Morgunblaðið - 19.02.1981, Page 48

Morgunblaðið - 19.02.1981, Page 48
Síminn á afgreiöslunni er 83033 Jflorjjnnblatiit) FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1981 Síminn á ritstjórn og skrífstofu: 10100 ploT0unbInbit> Ljósm. Mbl. Kristján örn Eliasson Vitnið beið í þrjú og hálft ár Eina með engu, takk. BAKARAMEISTARI í höfuð- borginni var í gær sýknaður í Hæstarétti af ákæru um verðlags- brot. þar eð sök hans var talin fyrnd. Bakarameistaranum var gefið að sök að hafa í desember 1974 selt tvo snúða og tvö birki- rúnstykki á of háu verði. I Hæstarétti var ekki efnislega fjallað um málið, aðeins metið hvort sökin væri fyrnd eða ekki, en mál fyrnast öllu jöfnu ef meira en tvö ár líða á milli þess að þau eru tekin fyrir í dómi. Umrætt mál var til meðferðar í Verðlagsdómi Reykjavíkur. í dómi Hæstaréttar er málsmeðferð lýst og hún vítt sem óhæfileg. Þar kemur fram að saksóknari gaf út ákæru á bakarameistarann í apríl 1975. Vitnaleiðsla fór fram 4. júní 1975 og þar óskaði verjandi ákærða eftir því að ákveðinn maður, sem heima átti í Reykja- vík, yrði kvaddur fyrir dóminn sem vitni. Næst var málið tekið fyrir 6. maí 1977 og þá lögð fram nokkur skjöl, sem sum hver voru þegar komin til dómsins í júní 1975. Aftur var þingað í málinu 18. maí 1977 og lögð fram fleiri skjöl. Næst var þingað í málinu 8. nóvember 1978 og þá loks tekin skýrsla af vitni því er fyrr er nefnt, nær premur og hálfu ári eftir að ósk kom fram um slíkt. Dómur féll síðan í júlí 1979. I dómi Hæstaréttar segir loks að hin löngu hlé á dómprófum eigi ekki rætur að rekja til þess að sakborningur hafi vikið sér undan rannsókn og þegar fyrrgreindur rannsóknarferill sé skoðaður verði að telja sök ákærða fyrnda. - sem Hjörleifur taldi yfirgengilegar ÞAÐ var upplýst í umræðum á Alþingi í gær að afgreiðsla stjórnar Framkvæmdastofnunar rikisins á lánsfé til kaupa á Þórshafnartogaranum margum- talaða var byggð á hugmyndum. sem fram höfðu komið hjá Ragn- ari Arnalds fjármálaráðherra. Um þessa afgreiðslu sagði Iljör- leifur Guttormsson iðnaðarráð- herra í gær, að það væri alveg yfirgengilegt og jafnfjarstæðu- kennt að hans mati að ætla að sækja fé til þessara kaupa i fjárveitingu, sem ríkisstjórnin hugsaði sem stuðning við inn- lenda skipasmiði. Umræður utan dagskrár um Þórshafnartogarann tóku allan fundartíma á Alþingi í gær og skiptu ræður tugum. Þó tókst ekki að Ijúka umræðunum og verður þeim haldið áfram í dag. Sverrir Hermannsson upplýsti í umræðunum að hann hefði á mánudag setið fund með Ragnari Arnalds fjármálaráðherra og Steingrími Hermannssyni sjávar- útvegsráðherra. Þar hefði m.a. verið fjallað um hugsanlegar bóta- kröfur, ef hætt hefði verið við kaupin. Þá hafi fjármálaráðherra varpað fram þeirri hugmynd að hlut Framkvæmdastofnunar í hugsanlegum kaupum yrði skipt sem hér segir. 10% með áður ráðgerðum hætti og 10% af fjár- magni, sem ríkisstjórnin útvegaði sjóðnum með ríkisábyrgð. Þá skýrði Sverrir frá því að á þriðjudag hefðu samtímis verið haldnir fundir í ríkisstjórn og stjórn Framkvæmdastofnunar. Sverrir kvaðst hafa verið kallaður í síma af sjávarútvegsráðherra. Hefði hann tjáð sér að ríkisstjórn- in ræddi málið en ekki væri að vænta nýrra samþykkta. Viðhorf manna væru að það væri að fara úr öskunni í eldinn að hætta við kaupin. Þá hefði Steingrímur einnig minnt á hugmynd Ragnars Arnalds. Kvaðst Sverrir hafa komið þessum viðhorfum Stein- gríms á framfæri við stjórnar- menn í Framkvæmdastofnun. Ragnar Arnalds og Steingrímur Hermannsson tóku báðir til máls í umræðunum og staðfestu það sem komið hafði fram í ræðu Sverris