Morgunblaðið - 28.06.1981, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ1981
43
Biskupskjör stendur nú sem hæst:
Um helmingur
atkvæða kominn
BISKUPSKJÖR stendur nú yfir
(>K að söKn Baldurs Möller ráðu-
neytisstjóra i dómsmálaráðu-
neyti, sem á sæti i kjörstjórn
veKna kosninKanna. streyma nú
til ráðuneytisins bréf, sem inni-
halda atkva'ðaseðla kjósenda. Á
Baldur Möller ráðuneytisstjóri.
kosninKu að Ijúka eÍKÍ síðar en 2.
júlí. Baldur Möller saKðist áætla
að um eða yfir heiminKur at-
kvæða hefði þegar skilað sér.
Kærufrestur vegna kosn-
inganna er vika og verða atkvæði
talin 10. júlí. Kjörgengir til bisk-
upsembættis eru allir guðfræð-
ingar, sem fullnægja skilyrðum til
þess að verða skipaðir prestar í
þjóðkirkjunni. Kýs hver kjósandi
eitt biskupsefni og fái einhver
meirihluta greiddra atkvæða er
hann kjörinn biskup.
Fái hins vegar enginn meiri-
hluta greiddra atkvæða skal kosið
að nýju milli þeirra þriggja, sem
flest atkvæðin fengu. Ef atkvæðin
verða jöfn skal hlutkesti ráða um
þá sem kosið er um og sá er
réttkjörinn sem fær þá flest at-
kvæði. Þurfi að ganga til þessarar
seinni umferðar kvaðst Baldur
Möller ekki búast við að úrslit
hennar lægju fyrir fyrr en síðari
hluta ágústmánaðar, en nýr bisk-
up mun taka við 1. október, en frá
þeim degi hefur hr. Sigurbirni
Einarssyni biskup verið veitt
lausn.
tveir frá Reykjavíkur-
prófastsdæmi, kjörnir af leik-
mönnum, sem sæti eiga á héraðs-
fundi til fjögurra ára í senn.
Ilugsanlega tvær umferðir
Kosning fer þannig fram, að
kjósandi ritar á kjörseðil nafn
eins biskupsefnis, ella er kjörseð-
illinn ógildur, en hann skal ekki
undirrita. Atkvæðaseðillinn er
síðan settur i umslag og því
lokað. Kjósandi útfyllir síðan
sérstakt eyðublað um að hann
hafi kosið og leggur það ásamt
gögnum í umslag og sendir það
kjörstjórn. Talningu má hefja
viku eftir að skilafresti lýkur, en
á þeim tíma er hægt að kæra
kosninguna.
Sá er réttkjörinn biskup er
hlýtur meirihluta greiddra at-
kvæða, en fái enginn meirihluta
skal kosið á milli þeirra þriggja,
sem flest fengu atkvæðin. Ef
atkvæði verða jöfn skal hlutkesti
ráða um þá sem kosið er um.
Annast kjörstjórn um fram-
kvæmd þessa og fer önnur kosn-
ingaumferð fram með sama
hætti í megindráttum. Sá er
réttkjörinn sem flest atkvæði
fær. Ef atkvæði verða jöfn skal
veita embættið öðrum hvorum
þeirra sem flest fengu atvæðin
eða einum af þremur, fái allir
jöfn atkvæði. Þetta er önnur
regla en um prestskosningar og
meira bindandi fyrir veitingar-
valdið.
hvað bæri á milli að mínu mati
allra fyrst. Ef til þess kom að siík
mál bæru á góma, sem var afar
sjaldan, flutti biskup mál sitt af
slíkri hófstillingu, mannviti og
djúpri alvöru að ekki var hjá því
komist, að fallast á skoðun hans. í
máli hans birtist mér nýr skilning-
ur á að vera „kallaður" til starfa af
æðri máttarvöidum en ekki eigin
skynsemi eða annarra.
Hér verða ekki upptalin þau mál
er kirkjuráð afgreiddi á þessum
árum, oftast að frumkvæði biskups.
