Morgunblaðið - 09.04.1981, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 09.04.1981, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1981 37 Bryndís Þorsteins- dóttir — Minning Fædd 27. júní 1913. Dáin 24. mars 1981. í dag, fimmtudag, verður lögð til hinztu hvílu í Fossvogskirkjug- arði, frænka mín Bryndís Þorst- einsdóttir, en bálför hennar var gerð í New York þann 28. marz síðastliðinn. Hún var fædd 27. 6. 1913, næst elzt átta barna hjónanna Þorst- eins Guðlaugssonar og Astríðar Oddsdóttur. Bryndís stundaði nám við Kvennaskólann og útskrifaðist þaðan 1931. Síðan vann hún í Alþýðubrauðgerðinni til ársins 1945 er hún hélt til Bandaríkj- anna. Árið 1951—1957 starfaði hún hér heima og stýrði þá verzlun Kron á Grímsstaðaholti. Verðslun Kron við Fálkagötu var þá eina verzlunin í hverfinu og naut vezlunarstjórinn virðingar hins sívaxandi viðskiptamanna- hóps. Árið 1957 hélt hún á ný til Bandaríkjanna og bjó æ síðan í New York. Síðustu tuttugu árin vann hún hjá virðulegu skartgrip- afyrirtæki Tiffany’s eða þar til í haust er leið, er hún hafði náð eftirlaunaaldri. Gafst nú loks tæk- ifæri til að sinna áhugamalum og hugðist frænka mín ferðast, en eiga sér áfram samastað í litlu íbúðinni í Greenwich Village. Því miður varð minna úr því en ætlað var, hún andaðist snögglega af völdum hjartameins þann 24. marz síðastliðinn. Ég var eionn þeirra fjölmörgu, sem heimsóttu Bryndísi í New York og nutu leiðsagnar hennar um stórborgina. Þessa stórborg stórborganna sem býr yfir hvað hrikalegustum andstæðum. AF orðum hennar fékk maður skilið það undarlega aðdráttarafl þessa staðar að hrífa til sín mannverur úr hverjum heimskrika og heilla, þannig að upp frá því eiga þeir hvergi annars staðar heima. í Leroy Street 25 býr nú engin Binna, að sýna þér Metropolitan Opera eða Radio City Music Hall, engin Binna frænka að temja þér brosmildi og virðingu við utan- garðsfólk stórborgarinnar. Við stöndum fátækari eftir, nú þegar Binna er öll, en þó rík af kynnum við þessa hlýju og víð- sýnu konu. Blessuð sé minning hennar. B.I. Föðursystir mín, Bryndís Þor- steinsdóttir lést að heimili sínu í New York 24. mars sl. Hún var fædd í Reykjavík þ. 27. júní 1913. Foreldrar hennar voru Ástríður Oddsdóttir og Þorsteinn Guðlaugsson sjómaður. Ólst hún upp í stórum systkinahópi, fyrst á Ránargötunni og síðan á Hring- braut 88. Alls áttu amma og afi 10 börn. Tvö þeirra, Margrét og Víglundur, létust á unga aldri. Upp komust þau Guðlaugur, Bryndís, Guðrún, Þorsteinn, Har- aldur, Margrét, Ásta og Steinunn. Þeir Guðlaugur og Þorsteinn eru báðir látnir fyrir nokkrum árum. Ein systirin, Margrét, býr í Den- ver, Colorado. Binna frænka lauk námi frá Kvennaskólanum í Reykjavík vor- ið 1931. Hún hélt alla tíð mikilli tryggð við skólasystur sínar, og hafði ráðgert að koma til íslands nú í vor að halda hátíðlegt 50 ára skólaafmæli þeirra. Að loknu námi í Kvennaskólan- um hóf Binna skrifstofustörf í Reykjavík þar til hún fluttist til Bandaríkjanna árið 1945. Aftur lá þó leið hennar heim 1949, og starfaði hún næstu árin sem verslunarstjóri hjá KRON á Fálkagötu. Eftir fimm ára dvöl á íslandi hélt hún á ný til Banda- ríkjanna, og þar starfaði hún síðan og átti heimili sitt til æviloka. Binna frænka mín er tengd öllum mínum fyrstu bernsku- minningum. Ástúð hennar, gjaf- mildi og umhyggja fyrir sínum nánustu einkenndi alit hennar líf. Næst foreldrum mínum