Morgunblaðið - 09.04.1981, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1981
FASTEIGNA
HÖLUN
FASTEIGNAVIÐSKIPTI
MIÐB/ER - HÁALEITISBRAUT 58 60
SÍMAR 35300&35301
Við Melabraut
Sér efri hæð í tvíbýlishúsi.
Skiptist í 3 svefnherb., stofur,
eldhús, bað, þvottahús og búr
innaf eldhúsi. Bílskúrsréttur.
Laus nú þegar
Viö Hraunbæ
4ra herb. mjög góð íbúð á 3.
hæð ásamt herb. í kjallara.
Við Kleppsveg
4ra herb. íbúö á 2. hæð ásamt
herb. í risi.
Viö Hringbraut
4ra herb. íbúö þar af 2 stórar
stofur á 3. hæð. Laus nú þegar.
Viö Jörfabakka
4ra herb. íbúð á 1. hæð. Góö
sameign. Suöur svalir.
Viö Vesturberg
3ja herb. íbúö á 2. hæö.
Blöndubakka
3ja herb. íbúð á 3. hæð ásamt
herb. í kjallara.
Við Hraunbæ
3ja herb. íbúð á 2. hæð.
Viö Ásbraut
3ja herb. íbúð á 3. hæð. Ný
eldhúsinnrétting. Ný teppi.
Viö Smyrilshóla
3ja herb. glæsileg íbúö á
2. hæð. Þvottahús og
búr inn af eldhúsi. Inn-
byggður bílskúr á jarö-
hæð. íbúöin er ný og
fullfrágengin, en teppa-
laus. Til afhendingar
strax.
Viö Kríuhóla
2ja herb. ibúö á 2. hæð. Laus
fljótlega.
Viö Gautland
2ja herb. mjög góð íbúö á
jarðhæð.
Viö Grettisgötu
2ja herb. íbúö á 2. hæö í
steinhúsi.
Við Álftamýri
2ja herb. íbúð á 2. hæð.
Suðursvalir. Laus 1. júlí.
í SMÍÐUM
Viö Ásbúö
Einbýlishús aö grunnfleti 150
fm á einni hæð ásamt tvöföld-
um bílskúr. Selst fokhelt til
afhendingar nú þegar.
Við Kambasel
Endaraöhús á tveim hæöum
með innbyggðum bílskúr. Selst
fokhelt.
Eigum á söluskrá einbýlishús
og raðhús í vesturborginni og
Mosfellssveit og Garöabæ.
Teikningar á skrifstofunni.
Fasteignaviöskipti
Agnar Ólafsson,
Arnar Sigurösson,
Hafþór Ingi Jónsson hdl.
Heimasími sölumanns Agnars 71714.
ÞU AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
\l GLYSIM. \
SI\IIN\ ER:
22480
Jón Laxdal fær
góða dóma í Sviss
MORGUNBLAÐINU hafa ný-
lega borizt nokkrar úrklippur
úr svissneskum blöðum, þar
sem rætt er um leikritið
„Heimssön)ívarann“ og höfund
þess, Jón Laxdal.
Leikrit þetta var sýnt fyrir
áramótin síðustu á nokkrum
stöðum í Svíss, í litlum leikhús-
um eða veitingahúsum. Leik-
stjóri er Jón Laxdal, og leikandi
Jón Laxdal ásamt heimagerðri
leikbrúðu. Blöðin geta þess, að
Jón Laxdal sé þekktur fyrir
túlkun sina á aðalhlutverki í
sjónvarpsleikritinu Paradísar-
heimt, þar sem hann hafi sannað
leikhæfileika sína. Einnig er
þess getið að leikrit hans
„Heimssöngvarinn" hafi verið
þýtt og gefið út á fjórum tungu-
málum, og frumsýnt í Vestur-
Þýzkalandi árið 1979. Um frum-
sýninguna í Kaiserstuhl segir
blaðið Sudkurier meðal annars:
„Rúmlega 200 gestir komu að sjá
og heyra hinn þekkta leikara og
rithöfund Jón Laxdal í eins
manns leikriti hans, Heims-
söngvaranum ... Leikarinn var í
essinu sínu: mitt á meðal áhorf-
enda, í leikriti með bitru skopi,
lífsvizku, sorg og gleði ...“
Fyrir frumsýninguna í Basel
birtir Basler Zeitung viðtal við
Jón Laxdal. Þar segir blaðamað-
urinn, að Jón sé „mikill leikari",
og félagi Schauspielhauses Zúr-
ich, en nú vilji hann reyna sig í
litlu leikhúsi, þar sem hann geti
gert allt sjálfur. Öll blöðin rekja
nokkuð feril Jóns Laxdal, sem
búsettur hefur verið í Sviss um
nokkurra ára skeið. Benda þau á,
að með leikriti sínu vilji hann ná
til annarra áhorfenda en þeirra,
sem sækja stóru leikhúsin, og
segja, að þessi tilraun hans sé
sannarlega þess virði að sjá
hana.
Lækkun óbeinna skatta, niður-
skurður opinberra framkvæmda,
og hámark verðbóta á laun
meðal þess sem aðalfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins boðar
Aðalmálefni aðalfundar mið-
stjórnar Framsóknarflokksins
sem haldinn var um síðustu helgi
voru, að sögn Steingrims Her-
mannssonar formanns flokksins
á fréttamannafundi, efnahags-
mál, stjórnarskrármálið og kosn-
ingalög. Steingrimur sagði fund-
inn hafa verið vel sóttan og að
ekki hefði rikt þar eins mikil
spenna og áður. Þá gerði Stein-
grímur grein fyrir stjórnmála-
ályktun, sem samþykkt var á
fundinum. Fundinn sat einnig
Tómas Árnason viðskiptaráð-
herra.