Nægir að minna á endurreisn Skál-
holts og skólans þar, Hjálparstofn-
un kirkjunnar og eflingu æskulýðs-
starfsins innan kirkjunnar, til að
sýna hvernig biskup hafði forystu
um „eflingu íslenskrar kristni og
(að) styðja að trúar- og menningar-
áhrifum þjóðkirkjunnar" eins og
mælt er fyrir um í 16. gr. áður-
nefndra laga um kirkjuþing og
kirkjuráð. Það vakti athygli okkar
er sátum með biskupi í kirkjuráði á
fyrstu árum hans þar, hversu skjótt
hann hafði yfirsýn yfir kristnihald-
ið í landinu, jafnt í hinum dreifð-
ustu, fámennustu og fátækustu
byggðum sem í þéttbýlinu. Það
vakti einnig athygli hversu annt
honum var að allar þessar byggðir
nytu sem jafnastrar aðstöðu í
kristnihaldi sínu.
Þessi viðleitni Sigurbjarnar bisk-
ups minnti mig oft á dæmisöguna
sem Lúkas guðspjallamaður segir
frá í 15. kap. guðspjalls síns, um
hinn góða hirði, sem skildi eftir alla
sauðahjörðina til að leita að þeim
eina sauð sem týndur var. — Ekki
er ólíklegt að sauðirnir sem eftir
voru skildir hafi þótt þeir afskiptir,
hefðu þeir mátt mæla, svipað og
maður heyrði ávæning af í samtöl-
um við Reykjavíkurprestana.
Væri hreyft mótmælum kom það
fyrir að sagt væri að lítið væri að
marka hvað við segðum kirkju-
ráðsmenn, því við værum allir með
tölu í vasa biskups, hann væri svo
einræðishneigður.
Fyrr máttu það vera vasarnir að
rúma þá alla í senn, séra Þorgrím
V. Sigurðsson, prest á Staðarstað,
séra Jón Þorvarðarson, prest í
Reykjavík, og Pál Kolka lækni, auk
þess er þetta skrifar, svo þeir séu
nefndir er sátu í fyrsta kirkjuráði
eftir hinum nýju lögum, að ótöldum
þeim er sátu í ráðinu á meðan ég
var þar, þeir prestarnir séra Bjarni
Sigurðsson, prestur á Mosfelli, séra
Eiríkur J. Eiríksson, prestur á
Þingvöllum, séra Pétur Sigurgeirs-
son, vígslubiskup á Akureyri, og
Ásgeir Magnússon, framkvæmda-
stjóri af hálfu leikmanna.
Það að ályktanir og tillögur
kirkjuráðs urðu svo samhljóða sem
raun bar vitni, réðist af því tvennu,
að málin komu svo vel undirbúin í
hendur ráðsins af hálfu forseta þess
og hversu ljúfur og eftirlátur hann
var ef einhver eða einhverjir höfðu
það fram að færa er til bóta horfði.
Hér að ofan hef ég rakið nokkrar
þær minningar er ofaná flutu í
hugskoti mínu frá þeim tíma er ég
sat i kirkjuráði undir forsæti dr.
Sigurbjarnar Einarssonar biskups.
Allar þessar minningar samtengdar
og ýmsar fleiri um samskipti okkar
gera hann í mínum huga, snjallast-
an allra þeirra er ég hefi kynnst.
Það var mikil gæfa fyrir þjóðina
er hann valdist til biskups.
Þórarinn Þórarinsson
(rá Eiöum.
Sementsverksmiðjan á Akranesi.
Framleiðsla Sementsverk-
smiðjunnar í meðallagi 1980
Framleiðsia Sementsverksmiðj-
unnar var í meðallagi árið 1980
miðað við liðin ár. Gjallfram-
leiðslan varð lág, 94.500 tonn, sem
er um 8.000 tonnum minni fram-
leiðsla en árið 1979. Það ár var
aftur á móti metár í framleiðslu
enda framleiðsludagar 354. Árið
1980 voru framleiðstudagar 326 og
ofninn stöðvaður tvisvar á árinu,
en aðeins eitt stutt stopp árið
1979. Allan þann tíma sem Sem-
entsverksmiðjan hefur starfað,
eða 22 ár, hefur rekstrardagafjöldi
ofnsins legið milli 325 og 354 daga,
sem er talin óvenjulega góð nýting
þegar sementsofn á í hlut. Þar
sem miklar viðgerðir fóru fram á
ofninum 1980 er búist við mikilli
gjallframleiðslu árið 1981.
