Morgunblaðið - 19.02.1981, Page 23

Morgunblaðið - 19.02.1981, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR ÍÓ.' FEBRÚAR 1981 23 Jórdaníumenn: Hætta st jórnmála- sambandi við Iran Amman, 18. íebrúar — AP. JÓRDANÍUMENN slitu í dag , stjórnmálasambandi við írani og kvöddu allt starfslið sendiráðsins í Te- heran heim, að því er sagði í tilkynningu Jórdaníu- stjórnar. Þar sagði að þetta væri svar við þeirri ákvörðun írana að hætta öllum samskiptum við Jórdaníumenn vegna stuðnings þeirra við íraka í Persaílóastríðinu. írakar fá mest allan sinn inn- flutning, þ.á m. hergögn og aðrar nauðsynjar, um hafnarborgina Aqaba í Jórdaníu, enda eru írask- ar hafnarborgir lokaðar af völdum stríðsins. Iranir hafa einnig borið Saudi-Aröbum og Kuwaitmönnum á brýn að annast aðdrætti fyrir Iraka en því hefur verið harðlega neitað. Pakistanar gæta hagsmuna ír- ana í Jórdaníu en Jórdaníumenn hafa farið þess á leit við Bangla- desh, að það annist mál þeirra í Teheran. Eldflaugablossar lýsa upp himinninn i Bulawayo. Að minnsta kosti 167 og allt að 350 biðu bana í átökunum þar, þar af um 100 óbreyttir borgarar. Viðræður eru hafnar milli yfirmanna hersins og skæruliða um afvopnun um 22.000 skæruliða eftir hina vikulöngu, blóðugu bardaga, hina mestu síðan Zimbabwe hlaut sjálfstæði 18. apríl. Mitterand nær forystu ParÍN, 18. febr. AP. FRANCOIS Mitterand, leiðtogi sósíalista, hefur i fyrsta skipti fengið meira fylgi en Valery Giscard d’Estaing forseti i skoð- anakönnunum fyrir forseta- kosningarnar 26. april og 10. maí. En 61% kjósenda gerir ráð fyrir þvi að forsetinn sigri og einn þriðji kjósenda er ekki ánægður með nokkurn fram- bjóðanda. Samkvæmt könnun stofnunar- innar Sofres fyrir hægrablaðið Le Figaro styðja 52% kjósenda Mitterand, en 48% Giscard d’Estaing. Kommúnistaleiðtog- inn Georges Marchais nýtur stuðnings aðeins 10% kjósenda, níu af hundraði styðja gaullist- ann Jacques Chirac og sjö af hundraði ætla að kjósa trúðinn „Coluche" í fyrri umferð. En aðeins 65% þeirra sem spurðir voru sögðust hafa end- anlega gert upp hug sinn. Sam- kvæmt síðustu könnun Sofres í janúar hafði Giscard forystuna 51—49 gegn Mitterand, í desem- ber 56—44 og í nóvember 59—41. Andmælir hafréttarsáttmála Yfirmenn lögreglunn- ar á Spáni segja af sér Washinfctton. 18. lebr. AP. BANDARÍSKUR þingmaður, John Breaux frá Louisiana, sem hefur verið ráðunautur hafrétt- arráðstefnunnar, vill að Hvita húsið hafni samningnum um nýt- ingu auðlinda hafsins, þar sem i honum felist „alger uppgjöf* fyrir löndum Þriðja heimsins og sovézkum hagsmunum. Hann segir að samningsdrögin stríði svo gegn grundvallarhags- munum Bandaríkjanna, að annað- hvort verði að gera meiriháttar breytingar á þeim eða gefa þau upp á bátinn. Fundir hafréttarráðstefnunnar eiga að hefjast að nýju 9. marz í New York og standa í sex vikur. Vonað er að sáttmálinn verði undirritaður við hátíðlega athöfn í sumar í Caracas. Madrid. 18. febrúar. — AP. FJÖLDI háttsettra lög- reglumanna á Spáni hefur sagt af sér vegna ásakana um að lögreglumenn hafi pyntað til dauða basknesk- an fanga og er talið að þessar afsagnir geti haft Ósló, 18. febrúar. — AP. NORSKU samarnir fimm héldu í dag áfram hungurverkfallinu og fjórir félagar þeirra hyggjast halda til New York og bera þar mál sín upp við Kurt Waldheim, aðalritara SÞ. Enginn árangur hefur enn orðið af viðræðum stjórnvalda við fulltrúa þriggja samtaka sama um framkvæmd- irnar við Alta. Ráðherra sveitarstjórnarmála, Harriet Andreassen, átti í gær fund með leiðtogum Sama en viidi ekki fallast á kröfur þeirra um að hætt yrði við fyrirhugað orkuver í áhrif á atkvæðagreiðslu á þingi um útnefningu Leo- poldos Calvo Sotelos sem forsætisráðherra. Talsmenn Miðflokkasambands- ins, flokks Sotelos, neituðu í dag fréttum um, að hann hygðist draga útnefningu sína til baka Alta-á, enda hafa þær verið sam- þykktar á Stórþinginu. Ríkisstjórnin var hins vegar fús að fallast á ýmsar aðrar kröfur, eins og t.d. sérstakt þing, sem nokkurt vald hefði í málefnum sama, sem eru um 30.000, og einnig að tekið yrði sérstakt tillit til sama sem frumbyggja í norsku stjórnarskránni. Ríkisstjórnin heldur því fram, að réttindi sama og virkjunin við Alta séu tvö óskyld mál en á það hafa tvenn samtök sama ekki viljað fallast. Þriðju samtökin segjast aftur á móti ætla að virða ákvörðun Stórþingsins. vegna þessara mótmæla lögregl- unnar, en aðrir telja að til tveggja atkvæðagreiðslna verði að koma í þinginu. Juan Jose Roson, innanríkisráð- herra, skýrði frá afsögn lögreglu- mannanna en meðal þeirra eru yfirmaður spænsku lögreglunnar, yfirmaður þeirrar deildar, sem sett hefur verið til höfuðs ETA, hryðjuverkasamtökum baska, sem á síðasta ári myrtu 95 manns, og yfirmaður lögreglumannanna, sem yfirheyrðu baskann Arregui, en hann er talinn hafa látist af völdum pyntinga. Talsmaður lögreglunnar sagði, að afsagnirnar stöfuðu af „fjand- samlegum-" viðbrögðum almenn- ings í garð lögreglunnar en fimm lögreglumenn hafa verið fangels- aðir í sambandi við rannsókn á dauða Arreguis. Bítill í árekstri Monserrat, Vestur-Indium. 