hefur enginn vakað eins yfir velferð minni og velgengni á uppvaxtarár- unum og hún. Tryggð hennar hefur fylgt mér alla tíð og seinna mínum börnum og heimili. Binna frænka giftist aldrei né eignaðist börn sjálf, en hag allra systkinabarna sinna bar hún jafn- an fyrir brjósti sem væru það hennar eigin börn. Þótt hún byggi í fjarlægu landi fundum við ætíð fyrir nálægð hennar. Margir eru þeir úr fjölskyldunni sem hafa notið gestrisni á heimili hennar í New York og notið leiðsagnar hennar um stórborg- ina. Það er meira skarð fyrir skildi í svo stórum fjölskylduhóp þegar Binna frænka er horfin af sjón- arsviðinu. I gegnum árin hefur hún verið sameiningartákn okkar allra. Þetta hljótum við öll að finna á kveðjustund og þakka henni af alhug. Guð blessi minningu hennar. Ásta Bryndís Þorsteinsdóttir Minning: Haraldur Jensson fyrrum varðstjóri Fæddur 12. desember 1910. Dáinn 2. apríl 1981. É« lyfti Jjcr hlikandi lifsins veijí. Ijúsblómin xrlp ók af himnt'skum sveijf. og lt'KX mér um heita hvarma. E.B. Það er farið að þynnast í röðum minna góðu vina og starfsfélaga frá því ég byrjaði sem fangavörð- ur hjá lögreglustjóraembættinu í Reykjavík árið 1946. Með Haraldi er hniginn einn í hópi traustustu og beztu vina minna. Víst er um það, að 35 ára straumkast hefur tekið mikið með sér og auðvitað gefur hann nokkuð í staðinn, og vissulega kemur maður í manns stað. En sama rósin sprettur aldrei aftur. Rúm Haraldar Jenssonar verður vand- fyllt bæði heima og að heiman. Haraldur var einstakt prúðmenni, sem aldrei haggaðist hvað sem á gekk. Ég veit að þeir, sem bezt þekktu manninn og fyígdust með innstu hugarhræringum hans í önn dagsins, votta með mér, að öryggið sem hann bjó yfir bæði í huga og starfi hafi fært okkur sanninn um að hvar sem hann fór, var hraust sál í sterkum likama. Frábær starfsferill Haraldar bæði sem landverkamanns, sjómanns, lögreglumanns, varðstjóra og síð- ast en ekki sízt læknabílstjóra er að sjálfsögðu manngildi hans að þakka og hæfileikum að laða sig að mönnum og staðháttum hverju sinni, hvar sem var. Skaphöfn Haraldar var einstök. Öll þau ár sem við unnum saman, og hann þá oft sem varðstjóri, varð að taka vandasamar ákvarð- anir og ekki voru að geði þeirra, sem hann deildi við, og urðu þeir oft vondir. Þá brosti Haraldur sínu venjulega brosi og sagði með sinni alkunnu ró: „Þú sefur hjá okkur í nótt vinur og svo þegar þú vaknar til lífsins, þá skilur þú mig betur." Haraldur vissi að sá sem hrasar á göngu sinni, afmyndar spor sín. Ég tileinka þessum látna vini mínum þessi kunnu og fleygu orð: „Hafðu hljótt um þig. Drag skó þína af fótum þér, því að sá staður,er þú stendur á, er heilög jörð.“ Vissulega áttu þessar setn- ingar vel við sálarlíf Haraldar og ekki hvað sízt við síðstu störf hans í mörg ár, þar sem hann vann og vakti um nætur, þegar aðrir hvíld- ust og sváfu. Það mátti ekki þeyta bílflautuna, ekki þramma harka- lega upp stiga eða skella hurðum. Hans atvinna var að keyra lækn- ana milli húsa um nætur þeirra erinda að lina kvalir hinna sjúku, sem áttu bágt og þoldu ekki strákslega umgengni. Haraldur fæddist 12. desember 1910 að Reykjanesi í Grímsnesi. Voru foreldrar hans Jens Jónsson trésmiður og Oddbjörg Stefáns- dóttir. Þau giftust ekki og bjuggu ekki saman, svo að það kom í hlut móðurinnar að sjá drengnum fyrir daglegum þörfum þar í sveit. Árið 1926 nánar tiltekið 16 ára gamall flyzt hann til