Til framleiðslu á sementsgjalli
1980 voru notaðir 109 þús. rúmm.
af skeljasandi, 18.300 tonn af
líparíti og 4.900 tonn af basalt-
sandi. Til gjallframleiðslunnar
fóru 11.700 tonn af svartolíu, en
það þýðir að notaðar voru 1210
kcal til brennslu á hverju kg af
gjalli. Er það í lægri mörkum fyrir
sams konar sementsofna (vot-
ofna).
Þó að framleiðslugeta Sements-
verksmiðjunnar af sementsgjalli
sé um 100.000 tonn á ári, getur
hún malað tvöfalt það magn af
sementi. Þar sem notkun innan
lands af sementi á síðustu árum
hefur verið 100—150 þús. tonn
hefur Sementsverksmiðjan flutt
inn erlent gjall sem því nemur og
malar sement úr því. Voru flutt
inn 11.400 tonn af gjalli frá
Danmörku árið 1980. Gips er
alltaf notað við mölun sements og
er það flutt inn frá Austur-
Þýskalandi og voru notuð um 6.800
tonn árið 1980.
Framleiðsla sements varð sam-
tals 131.300 tonn á árinu, sem
skiptist þannig eftir tegundum:
tonn
Portiandsement 100.100
Hraðsement 12.800
Líparítbl. virkjana-
sement 18.400
I mestallt portlandsement og
hraðsement var blandað 5% af
járnblendiryki, sem hefur gefið
góða raun og aukið gæði sements-
ins þannig að það hefur nú marga
kosti fram yfir venjulegt erlent
sement, t.d. gefur það meiri vörn
gegn alkalívirkni.
Sementið sem notað hefur verið
í Sigölduvirkjun og nú í Hraun-
eyjafossvirkjun er blandað með
25% af líparíti. Þetta sement er
hægharðnandi og því hagstætt
fyrir massasteypur og gefur í raun
endingarbetri steypu en venjulegt
sement.
Gæðaeftirlit í Sementsverk-
smiðjunni er mjög strangt, í
verksmiðjunni er eftirlit með
framleiðslunni allan sólarhring-
inn en einnig er sementið prófað
við afhendingu eftir sérstökum
reglum. Þá hefur Rannsókna-
stofnun byggingariðnaðarins
framkvæmt opinbert gæðaeftirlit
á sementi frá Sementsverksmiðj-
unni um árabil. Er óhætt að segja
að ekkert byggingarefni er eins
rannsakað og prófað og íslenska
sementið. Sem dæmi um niður-
stöður styrkleikaprófana frá
Rannsóknastofnun byggingariðn-
aðarins, sem er liður í hini
opinbera eftirliti, var meðalstyrk-
ur mánaðargamalla steypusýna
árið 1980 477 kg á fersentimetra.
Krafa íslenska sementstaðalsins
er 350 kg/cm' og er styrkleikinn
því 36% yfir kröfum.
Sala sements árið 1980 varð
131.689 tonn og milli tegunda: skiptist þannig
tonn
Portlandsement 100.126
Hraðsement 15.851
Virkjanasement Sérsement innfl. 15.674
(hvítt, litað) 38
Sala sements á almenutn mark-
að, þ.e. að frádregnum virkjana-
framkvæmdum og álíka stór-
framkvæmdum, hefur dregist
saman síðustu árin. Árið 1971—
1973 var þessi sala á uppleið,
100—130 þús tonn á ári. Árið 1974
var metár, en þá seldust 152 þús.
tonn á almennan markað. Sem-
entssalan var nokkuð stöðug
1975—1978, 130—135 þús. tonn, en
fór þá lækkandi og varð 116 þús.
