Morgunblaðið - 09.04.1981, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 09.04.1981, Blaðsíða 19
Eftirsókn manna í embætti alls konar hér landi endurspeglar ann- ars margt um stöðu og þróun efnahagsmála á íslandi, alveg eins og landflóttinn og mætti gjarnan velta þessu betur fyrir sér. En hvernig á embættið að vera? Nái tillaga kratanna fram að ganga, þá sýnist manni verða heldur litið eftir af embætti flug- málastjóra, þegar Landhelgis- gæzlan hefur tekið við eftirliti flugleiðsögutækja landsins og Keflavíkurflugvöllur er eins konar bannsvæði fyrir flugmálastjóra. Nærtækast verður þá að Vega- gerðin taki að sér rekstur og byggingar flugvalla landsins. Þá er stutt í að leggja Flugmálastjórn og flugráð niður í núerandi mynd og spara þar með stórfé. Eða ætli kratar séu nokkuð hlynntir fækk- un á embættum yfirleitt? Ég held að þetta sé nú ekki rétt þróun né æskileg, með tillit til mikilvægis og umfangs flugmála. Hins vegar má bera stjórn flugmála saman við stjórn vega- mála og vitamála. Engin „ráð“ eru starfandi þar. Þó virðast þessi embætti vera rekin alveg skamm- laust, og virðist ekkert „atvinnu- lýðræði" í flugráðsformi þurfa þar til. Er ekki kominn tími til endurskoða lögin um flugmálin og að minnsta kosti breyta þeim svo að sjálfur Ólafur þurfi ekki að starfa við aðstæður, sem að hans eigin mati eru lögbrot. Þarf að hafa flugráð eða vantar vegaráð og vitaráð? Er vænlegt að setja upp en eitt ríkisapparat til þess að keppa við einkaframtakið, þ.e. útvíkkaða flugrekstrardeild Land- helgisgæzlunnar f.h. Flugmála- stjórnar, Landmælinga og Land- græðslu ríkisins? væri skynsam- legt að taka Suðurlandsveg undan embætti Vegamálastjóra, fela hann umsjá samgöngunefndar Al- þingis, og ráða t.d. Ingólf á Hellu sem sérlegan framkvæmdastjóra þess vegar, í öðrum málum en þeim sem snerta umferðarmerki, — þau hafi vegamálastjóri áfram? ---------------- VI 1 . , -------------- MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRIL 1981 19 Hvenær kemur frumvarp frá kröt- um um Rakarastofu ríkisins? Það hefur aldrei þótt skynsemi í því á Islandi að hafa 5 formenn á einu skipi, hvað þá að skipta einu skipi niður í áhrifasvæði og girða á milli. Framtíðin Það eru risavaxin verkefni sem bíða þjóðarinnar í aðbúnaði innanlandsflugs. Vellir okkar úti á landi eru yfirleitt hrjúfir viðkomu og aðflugstæki og ratsjár eru af skornum skammti. Við höfum ekki ráð á öðru en að reyna að vinna að flugmálum með fyllstu skynsemi og forðast skipulagsvillur, kannski vegna persónulegra ýfinga. Og fyrir alla muni held ég, að við ættum að halda ríkisrekstri á flugi í lágmarki en reyna heldur að hlúa að einkaframtakinu. Það var ekki ríkið sem kom með flugið til Islands á sínum tíma, það var frekar að ríkið fari með það ef við ekki gætum okkar. Verðlagsákvæðaþvingun á far- gjöldum innanlands mun hefna sín og hefur þegar gert það, þegar Flugleiðir hafa neyðst til þess að selja yngri vélar og kaupa eldri til þess að bjarga lausafjárstöðu sinni. Hvenær ætla íslendingar að horfast í augu við það, að ekkert kemur í stað hagnaðar í rekstri, — ekkert. Hagnaðarlaus rekstur kemur verst niður á þeim sem eiga viðskipti við hann og endanlega tapa allir, neytandi og seljandi. Þetta sjáum við á símakerfinu, raflterfinu og hitaveitunni. Ég er sannfærður um að við getum gert stórátak til að bæta aðstöðu flugsins á landinu ef við höldum rétt á málunum og gildir raunar sama um aðrar samgöng- ur. Ef við ekki teljum sífellt sjálfir úr okkur kjarkinn og drekkjum okkur í barlómi, sósíalísku aftur- haldi og skriffinnsku, sem nógir • talsmenn eru fyrir, því miður. 31.03.1980, Q 1 orkl/ i i i »o i i SG-170H 3 tæki í einu. * Meiriháttar steríó samstæöa meö hátölurum, ívinsæla ,,silfur“ útlitinu. líf og fjör allan sólar^nnginn Hndalaus • Tívolí • Skemmtigarðar Rimini - ein af allra vinsælustu baðströndum Evrópu - iðandi af lífi og fjöri allan sólarhringinn. Veitingastaðir, diskótek, skemmtistaðir og næturklúbbar skipta þúsundum og alls staðar er krökkt af kátu fólki. Leiksýningar og hljómleikar listamanna úr öllum heimshornum eru daglegir viðburðir farandsirkusar koma ístuttarheimsóknirog víða troða upp ólíklegustu skemmtikraftar - jafnvel pegar þeirra er síst von! Einstaklega ódýrir og góðir veitinga- staðir ásamt fyrsta flokks íbúðum og hótelum fullkomna velheppnað sumar- leyfi á Rimini. Reyndir fararstjórar benda fúslega á alla þá fjölbreyttu mögu- leika sem gefast til stuttra ferða meðfram ströndinni. Róm - 2ja daga eða vikuferðir Feneyjar - „Hin sökkvandi borg“ Flórens - listaverkaborgin fræga San Marinó - „frímerkja-dvergríkið" ofl. ofl. • Sædýrasöfn • Leikvellir • Hjólaskautavellir • Tennisvellir • Mini-golf • Go-cars kappakstursbrautir • Hestaleigur • Rennibrautasundiaugar aeradria Adriatic Riviera of Emilia - Romagna (Italy ) diuiui aiocmidt * r Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.