Reykjavíkur og stundar þar alla þá vinnu sem föl var og hægt var að fá og áður er getið. Árið 1937 kvæntist Haraldur fyrri konu sinni Björgu Jónsdótt- ur Barðasonar, skipstjóra frá Siglufirði, og átti með henni fjögur börn, tvær dætur og tvo drengi. Elzta barn þeirra, Helga, sem á sínum tíma var sunddrottn- ing íslands, synti úr Harðarhólma til lands eins og alnafna hennar gerði forðum daga. I Hólmfríður, er búsett norður í Ólafsfirði, gift Barða Þórhalls- syni, bæjarfógeta. Henni kynntist ég fyrir tæpum tveimur árum á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði, þar sem við vorum sjúklingar. Hvern dag kom pabbi hennar í heimsókn og gerði okkur málkunnug. Aldrei var þessi vinljúfi sæmdarmaður svo mikið að flýta sér, að hann ekki miðlaði mér nokkrum mínút- um af þeim tíma, sem dótturinni bar. Árið 1954 missir Haraldur konu sína frá börnum innan og um fermingaraldur. Þær systur, þó ungar væru, sáu um heimilið og bræður sína barnunga í full tvö ár. Þá verða aftur hamingjusamlega þáttaskil í lífi Haraldar, er hann kvæntist ungri og glæsilegri konu, Þórunni Stefánsdóttur frá Skip- holti í Árnessýslu og átti með henni þrjár dætur, sem allar eru heima ógiftar, sú yngsta fjórtán ára. Ég þekkti ekki konur Haraldar og börn þeirra nema Helgu mest af afspurn, þar til ég kynntist frú Hólmfríði eins og áður segir. Hún talaði ekki mikið um sjálfa sig en meira um stjúpu sína, sem hún taldi í fyrstu röð kvenna bæði að sjá og reyna og aldrei gerði hún mun á sínum eigin börnum og okkar, sem vorum henni ekki skyld. Hálfsystur mínar eru allar bæði fallegar og góðar, sagði Hólmfríður. Haraldur var búinn að vera frá vinnu í full tvö ár og nokkrar vikur á spítala, oftast sárþjáður þar til yfir lauk. Hann verður jarðsunginn í dag frá Fossvogs- kapellu klukkan þrjú. Ég votta eiginkonu, börnum og öllum vinum Haraldar mína dýpstu samúð. Góða ferð inn í friðinn og sæluna. Bjarni M. Jónsson. Tölvuskólinn Borgartúni 29 sími 25400 Tölvunámskeið ★ Viltu skapa þér betri aöstööu á vinnumarkaðnum? ★ Viltu læra aö vinna meö tölvu? ★ Á námskeiöum okkar lærir þú aö færa þér í nyt margvíslega möguleika sem smátölvur (micro- computers) hafa upp á aö bjóöa fyrir viöskipta- og atvinnulífið. ★ Námið fer aö mestu fram meö leiösögn tölvu og námsefniö er aö sjálfsögu allt á íslensku. Náms- efniö hentar auk þess vel fyrir byrjendur. ★ Á námskeiöunum er kennt forritunarmálið BASIC, en þaö er langalgengasta tölvumáliö sem notaö er á litlar tölvur. Innritun í síma 25400. STIL-LONGS ULLARNÆRFÖT NÆLONSTYRKT DÖKKBLÁ FYRIR BÖRN OG FULLORDNA SOKKAR MEÐ TVÖFÖLDUM BOTNI ULLARLEISTAR DÖKKBLÁIR (LOÐNIR INNAN) • VINNUFATNAÐUR LEÐURHANSKAR GÚMMÍHANSKAR VINNUFATNAÐUR SJÓFATNAÐUR REGNFATNAÐUR VARMAPOKAR KLOSSAR SVARTIR OG BRÚNIR MED OG ÁN HÆLKAPPA • BAUJUSTENGUR ÁL OG PLAST ENDURSKINSHÓLKAR BAUJULUKTIR LÍNUBELGIR NÓTABELGIR BAUJUBELGIR TROLLASAR DURCO-PATENTLÁSAR %“, v«“ SALTSKOFLUR ÍSSKÓFLUR GRASLEPPUNET RAUÐMAGANET SILUNGANET FLOT- OG BLÝTEINAR NETAFLOT HAKARLAÖNGLAR SKÖTULÓÐARÖNGLAR ÞUNGAVÖRU- STREKKJARAR TJÖRUHAMPUR, BIK KALFAKTKYLFUR KALFAKTJÁRN FERNISOLÍA KARBOLÍN BLAKKFERNIS HRÁTJARA STORZ- SLÖNGUTENGI STORZ-SLÖNGUSTÚT AR URUNASLÖNGUR GUMMISLONGUR ALLAR STÆRÐIR PLASTSLÖNGUR GLÆRAR MEÐ OG ÁN INNLEGGS VELATVISTUR í 25 KG BÖLLUM HVÍTUR OG MISL. GRISJUR í RÚLLUM ANANAUSTUM SÍMI 28855 Opiö laugardaga 9—12

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.