Morgunblaðið - 20.03.1981, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1981
21
Dr. Björn Jóhannesson:
Hvað kostar að framleiða stangveiði-
lax með sleppingu sjógönguseiða?
Ekki ætla ég mér þá dul að
svara ofangreindri spurningu
með viðhlítandi öryggi, en tel
eigi að síður æskilegt að reyna
að gera sér nokkra grein fyrir
þeirri stærðargráðu er hér um
ræðir. Stuðst er við neðan-
greindar forsendur:
1) Reiknað er með að göngu-
seiðum sé sleppt beint í viðkom-
andi á, en þau ekki undirbúin
með fóðrun í nokkurn tíma í
sleppikörfu eða sleppiþró.
2) Reiknað er með að 3
hundraðshlutar gönguseiða
skili sér sem fullvaxnir laxar í
ána; hér er stuðst við niðurstöð-
ur rannsókna Veiðimálastofn-
unarinnar, en vegna takmark-
aðra gagna er hér um óvissa
ágiskunartölu að ræða.
3) Gögn í grein Maríönnu
Alexandersdóttur og Guðnýjar
Eiríksdóttur í íslenskum land-
búnaðarrannsóknum, 2. hefti
1978 gefa þessar upplýsingar: Á
tímabilinu 1936—1973 veiddust
á stöng í Elliðaánum í einstök-
um árum frá 20 til 58% af þeim
löxum sem gengu í árnar. Með-
alstangveiðin nam tæpum 37%
af löxum er gengu í árnar. Nú
eru Elliðaárnar bæði vatnslitlar
og „barðar" af meiri kunnug-
leika og dugnaði en nokkur
önnur laxveiðiá hérlendis. Mun
því naumast að vænta að meira
en um 25% veiðist að meðaltali
á stöng af þeim laxi sem gengur
í íslenskar ár; fyrir vatnsmestu
árnar mun þessi tala án efa
vera talsvert lægri. I forsendum
þessa greinarstúfs er þó reiknað
með að hluti eða 33% af
laxinum veiðist á stöng.
Á grundvelli framan-
greindra forsenda veiðist á
stöng einn lax af hverjum 100
gönguseiðum sem sleppt er i
tiltekna á.
Sé verð á laxgönguseiði 5 kr.
(500 Gkr.), þá myndi einn
stangveiðilax kosta kr. 500
(50.000 Gkr.), en 1.000 kr.
(100.000 Gkr.) ef hvert seiði
kostaði 10 kr. (1.000 Gkr.).
Vera má, að eldri fisk-
eldisstöðvar, sem þegar hafa
verið afskrifaðar, gætu með
nokkrum hagnaði framleitt
gönguseiði fyrir 5 kr., en mér
sýnist líklegt að þær eldisstöðv-
ar sem nú er verið að reisa þurfi
að fá, miðað við væntanlegt
verðgildi krónunnar á nk. vori,
a.m.k. 10 kr. fyrir gönguseiði, sé
þeim ætlað að bera sig fjár-
hagslega, án opinberra styrkja.
Sé gönguseiðum sleppt í
sleppikörfu eða þró nálægt sjó,
þar sem þau eru alin um
nokkurt skeið og varin fyrir
vargi, má eflaust fá talsvert
hærri, ef til vill nokkrum sinn-
um hærri, endurheimtur en að
ofan er reiknað með (3%). En
slík sleppiaðstaða er að jafnaði
það kostnaðarsöm, að óhagst-
ætt myndi að nota hana nema
um allmikið magn gönguseiða
væri að ræða.
Þorkell Gíslason aðal-
bókari — Minning
I heimi barnsins gegnir heimilið
mikilvægu hlutverki. Það veitir
börnum mikla öryggiskennd að
finna sig heima. Eg var svo
lánsamur að eiga þess háttar
heimili á mínum uppvaxtarárum.
Skeggjagata 10 var í mínum aug-
um það hús sem mestu skipti,
öruggt athvarf, meðan ég var að
taka mín fyrstu spor í lífinu. Enda
þótt foreldrar mínir byggju í
kjallaranum, þá átti ég heima á
öllum hæðum, ef svo mætti að orði
komast. Það var fyrir velvild
fólksins sem þar bjó og býr enn.
Þorkell frændi var einn af þeim
sem átti sinn þátt í að móta það
andrúmsloft velvildar með ró
sinni og hlýlegu brosi. Hann er nú
allur en þar mun ávallt ríkja sami
andblærinn í mínum huga.
Þorkell Gíslason var fæddur
þann 13. des. 1894 að Gelti í
Grímsnesi. Foreldrar hans voru
Gísli Þorkelsson, hreppstjóri á
Ormsstöðum og kona hans, Ing-
unn Jónsdóttir. Ingunn var dóttir
Önnu Guðmundsdóttur, bónda í
Eyvindartungu, Ólafssonar, bónda
á Blikastöðum, Guðmundssonar,
bónda og farvara í Leirvogstungu
og Þormóðsdal, Sæmundssonar,
Þórðarsonar, prófasts á Staðar-
stað, Jónssonar, biskups, Vigfús-
sonar.