Hermannssonar um málið. í umræðunum á Álþingi í gær kom fram að tíu þingmenn hafa lagt fram beiðni um að forsætis- ráðherra gæfi þinginu nákvæma skýrslu um málið. Gunnar Thor- oddsen tók til máls og og sagði að mistök stjórnvalda hefðu átt sér stað við málsmeðferðina, senni- lega vegna skorts á eftirliti. Ólafur G. Einarsson sagði m.a. að ef ákvörðun stjórnar Fram- kvæmdastofnunar væri byggð á röngum forsendum myndi hann krefjast upptöku málsins. Sjá nánar á þingsíðum á bls. 26 og 27. Silungsveiðar í gegnum ís á Mývatni eftir nýju kvótakerfi SILUNGSVEIÐAR í gegnum ís á Mývatni hófust í byrjun þessa mánaðar eins og venja hcfur verið mörg undanfarin ár. Það sem er óvcnjulegt við veiðiskap- inn að þessu sinni er að nú er í fyrsta skipti veitt samkvæmt sérstöku kvótakerfi eins og viðgengst á loðnuveiðunum Um 35 aðilar hafa rétt til þessara veiða og mega þeir veiða samtals 4.200 fiska fram til 1. júní. Er það sambærilegt við það, sem veitt var veturinn 1979, en það var lélegt ár. í fyrravetur veiddust um 6 þúsund silungar í gegnum ís á Mývatni. Undanfarin ár hefur ástand sil- ungsstofnsins í Mývatni verið mjög lélegt, en góður kippur kom þó í stofninn 1977 og 1978, en þá er talið að um 30 þúsund fiskar hafi veiðst úr vatninu hvort ár, en allt árið í fyrra veiddust t.d. um 17 þúsund fiskar. Það er veiðifélag Mývatns, sem úthlut- ar kvóta til félagsmanna í hlut- falli við arðskrá, en Jón Krist- jánsson, fiskifræðingur á Veiði- málasstofnun, gerði tillögu um heildarkvótann. F áskrúðsf jörður: 14 íslenzkar atvinnulausar - nóg vinna hjá þeim áströlsku Á FÁSKRÚÐSFIRÐI hefur ver- ið nokkuð atvinnuleysi hjá kvenfólki síðustu tvær vikurn- ar. 14 konur hafa verið skráðar atvinnulausar á þessu tímabili þar sem lítil atvinna hefur verið hjá Pólarsild hf. Hins vegar eru 15 stúlkur frá Ástr- alíu í vinnu í hinu frystihúsinu á staðnum. Finnst ýmsum það skjóta skökku við. að íslenzku konurnar séu atvinnulausar á sama tíma og þær erlendu hafa nóga vinnu. Jón G. Sigurðsson, sveitar- stjóri á Fáskrúðsfirði, sagði í samtali við Mbl., vélarbilun hefði orðið í vélbátnum Þorra fyrir nokkru og hefði vélin verið dæmd ónýt. Fyrirtækið Pólar- síld hefði nú fest kaup á öðru skipi, Fylki frá Neskaupstað, og kæmi það í lok vikunnar til Fáskrúðafjarðar. Með komu þess skips ætti að rætast úr með atvinnu kvennanna. Kanna aðstæður á íslandi: Fulltrúi Korchnois kemur til landsins „ÉG IIEF þegar haft samband við dr. Ingimar Jónsson forseta Skáksambands íslands, og tilkynnt honum að ég muni koma til íslands næstu daga til að kynna mér aðstæður þar,“ sagði Alban Brodbeck, fulltrúi Victors Korchnois skákmeistara. í samtali við blaðamann Morgunblaðsins síðdegis í gær, en hann var þá á heimili sínu í Sviss. Brodbeck sagðist kynna sér all- ar aðstæður hér fyrir hönd Korch- nois, sem hann sagði að væri nú í boðsferð í Hong Kong og víðar. Brodbeck sagði ekki alveg víst hvaða dag hann kæmi hingað, en líklega yrði það á laugardag eða sunnudag í næstu viku. „Ég mun hringja til Ingimars Jónssonar á morgun eða hinn, og þá ákveð ég hvenær ég kem,“ sagði Brodbeck. Alban Brodbeck sagðist ekkert vilja segja né geta sagt um, hvort ísland kæmi frekar til greina en aðrir staðir er buðu í heimsmeist- araeinvígið, hann yrði að koma og kynna sér allar aðstæður áður. Einnig kvaðst hann mundu fara til Ítalíu og Kanaríeyja og líta á aðstöðu þá er þeir staðir byðu upp á, en þrjú boð bárust sem kunnugt er í heimsmeistaraeinvígið að þessu sinni. Kaup Þórshafnartogarans: Afgreiðslan byggð á hug- myndum fjármálaráðherra

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.