Morgunblaðið - 07.07.1981, Side 20

Morgunblaðið - 07.07.1981, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ1981 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aóalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 80 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakiö. Upphaf sjálfstæðrar utanríkisstefnu Idag, 7. júlí, eru 40 ár liðin síðan bandarískir landgönguliðar leystu Breta af hólmi hér á landi og herverndarsamningurinn var gerður milli ríkisstjórna Bandaríkjanna, Bretlands og Islands. Bjarni Benediktsson komst svo að orði í ræðu, sem hann flutti á Þingvöllum 1943, að með herverndarsamningnum hafi orðið gerbreyting á utanríkisstefnu íslands. Síðan sagði Bjarni orðrétt: „Þangað til höfðu íslendingar stranglega fylgt því fyrirmæli 19. gr. sambandslaganna (frá 1918 innsk.), að Island lýsti ævarandi hlutleysi sínu. Af þessari stefnu leiddi algert athafnaleysi í utanríkismálum, öðrum en þeim, er varða verslun og viðskipti. Reglan var sú ein, að bíða og sjá hvað setti. Með hervarnarsamningnum var í fyrsta skipti og á eftirminni- legan hátt horfið frá þessari reglu. Hlutleysisyfirlýsingin í 19. gr. sambandslaganna var brotin. Ef til vill ekki þegar í stað, en að því stefnt, þar sem allir bjuggust við, að Bandaríkin mundu áður en lyki lenda í ófriðnum, svo sem brátt varð. Eigi verður um það deilt, að horfið var frá hinu algera hlutleysi af ríkri nauðsyn. En þarna er enn eitt dæmi þess, að straumur tímans ber í brott hvert fyrirmæli sambandslaganna af öðru, og að þessu sinni áttu Bretland og Bandaríkin beinan hlut að. Mikilsverðara er þó hitt, að atburðirnir höfðu kennt Islending- um, að einangrun þeirra var úr sögunni. Þeir urðu að taka upp athafnasemi í utanríkismálum. Sjá landi sínu borgið með samningum við stórveldin og þora að velja á milli." Það lenti síðar í hlut Bjarna Benediktssonar sem utanríkisráð- herra að stíga skrefið frá hlutleysi til fulls, þegar hann ritaði undir stofnaðild íslands að Atlantshafsbandalaginu 1949 og varnarsamninginn við Bandaríkin 1951 Þegar þeir samningar voru gerðir þorðu íslendingar einnig að „velja á milli" stórveldanna. Andstæðingar varnarsamstarfs Islands við vest- rænar þjóðir hafa jafnan haldið því fram, að Islendingar hafi verið kúgaðir til undirgefni undir Bandaríkjamenn. Samstarfið við Bandaríkin sýni „heimsvaldastefnu" Bandaríkjastjórnar fyrr og síðar sem sé í hróplegu ósamræmi við það „þjóðfrelsi", sem þessir menn kjósa í nafni Leníns. Kommúnistar og arftakar þeirra í Alþýðubandalaginu hafa verið á móti athafnasemi við mótun íslenskrar utanríkisstefnu, þeir hafa ekki viljað, að Island fylgdi sjálfstæðri utanríkisstefnu, þótt þeir í alkunnum orðaleik séu jafnan með „sjálfstæðið" á vörunum, þegar þeir mæla með aðgerðarleysi eða þjónkun gagnvart valdhöfunum í Kreml. Sögulegar heimildir sýna, að síst af öllu biðu Bandaríkjamenn færis til að hremma ísland um leið og tækifæri gafst í síðari heimsstyrjöldinni í því skyni að sölsa landið undir sig. í grein, sem dr. Þór Whitehead ritaði fyrir Morgunblaðið í tilefni af gerð herverndarsamningsins og birtist í blaðinu síðastliðinn sunnudag, kemur fram, að það var af illri nauðsyn og til þess að veitá Bretum hjálp á úrslitastundu í átökunum við nasista, sem