Morgunblaðið - 19.02.1981, Page 34
3 4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1981
Skýjakljúfarnir i New York höfðu aldrei þessu vant brugðið af sér mengunarhulunni siðla siðasta ár þegar þessi „friðsæla“ mynd var tekin. En
skálmöldin i gljúfrum heimsborjjarinnar maKnast með hverjum dejfi og löKreKlumenn eru farnir að ganga til návigis við hina harðsviruðu
löKbrjóta með vigorðinu: Skjótum fyrst og spyrjum svo.
Snurðulaus stjómarskipti
New York í janúar
Á þriðjudaginn 20. janúar
beindust augu allra landsmanna
til Washington D.C., en þá fór
fram embættistaka Ronald Reag-
ans forsetaefnis Bandaríkjanna.
Töluverður Hollywood-bragur var
á veizluhöldunum þennan dag,
eins og við mátti búast, en Frank
Sinatra var veizlustjóri og ara-
grúa af kvikmyndastjörnum var
boðið í veizluna.
Reagan kvaddi Los Angeles
formlega þann 14. janúar og flaug
til Washington um borð í Boeing
707-flugvél ríkisins, Air Force
One, í fyrsta skipti. Reagan hefur
sett hús sitt í Los Angeles á
sölulista og er verðið ein milljón
níuhundruð þúsund dollarar, en
Reagan-hjónin keyptu húsið á
sínum tíma á fjörutíu þúsund
doilara. Verðbólga eða skynsemi í
fasteignabraski?
Ekki verður annað sagt en að
umskiptatímabilið frá kosningun-
um í nóvember í fyrra hafi gengið
fremur vel, enda var annríkt hjá
Carter forseta þetta tímabil.
Gíslavandamálið var enn í há-
punkti og töldu flestir að Jimmy
Carter vildi helst bæta einni góðri
einkunn í einkunnabókina sína,
áður en hann kveddi svo að hans
yrði minnst í sögunni.
Ronald Reagan valdi sér ráð-
herra sína skömmu fyrir áramót
og í kjölfar þess hófust yfirheyrsl-
ur þessara útnefndu ráðherra í
öldungadeildinni samkvæmt lög-
um hér, því deildin verður að
samþykkja embættisskipanirnar.
Flestar þessar yfirheyrslur gengu
fljótt fyrir sig, en einkum voru þó
tvær þeirra markverðar. I fyrsta
lagi var það Alexander Haig
hershöfðingi, sem var útnefndur
utanríkisráðherra, en eins og
menn muna þá var Haig embætt-
ismaður Richard Nixons í Hvíta
húsinu síðustu dagana 1973 og er
almennt álitið að Haig hafi hreint
og beint stjórnað landinu á meðan
Richard Nixon og hans menn
reyndu á allan máta að leysa
Watergate-málið. Einnig er álitið
að Richard Nixon hafi beðið Ger-
ald Ford að skipa Haig í mikil-
væga stöðu innan hersins fyrir
aðstoðina 1973.
Alexander Haig varð þá yfir-
hershöfðingi NATO í Evrópu. í
fyrstu var honum ekki vel tekið af
frændum okkar í Evrópu, en þegar
fyrsta árið var liðið voru valda-
menn í Frakklandi, og þó sérstak-
lega í Þýskalandi, á einu máli um
að hér var á ferðinni skarpur
diplómat.
Þetta kom líka greinilega fram í
svörum Alexander Haigs frammi
fyrir öldungadeildarþingmönnun-
um en yfirheyrslunum var sjón-
varpað beint úr þinginu. Hér er á
ferðinni stórmerkilegur og snar-
gáfaður maður, og er ekki nokkur
vafi á því að utanríkismál Banda-
ríkjanna eru í góðum höndum
næstu fjögur árin enda er kominn
tími til að endurskipuleggja alger-
lega utanríkisstefnu landsins og
endurheimta fyrri virðingu al-
heimsins fyrir bandarískum frels-
iskenningurn. Repúblikanar eiga
hér slunginn stjórnmálamann og
undrast margir hvers vegna hann
var ekki valinn forsetaefni flokks-
ins, en líklega hefur ævilöng
vinátta hans og Richard Nixons
orðið honum trafali á því sviði, en
hver veit nema að eftir næstu
fjögur ár verði almenningsálitið
breytt og að Alexander Haig verði
í framboði, ef til vill eftir 8 ár. Það
er þó fremur sjaldgæft að fyrrver-
andi utanríkisráðherra verði for-
seti, en þó er eitt sögufrægt dæmi
— Thomas Jefferson.
Ekki gekk eins greiðlega með
útnefningu verkalýðsmálaráð-
herrans. Sá maður er fyrir valinu
varð heitir Raymond J. Donovan.
Öldungadeildarmenn fengu þær
upplýsingar frá fyrrverandi
mafíu-manni, sem nú er undir
vernd F.B.I., að Donovan hefði
sent honum peningagreiðslur með
það fyrir augum að halda vinnu-
friði í fyrirtæki Donovans í Sec-
aucus í New Jersey. Donovan
hefur auðvitað neitað öllu þessu,
en þingmenn settu málið á biðlista
Enn
kreppir
að bíla-
iðnaðinum
þangað til frekari rannsókn gæti
farið fram á þessum ásökunum
mafiu-mannsins, en almennt telja
menn þó Donovan strangheiðar-
legan, og ætla að þessar ásakanir
séu frekar byggðar á því að hann
hafi neitað að taka þátt í mafíu-
leiknum, og séu þeir að reyna að
ná sér niðri á honum fyrir að hafa
svikið lit.
