Morgunblaðið - 19.02.1981, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1981
33
Friðrik Sóphusson:
Þjónustugjöld banka
hækka í verðstöðvun
Friðrik Sóphusson (S)
lagði eftirfarandi spurn-
ingar fyrir Tómas Arna-
son, bankaráðherra, í
Sameinuðu þingi í gær:
• 1. Hvernig hafa raun-
vextir í bönkum
breytzt á innlánahlið
og útlánahlið frá
áramótum?
• 2. Eru ráðgerðar hækk-
anir á þjónustugjöld-
um banka?
Hve miklar?
• 3. Með hvaða hætti ætl-
ar ríkisstjórnin að
lækka vexti 1. mars?
Tómas Árnason, ráðherra,
sagði má. að erfitt væri að svara
fyrstu spurningunni, enda ekki
tiltæk örugg viðmiðun verðlags-
þróunar það sem af er árinu.
Hann sagði að miðað við verð-
bólguvöxt 57,6% frá áramótum
væru raunvextir almennra
spariinnlána í mínus 14,3% en
miðað við 55% verðbólguvöxt í
mínus 12,9%. Á sama hátt færu
raunvextir á vaxtaaukareikn-
ingum frá mínus 9,4% til 10,9%,
og vaxtaaukainnlánum til 12
mánaða mínust 5,8% til mínus
7,4%. Ef miðað væri við meðal-
innlánsvexti og þessa verðlags-
þróun væri raunvextir mínus
13,5% til mínus 14,9%.
Þá rakti ráðherra vaxtakjör á
einstökum útlánaformum.
Raunvextir á þeim, eins reikn-
aðir, vóru frá plús 2,5% (vísi-
tölutryggð lán) níður í allt að
16% í mínus (endurseld afurða-
Engin svör um
vaxtalækkun
1. marz
Friðrik Sóphusson.
lán). Meðalútlánavextir væru
46,4%, eða 5,6% til 7% í mínus,
eftir því hvað væri lagt til
grundvallar í verðlagsþróun.
Þá upplýsti ráðherra að
amkvæmt efnahagsáætlun rík-
isstjórnarinnar stæði til að
hækka þjónustugjöld í banka-
kerfinu, m.a. til að draga úr
vaxtamun bankanna. Þetta
myndi ske á næstu vikum og
mánuðum.
Stefnt væri að því að lækka
almenna útlánsvexti 1. marz.
Afkoma bankanna væri það góð
1980, þó ekki væri fullljós enn,
að þeim „hefði nokkuð svigrúm
til að taka á sig aukið út-
streymi". Ekki væri þó fullljóst,
hvern veg yrði að þessu stefnu-
marki stjórnarinnar staðið;
unnið væri að málinu í samráði
við bankana. Ég get þó ekki sagt
enn sem komið er, hvern veg
ríkisstjórnin ætlar að lækka
vexti, þ.e. með hvaða hætti, en
það verður að vera innan þess
ramma að bankakerfið geti
staðið undir sér. Þessi mál
liggja ekki svo skýrt fyrir enn.
Friðrik Sóphusson (S) sagði
ljóst:
• 1. Að breytt innlánsform
samkvæmt ákvörðun rík-
isstjórnarinnar hlyti að
leiða af sér vaxtahækkun í
útlánum, og svar ráðherra
bæri með sér að raunvext-
ir hefðu hækkað frá ára-
mótum.
• 2. Ríkisstjórnin stefndi í
hækkun allra þjónustu-
gjalda í ríkisbönkum, og
þá væntanlega í banka-
kerfinu, þrátt fyrir verð-
stöðvun.
• 3. Þótt aðeins séu örfáir dag-
ar til mánaðamóta, 1.
marz, getur ráðherra ekk-
ert sagt okkur um, hvern
veg framkvæma á boðaða
útlánavaxtalækkun, er þá
á að taka gildi.
• 4. í 29. gr. Ólafslaga er sú
kvöð lögð á herðar ráðhera
að leggja fyrir Alþingi
sérstaka útlánaáætlun,
samhliða lánsfjáráætlun.
Nú er lánsfjáráætlun loks
komin fram en ráðherra
nefndi ekki útlánaáætlun-
ina einu orði.
Vextir í bankakerfinu:
Verðtryggðir hjá viðskipta-
vininum — ekki bankanum
- segir Guðmundur
G. Þórarinsson
Hvernig stendur á því
að vextir a£ verðtryggðum
innlánsreikningum eru
reiknaðir á annan hátt en
vextir af verðtryggðum út-
lánum? Þannig spurði
Guðmundur G. Þórarins-
son (F) Tómas Árnason,
bankaráðherra, í Samein-
uðu þingi í gær. Þegar
lánað er út eru vextirnir
verðtryggðir, eins og láns-
íjárupphæðin, en EKKI
þegar innlán eiga í hlut.
Ráðherra las upp bréí frá
Seðlabanka, sem skýra
átti mismunandi meðferð
vaxtareiknings eftir inn-
og útlánum, en fyrirspyrj-
andi taldi svarið ónógt og
ekki til þess fallið að efla
trú viðskiptamanna
hankakerfisins á inn-
lánsstofnunum og meðferð
mála í þeim.