árið 1980. Ekki er búist við
söluaukningu árið 1981.
Sementsverksmiðjan sér um að-
aldreifingu sementsins. Sementið
er selt bæði laust og sekkjað og
eykst hlutur lausa sementsins
jafnt og þétt. Árið 1980 voru
57,5% af heildarsölunni laust
sement en 42,5% sekkjað og þá
miðað við almennan markað. Sé
virkjanasement tekið með eru
samsvarandi tölur 63% og 37%.
Sementsverksmiðjan dreifir
lausa sementinu alveg til neyt-
enda. Er lausa sementið flutt frá
Akranesi til birgðastöðva í
Reykjavík, á Akureyri og á ísa-
firði með skipi verksmiðjunnar,
Skeiðfaxa. Dreifir Sementsverk-
smiðjan síðan lausa sementinu
með tankbifreiðum frá þessum
stöðum, svo og Akranesi, til neyt-
enda. Pakkað sement selur Sem-
entsverksmiðjan beit til neytenda
á Akranesi og í Reykjavík en
umboðsaðilar sjá um söluna ann-
ars staðar á landinu.
Freyfaxi, annað skip verksmiðj-
unnar, flytur sekkjað sementið á
um 36 staði á landinu. Ýmsar
framkvæmdir voru í gangi hjá
Sementsverksmiðjunni árið 1980.
Stærstar þeirra voru birgðastöð
fyrir laust sement á Akureyri,
framkvæmdir vegna mengunar-
varna og sandfoksgirðing í skelja-
sandsgeymslu. Hafinn var undir-
búningur að uppsetningu íblönd-
unarbúnaðar fyrir járnblendiryk
og hönnun búnaðar til kola-
brennslu. Brennsla kola er mikið
hagkvæmari en olíu, þar sem
kolaverð er um 50% af olíuverði.
Þar sem olíukostnaður er nú
kominn yfir 30% af rekstrar-
kostnaði fyrirtækisins getur þessi
breyting skipt miklu um sam-
keppnishæfni við innflutt sement í
framtíðinni, en erlendis er í flest-
um sementsverksmiðjum verið að
skipta yfir á kolabrennslu.
Er nú aðeins beðið eftir starfs-
leyfi heilbrigðisyfirvalda og leyfi
bæjaryfirvalda á Akranesi til þess
að hefjast handa. Til fram-
kvæmda fóru rúmar 600 milljónir
gamalla króna árið 1980.
Fastráðið starfsfólk hjá Sem-
entsverksmiðjunni var árið 1980
181, þar af störfuðu 138 hjá
verksmiðjunni á Akranesi, 23 í
Reykjavík og 2 á Akureyri. Á
skipum verksmiðjunnar voru fast-
ráðnir 18 manns. Verðlagsmál
Sementsverksmiðjunnar hafa oft
skapað fyrirtækinu mikinn vanda
á sl. áratug. Til bóta var að
verksmiðjan komst undir Verð-
lagsráð í byrjun árs 1980 og fékkst
á því ári rúmlega 80% hækkun á
verði. En vegna þess að árið 1979
fékkst aðeins ein 20% hækkun
varð verðhækkun frá 1. maí 1979
til 31. des. 1980 u.þ.b. 100% eða
63% á ársgrundvelli. Rúmlega
þreföldun á olíuverði á þessum
sama tíma hefur orðið til þess að
Sementsverksmiðjan er ennþá í
miklum fjárhagserfiðleikum.
Heildarsala Sementsverksmiðj-
unnar varð 7.225.200.000 kr. árið
1980, þar af voru skattar og
sötulaun um 1,8 milljarðar, fram-
leiðslukostnaður rúmir 4 milljarð-
ar, sölukostnaður tæpir 1,3 millj.,
fjármagnskostnaður rúml. 600
milljónir og tap um 570 millj. kr.
Þá varð minnkun eigin veltu-
fjármagns um 530 milljónir króna.
Af þessu má ráða fjárhagsvanda
verksmiðjunnar. Heildarlauna-
greiðslur fyrirtækisins voru rúml.
1,7 milljarðar króna.
Júiius