Þorkell lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1916 og cand. phil.-prófi frá Há-
skóla Islands ári síðar. Hann vann
síðan skrifstofustörf hjá Karli
Höepfner í Rvk. og hjá Reykjavík-
urhöfn 1926—65, lengst af sem
ég heimsókna Þorkels í Hlöðutún,
þar sem Jónína, föðuramma mín,
og móðursystir hans bjó. Þá mál-
aði Þorkell sér til ánægju og
málverkin hans urðu fyrstu kynni
mín af málaralistinni. Með einu
málverki sínu festi hann mynd af
Baulu fyrir lífstíð í huga mínum
og hann fékk mig með myndum
sínum til að gefa umhverfinu
nánari gaum.
Þorkell kveður nú eftir langan
og starfsaman ævidag. Hann gaf
af sjálfum sér bæði með list sinni
og manngæsku.
Jórunni votta ég samúð mína og
bið Guð að blessa minningu eigin-
manns hennar. Björt minning
verður frá engum tekin.
ólafur Oddur Jónsson
aðalbókari. Hann var mikill
áhugamaður um málaralit og einn
af stofnendum Myndlistarskólans
í Rvk. Hann gegndi trúnaðarstörf-
um við skólann í tvo áratugi og
var að lokum gerður að heiðursfé-
laga.
Þorkell hefur tekið þátt í sam-
sýningum áhugamálara og hélt
einkasýningu 1965.
Hann kvæntist Jórunni Norð-
mann 28. júlí 1951, Jónsdóttur
Norðmanns, kaupmanns á Akur-
eyri. Alúð og velvild hefur alla tíð
einkennt þau bæði. Áhugamál
þeirra voru skyld. Hún unni tón-
listinni en hann málaralistinni og
bæði lögðu sitt af mörkum til þess
að aðrir nýttu hæfileika sína í
þeim listgreinum.
Er ég rifja upp liðna tíð minnist
Birting
afmælis- og
minningar-
greina.
ATHYGLl skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast i
siðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera i sendibréfs-
formi. Þess skal einnig getið,
af marggefnu tilefni, að frum-
ort ljóð um hinn látna eru
ekki birt á minningarorðasið-
um Morgunblaðsins. Handrit
þurfa að vera vélrituð og með
góðu linubili.
örn Arnþórsson og Guðlaugur R. Jóhannsson, margfaldir
Reykjavikur- og íslandsmeistarar i sveitakeppni og tvímenningi,
keppa á Evrópumótinu i Birmingham i júli i vor.
Landsliðskeppni
Bridgesambands
íslands
STJÓRN Bridgesambands ís-
lands hefur ákveðið að velja
parið Örn Arnþórsson og Guð-
laug R. Jóhannsson í landslið
það sem keppa mun í opna
flokknum á Evrópumótinu í
Birmingham í júlí nk. Þetta er
gert með hliðsjón af hinum góða
árangri þeirra undanfarið ár.
Eftirtalin pör hafa verið valin
til keppni um þau tvö sæti sem
eftir eru:
1. Jón ÁsbjörnsHon — Slmon SimonarHon
2. Guðm. Ilrrmannra. — Sævar Þorb).
3. Þorgeir Eyjóllsson — Bjorn Eysteinss.
4. Jón Þorvarðarson — Ómar Jónsson
5. Skúli Einarsson — Þorlákur Jónsson
6. óli Guðmundss. — Þórarinn Sigþórss.
7. Gtsli Hafliðas. — Sijturður Þorsteinss.
8. Hörður Arnþórsson — Jón Hjaltason
9. Heljd Jónsson — Heliö SÍKUrðsson
10. Guðm. Péturss. — Þórir Sigurðss.
11. Sigurður Sverriss. — Hróifur Hjaltas.
12. Ásm. Pálss. — Karl Sigurhjartars.
13. Hermann Lárusson — Ólafur Láruss.
14. Jón Baldursson — Valur Sigurðsson
Spilaður verður tvímenningur
með Butler-fyrirkomulagi með
10 spilum á milli para og munu
pörin hafa það rásnúmer sem
skráð er hér að ofan. í upphafi
hverjar umferðar byrja bæði
pörin með 30 stig sem síðan
bætist við eða dregst frá eftir
unnum eða töpuðum Imp-stig-
um. Hver leikur getur þannig
mest unnist 60—0. Við útreikn-
ing verða teknar frá tvær hæstu
tölur í NS og AV og síðan fundið
meðaital af þeim þrem tölum
sem eftir verða.
Spilað verður í Drangey,
Síðumúia 35.
Laugardag 28.3
frá kl. 13.00-18.30
20.00-24.00
Sunnudag 29.3
frá kl. 13.00—18.30
20.00-22.30
Frá Bridgefélagi
Reykjavíkur
Miðvikudaginn 18. marz hófst
sveitakeppni með stuttum leikj-
um og þátttöku 12 sveita. Að
fjórum umferðum loknum er
staða efstu sveita þessi:
Sveit stig
Símonar Símonarsonar 63
Guðmundar P. Arnarssonar 57
Sigmundar Stefánssonar 54
Sigurðar Sverrissonar 54
Þorfinns Karlssonar 42
Næstu umferðir verða spilað-
ar í Domus Medica nk. miðviku-
dag kl. 19.30 stundvíslega.