Tómas Árnason, hankaráö-
herra, las bt-éf frá Seðlabanka
þar sem segir efnislega að meg-
inmunur vaxtareiknings útlána
og innlána sé sá, að útlán hafi
fasta gjalddaga, einkum heilum
eða hálfum árum frá stofndegi
láns, og nægileg nákvæmni þyki
nást með breytingu vísitölunnar
frá stofngildi hennar ásamt
vöxtum á verðtryggðum grunni.
Inn á innlánsreikninga sé hins
vegar frjálst að leggja hvenær
sem er og sömuleiðis taka fé út á
ýmsum tímum mánaðar að út-
runnum uppsagnarfresti. Þar
sem gildi vísitalnanna miðist við
mánaðamót þarf að beita ein-
faldri samtíma reglu og þótti
einfaldast og ljósast að færa
inngreiðslur til næstu mánaða-
móta og útgreiðslur frá síðustu
mánaðamótum með vöxtum 12
mánaða vaxtaaukainnlána.
Vaxtareikningur þessara inn-
lána fylgist að við annan vaxta-
reikning innlánsstofnana og lýt-
ur venjum og tækniskilyrðum á
því sviði. Þessar aðferðir leiða
til þess að 1% vextir eru reikn-
aðir ofan á uppfærðan höfuðstól
í lok hvers mánaðar og geymdir
á vaxtatali reiknings til ársloka.
Leiðir það til eilítið lægri raun-
vaxta en 1% samkvæmt venju-
legum skilningi, eða um 0,8—
0,9% raunvaxta eftir því, hver
verðbólgan er. Þessi regla er
viðurkennd með gildandi vaxta-
tilkynningum. Benda má á,
sagði ráðherra, að séu afborgan-
ir útlána ekki greiddar á réttum
gjalddaga, er einnig reiknað
aukalega með dráttarvöxtum í
þeirra tilviki.
Guðmundur G. Þórarinsson
(F) þakkaði svörin, en taldi þau
fátækleg. Mergurinn málsins
færi að meðferð vaxtaútreikn-
ings væri með öðrum hætti
þegar metinn væri greiðslu-
skylda bankans en viðskiptavin-
arins. Svar Seðlabankans væri
almenns eðlis en snerti'r í engu
það atriði, það grundvallarat-
riði, sem ég spurði um. Ég
mælist til þess að ráðherra fái
þessum útlánareglum breytt;
annað eflir ekki traust við-
skiptavinanna á bankakerfinu
eða innlánsformi því sem nú er
beitt.
ALÞINGI
Oskilahross
í-Áshreppi í Austur Húnavatnssýslu er í óskilum
hryssa, meö folaldi bæöi ómörkuö. Hrossin eru
rauöjörp aö lit, dökk í tagl og fax. Hryssan er á aö
giska 12 til 13 vetra. réttur eigandi gefi sig fram,
sanni eignarrétt sinn og greiöi áfallinn kostnaö.
Hreppsstjóri.
Frá Vélstjórafélagi íslands
Félagsmenn eru vinsamlegast beönir um aö skila
spurningaeyöublaöi því, sem fylgdi síðasta „strokk“,
til skrifstofunnar, sem allra fyrst.
Vélstjórafélag íslands.
Keflavík - Garður - Sandgerði
Frá og meö mánud. 23. febr. nk. veröa eftirtaldar
breytingar á brottfarartímum bifreiöa okkar:
Frá Keflavík til Sandgeröis kl. 12.45 (í staö kl.
12.30).
Frá Sandgeröi til Keflavíkur og Reykjavíkur kl. 13
(ístað 12.45). Sérleyfisbifreiöir Keflavíkur
VIÐTALSTÍMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
Alþíngitmenn og borgarfulltrúar Sjélfstæöisflokkaina verða til
viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1 A laugardögum frá kl. 14.00 til
16.00. Er þar taklð á móti hvers kyns fyrirspurnum og
ábendíngum og er öllum borgarbúum boðið að notfæra sér
viðtalstíma þessa.
MORGUNBLAÐIÐMORG
MORGUNBLAÐIÐMOR
MORGUþrBLAÐIÐMQS5,
MORGU
MORGI/^
/A
Blað-
burðar-
fólk
óskast
Austurbær
Samtún
Miötún
Leifsgata
Ármúli
Síöumúli
Mtt
MC\
MC\
MOS
MOFX
MORÁ
MORf/
mor/
mof/
MOfói
M0rM
MC/
MORGUlX
MORGUNBlÁ^
MORGUNB
MORGUNBLADIDh/fe^ /NBLAÐIÐMC
LAÐIÐMORGUNBLAÐIÐ
QiQMORGUNBLAÐIÐ
y/- —^RGUNBLAÐIÐ
INBLAÐIÐ
BLAÐIÐ
BLAÐID
JHLAÐIÐ
-\.AÐIÐ
AÐIÐ
ADID
ÐIÐ
TciLAÐID
LAÐIÐ
AÐIÐ
IÐ
AÐIÐ
)DIÐ
Hringiö í síma
35408
AÐIÐ
^Vaðið
? \AOIÐ
Vðið
>|d
rSCMDIÐ
þBLAÐIÐ
^LAÐIÐ
flBLADID
/CJNBLAÐIÐ
/iUNBLAÐIÐ
/ÍGUNBLAÐIÐ
IGUNBLADIÐ
MORGUNBLAÐIÐMORGuNBLAÐIÐMORGUNBLAÐIÐ