Morgunblaðið - 07.07.1981, Síða 18

Morgunblaðið - 07.07.1981, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1981 Beðið eftir frelsi Moskvu. 26. júni. AP. HÓPUR sjö Sovétmanna hefur búið i kjallaraherberKÍ í banda- ríska sendiráðinu i Moskvu undanfarin þrjú ár. HreyfinK er í gangi á Vesturlöndum til að hjálpa fólkinu til að fá frelsi. svo að það sleppi úr prisundinni í Sovétríkjunum. Á efri mynd- inni sést Vashchenko-fjölskyld- an. en í henni eru fimm hinna sjö, sem búa í kjailaranum, <»k á neðri myndinni sést útsýnið, sem fólkið hefur af Moskvu út um glugKann hjá sér. ' What it reatly means is that if there’s another cod war, the only thma we’ll be able to do is nuke Reykjavik' Þessi teiknimynd birt- ist í blaðinu Guardian Weekly dags. 5. júlí. Á íslensku er textinn með henni á þessa leið: „Raunverulega felst í þessu, að verði annað þorskastríð, getum við ekkert annað gert en sent kjarnorkusprengju á Reykjavík." Textinn vísar til þess, að flotastefna bresku ríkisstjórnarinnar mið- ar nú að því að fækka freigátum og öðrum slíkum herskipum en leggja alla áhersluna á endurnýjun kjarnorku- kafbátaflotans. Dayan og Begin eiga viðræður Tel Aviv, 6. júlí. AP. MOSHE Dayan, fyrrverandi utanríkisráðherra ísrael, átti fund með Menachem Bejfin, forsætisráðherra, í dag. Nýr flokkur Dayans vann tvö þinKsæti í nýafstöðnum kosningum fsraela, og hann hefur hug á að hafa sín áhrif í nýrri ríkisstjórn þjóðarinnar. Talsmaður Begins sagði, að fundur þeirra hefði ekki Kengið sem best, en þeir munu hittast aftur seinna i vikunni. Begin átti einnig fund með formanni eins litlu trúarflokk- anna, sem hafa lykilaðstöðu í stjórnarmyndunarviðræðum ísra- ela nú. Shimon Peres, formaður Verkamannaflokksins, átti fund með Zevulun Hammer, mennta- málaráðherra Þjóðlega trúar- flokksins. Hammer lagði til, að ný þjóðstjórn yrði mynduð, en slík stjórn allra flokka sat í ísrael á dögum Sex daga stríðsins á sjöunda áratugnum. Talsmaður Peresar sagði, að hann hefði ekki þvertekið fyrir tillöguna, en myndi ræða hana við forystu flokksins næstu daga. Úrslit kosninganna verða ekki formlega birt fyrr en á fimmtu- dag. Tölur standa nú þannig, að Likudbandalag Begins hefur hlot- ið 48 menn kjörna og Verka- mannaflokkurinn 47. 120 eiga sæti á þingi ísraela. Dayan sagði af sér ráðherra- embætti í stjórn Begins 1977 vegna stefnu stjórnarinnar varð- andi Palestínumenn. Sagt er, að hann vilji nú gerast helsti samn- ingaviðræðumaður ísraela um framtíð Vesturbakkans og Gaza. Dayan lagði til í kosningabarátt- unni, að Palestínumenn fengju nú þegar takmarkað sjálfræði á vest- urbakkanum og í Gaza. Færður til hafnar eftir 30 klst. eltingarleik Grimsby. 6. júlft. AP. SKIPSTJÓRI franska togarans Jean Mermoz situr nú í fangelsi i Grimsby eftir að togari hans hafði verið færður til hafnar eftir 30 klukkustunda eltingarleik á Norðursjónum. Tvö brezk varðskip eltu Jean Mermoz frá Boulogne og auk þess fylgdi þyrla togaranum eftir. Brezkir varðskipsmenn fóru um milli togarans og varðskipanna en borð í Jean Mermoz á laugardag til að athuga net togarans en grunur lék á að möskvastærð væri of lítil. Skyndilega læsti skipstjórinn, Jean Blainfain, sig inni í stýrishúsinu og setti á fulla ferð. Togarinn rakst á annað brezku varðskipanna en sá árekstur var ekki alvarlegur. Nokkr- ir franskir togarar reyndu að sigla svo fór að lokum, eftir mikinn eltingarleik, að Jean Blainfain hætti sjálfviljugur og gafst upp. Talsmaður brezka sjávarútvegs- ráðuneytisins sagði í. dag, að net togarans yrðu rannsökuð í dag og málsmeðferð yrði ákveðin í fram- haldi af því. Bani-Sadr í viðtali: Hvetur írani til uppreisnar Teheran, 6. júlí. AP. BANI-SADR, fyrrum forseta íran, sem nú fer huldu höfði, hefur verið hótað lífláti, nema hann „iðrist“. Það var islamskur byltingardómari, Mohammadi Gilani, sem hótaði Bani-Sadr lifláti. „Bani-Sadr verð- skuldar líflát en vegna þess að i hönd fer Ramadan, hinn heilagi mánuður, þá á hann kost á að snúa til Imam og iðrast. Geri hann það ekki, á hann yfir höfði sér líflát,“ sagði Gilani á fundi með fréttamönnum i Teheran á sunnudag. Imam, ayatollah Khomeini, hefur þráfaldlega hvatt Bani-Sadr til að iðrast og þjóna islömsku byltingunni sem rithöfundur og hugsuður. Bani-Sadr hefur hafnað „til- boði“ stjórnvalda í Teheran og í