lögð- ust saman. Björgunarsveitarmenn voru hér til taks og aðstoðuðu fólk svo og starfsmenn hreppsins, en önnur óhöpp en þau sem getið hefur verið um hef ég ekki frétt af. Ragnheiður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.