Morgunblaðið - 07.07.1981, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ1981
Súlurnar nötruðu á Krikanum
skildu jöfn í fjörugum leik
- er FH og KR
KR OG FII skildu jöfn í 1. deild
íslandsmótsins í knattspyrnu á
Kaplakrikavellinum á lauKar-
daginn. hvort lið skoraði einu
sinni. Þetta var leikur sem hvor-
ugt liðið átti skilið að tapa,
hvorugt að vinna, bæði áttu íæri,
stanKarskot ok jafntefli var það
sannKjarnasta sem út úr þessu
«at komið. Staðan í hálfleik var
0—0 en engu að síður voru
knattspyrnugæðin í fyrri hálf-
leik mun betri. meira hnoð í þeim
síðari, en þá komu engu að síður
bæði mörkin.
Fyrri hálfleikurinn var mjög
líflegur á köflum, liðin léku bæði
nokkuð vel úti á vellinum á
köflum, KR-ingarnir voru þó sýnu
beittari og strax á 9. mínútu
leiksins átti Óskar Ingimundarson
fallegan skalla í þverslá
FH-marksins eftir fyrirgjöf Stef-
áns Arnar Sigurðssonar frá
vinstri. FH-ingar svöruðu með
góðri skyndisókn, Ólafur Dani-
valsson botnaði hana með góðu
skoti eftir stungusendingu frá
Inga Birni, en Stefán markvörður
KR var vel með á nótunum og
varði. FH-ingar áttu annað dágott
færi aðeins mínútu síðar, Viðar
Halldórsson og Tómas Pálsson
LIÐ FH:
Hreggviður Ágústsson 6
Guðmundur Hilmarsson 5
Ilelgi Ragnarsson 6
Guðmundur Kjartansson 6
Gunnar Bjarnason 6
Magnús Teitsson 5
Ingi Björn Albertsson 4
Ólafur Danivalsson 6
I’álmi Jónsson 0
Tómas Pálsson 5
Viðar Halldórsson 5
Magnús Stefánsson vm. 6
Sigurþór Þórólfsson vm. 7
LID KR:
Stefán Jóhannsson 6
Guðjón Ililmarsson 6
Börkur Ingvarsson 6
Ottó Guðmundsson 7
Jósteinn Einarsson 5
Atli Þór Héðinsson 6
Stefán Örn Sigurðsson 6
Sæbjörn Guðmundsson fi
Birgir Guðjónsson 5
Elías Guðmundsson 6
Vilhelm Frederiksen vm. 4
Willum Þórsson vm. i 2 mín.
1:
opnuðu í sameiningu vörn KR,
Tómas sendi síðan fyrir markið
þar sem Ingi Björn hafði læðst að
fjærstönginni, en hann hitti
knöttinn illa og hann skoppaði
fram hjá markinu í staðinn fyrir
inn í það. Sem fyrr sagði, var FH
síður en svo minna með knöttinn,
en of oft gekk knötturinn um of á
þverveginn, hreyfing leikmanna
ekki nægilega góð og laglegt spilið
úti á vellinum því ákaflega bitlít-
ið. KR-ingar voru hins vegar
nokkuð beittari sem áður og á 24.
mínútu leiksins endaði góð KR-
sókn niður hægri vænginn með
því, að Sæbjörn Guðmundsson
komst í dauðafæri, en skot hans
hafnaði í stönginni og þaðan
hrökk knötturinn út á völlinn á
ný-
Eftir þetta atvik hjaðnaði leik-
urinn nokkuð, liðin voru stundum
alveg við það að opna varnirnar
hvort hjá öðru, en herslumuninn
vantaði og fleiri færi litu ekki
dagsins ljós í fyrri hálfleik. Síðari
LIÐ VALS:
Ólafur Magnússon 5
Grímur Sæmundsen 5
Óttar Sveinsson 5
Magni Pétursson 5
Sævar Jónsson 6
Þorvaldur Þorvaldsson 5
Þorgrímur Þráinsson 4
Njáll Eiðsson 7
Hilmar Harðarson 5
Þorsteinn Sigurðsson 4
Valur Valsson 6
Guðmundur Þorbjörnsson vm. 6
Hilmar Sighvatsson vm. 4
LIÐ lA:
Bjarni Sigurðsson 7
Guðjón Þórðarson 5
Jón Áskelsson 5
Björn H. Björnsson 5
Sigurður Halldórsson 6
Sigurður Lárusson 6
Kristján Olgeirsson 4
Árni Sveinsson 4
Jón Alfreðsson 5
Guðbjörn Tryggvason 5
Július Ingólfsson 6
Sigþór Ómarsson vm. í fáar
mínútur
Smári Guðjónsson lék i eina mín.
hálfleikur var tíðindalítill allt þar
til að fyrsta mark leiksins var
skorað, en það var á 63. mínút-
unni. Ottó Guðmundsson tók þá
aukaspyrnu rétt fyrir innan miðju
á vallarhelmingi FH, hann sendi
að vítateigsbrúninni þar sem Jó-
steinn Einarsson var fyrir. Jó-
steinn lék aðeins fram með vörn-
inni áður en hann stakk knettin-
um inn fyrir hana til Óskars
Ingimundarsonar. Óskar hafði
tímasett sprett sinn inn fyrir
vörnina mjög nákvæmlega, hann
var ekki rangstæður og hann
skoraði örugglega af stuttu færi.
