Morgunblaðið - 19.02.1981, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1981
Rússar sleppa
andófsmanni
Vln. 18. febr. AP.
SOVÉZKI andófsmaðurinn Yosef Mendelevich var
látinn laus úr sovézkum vinnubúðum í dag eftir
viðræður í Washington milli Gyðingaleiðtoga og sov-
ézkra diplómata, þeirra á meðal Anatoly Dobrynin
sendiherra. Mendelevich kom til Vínar með flugvél
Aeroflot um hádegisbil og átti síðan að halda áfram til
ísraels.
elevich. Tveir aðrir Rússar eru í
fangeisi vegna tilraunarinnar til
að ræna flugvélinni í Leníngrad.
Sérfræðingar segja, að Mendel-
evich kunni að hafa verið sleppt til
að sýna góðan hug sovétstjórnar-
innar í garð Reagan-stjórnarinn-
ar. Aðrir telja ákvörðunina til
marks um, að Rússar vilji með
henni skapa jákvætt andrúmsloft
fyrir 26. kommunistaráðstefnuna,
sem í vændum er, eða setja hana í
samband við Madrid-ráðstefnuna,
þar sem Rússar hafa sætt gagn-
rýni fyrir mannréttindabrot.
Mendelevich er 33 ára gamall
Gyðingur úr rétttrúnaðarkirkj-
unni og var handtekinn 15. júní
1970 fyrir þátttöku i misheþpnaðri
tilraun til að ræna flugvél í
Leníngrad. Hann var dæmdur til
tólf ára vinnubúðarvistar í Úral-
fjöllum fjrrir „svik við Sovétrikin."
Bæði ísraelsstjórn og systur
Mendelevich í ísrael, Rivka Dori,
kom ákvörðunin um að sleppa
honum á óvart, því sovézk yfirvöld
hafa margoft lýst því yfir, að hann
sé „horfinn".
En forseti Heimsráðs Gyðinga,
Edgar Bronfman, aðrir fulltrúar
ráðsins og sovézkir diplómatar
hafa rætt mál Mendelevichs í eitt
ár. Mendelevich segist ekkert hafa
vitað að hann yrði látinn laus fyrr
en á mánudaginn. Hann var flutt-
ur frá fangabúðunum í Úral 6.
febr. til Perm og hann hélt að
honum yrði refsað fyrir að hafa
verið í hungurverkfalli. Frá Perm
var hann fluttur til Moskvu.
Mendelevich sagði við komuna
til Vínar: „Ég verð að þakka guði
fyrir að losa mig úr fangelsi. Guði
sé lof. Ég vona að guð bjargi
einnig þeim sem hafa verið í
fangelsi með mér.“
Vestrænir fulltrúar segjast ekk-
ert hafa vitað fyrirfram um
ákvörðunina um að sleppa Mend-
Jóhannes Páll páfi blessar um þrjár milljónir Filippseyinga við athöfn til heiðurs 16 kaþólskum
píslarvottum, þar á meðal Filippseyingnum Lorenzo Ruiz. sem dóu fyrir málstað trúarinnar í Japan á
sautjándu öld.
19 ára piltur ruddist að
páfa til að snerta hann
Manila. 18. febr. AP.
JÓIIANNES Páll páfi II
heiðraði í dag minningu
sextán píslarvotta, hinna
fyrstu utan Evrópu er til
greina kemur að taka í
dýrlingatölu. að viðstödd-
um þremur milljónum
manna.
Athöfn sem þessi hefur aldrei
áður farið fram utan Evrópu.
Píslarvottarnir, Filippseyingurinn
Lorenzo Ruiz, níu Japanir, þar af
tvær konur, fjórir Spánverjar,
Frakki og ítali, voru pyntaðir og
Svíþjóð:
Viðræður við ríkisstarfs-
menn f arnar út um þúfur
Stokkhólmi, 18. febrúar. — AP.
SamninKaviðræður um
kaup og kjör 1,3 milljóna
opinberra starfsmanna í
Svíþjóð fóru í dag út um
þúfur en ekki hefur enn
verið boðað til verkfalla.