í stjórnmálaályktuninni segir
m.a. að efnahagsaðgerðir ríkis-
stjórnarinnar hafi hlotið hinar
bestu viðtökur, og þar er þess
krafist að náð verði því markmiði
að koma verðbólgunni niður í 40 af
hundraði á þessu ári. Steingrímur
sagðist fagna þeim hljómgrunni
og sagðist fullviss að vilji væri hjá
þjóðinni.
Þá boðar ályktunin áframhald-
andi nauðsynlegar efnahagsað-
gerðir til að ofangreint markmið
náist og má þar nefna eftirfar-
'andi: beitt verði opinberum að-
gerðum til að koma í veg fyrir að
hækkun framfærsluvísitölu verði
yfir 8 af hundraði 1. maí. Til álita
kemur að lækka óbeina skatta og
auka niðurgreiðslur og mæta því
m.a. með frestun opinberra fram-
kvæmda.
Þá er sagt, að vextir af óverð-
tryggðum lánum eigi að lækka í
samræmi við hjaðnandi verðbólgu.
„Stuðlað verði að lækkun vöru-
verðs, m.a. með lánum til hag-
Ljósm. Mbl. Kristján.
Tómas Árnason og Steingrímur Hermannsson á fréttamannafundin-
um. Til vinstri er Þráinn Valdimarsson framkvæmdastjóri Framsókn-
arflokksins.
kvæmari vörukaupa. Dregið verði
úr hækkunum á gjaldskrám opin-
berra stofnana með ráðdeild í
rekstri. Hækkun búvöruverðs og
fiskverðs verði takmörkuð eins og
frekast er kostur. Niðurgreiðslur á
landbúnaðarvörum verði auknar í
samræmi við ákvæði stjórnarsátt-
málans. Leitað verði nýrra leiða
til að mæta stórauknum olíu-
kostnaði fiskiskipa."
Þá segir einnig: „Ef nauðsynlegt
reynist verði leitað eftir samstöðu
með launþegum um hámark verð-
bóta launa 1. september og 1.
desember nk., enda verði sú kaup-
máttarskerðing sem því fylgir
bætt á lægri laun með lækkun
skatta, tolla eða hækkun fjöl-
skyldubóta." Og „leitað verði eftir
samkomulagi um almennar reglur
varðandi útreikning vísitölu sem
miða að því að draga úr hraða
verðbólgunnar".
Þá fjallar í stjórnmálaályktun-
inni um framleiðslustefnu Fram-
sóknarflokksins, mennta- og fé-
lagsmál, utanríkismál, flugstöðv-
arbygginguna á Keflavíkurflug-
velli og stjórnarskrármál, en mið-
stjórn felur þingflokki og fram-
kvæmdastjórn að vinna að endur-
skoðun stjórnarskrárinnar og
leggur hún áherslu á eftirfarandi:
„Miðstjórn telur fjölgun kjör-
dæma koma til greina, þó verði í
aðalatriðum haldið sömu kjör-
dæmaskipan og verið hefur síðan
1959. Vægi atkvæða verði leiðrétt
með hliðsjón af því hlutfalli, sem
var, þegar núverandi kjördæma-
skipan var ákveðin. Þetta verði
gert með fjölgun kjördæmakjör-
inna þingmanna og breyttum regl-
um um úthlutun uppbótarþing-
sæta. Fjölgun þingmanna verði þó
takmörkuð eins og frekast er unnt.
Kjördæmakjörnum þingmönnum
verði ekki fækkað í neinu kjör-
dæmi miðað við núverandi kjör-
dæmaskipan."
Þá var fjallað um persónu-
bundnara kjör, eina málstofu Al-
þingis, að kosningaréttur miðist
við 18 ára og að sjálfstæði sveitar-
félaga verði aukið.
Raðhús við
Hvassaleiti
Var að fá í einkasölu vandað raöhús á eftirsóttum
staö við Hvassaleiti. Á aöaihæö er: 2 rúmgóöar
samliggjandi stofur, húsbóndaherbergi, eldhús meö
borðkrók, skáli, snyrting og ytri forstofa.
Á efri hæö er: 3 svefnherbergi, baö og gangur.
í kjallara er: stórt herbergi meö innréttingum og
parketi á gólfi, þvottahús, búr, snyrting og bílskúr.
Húsiö er í góöu standi, innréttingar miklar og
vandaöar og arin í stofu. Góöur garður. Mikiö útsýni.
Teikningar til sýnis á skrifstofunni.
Æskilegt er aö fá 4—5 herbergja íbúö upp í kaupin
og má hún vera í blokk.
Upplýsingar eru aðeins gefnar á skrifstofunni.
Árnl Stefðnsson. hrl.
Suðurgótu 4. Slmi 14314
Austurbæjarbíó frum-
sýnir „Helförin 2000“
í DAG frumsýnir Austurbæjarbíó
kvikmyndina „Holocaust 2000“.
Leikstjóri er Alberto de Martino. í
aðalhlutverkum eru Kirk Douglas,
Simon Ward, Agostina Belli, Ant-
hony Quayle og Virginia
McKenna.
I myndinni, sem gerð er í
samvinnu af breskum og ítölskum
aðilum, kemur fram hrollvekjandi
framtíðarsýn, blandin fornum
trúaratriðum og spádómum.
Sýning Sigrúnar opin til 25. apríl
NÚ STENDUR yfir sýning á
collage-myndum eftir Sigrúnu
Gísladóttur í verslun Kristjáns
Siggeirssonar að Laugavegi 13.
Sigrún sýnir þar 19 myndir.
Sýningin er opin frá 9—6 alla
virka daga og stendur til 25. þessa
mánaðar.