FH-ingar voru dálítið vankaðir
til að byrja með eftir markið, en
fóru síðan smám saman að sækja í
sig veðrið á ný. Það fór þó ekki að
draga til tíðinda fyrr en að
Ólafsvíkingurinn Sigurþór Þór-
ólfsson kom inn á sem varamaður
þegar um hálftími var til leiks-
loka. Sigurþór breytti öllum gangi
leiksins, hann náði tökum á vall-
armiðjunni fyrir hönd FH, vann
þar öll návígi og sendi gullfallegar
sendingar í allar áttir. Það var
Sigurþór sem skoraði jöfnunar-
mark FH á 75. mínútu. Hann fékk
knöttinn skammt fyrir utan víta-
teig KR-inga og tvínónaði ekkert
ÞÓR:
Eirikur Eiríksson 6
Ililmar Baldvinsson 5
Sigurbjörn Viðarsson 5
Guðjón Guðmundsson 6
Þórarinn Jóhannesson fi
Árni Stefánsson G
Guðmundur Skarphéðinsson 5
Örn Guðmundsson 6
Óskar Gunnarsson G
Jón Lárusson 4
Magnús Helgason fi
Jónas Róbertsson vm. 7
KA:
Aðalsteinn Jóhannsson 7
Steinþór Þórarinsson 5
Guðjón Guðjónsson 5
Ilaraldur Haraldsson 5
Erlingur Kristjánsson 5
Gunnar Gíslason 4
Elmar Geirsson 5
Eyjólfur Ágústsson 4
Hinrik Þórhallsson 4
Ásbjörn Björnsson 5
Gunnar Blöndal 4
við hlutina, heldur skoraði með
miklu þrumuskoti af rúmlega 20
metra færi, glæsilegt mark. Á 77.
og 82. mínútunum sendi Sigurþór
síðan glæsilegar stungusendingar
inn fyrir vörn KR, til Pálma
Jónssonar. Pálmi brenndi af í
fyrra færinu, en skaut í stöng í
síðara tilvikinu.
Þetta var í heild séð þokkalegur
leikur, spenna við mörkin annað
slagið og ágæt mörk. Góður sam-
leikur beggja liða nokkuð oft,
oftar en maður hefði kannski
búist við í fallbaráttuleik þar sem
mikið er í húfi. í slíkum leikjum
ber baráttan og varfærnin
knattspyrnuna oft ofurliði.
Heimaliðið var ef nokkuð ívið
lakari aðilinn að þessu sinni. Sem
fyrr segir var liðið ekkert minna
með knöttinn, en margir leik-
manna liðsins voru staðir og
hreyfðu sig lítið. Oft þegar mið-
vallarleikmennirnir fengu knött-
inn í góðri aðstöðu til að sækja að
vörn KR, lokuðu framherjar liðs-
ins sig af með því að hreyfa sig
ekki nóg. Fyrir vikið dreifðist allt
spil FH um of á þverveginn,
þ.e.a.s. viðkomandi leikmenn urðu
að bíða þess að leikmenn aftar á
vellinum kæmu til aðstoðar. Loks
er þurfti að sigta á fremstu menn,
var KR-vörnin orðin svo þykk
fyrir, að færi urðu fá og slök.
Hreggviður Ágústsson er snjall
markvörður, en gæti orðið enn
betri ef hann tæki meiri völd í
vítateignum, léti heyra í sér og
væri ákveðnari. Hann lék vel og
flestir leikmanna FH gerðu góða
hluti annað slagið. Varamaðurinn
Sigurþór Þórólfsson bar þó af.
KR-liðið sýndi augljósar fram-
farir frá síðustu leikjum. Sýndu
leikmenn liðsins að þeir geta
ieikið knattspyrnu ef þeir bara
reyna. Sérstaklega var fyrri hálf-
leikurinn góður hjá liðinu, sá
síðari lakari. Hjá KR gilti það þó
oft, og reyndar hjá FH einnig, að
síðasta sendingin eftir góðan und-
irbúning, var oft miður góð og
þyrfti að vanda slíka hluti betur.
Elías var góður í fyrri hálfleik,
annars var KR-liðið jafnt með þá
Ottó og Börk þó sem sterkustu
menn í vörninni. Ottó sótti oft
fram í leiknum og var þá hættu-
legur, gaman væri að sjá hann
gera slíkt oftar.
í stuttu máli: íslandsmótið 1.
deild, FH:KR, 1-1 (0-0).
Mark FH: Sigurþór Þórólfsson á
75. mín.
Mark KR: Óskar Ingimundarson á
63. mín.
Áhorfendur: um 300.
Spjöld: Engin.
Dómari: Rafn Hjaltalín. — gg.
I Knattspyrna)
Elnkunnagjöfln
Glæsims
Skagam
ÍA GREIDDI Val annað högg á
höfuðið á skömmum tíma, er liðið
sigraði íslandsmeistara siðasta
árs með 2 mörkum gegn engu i 1.
deild íslandsmótsins i knatt-
spyrnu á Laugardalsvellinum á
sunnudagskvöldið. I íyrri umferð
mótsins sigraði Valur 4—0 á
Akranesi, en siðan hafa komið
tveir 2—0-ÍA-sigrar. Erfitt er að
meta hvort að sigur í A á sunnu-
daginn var sanngjarn, Valsmenn
léku áferðarfallegri knatt-
spyrnu, en bitlausa með öllu.
Skagamenn stórkarlalegri, en
markvissari. En bæði mega félög
þessl muna sinn fífil fegri hvað
varðar góða knattspyrnu, þvi það
er hlutur sem ekki var boðið upp
á að þessu sinni. Lokatölur urðu
sem fyrr segir 2—0, en staðan i
hálfleik var 0—0.
Fyrri hálfleikurinn var afar
tíðindalítill, tómt miðjuhnoð og
kýlingar fram og aftur. Um miðj-
an fyrri' hálfleikinn lifnaði þó
lítillega yfir hlutunum og voru
Skagamenn þá nærri því að skora.
Það var á 20. mínútu, að Magni
Pétursson missti knöttinn undir
sig og Júlíus Ingólfsson komst á