Fyrir um hálfum mánuði tókust
samningar milli sænska Alþýðu-
sambandsins og vinnuveitenda og
hafa þeir verið lagðir til grund-
vallar í þeim viðræðum sem nú
hafa verið fram við ríkisstarfs-
menn. Lítið hefur þó miðað í
meginmálunum og eru það einkum
launahækkanir til þeirra, sem eru
fyrir ofan miðjan launastigann,
sem um hefur verið deilt.
Samningar tókust í dag, öllum
að óvörum, milli blaðamanna og
útgefenda og hefur verkfallsað-
gerðum verið aflýst. Fallist var á
tillögu sáttasemjara, en hún gerir
ráð fyrir að blaðamenn fái aukinn
höfundarrétt á greinum sínum og
að hjá þeim, sem ganga erfiðar
vaktir, verði vinnuvikan stytt um
tvær stundir.
hengdir í Nagasaki, Japan, á
árunum 1633 til 1637.
Páfi sæmdi píslarvottana nafn-
bótinni „hinir blessuðu", sem
venju samkvæmt leiðir til þess að
menn séu teknir í dýrlingatölu.
Meðan á athöfninni stóð heyrð-
ist mikið væl í sírenum fyrir aftan
altari páfa. Eldur hafði komið upp
á nálægum áhorfendapöllum, en
var fljótlega slökktur.
Nítján ára stúdent var hafður í
haldi í níu tíma þegar hann hafði
ruðzt í átt að páfa til að snerta
hann. Hann sagðiu að þetta hefði
verið „stórkostleg reynsla", „eins
og að snerta Jesúm Krist“ en
ráðlagði öðrum að fara ekki að
dæmi sínu.
Jafnframt skoraði páfi á Kín-
verja í dag að gleyma fortíðinni og
koma aftur á friðsamlegum sam-
skiptum við rómversk-kaþólsku
kirkjuna, en þeim var slitið eftir
byltinguna 1949.
Páfi skoraði á menntaða Fil-
ippseyinga að þjóna fátækum í
stað þess að græða peninga, ná
völdum eða afla sér meiri þekk-
ingar, og varaði við of mikilli
einstaklingshyggju og þröngri sér-
fræðiþekkingu.
Jóhannes Páll páfi ók síðan
gegnum illræmt fátækrahverfi í
Manila eitthvert ömurlegasta fá-
tækrahverfi Asíu og sagði að það
væri skylda kirkjunnar að verja
sjálfsvirðingu fátækra.
Reagan leggur til 30%
skattalækkun á 3 árum
Frá önnu Bjarnadóttur. (réttaritara Mbl.
I Wa«hint{ton. 18. (ebrúar.
RONALD Reagan forseti Banda-
ríkjanna lagði efnahagstillögur
stjórnar sinnar fyrir handaríska
þingið á miðvikudag. Reagan
lofaði i kosningaharáttunni að
leysa efnahagsvanda þjóðarinn-
ar, ef hann næði kjöri. Efna-
hagstillögunum. sem unnið hefur
verið að sleitulaust síðastliðinn
mánuð, er ætlað að uppfylla það
loforð. Reagan leggur til 30%
lækkun tekjuskatta á næstu
þremur árum, verulegan niður-
skurð á rikisútgjóldum. minni
afskipti alrfkisstjórnarinnar af
öllum hlutum og tryggja stefnu í
peningamálum. Hann vonar, að
bandariska þingið samþykki til-
lögurnar óbreyttar, en efna-
hagsstefna hans bregður veru-
lega frá efnahagsstefnu forvera
hans undanfarin 30—40 ár.
Repúblikanar eru í meiri hluta í
öldungadeild bandariska þingsins
en demókratar í fulltrúadeild
þess. Reagan hefur gert sitt bezta,
til að vinna traust og stuðning
þingmanna úr báðum flokkum,
síðan hann tók við embætti.