útvarpssendingu frá dvalarstað hans, sem enn er ókunnur, hvatti hann íbúa íran til að risa upp gegn kúgurum sínum áður en allt verði um seinan. Tímaritið „Átta dagar", sem gefið er út í Lundúnum og sérhæf- ir sig í arabískum málefnum, birti á laugardag viðtal við Bani-Sadr. Þar hvatti hann landa sina til að gefast ekki upp fyrir núverandi valdhöfum. Tímaritið heldur því fram, að viðtalið hafi verið tekið þann 18. júní í Kúrdistan, skammt frá landamærunum að írak. í viðtalinu sagði Bani-Sadr, að Iranir yrðu að snúast gegn núver- andi valdhöfum, sem hann ásakaði um að hafa beitt ólöglegum að- ferðum við að komast í þá valda- aðstöðu sem þeir nú eru í. „Ég beini máli mínu til íranskra kvenna og ungs fólks í Iran; berjist gegn núverandi kúgurum. Þeir sem halda að þeir geti stuðst við meðöl keisarans eru blindir," sagði Bani-Sadr. Um Khomeini sagði Bani-Sadr: „Imam er úr tengslum við þjóð sína. Honum er skýrt frá atburð- um af harðlínumönnum og frá þeirra sjónarhóli. Þess vegna er hann úr öllum tengslum við þjóð sína.“ Bani-Sadr var sérstaklega harðorður í garð Mohammad Ali Rajai, forsætisráðherra, Aii Akbar Hashemi Rafsanjani, tals- manns þingsins, og Hussein Be- Bcitin Dayan hesti, leiðtoga islamska lýðveldis- flokksins. (Viðtalið var tekið áður en Behesti lést í sprengingunni í höfuðstöðvum lýðveldisflokksins.) Bani-Sadr ásakaði þremenn- ingana um að stefna að ógnar- stjórn í landinu. Á sunnudagskvöldið voru 27 teknir af lífi í íran. Að sögn saksóknara voru þeir sekir fundn- ir um „vopnaða uppreisn og að hafa staðið að götubardögum í kjölfar brottvikningar Bani- Sadr“. Meðal þeirra sem voru teknir af lífi á sunnudagskvöldið voru fjórir gyðingar. Þá sagði í tilkynningu saksóknara, að 47 manns hefðu verið dæmdir í fangelsi. Héraðsstjórinn í Gilan við Kaspíahaf var skotinn til bana i dag. Að sögn irönsku fréttastof- unnar Pars, var héraðsstjórinn á leið til vinnu sinnar þegar menn á mótorhjóli vopnaðir byssum óku að bifreið hans og skutu hann til bana. Tilræðismennirnir komust undan. Lifði af 100.000 V straum Baltimore. 6. júlí. AP. RICKY Ricketts, sem fékk 100.000 volta straum fyrir nokkru, er á g<W>um batavegi. Ilann klifraði upp í 30 metra háan rafmagnsstaur rétt hjá heimili mágs sins einn sunnudag til að fá betra útsýni yfir til litillaa tjarnar, sem hann hefur hug á að veiða í einhverja helg- ina. Ilann veit ckki hvað gerðist eftir það. Veður Akureyri 7 alskýjaó Amsterdam 21 rfkýjaó Aþena 31 heióskírt Barcelona 25 heiðskírt Berlín 26 heióakírt BrUssel 20 skýjað Chicago 29 heióskírt Dublin 19 skýjaó Feneyjar 26 hálfskýjaó Frankfurt 23 skýjað Færeyjar 10 alskýjaö Genf 24 heióskirt Helsinki 20 heióskírt Hong Kong 27 rigning Jerúsalem 31 heiöskírt Jóhannesarborg 16 heióskírt Kairó 35 heióskírt Kaupmannahöf n 20 heióskfrt Las Palmas 24 heióskírt Lissabon 26 heióskírt London 22 heióskírt Los Angeles 33 heióskírt Madrid 32 heióskírt Malaga 25 heióskírt Mallorkb 28 | 1 Mexicoborg 23 heiðskírt Miami 33 skýjaó Moskva 26 heíóskírt Nýja Dehlí 33 skýjaó New York 28 heióskírt Osló 22 heióskírt Paris 24 rigning Reykjavík 13 hólfskýjað Ríó de Janeiro 33 skýjaó Rómaborg 29 heióskírt San Francisco 25 skýjaó Stokkhólmur 20 heíöskírt Sydney 17 heióskírt Tel Aviv 34 heióskírt Læknar álíta, að hann hafi komið við rafmagnslínurnar, en vinir hans, sem biðu hans niðri, sáu það ekki. Rafmagnsstraumur- inn fór upp vinstri handlegg hans, í öxlina, hálsinn og út um hnakk- ann. Hanrt hentist aftur fyrir sig, en festist í staurnum. Um stund var hann alelda og rólaði fram og aftur á öðrum fætinum. Hann náði síðan tökum á staurnum og gat klifrað niður. Ricketts brann mjög illa. Lækn- ar hafa grætt húð á bak hans, háls, axlir og handleggi, en Rick- etts segist vera við hestaheilsu. „Sumir segja, að ég ætti að vera dauður," sagði hann. „Kannski. Ég býst við, að gott líkamlegt ástand mitt hafi komið mér að góðu.“ Tilræði við forsætisráð- herra Japan Tokyo. 6. |*ll. AP. JAPÁNSKUR unglingur úr hópi hægrimanna, sem lögreglan ha- fði aldrei heyrt á minnst, varpaði bjórflösku fullri sprengiefnis inn á lóð forsætisráðherrabú- staðarins i Tokyo á mánudag. Lögreglan sagði, að ekki hefði kviknað á sprengjunni. Maður- inn var handtekinn, en hann var 15 til 10 ára gamall.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.