Morgunblaðið - 09.04.1981, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 09.04.1981, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1981 33 Af stofnfundi Samtaka heilbrigðisstétta 15. janúar 1969. Sitjandi frá vinstri: Maria Pétursdóttir frá Hjúkrunarfélagi íslans, Arinbjörn Kolbeinsson frá Læknafélagi íslands, Elísabet Þorsteinsdóttir og Bergljót Halldórsdóttir frá Meinatæknafélagi íslands og Kristin Jónasdóttir, Ljósmæðrafélagi íslands. Standandi fyrir aftan eru Sólveig Jóhannsdóttir frá Sjúkraliðafélagi íslands, Vivian Svavarson og Sigriður Gisladóttir frá Félagi isl. sjúkraþjálfara, Katrin Guðmundsdóttir frá Félagi gæslusystra og Þórdis Ólafsdóttir frá Ljósmæðrafélagi íslands. Karlmennirnir, sem standa aftast, eru: Haukur Benediktsson og Georg Lúðviksson frá Félagi forstöðumanna sjúkrahúsa, Þórhailur Bjarnason frá Sjúkraliðafélagi íslands, Einar Benediktsson og Almar Grímsson frá Lyfjafræðingafélagi íslands, Stefán Gunnlaugsson og Gunnar Dyrset frá Tannlæknafélagi íslands. Af fundi voru farnar, þegar myndin var tekin, Helga Birna Gunnarsdóttir frá Félagi gæslusystra og Elín E. Stefánsson frá Hjúkrunarfélaginu. fund um sýkingar í sjúkrahúsum 1969, fund um áskorun frá al- þjóðaheilbrigðismálastofnuninni 1970 um bann við tóbaksauglýs- ingum, sem samþykkt var, full- trúafund um greinargerð og tillög- ur varðandi heilbrigðismál og breytingartillögur 1971, og annan fund sama ár, þar sem kynntur var og tekinn til umræðna hjúkr- unarkvennaskorturinn og hjúkr- unarnám við Háskóla íslands. En á þeim fundi var lögð áhersla á mikilvægi þess að efla grunn- menntun og viðhaldsmenntun heilbrigðisstétta, og að efla þyrfti fræðslu til almennings í heilbrigð- ismálum. Annar almennur fundur var haldinn haustið 1973 um nám heilbrigðisstétta innan Háskólans. Og árið eftir, 1974, áttu samtök heilbrigðisstétta aðild að ráð- stefnu, sem Nordisk Federation for Medicinsk Undervisning hélt um vissa þætti í menntun lækna, um hjúkrunar- og sjúkraþjálfara- nám í Háskóla íslands, ásamt ýmsum atriðum er snerta sam- menntun heilbrigðisstétta. Og enn var efnt til fundar um menntun heilbrigðisstétta í Nýja hjúkrun- arskólanum vorið 1977 og þá með tilliti til fjölbrautaskóla, sérskóla og háskóla og boðið skólastjórum Fjölbrautaskólans í Breiðholti, Hjúkrunarskólans, Lyftæknaskól- ans, Sjúkraliðaskólans og Þroska- þjálfaskólans. Þá hafa Samtök heilbrigðis- stétta t.d. beitt sér fyrir fundum um starfsréttindi heilbrigðis- stétta, 1978, þar sem Ingimar Sigurðsson deildarstjóri í heil- brigðisráðuneytinu var frummæl- andi, um matvælapólitík á íslandi, þar sem dr. Jónas Bjarnason efnafræðingur hélt erindi og ráðstefnu vorið 1979 í Norræna húsinu um efnið: Hvaða áhrif geta heilbrigðisstéttir haft á kostnað og arðsemi heilbrigðisþjónustu? Útvarpsskóli um hollustuhætti Að lokum ræddum við um fram- tíð Samtaka heilbrigðisstétta. — Davíð A. Gunnarsson fram- kvæmdastjóri ríkisspítalanna hef- ur tekið við formennsku í samtök- unum og finnst mér það lofa góðu, segir María Pétursdóttir. Ég hefi unnið með honum í stjórn samtak- anna. Hann er hugmyndaríkur og hæfilega gagnrýninn, þ.e.a.s. hann deilir ekki á til að rífa niður heldur fremur til að koma með ábendingar um það, sem þarf að betrumbæta. Undir hans stjórn vona ég að samtökin haldi