Bandaríkja- menn komu hingað. Sögulegar heimildir síðari tíma sýna hið sama, að íslendingar gera af fúsum og frjálsum vilja samninga við Bandaríkjamenn og aðrar þjóðir um þá þætti öryggismálanna eins og viðskipta- eða landhelgismálanna, sem nauðsynlegt er að ræða við aðrar þjóðir. Þetta er hin eina sanna sjálfstæða stefna í utanríkismálum, stefna kommúnista er og hefur verið stefna aðgerðarleysis og stefna þjónkunar við sovéska hagsmuni. Starfstími verslana Deiluna um starfstíma verslana á höfuðborgarsvæðinu má að öðrum þræði rekja til reglugerðar, sem sett er af opinberum aðilum um málið. í skjóli þeirrar reglugerðar er lögreglan meðal annars kölluð á vettvang. Mál sem þessi verða ekki leyst með opinberum afskiptum. Þau á að leysa í samningum milli aðila, kaupmenn og verslunarfólk verða að gera út um þessa deilu með samkomulagi, þar sem bæði er tekið tillit til eðlilegs vinnutíma og skynsamlegrar þjónustu við viðskiptavini. Það er röng stefna að treysta á opinbert vald í slíkum málum og hæfir illa þeim, sem hlynntir eru frjálsri verslun og frjálsum markaðsbúskap. Hvernig litist mönnum á, ef kaupmenn yrðu helstu málsvarar verðlags- hafta og verðlagseftirlits af því að höftin og eftirlitið losa þá undan þunga frjálsrar samkeppni? Böðvar Bragason sýslumaður Rangárvallasýslu, Sigurður Blöndal skógræktarstjóri og Garðar Jónsson skógarvörður á Suðurlandi. Sigurður Blöndal, skógræktarstjóri: „Höfum nægar ástæður til að loka Þórsmörk fyrir Y erslunarmannahelgina44 ÞAÐ VAKTI mikla og almenna reiði iandsmanna, þegar frétt- ist að unnin höfðu verið spjöll á gróðri i Þórsmörk siðustu hvitasunnuheigi, þegar um 2.000 manns komu þar saman. Það kom þó fram á fundi er Sigurður Blöndal skógræktar- stjóri, Garðar Jónsson skógar- vörður Suðurlands og Böðvar Bragason sýslumaður Rangár- vallasýslu héldu með blaða- mönnum að engin náttúruspjöll hefðu orðið er rekja mætti beint til vísvitandi skemmdarstarf- semi. Héldu þeir að of mikið hefði verið gert úr þessu og að fjöldi fólks sem ekki hefði komið í Mörkina í sumar trúi því að allt sé þar á rúi og stúi. Aðspurðir hvers vegna þeir lokuðu ekki Mörkinni fyrir þessa helgi, sögðu þeir að talið hefði verið útilokað að meina fólki aðgang að henni eftir að þrír aðilar, Ferðafélag íslands, Far- fuglar og Útivist, höfðu auglýst ferðir í Mörkina. Annað hvort væru þessi svæði lokuð fyrir öllum eða engum. Þeir sögðust í framhaldi af þessu vera á móti hvers kyns höftum og bönnum og sögðu það afskaplega nei- kvætt að loka heilum svæðum fyrir fólki. Það væri röng stefna. Það kom fram að hreinsun á Þórsmörk eftir þessa helgi væri nú lokið og hefði langerfiðasta vandamálið verið glerbrot en geysilega mikið var brotið af gleri. Engin náttúruspjöll hefðu verið unnin þó engum detti í hug að grasflatirnar hafi batnað við átroðning nær tvö þúsund manna. Langverst var umgengn- in í Langadal en þar er skáli Ferðafélags íslands og eru þar einnig hús fyrir salerni og böð. Tveir starfsmenn skógræktar- innar eru alltaf þarna uppfrá en þessa helgi voru einnig sjö til átta manns frá Slysavarnadeild- inni á Hvolsvelli og einnig menn frá lögreglunni en þeir voru ekki yfir blánæturnar. Voru því gæslumenn 15 talsins ásamt þeim tveimur sem þarna eru