Demókratar hafa hrósað Reagan
fyrir viðleitnina, en þeir voru oft
óánægðir með samskiptin við
Jimmy Carter. Reagan þarfnast
stuðnings demókrata til að efna-
hagstillögur hans verði samþykkt-
ar. En demókratar hafa unnið
undanfarna daga að baráttu i
þinginu gegn tillögum Reagans.
Thomas O’Neill forseti fulltrúa-
deildarinnar sagði, að repúblikan-
ar fengju ekki að strika út með
einu pennastriki framfarir í fé-
lagsmálum, sem demókratar hafa
náð fram með margra ára starfi.
Jim Wright leiðtogi meiri hlutans
í fulltrúadeildinni sagði, að meiri
hluti demókrata væru andvígir 30
pros skattalækkunum á næstu
þremur árum, því þær kæmu helzt
hinum betur settu til góða. Og
Robert Byrd leiðtogi minni hlut-
ans í öldungadeildinni sagði á
þriðjudag, að demókratar myndu
leggja fram eigin skattatillögur í
deildinni til höfuðs tillögum Reag-
ans.
Verðbólga í Bandaríkjunum
undanfarin ár hefur orðið þess
valdandi, að almenningur hefur
færzt jafnt og þétt ofar í skatt-
stiganum. Þetta er talið hafa
dregið úr framleiðslu og sparnaði í
landinu. Vonazt er til, að skatta-
tillögur Reagans munu auka aftur
framleiðslu og sparnað, en aukin
atvinna jafni út tekjumissi ríkis-
ins við skattlækkanirnar. Reagan
telur ríkisútgjöld rót margs ills og
þar að meðal verðbólgu. Hann
leggur því til, að útgjöld ríkisins
verði skorin niður um 41,1 billjón-
ir dollara á þessu ári og enn meir
á næstu árum. David Stockman
hagsýslustjóri hefur haft umsjón
með niðurskurðartillögunum. Þær
munu koma niður á flestum ríkis-
framkvæmdum og prógrömmum,
nema þeim, sem varða varnarmál,
en Reagan hefur lofað að auka
útgjöld ríkisins til varnarmála.
Matgir óttast að efnahagstillögur
Reagans muni koma verst niður á
hinum bágstöddu, en talsmenn
hans og hann sjálfur hafa oft
ítrekað, að hinir hjálparlausu
muni ekki þjást vegna stefnu
hans, heldur hinir, sem hafa notað
sér aðstoð ríkisins að ástæðu-
lausu.
AB
Veður
víða um heim
Akureyri 1 hálfskýjað
Amsterdam 5 skýjað
Aþena 8 rigning
Berlín 1 heiðskírt
BrUssel 1 snjókoma
Chicago 15 skýjað
Feneyjar 4 heiðskírt
Frankfurt 3 skýjað
Færeyjar 7 rigning
Genf 2 snjókoma
Helsinki -1 skýjaö
Jerúsalem 13 skýjað
Jóhannesarb. 24 heiðskírt
Kaupmannahöfn 2 heiðskírt
Las Palmas 18 skýjað
Líssabon 18 heiðskirt
London 4 skýjað
Los Angeles 29 heiðskírt
Madrid 9 heiðskírt
Malaga 15 léttskýjað
Mallorca 13 lóttskýjað
Miami 24 skýjað
Moskva -5 heiðskírt
New York 17 heiðskírt
Osló 2 heiðskírt
París 6 skýjaö
Reykjavík 0 snjóél
Rró de Janeiro 37 heiðskírt
Rómaborg 12 heiðskírt
Stokkhólmur 0 skýjaö
Tel Aviv 17 skýjað
Tókýó 8 skýjað
Vancouver 10 rigning
Vinarborg 2 skýjað
Böðull hverfur
DllNsrldorf. 18. febr. AP.
HEINZ VILLAIN, sem er sakað-
ur um þátttöku i morðum á að
minnsta kosti 250.000 mönnum í
útrýmingarhúðunum i Majdanek
i Póllandi, mætti ekki þegar
hann átti að koma fyrir rétt i
dag.
Atta aðrir sakborningar mættu
eins og ráð var fyrir gert. Réttar-
höldin munu standa í tvo til þrjá
mánuði.