áfram góðum samskiptum við heilbrigð- isyfirvöld og verði áfram hlutlaus aðili, sem þau geta leitað til eftir þörfum. — Þá vona ég að aukin verði alhliða fræðslustarfsemi, ekki hvað síst til almennings. Til þess væri Bréfaskólinn sennilega heppilegur samstarfsaðili, sér- staklega ef hann fengi hlutverki að gegna sem útvarpsskóli. Heil- brigðisstéttir gætu þá á hentugan máta rækt skyldu sína við að upplýsa almenning um hollustu- hætti o.fl., en í því efni hefur Tannlæknafélagið verið öðrum til fyrirmyndar. Sér til aðstoðar hefur Davíð góða meðstjórnendur. Varafor- maður er Svanlaug Árnadóttir, ritari Anna Atladóttir, gjaldkeri Magnús R. Gíslason og Arinbjörn Kolbeinsson meðstjórnandi. Það hefur alltaf verið góður sam- starfsandi innan samtakanna og ríkt skilningur á því að menn koma saman þar til að vinna að sameiginlegum áhugamálum og styðja hverjir aðra. Vonandi eiga samtökin fram undan heillaríka starfsemi fyrir þjóðfélagið, sagði María Pétursdóttir að lokum. - E.Pá. þannig þátt í keppninni. Þátt- Samvinnuferðir 130 taka tilkynnist sem fyrst til formanns félagsins, Ingunnar Ásmundur Pálsson 112 Hoffmann, í síma 17987 eða til ritara, Öldu Hansen, í síma Bridgedeild 17933. Rangæinga- Bridgefélag félagsins Reykjavíkur Staðan í barómeterkeppninni: Birgir ísleifsson — Nýlega er lokið sveitakeppni Karl Stefánsson 152 hjá félaginu, þar sem spilaðir Arnar Guðmundss. — voru stuttir leikir, tveir á kvöldi. Gunnar Helgason 147 Sveit Símonar Símonarsonar Guðbjartur Stefensen — sigraði örugglega, hlaut 155 stig. Pétur Einarsson 86 Með Símoni voru í sveitinni: Jón Gunnar Bragason — Ásbjörnsson, Jón Hjaltason og Ingi Már Aðalst.ss. 19 Hörður Arnþórsson. Baldur Guðmundss. — Röð næstu sveita: Eiríkur Helgas. 5 Sigurður Sverrisson 139 Meðalskor 0. í Knupmannahöf n FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTAR- STÖÐINNI Fenner Reimar og reimskífur Ástengi Fenner Ástengi Vald Poulsen Suðurlandsbraut 10, •ími 86499. MYNDAMÓT HF. PRENTMYNDAGERÐ AÐALSTRÆTI f - SÍMAR: 17152- 17355 VIÐTALSTIMI ♦ Alþingismanna og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins I Reykjavík Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðistlokksins verða til viðtals i Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardðgum fré kl. 14.00 til 16.00. Er þar takið á móti hvars kyna tyrirapumum og ábendingum og ar ölium borgarbúum boðið að nottaara sár vtðtatstima þassa. Laugardaginn 11. apríl veröa til viö- tals Páll Gíslason og Hilmar Guö- laugsson. SIEMENS Vestur-þýzk gædavara Nýja S/WAMAT373 þvottavélin fyrirferðarlítil en fullkomin Aðeins: 65 cm á hæö. 45 cm á breidd. Sparnaöarkerfi. Sparnaöarstillir fyrir hálft þvottamagn. Frjálst hitastigsval. Vinduhraði: 800 sn/mín. SMITH & N0RLAND H/F., Nóatúni 4,105 Reykjavík. Sími 28300. MORGUNBLAÐIÐMORG MORGUNBLAÐIÐMOR MORGU^LAÐIÐMQE MORGU) MORGl/ýí Blaó- burðar- fólk óskast Austurbær Lindargata Laugavegur frá 1-33 WÐMORGUNBLAÐiU iQMORGUNBLAOIÐ y// —^RGUNBLAÐIO ^NBLAÐIÐ IBLAÐIÐ ÍBLAÐIÐ 'ALAÐIÐ -\.AÐIÐ ^AÐIÐ \\OIÐ *ÐIÐ ^ÖLAÐIÐ ^ÐIÐ )IÐ CADiD )IÐ )IÐ IÐIÐ kOIÐ Hringiö í síma MORGUtöS 35408 MORGUNBÖ^.----- MORGUNBLAÐfi^//J>#^£AÐÍ MORGUNBLAÐIÐMbv^ íNBLAÐIÐM olmOIÐ [iBLAÐIÐ ^LAÐIÐ f<lBLAÐIÐ ^JNBLAÐIÐ ZiUNBLAÐIÐ óGUNBLAÐIÐ mRGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.