Morgunblaðið - 28.06.1981, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1981
Ilóparnir stilla sér upp fyrir boðhlaupið
i'J melka
sumar
Sumarblússui með
írotté íóðri
BANKASTRÆTI 7 ■ AÐALSTRÆTI4
Jónsmessumót
fyrir börn á skóladag-
heimilum á Fellavelli
Jónsmessunótt ’81 var haldið á Fellavelli í Breiðholti í
gær og fyrradag og kepptu þar born á aldrinum 6—10 ára í
ýmsum leikjum, húlahoppi, limbó, pokahlaupi, viðstöðulaus-
um, parís, boðhiaupi og fieiru. SkóladaKheimili Reykjavíkur
standa fyrir mótinu og þátttakendur eru frá öllum
skóladaRheimilum í borginni. Börnunum var skipt í hópa og
svo skiptust hóparnir á að fara í leikina á ýmsum stöðum á
vellinum. Hver hópur hafði sitt merki í barminum.
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
M AK.I-VSIK l'M ALLT I.WD ÞEGAR
l»l U l.LVSIR I MORCil NBLAÐINl
Krakkarnir borðuðu nesti kl.
3, og fóru svo í boðhlaup yfir
völlinn. Ekki varð þó ljóst hver
sigraði í hlaupinu, enda urðu
sumir uppteknir af öðru á
leiðinni yfir völlinn. Einn af
þeim kappsömustu Björgvin,
sjö ára (að verða), gaf sér þó
tíma til að ræða við blm.
„Já, ég held með KR, samt er
Valur ágætur," sagði Björgvin.
„Við fórum í viðstöðulausan,
sippuðum, gengum á dósastult-
um og svoleiðis. Ég er í Mela-
skóla, svo æfi ég líka með KR í
A-flokki. Mér fannst skemmti-
legast í viðstöðulausum," sagði
Björgvin og mátti svo ekki vera
að meiru.
Elísabet Auður Torp, 10 ára
var í kanínuhoppi í hóp 7-B. —
Hvernig er kanínuhopp? — Æ
maður hoppar bara svona.
Einhver var farinn að kalla
„Elísabet pæja“ áður en lengra
var haldið og Elísabet bað
kurteislega um að fá að fara
núna. Hún sagðist þó vera í
Hólabrekkuskóla og fannst
mest gaman í frímínútunum.
Hallgrímur Indriðason varð
sjö ára nýlega. Honum fannst
skemmtilegast að sippa og átti
grænt sippuband heima. Þótt
hann léki sér mikið sagðist
hann þó hafa nógan tíma til að
læra. Honum fannst skrift
skemmtilegust í skólanum.
Birgir Oling var nýkominn í
mark úr boðhlaupinu þegar
blm. talaði við hann. „Mér
fannst mest spennandi að
hoppa yfir balann en ég datt
ekki í hann og ég ætla ekki að
verða hlaupari," sagði hann og
hafði sýnilega mestan áhuga á
því að tekin yrði mynd af
honum. — Hvað ætlarðu þá að
verða? „Ég veit það ekki,
kannski lögga."
„Strákar, það kemur mynd af
CAROXIV er á bragóió ojj s> kurlausl
CAROXIN er bæðl til með piparmyntu- og lakkrísbragði
CAROXIN gefur sérstakt, frískandi og hreint
CAROXIN inniheldur ”brintoverilte’;
enn hvitari.
*
st f apotekum
Grensásvegi 8 Sími84166