Morgunblaðið - 09.04.1981, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.04.1981, Blaðsíða 12
1 12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1981 Anker Jörgensen í samtali við Morgunblaðið: Danir standa við sitt í NATO —Jafnt í aðildarlöndum Atlantshafshandalajísins sem annars staöar áttuðu menn sig á því eftir innrás Sovétríkjanna í Afganist- an, að ekki eru forsendur fyrir því, að dregið sé úr varnarmætti einstakra ríkja. Við viljum ekki, að nýtt vígbúnaðarkapp- hlaup hef jist, þess vegna miðum við stefnu okkar í varnarmálum við það að viðhalda óbreyttum styrk, sagði Anker Jörgensen, forsætisráðherra Dan- merkur, þegar blaðamað- ur Morgunblaðsins hitti hann í forsætisráðuneyt- inu í Kristjánsborgarhöll fyrir skömmu. — Ég legg á það áherslu, sagði forsætisráðherrann, — að við stöndum við skuldbindingar okkar gagnvart Atlantshafs- bandalaginu. Við teljum ekki þörf á kjarnorkuvopnum í Danmörku og viljum að risaveldin nái samkomulagi um þau mál. Þess vegna er eðlilegt, að bréf það, sem Brezhnev, leiðtogi Sovétríkjanna, sendi til vestrænna ráðamanna verði tekið til gaumgæfilegrar athugunar. Þegar forsætisráðherrann var að því spurður, hvort hann teldi um óeðlilegan þrýsting á dönsk stjórnvöld að ræða innan Atl- antshafsbandalagsins eða frá einstökum aðildarlöndum, sagði hann, að svo væri ekki. Að vísu mætti lesa ýmislegt í forystu- greinum blaða eða skrifum blaðamanna, en það væri ekkert til að kippa sér upp við. — Danir standa við það, sem af þeim er krafist, sagði foræstisráðherr- ann. — Og við höfum einnig þor til að segja frá því, sem við getum ekki tekið að okkur. í Danmörku er sá háttur hafð- ur á við ákvörðun útgjalda til hermála, að gert er samkomulag milli stjórnmálaflokkanna til nokkurra ára um það, hve hárri fjárhæð skal varið ár hvert. Tvisvar sinnum hefur verið gert slíkt fjögurra ára samkomulag og rann hið síðara út nú um áramót- in. Ekki hafði þá tekist að semja til næstu fjögurra ára, svo að gildistími síðara samkomulagsins var framlengdur um eitt ár. Er við það miðað, að í byrjun næsta árs hefjist nýtt samkomu- lagstímabil. Miðað við efnahag Dana þarf ekki að koma á óvart, að erfiðlega gangi að ná pólitískri samstöðu um útgjöld til hermála og fylgja þeirri samþykkt Atl- antshafsbandalagsins, að fram- lögin hækki um 3% umfram verðbólgu ár hvert. Athygli vek- ur, að í opinberum umræðum um þessi mál í Danmörku taka full- trúar hersins fullan þátt og setja óhikað fram sjónarmið sín, eins og hver annar þrýstihópur, ef þannig má að orði komast. Virð- ist ríkisstjórnin fella sig vel við þetta og telja eðlilegan þátt í hinu opna stjórnkerfi. Anker Jörgensen, forsætisráð- herra Danmerkur. í bæklingi, sem leyniþjónusta danska hersins gaf út á síðasta sumri um árásarmöguleika Varsjárbandalagsins á danskt yf- irráðasvæði er hernaðarlegu mik- ilvægi Danmerkur út frá land- fræðilegri legu lýst með þessum hætti: — Umferðarleið, þar sem dönsku sundin eru samgönguæð milli Eystrasalts og heimshaf- anna. — Hindrun, þar sem nota má danskt land til að loka verslunar- og herflota Varsjárbandalagsins inni í Eystrasalti og einnig koma í veg fyrir, að skip NATO-ríkja komist inn á Eystrasalt. Auk þess getur sá, sem ræður yfir Dan- mörku heft flugferðir yfir og um svæðið. — Eftirlit, unnt er að fylgjast með ferðum um Eystrasalts- svæðið frá Danmörku. — Landherbækistöð, í Dan- mörku er bæði unnt að snúast til varnar og sóknar, þaðan er annað hvort unnt að gera gagnárás af hálfu NATO gegn sókn Varsjár- bandalagslanda í vestur eftir láglendinu við strendur Norður- Þýskalands eða sækja landveg úr norðri af hálfu Varsjárbanda- lagsins aftan að varnarsveitum NATO við austurlandamæri Norður-Þýskalands. Danskt landsvæði hefur sér- staka þýðingu bæði fyrir Bret- land og Noreg sem framvarnar- svæði og veitir Svíum öryggi gegn árás úr vestri. Þannig er Dan- mörk tengiliður milli heimshaf- anna og Eystrasalts, milli Norð- ur- og Mið-Evrópu og jaðarsvæði með tilliti til varna Mið-Evrópu. Danir líta því svo á, að óhjá- kvæmilega muni þeir dragast inn í hvers konar átök, sem leiða munu af íhlutun Sovétríkjanna utan landamæra Varsjárbanda- lagsins í Evrópu. Hvað gerist á Eystrasalti ef Sovétmenn ráðast inn í Pólland? Umsvif Varsjárbandalagsins á Eystrasalti á friðartímum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.