Morgunblaðið - 28.06.1981, Side 33

Morgunblaðið - 28.06.1981, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ1981 33 Miklar fjárfestingar þurf a traustan grundvöll eftir Guðjón F. Teitsson Fiskiskipið Silljo (síðar Gullfinnur) í marz 1979 hóf útgeröarmaður í Molde í Noregi útgerð á skipinu Silljo, sem honum var þá afhent nýsmíðað frá Sterkoder Mek. Verksted A/S í Kristiansund. Var skip þetta i fjölmiðlum nefnt verksmiðjuskip og að búnaði tal- ið fullkomnasta fiskiskip i eigu Norðmanna. Lýsing Silljo var í aðalatriðum þessi samkv. Norsk Veritas: 15% br. tonn, 752 nt. tonn, mesta lengd 65,67 m, milli lóðl. 58,5 m, breidd 13,62 m, djúprista með fullri hleðslu 6,16 m, tvær aðalvélar samtals 4500 hestöfl á einum skrúfuás, tvær hliðarskrúfur. Útgerð skipsins á heimamiðum við Noreg virðist frá upphafi hafa gengið miður vel, og var í því sambandi knúið á um sérréttindi til veiða, sem stjórnvöld töldu sig ekki geta veitt með tilliti til útgerðar annarra skipa og ýmissa ákvæða um fiskveiðar. Virðist því eigandi Silljo seint á árinu 1980 hafa reynt að leigja skipið til veiða á vegum útgerðarfélags í Máretaníu í Vestur-Afríku, en það fór á sömu leið, að tap varð á rekstrinum, og var skipið m.a. kyrrsett í Las Palmas á Kanarí- eyjum vegna rekstrarskulda. Hinn norski eigandi Silljo er sagður hafa gert örvæntingarfull- ar tilraunir til að halda skipinu og gera það út, en lánardrottnarnir — með Norsk Skibs Hypotekbank, Statens Laaneinstitutt for Skips- byggeriene og Sterkoder Mek. Verksted í broddi fylkingar — gátu ekki á það fallizt, og var skipið í janúar sl. selt útgerðar- manni 1 Færeyjum, samkv. frá- sögn Norges Handels og Sjöfarts- tidende hinn 29. maí sl., fyrir 33,5 millj. n.kr. að mestu á skuldabréf- um. I Færeyjum hlaut skipið nafnið Gullfinnur, en útgerðin við Fær- eyjar virðist einnig hafa gengið erfiðlega, því að seint í maí, eftir aðeins 4-ra mánaða útgerð, var sterkur orðrómur um að útgerðar- maðurinn væri að gefast upp, svo að hinir norsku lánardrottnar yrðu að taka við skipinu á ný, og voru eftirgreindar orsakir nefnd- ar: Mikill fjármagnskostnaður (sennilega þrátt fyrir mikla af- skrift upphaflegs smíðaverðs), minni loðnuafli en reiknað hafði verið með og svo sjálfsagt, eins og í Noregi, mikill rekstrarkostnað- ur, t.d. í olíu fyrir þetta skip með öflugum vélabúnaði. BotnvörpunKurinn Ottó N. Þorláksson Framanritað er íhugunarvert fyrir íslendinga, m.a. með tilliti til þess, að Bæjarútgerð Reykjavíkur var fyrr í þessum mánuði að móttaka frá íslenzkri skipasmíða- stöð nýjan togara, sem sagður er kosta 65 millj. nýkr. (samsvarandi 52,8 millj. norskra kr.), og er þó að stærð aðeins 26—30% miðað við áður nefnd nettó/brúttó-mál Al GI.YSING \ SIMINN KR: 22480 Silljo, $em ekki virðist hægt að gera út frá Noregi eða Færeyjum með 33,5 millj. norskra kr. stofn- verðskostnaði. Hlýtur því að vakna sú spurn- ing, hvort nokkrar líkur bendi til þess, að hægt verði að gera út hinn nýja togara Bæiarútgerðarinnar nema með stórkostlegri afskrift stofnverðs á kostnað skattborgar- anna, því að spariféð, að mestu geymdur, óétinn vinnuarður fjöldans, borgar nú ekki lengur niður í jafnríkum mæii og áður hvers konar fjárfestingar út á lánsfé. Silljo við bryggju í Björgvin. Akandi til AMSTERDAM? Nei, viö getum tæplega mælt með ökuferð frá Islanditil Amsterdam! Við getum hins vegar bent á auðvelda leið til þess að ferðast akandi áeigin bifreið frá Amsterdam til allra áttaí Evrópu. háttar. Þegar þér hentar er billinn síöan sendur heim og unnt er að fljúga til íslands á nýjan leik bæði frá Amsterdam og Luxemburg. Pakkafargjald. ítengslum við Amsterdamflugið og með samvinnu við Eimskip bjóðum við sérstakt „pakka- fargjald" fyrir flug og flutning á bifreið. Kynntu þérsérfargjaldið vandlega, reiknaðu dæmið til fulls og vertu viss um að útkoman kemur þér verulega á óvart! Einfalt og þægiiegt. þú skiiar bílnum inn til Eimskips á miðvikudegi, honum erekið um borð ÍÁIafosseða Eyrarfoss, og lagt er af stað til Hollands á fimmtudagsmorgni. Þú flýgur síðan áhyggjulaus utan áföstudeginum, eyðir helginni (Amsterdam og bíllinn bíður þín í Rotterdam á mánudegi. ♦>úræður ferðinni .’Þú ert þinn eigin húsbóndi í þessum ferðum, ákveður á eigin spýtur lengd ferðar- innar, fjölda áfangastaða og annað þess FERDASKRtFSTOFAN 1“ URVAL^r STURVOLL SÍM! 26900 VIÐ AUSTURVOLL n i L l

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.