alltaf. Allur aðgangseyrir fór í að greiða gæslunni og hreinsun á Mörkinni. Ekki var leitað að víni hjá fólki áður en það kom inn á svæðið þar sem þetta var ekki opinber samkoma. Aðspurðir hvort þeir hefðu ákveðið að loka Þórsmörk fyrir fólki um Verslunarmannahelg- ina, sögðust þeir hæglega getað lokað að fenginni reynslu, en væru ekki búnir að ákveða það. Minntu þeir enn á að þeir teldu það ranga stefnu að loka svona svæðum og fælist í því viss uppgjöf þar sem það leysti engan vanda. „Ef á að meina fólki aðgang að náttúrunni, væri langbest að loka strax við Elliðaárnar," eins og Böðvar Bragason sagði. Fundur dómsmálaráðherra Norðurlandanna: Fíkniefnavandamál höfuðviðfangsefnið Dómsmálaráðherrar Norður- landa komu saman til fundar á Bornholm í Danmörku 17.—18. júní sl. Friðjón Þórðarson dóms- og kirkjumálaráðherra sótti fund- inn af Islands hálfu og var Baldur Möller ráðuneytisstjóri i fylgd með honum. Ákveðið hafði verið á sl. vetri að höfuðviðfangsefni á fundinum yrði umræða um fíkni- efnavandamál. Urðu umræður um það efni mjög ítarlegar. Ráðherr- unum kom saman um, að þótt samvinna viðkomandi yfirvalda á Norðurlöndum hefði um alllangt skeið verið góð og farið vaxandi á þessu sviði, væri þróun á út- breiðslu fíkniefna uggvænleg, og bæri brýna nauðsyn til að auka og skipuleggja þá samvinnu enn bet- ur, einnig á alþjóðlegum vett- vangi. Var rætt ítarlega um harðnandi ásókn hinna vel skipu- lögðu fíkniefnasala, og um mögu- legar leiðir til að mæta þeirri þróun, en ekki er rétt að greina frá því efni í einstökum atriðum. Þá var og rædd hin félagslega hlið þessara vandamála og nauðsyn á því að virkja skólana, heilbrigðis- yfirvöld og uppalendur til varnar gegn neysluþróun á þessu hættus- viði. — Önnur viðfangsefni fund- arins hurfu nokkuð í skuggann fyrir fíkniefnaumræðum. Var þó rætt nokkuð um vaxandi áhyggjur af útbreiðslu myndefnis með ofbeldisinnihaldi í skjóli örrar þróunar á notkun myndsegul- banda, sem erfitt væri að hamla gegn, án þess að ganga nærri tjáningarfrelsi. Var ákveðið að leita samráðs við ríkissaksóknara landanna um þetta efni. Meðal annarra málefna, sem rædd voru á fundinum, má nefna samvinnu á sviði löggjafar um eftirlit með útlendingum og á sviði kaupalaga. — Á fundinum var undirritaður Norðurlandasamningur um rétt norrænna ríkisborgara til að beita eigin tungu í öðru norrænu landi, eftir því sem við yrði komið, í samskiptum við stjórnvöld. Að loknum fundi dómsmálaráð- herranna þáði Friðjón Þórðarson boð starfsbróður síns í Svíþjóð, Carls Axels Petri, um að heim- sækja Svíþjóð, til viðræðna um sameiginleg áhugaefni dómsmála- ráðuneyta á sviði löggjafar og lagaframkvæmdar. Stóð sú heim- sókn yfir dagana 22. til 24. júní og með Friðjóni Þórðarsyni og eig- inkonu hans var Baldri Möller ráðuneytisstjóra og eiginkonu hans boðið til þessarar heimsókn- ar. Viðræður dómsmálaráðherr- anna fóru síðan fram 22. júní, en síðan ferðuðust þeir um Svíþjóð og skoðuðu ýmsar byggingar á vegum sænska dómsmálaráðuneytisins og fylgdust með störfum lögreglu- og björgunarmanna í nyrztu byggðum Svíþjóðar. Heimsókninni lauk síðan með boði Friðjóns Þórðarsonar, sem haldið var á vegum Ingva Ingva- sonar, sendiherra. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.