Sem kunnugt er, kvaddi Carter
forseti landslýð með hálftíma
sjónvarpsræðu þann 14. janúar.
Ræðan var fremur hógvær en
Carter lagði sterka áherslu á þá
hættu er stafaði af útbreiðslu
kjarnorkuvopna, og var þá senni-
lega að undirstrika mikilvægi
SALT 2 sáttmálans, sem Repú-
blikanar eiga sennilega eftir að
kasta í ruslakörfuna, enda engin
ástæða að semja við Sovétmenn
meðan þeir eru með her í Afgan-
istan.
Veðrið
Allt frá því á jóladag í fyrra
hefur ríkt hér mikið kuldakast.
Nær þetta bókstaflega um allt
landið nema Kaliforníu, sem hefur
sloppið. Kuldalínan á veðurkort-
unum náði alveg niður til Florida-
skagans, og appelsínuuppskeran
þar var í mikilli hættu enda
mældist 5 stiga frost þar í vikunni
og má ekki miklu muna að 75% af
öllum appelsínuútflutningnum
hafi eyðilagst. Þetta er geysilega
fjárhagslegt tjón fyrir Florida
eins og gefur að skilja og hefur
auk þess neikvæð áhrif á ferða-
mannastrauminn til Florida, og
fólk hefur skipt um dvalarstað í
stórum hópum og leitað iengra
suður á bóginn.
Haig boðinn velkominn, þegar hann mætir til „yfirheyrslu“ í
öldungadeildinni.
Umsjóni ARNÓR
RAGNARSSON
Bridgefélag
Hornafjarðar
Aðaltvímenning vetrarins
lauk nú um síðustu mánaðamót.
Sex efstu sætin skipuðu:
Árni Stefánsson — Jón Sveinsson 863
Ómar Sveinsson — Aðalsteinn Aðalst.ss. 808
Ragnar Björnsson — Karl Sigurðsson 804
Gísli Gunnarsson — Kolbeinn Þorgeirss. 799
Björgvin Þorsteinss. — Sigurvin Ármannss. 766
Birgir Björnsson — Sigfinnur Gunnarsson 766
Nú stendur yfir aðalsveita-
keppnin, með þátttöku 8 sveita.
Að öðru leyti hefur vetrarstarfið
gengið sinn vanagang. Það hófst
með forkeppni fyrir Austur-
landsmót í tvímenningi, en ekki
tókst betur til en svo að þeir, er
lögðu af stað þangað, komust á
Djúpavog, en urðu skömmu síðar
að snúa frá vegna ófærðar.
Hraðsveitakeppni, 2 umferðir,
voru spilaðar milli „innfæddra"
og aðfluttra og mörðu hinir
hreinræktuðu sigur. Og nú sl.
helgi fóru 4 sveitir til keppni við
starfsmenn Flugleiða í Reykja-
vík og þökkum við skemmtilega
keppni. Formaður félagsins er
Jón Sveinsson, Fiskhóli 3, Höfn.
Bridgedeild
Húnvetninga
Sveitakeppni stendur yfir hjá
deildinni. Taka 6 sveitir þátt í
keppninni og er spiluð tvöföld
umferð.
Þegar keppnin er hálfnuð er
staða efstu sveita þessi:
Valdimar Jóhannsson 68
Hermann Jónsson 62
Haukur Isaksson 61
Spilað er á miðvikudögum í
félagsheimilinu, Laufásvegi 25
og hefst keppni kl. 19.45.
Bridgedeild
Stykkishólms
Nýlega er lokið aðalsveita-
keppni vetrarins. í keppninni
tóku þátt sex sveitir og voru
spilaðir 32ja spi.la leikir.
Sveit Ellerts Kristinssonar
sigraði í mótinu, vann alla sina
leiki með 20 stigum, ein sveit
slapp með 0 gegn þeim, hinar
fengu allar mínusstig. í sveitinni
eru auk Ellerts: Kristinn Frið-
riksson, Guðni Friðriksson og
Halldór S. Magnússon.
Úrslit keppninnar urðu ann-
ars þessi (efstu sveitir):
Sveit Ellerts Kristinssonar 100
Sveit ísleifs Jónssonar 59
Sveit Kjartans Guðmundss. 57
Sveit Más Hinrikssonar 43
Lokið er námskeiði í bridge á
vegum Bridgeskólans Ássins,
sem haldið var í Stykkishólmi.
Þátttakendur voru 25, leiðbein-
andi var Halldór S. Magnússon.
Rétt þykir að minna á Vestur-
landsmót í tvímenningi, sem
haldið verður í Stykkishólmi
helgina 7.-8. mars. Þátttöku
ber að tilkynna fyrir 22. febrúar.
Keppnisstjóri verður hinn góð-
kunni Guðmundur Kr. Sigurðs-
son.
Setja spila-
kassa í flug-
vélarnar
Slngapore. 17. lebrúar. AP.
FLUGFÉLAG Singapore hefur
uppi áform um að koma fyrir
spilakóssum (svokölluðum ti-
kallaspilum) i þotum féiagsins
sem fljúga milli Singapore og
Bandarikjanna. Aðeins farþegar,
sem eru 21 árs og eldri, fá að
freista gæfunnar á kössunum sem
verða settir i flugvélarnar 1. júni
nk. til reynslu.
„Spilakassarnir verða settir upp
til þess að farþegunum leiðist ekki
á þessari löngu leið,“ sagði tals-
maður félagsins.
Fyrir fimm árum reyndi félagið
að skemmta farþegum sínum með
söng svokallaðra trúbadora á leið-
inni milli Singapore og Ástralíu.
Því var hætt ári síðar er allt
nýjabrum var farið af uppátækinu.