18. febr. AP. BÍTILLINN Paul McCartney, sem dvelst við upptökur á brezku eynni Monserrat í Vcstur-Indíum ásamt bitlinum Ringo Starr, ók jeppa sinum á bilaleigubíl tveggja Ijósmyndara i dag. Eng- an sakaði. McCartney fylltist mikilli heift og sagði ljósmyndurunum, sem voru frá AP og blaði í San Juan, að láta sig í friði. „Af hverju báðuð þið ekki um leyfi til að taka af mér myndir?" spurði hann. Ljósmyndararnir segja að McCartney hafi kallað þá „skepn- ur“ og sagt að hvorki hann né Ringo hygðust gefa út albúm til minningar um John Lennon. McCartney sagði að hann væri hræddur vegna dauða Lennons og þar sem „heimurinn væri fullur af brjáluðu fótki". Þegar McCartney gekk burt hrópaði annar ljósmyndarinn til hans og kvaðst vilja biðjast afsök- unar. „Já, allt í lagi,“ sagði McCartney og þeir tókust í hend- ur. Nauðlentu til að forðast árekstur Santa Ana. Kaliforntu. 18. fehrúar. AP. TVEGGJA hreyfla Boeing 737-þota nauðlenti í gær á John Wayne- flugvelli þegar flugmennirnir reyndu að forðast árekstur við flug vél, sem fyrir var á brautinni þar sem þeir ætluðu að lenda. Um borð i vélinni voru 104 farþegar og fimm manna áhöfn. 34 slösuðust en eng- inn þó alvarlega. Flugstjórnarmenn á flugvellinum segjast -hafa gefið flugmönnum Boeing-þotunnar skipun um að hringsóla um völlinn en eru þó ekki vissir um að flugmennirnir hafi heyrt skilaboðin. Gömul sjómannsdagbók kemur í leitirnar: • • Orlagasaga Essex-skipsins sem „Moby Dick“ sökkti Nantucket, Massachusetts. 18. febrúar. AP. í sjómannsdagbók, sem nýlega kom í leitirnar og í rúma öld hefur legið uppi á hanabjálka i húsi nokkru i Nantucket, er átakanleg lýsing á því þegar hvalur sökkti hvalveiðiskipi og segja sagnfræðingar, að hér sé komin frásögn af athurðinum. sem um er fjallað í sögunni „Moby Dick“. Dagbókina skrifaði Thomas Nickerson og lýsir þar árás búrhvals á skipið Essex, hval- veiðiskip frá Nantucket, sem sökk á Kyrrahafi 20. nóvember árið 1820. aðeins átta af tuttugu manna áhöfn komust lífs af og er sagt, að sumir þeirra hafi Iagst á félaga sína og étið áður en yfir lauk. Fyrsti stýrimaður á Essex, Owen Chase, sagði frá atburðin- um ári eftir að hann gerðist og er talið að sú frásögn hafi verið kveikjan að sögu Herman Mel- villes um „Moby Dick“, stóra, hvíta hvalinn, sem réðst á skipið Pequod, eins og það heitir í sögunni. Melville mun hins veg- ar ekki hafa vitað um frásögn Nickersons enda seinna rituð. Nickerson var 17 ára gamall og yngstur um borð í Essex þegar hvalurinn réðst á skipið en þá var liðið eitt ár frá því þeir lögðu úr höfn í Nantucket. „Ég var við stýrið þegar ég sá skyndilega geysistóran hval nálgast okkur á kulborða," skrif- ar Nickerson í dagbókina. Skömmu síðar „heyrði ég skips- félaga mína kalla, að hvalurinn stefndi beint á skipið og varla höfðu þeir sleppt orðinu þegar skipið skalf stafnanna á milli". Éftir að hvalurinn hafði hitt skipið öðru sinni tók það að sökkva og áhöfnin setti á • flot þrjá björgunarbáta. Þrír menn björguðust á land í eyju en aðrir Herman Melville, höfundur bókarinnar um „Moby Dick“ myndinni er vitnað til ýmissa atburða i bókum hans. fimm, þ.á m. Nickerson, lifðu af hrakningana í björgunarbátun- um. Tólf menn létust. í nærri þrjá mánuði hröktust bátarnir fyrir veðri og vindum og Nickerson segir frá því hvað mönnunum fór á milli þegar þeir voru orðnir uppiskroppa með allan mat. „Við ákváðum, að ef einhver eða einhverjir dæju skyldu hinir nærast á líkunum ef það mætti verða til þess, að einhver kæmist af.“ Tveimur dögum seinna var þeim bjargað um borð í hval- veiðiskip. Skipstjóranum á Essex og háseta var bjargað sex dögum síðar en sagt er, að þriðji maðurinn um borð í bátnum hafi verið drepinn til matar eftir að þeir höfðu varpað um það hlut- kesti. Samarnir enn í hungurverkfalli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.