Morgunblaðið - 09.04.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1981
5
Frá Grænlandi
Norræna félagið:
Hví ekki Grænland?
í KVÖLD, 9. apríl, kl. 20:30
efnir Norræna félagið til
kynningar á ferðum sínum á
þessu ári, í Norræna húsinu.
Auk frétta af hinum föstu
ferðum til höfuðborga Norður-
landa verður rætt um leigu-
flug til Norðurkollusvæðanna
og Færeyjaferðir.
Einar Guðjohnsen ferða-
frömuður kynnir fýsilegar
ferðir til vesturstrandar
Grænlands og sýnir litskyggn-
ur.
Allir eru velkomnir.
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Tékkneskur einleikari
á tónleikunum í kvöld
Á NÆSTU áskriftartónleikum
Sinfóniuhljómsveitar Íslands i
Háskólabíói í kvöld eru verk
eftir Ingvar Lidholm. Greetings
from an Old World, Thorbjörn
Lundquist, fiðlukonsert og Sib-
elius, sinfónia nr. 1. Stjórnandi
er Páll P. Pálsson og einleikari
á fiðlu Karel Sneberger frá
Tékkóslóvakíu, sem nú er bú-
settur i Svíþjóð.
Karel Sneberger stundaði nám
við Tónlistarháskólann í Prag og
lauk þaðan burtfararprófi árið
1943. Síðar varð hann prófessor
við þann skóla en fluttist til
Svíþjóðar og hefur leikið mikið
með kammersveitum, svo sem
Tékkneska nónettinum og Prag-
er Musici. Hann hefur komið
fram sem einleikari í Danmörku,
Þýskalandi, Ítalíu, Austurríki,
Islandi og Svíþjóð og hefur
unnið til ýmissa verðlauna.
Fiðlukonsert eftir Lundquist,
sem leikinn verður á tónleikun-
um, er tileinkaður prófessor
Sneberger.
Páll P. Pálsson, sem fæddur er
í Graz í Austurríki, naut þar
víðtækrar tónlistarmenntunar
og tók 17 ára gamall við starfi í
óperuhljómsveitinni þar. Árið
1949 flutti hann hingað til lands
í 10 ár, en hélt þá til Hamborgar
til frekara náms og nú í hljóm-
sveitarstjórn og er nú fastráðinn
hljómsveitarstjóri Sinfóníu-
hljómsveitar Islands. Þá er hann
einnig stjórnandi Karlakórs
Reykjavíkur og hefur samið
mörg tónverk fyrir hljómsveit,
kóra og hljóðfæraflokka.
Páll P. Pálsson verður stjórn-
andi á tónleikum Sinfóniu-
hljómsveitar íslands i kvöld.
Þessí auglýsing er um
hagks/æm kaup á SIEMENS
litasiónyarpstækjum
Loksins eru hin heimsþekktu
SIEMENS Jitasjónvarpstæki
fáanleg á íslandi.
Við spörum hástemmd lýsingarorð enda mælir SIEMENS
vörumerkið með sér sjálft.
Því fullyrðum við að þau standast allan gæða og
verðsamanburð við litasjónvarpstæki sem aðrir bjóða.
Þér getið byrjað á að athuga þetta ótrúlega hagkvæma verð:
20” Litasjónvarp kr. 8.140
Greiðsluskilmálar: útborgun kr. 3.300
afgangurásex mánuðum.
Staðgreiðsluverð: kr. 7.570
22” Litasjónvarp: kr. 10.470
Greiðsluskilmálar: útborgun kr. 4.200
afgangurásex mánuðum.
Staðgreiðsluverð: kr. 9.740
26”Lítasjónvarp:kr. 11.580
Greiðsluskilmálar: útborgun kr. 4.600
afgangurásex mánuðum.
Staðgreiðsluverð: kr. 10.770
FÁLKIN N 'Wejómtefyvi 'eifct SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670