Brldge
Umsjón. ARNÖR
RAGNARSSON
Bridgefélag
Breiðholts
Sl. þriðjudag voru spilaðar síð-
ustu umferðirnar í Barómeter-
keppninni og lauk henni með sigri
Árna Guðmundssonar og Rafns
Kristjánssonar sem hlutu 202 stig
yfir meðalskor.
Röð næstu para:
Sigurður Ámundason
— Óskar Friðþjófsson 144
Haukur Margeirsson
— Sverrir Þórisson 127
Magnús Ólafsson
— Páll Bergs 124
Steingrímur Þórisson
— Sigríður Jónsdóttir 115
Svavar Björnsson
— Sigfinnur Snorrason 110
Ragna Ólafsdóttir
— Ólafur Valgeirsson 107
Á þriðjudaginn hefst sveita-
keppni og verða spilaðir tveir
stuttir leikur á kvöldi. Spilarar
eru beðnir að mæta tímanlega til
skráningar. Aðstoðað verður við
að koma stökum pörum saman í
sveitir.
Spilað er uppi í húsi Kjöts og
fisks Seljabraut 54 og hefst keppn-
in kl. 19.30. Keppnisstjóri er Her-
mann Lárusson.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
húsnæði
i boði
ji—A—a_/1_A_jvWL
mA
Kefiavík
Til sölu 2ja hæöa verslunarhús
vtö Hafnargötu. Hentugt tyrir
hvers konar verslunar- og
skrlfstofurekstur.
Raðhús við Greniteig
I mjög góöu ástandi
Njarövík
4ra herb. á efri haað ásamt
bflskúr viö Reykjanesveg.
Grindavík
Eldra einbýlishús. Nýstandsett.
Söluverð 265 þús. Einbýlishús
ásamt 90 fm. lönaöarhúsnæöi.
Söluverö 560 þús.
Fasteignasaian Hafnargötu 27
Keflavík. Simi 1420.
ýmislegt
Kvennadeild Rauöa
kross íslands
Konur athugið
Okkur vantar sjálfboöaliöa til
starfa fyrir deildina. Uppl. f
símum 34703, 37951 og 14909.
Frönskunámskeiö
— heimilisaöstoð
Stúlka óskast á íslenskt heimili í
Genf næstu 3 mánuöi til mlnni-
háttar heimillsaöstoöar. Ferö
greldd aöra leiö. Tilvallö tækl-
færi til frönskunáms. Upplýs-
ingar í sfma 39880.
Vinsœlar hljómplötur
John Lennon — Double Fant-
asy, The Beatles Ballads. B.A.
Robertsson, Initlal Success,
Goombay Dance Band — Land
of gold, Sun of Jamalca. Dr.
Hook — Greatest Hits. Einnlg
aörar íslenskar og erlendar
hljómplötur og kassettur mikiö á
gömlu verði. Póstsendum.
F. Björnsson, radíóverslun,
Bergþórugötu 2, sími 23889.
IOOF 12 = 1623208'/i = Er.
□ St:. St:. 598103215
— VIII — Sth. kl. 5
IOOF 1 = 1623208'A =
FERÐAFÉLAG
^ ' ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 og 19533.
Dagsferöir
sunnudaginn 22. marz:
1. kl. 11. fh. Skföaganga um
Kjósarskarö. Fararstjórl: Slgurö-
ur Kristjánsson o.fl.
2. kl. 13. Meöaltell. Fararstjóri:
Þórunn Þóröardóttir.
3. kl. 13. Fjöguganga v/Hval-
fjörö. Fararstjóri: Slguröur Krlst-
insson. Verö kr. 50.-.
Fariö frá Umferöamiöstööinni
austanmegin. Farmiöar v/bf).
Ferðafélag íslands.
Skíöadeild
Reykjavíkurmót 1981.
Keppni I kvennaflokki kl. 11.00
og f karlaflokki kl. 11.30.
Stórsvig laugardag og svig
sunnudag.
Börn 11 og 12 ára kl. 11.00.
Seinni ferö kl. 14.00.
Börn 10 ára og yngri 11.45.
Seinni ferö kl. 14.45 laugardag
og sunnudag.
Brautlr veröa tb. til skoöunar kl.
10.00. Keppendur vinsamlegast
mætiö stundvíslega.
Stjórnin
Sálarrannsóknarfélag
Suöurnesja
Tekiö veröur á móti pöntunum í
tfma hjá bresku mlölunum Eileen
og Hobert Ison sunnudaginn 22.
marz kl. 1—7 í síma 3348.
Fímir fatur
Dansæfing í Hreyfilshúsinu
sunnud. 22. marz '81 kl. 21.00.
£ Al i.l.YSINCASIMINN KR:
22480
JBúrotuthlaöib